Morgunblaðið - 24.02.1985, Síða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1985
Ásmundur
Pálsson
bridgespilari
ístuttu spjalli
Hann heitir Ásmundur
Pálsson, er lögfræðingur
að mennt og starfsmaður
Sjóvá um margra ára bil.
Þó er Ásmundur senni-
lega betur þekktur sem
einn besti bridgespilari
landsins um áratuga skeið
en sem lögfræðingur eða
deildarstjóri hjá Sjóvá.
Hann hefur unnið alla
meiriháttar titla í íslensku
bridgelífi oftar en einu
sinni og oftar en tvisvar,
og spilað nokkuð reglu-
lega fyrir íslands hönd á
erlendum stórmótum frá
1960. Ásmundur er 57 ára
gamall, og segist varla
spila nokkuð núorðið, að-
eins þessi „föstu mót“,
sem ýmsum þykir allnokk-
uð, að meðaltali önnur
hver helgi og eitt kvöld í
miðri viku. En hver maður
hefur sinn mælikvarða, og
Ásmundur telur þetta
„ekki nándar nærri nóg“.
Hvenær byrja menn
að spila bridge? Það
fer eftir því hvað
maður kallar að
spila bridge" snýr
Ásmundur út úr þeirri spurn-
ingu hvenær hann fór fyrst að
fikta við spilið, en það kemur
upp úr kafinu að hann var aðeins
smápatti þegar hann kynntist
spilinu fyrt í heimahúsum.
„Nú, við strákarnir spiluðum
mikið i menntaskóla og á Gamla
Garði, þegar að því kom. Ég
kynntist Einari heitnum Þor-
Finnssyni á háskólaárunum, við
borðuðum oft saman og töluðum
um bridge. Það var góður skóli.
En keppnisbridge fór ég ekki að
spila fyrir alvöru fyrr en undir
1960. Spilafélagar mínir á þess-
um árum voru nokkrir, þeir
Indriði Pálsson, séra Þorleifur
Kristmundsson og Jóhann
Jónsson, eða Jói Sigló, en með
honum vann ég minn fyrsta titil.
Við Hjalti Elíason byrjuðum
aö spila saman haustið 1959 og
okkar samvinna stóð sleitulaust
í ein 18 ár, en báðir spiluðum við
þó mikið við Einar Þorfinnsson
inn á milli síðustu árin.“
Spilafélagi Ásmundar er nú
Karl Sigurhjartarson, forstjóri
Úrvals, og sveitarfélagar þeirra í
hinni sigursælu Úrvalssveit eru
Hjalti Elíasson, Örn Arnþórsson
og Guðlaugur R. Jóhannsson.
Þeir eru núverandi bikarmeist-
arar og BR-meistarar, en tókst
ekki að verja Reykjavíkurtitilinn
þetta árið, höfnuðu þar í öðru
sæti á eftir sveit Jóns Baldurs-
sonar.
— En Ásmundur, hvers vegna
spila menn bridge? Er þetta ekki
tímasóun og vitleysa?!
„Ætli maður hafi ekki bara
svona gaman af þessu! Það er
varla önnur skýring. En ég hef
aidrei litið á bridge sem tíma-
sóun og sé ekki eftir einni ein-
ustu mínútu sem ég ver við
spilaborðið. Og það stafar
kannski af því að bridge er svo
fjandi líkt lífinu sjálfu."
— Hvernig þá?
„Það eru sams konar ákvarð-
Ásmundur Pálsson við spilaborðið.
anir sem menn taka við bridge-
borðið og í lífinu, menn þurfa
iðulega að taka afstöðu án þess
að hafa nægar upplýsingar og
standa síðan eða falla með
henni. Svo má ekki gleyma því
að hvergi kynnist maður skap-
gerð manna betur en einmitt við
bridgeborðið."
— Hvaða eiginleika þurfa
menn að hafa til að verða góðir
bridgespilarar?
„Fyrst og fremst áhuga, held
ég-“
— Er það nóg?
„Já, fyrir flesta."
Antí-bridge
Ásmundur er ekki einn þeirra
manna sem halda nákvæmt
bókhald yfir afrek sín við
bridgeborðið — „mistökin eru
eftirminnilegri," segir hann, og á
þar marga skoðanabræður. En
eitt gott spil er Ásmundi þó
ofarlega í huga þegar á hann er
gengið. Það kom upp fyrir
nokkrum árum á móti hjá
Bridgefélagi Reykjavíkur og er
Ásmundi minnisstætt fyrir það
hversu undarlegt það er. „Ég hef
aldrei séð nokkuð þessu !íkt,
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ragnarsson
hvorki fyrr eða síðar," segir
Ásmundur, enda kallar hann
vinningsleiðina „antí-bridge“:
Vestur Norður ♦ KD4 ♦ ÁD4 ♦ K102 ♦ ÁK65 Austur
♦ 9763 ♦ Á1085
♦ 982 il ♦ G3
♦ G73 ♦ ÁD9
♦ G82 ♦ D973
Suður
♦ G2
♦ K10765
♦ 8754
♦ 104
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 grand Pass
Pl88 Dobl Pass 2 hjörtu
P«M 3 hjörtu Pl88 Pass Pass 4 hjörtu
Grandopnun austurs lofaði
12—14 punktum og N-S hefðu
orðið nokkuð sælir af þvi að sitja
í grandinu dobluðu eða spila 3
grönd, sem er einfaldur samn-
ingur. En þá hefði Ásmundur
heldur aldrei fengið tækifæri til
að vinna fjögur hjörtu með
glæsilegum „antí-bridge“.
Vestur spilaði út laufgosa, sem
var annað hvort þriðja eða
fimmta hæsta. Ásmundur drap á
ás og fór strax í spaðann. Austur
gaf fyrsta slaginn, en tók næst á
ásinn og spilaði þriðja spaðan-
um. Hver myndi trúa því að
óathuguðu máli að lykilspila-
mennskan á þessu stigi væri að
henda laufi heima, ekki tígli?!
Slita samganginn við blindan!
Lítum á hvernig Ásmundur
hugsaði spilið. Hann vissi auð-
vitað að austur hlaut að eiga tíg-
ulásinn fyrir opnun sinni. Og
hann taldi líklegt að spaðarnir
væru 4—4, úr því að vestur
hreyfði sig ekki úr grandinu. Og
útspil vesturs í laufi var senni-
lega frá þrílit, sem þýddi að
austur var með 4—4 í svörtu lit-
unum og 3—2 á annan hvorn
veginn í hjarta og tígli. Það var
til í dæminu að spila austur upp
á ásinn annan í tígli með því að
spila tvisvar smáum tígli, en
Ásmundur fann betri leið, sem
réð einnig við tvö hjörtu og þrjá
tígla á austurhendinni.
Inni á spaðanum í blindum,
trompaði hann lauf heim og tók
siðan kóng, ás og drottningu í
hjarta. Staðan áður en hann
spilaði hjartadrottningunni leit
þannig út:
Norður ♦ - ♦ D ♦ K102 ♦ K6
Vestur Austur
♦ 9 ♦ 10
♦ 9 il ♦ -
♦ G73 ♦ ÁD9
♦ G Suður ♦ - ♦ 107 ♦ 8754 ♦ - ♦ D9
Hverju á austur að kasta í
hjartadrottninguna? Ekki laufi,
svo mikið er víst, því þá verður
laufsexan tíundi slagurinn.
Spaða kannski? Ja, þá verður
honum spilað inn á lauf og hann
verður að gefa sagnhafa tíunda
slaginn á tígulkónginn í borðinu.
Það virðist því vera skást að
henda tígulníunni, og það var
reyndar það sem vestur gerði.
Ásmundur spilaði þá litlum
tígli, sem austur fékk á drottn-
inguna og spilaði spaða. Ás-
mundur trompaði, kastaði lauf-
sexunni úr borði og spilaði aftur
litlum tígli frá báðum höndum.
Austur átti ekkert nema lauf
eftir og láglitakóngarnir í borð-
inu fengu tvo siðustu slagina.
Nú fyrst skilst það almenni-
lega hvers vegna nauðsynlegt
var að kasta laufi undir þriðja
spaðann, en ekki tígli. Þá tapast
spilið á styttingi. Lítum sem
snöggvast á stöðuna sem kæmi
upp: Norður ♦ - ♦ D ♦ K102 ♦ 6
Vestur Austur
♦ 9 ♦ 10
♦ 9 llllll ♦ -
♦ G73 ♦ ÁD9
♦ - Suður ♦ - ♦ 106 ♦ 875 ♦ - ♦ D
Nú hefur austur efni á því að
kasta tígli í hjartadrottninguna,
því hann á tvö hæstu spilin í
svörtu litunum, getur notað ann-
að þeirra til að taka síðasta
trompið af suðri og hitt til að
innbyrða fjórða slag varnarinn-
ar.
Nei, austur gaf ekki spilið með
því að spila spaða til baka inni á
spaðaás. Það breytir engu þótt
hann spili laufi, því þá geymir
Ásmundur sér spaðavaldið þar
til hann hefur tekið þrjá efstu í
trompinu og kannað afköstin.
Iæsandinn getur leikið sér að því
dæmi ef hann nennir.
GPA
BRIDGE
er eins
og lífið sjálft
kólar í
nglandi
Meads School í Eastbourne er
mjög vandaður skóli í fallegu
umhverfi á suðurströnd Eng-
lands. Aðeins 85 mínútur í lest
til London. Búið hjá völdum fjöl-
skyldum. Námskeið fyrir full-
orðna, unglinga og börn.
Skemmtanir og íþróttir. Ferða-
lög um Suður-England til helstu
merkisstaða.
Næstu námskeið: 23. mars — 22.
júní (13 vikur).
Sumarnámskeið hefjast: 31. maí,
28. júní, 26. júlí og 23. ágúst.
Vönduðustu skólarnir.
Bessie, Sólvallagötu 28 (kl.
12—14 daglega).
Sími 25149.
Kork-o-Plast
Gólf-Gljái
Fyrir PVC-filmur, linoleum,
gúmmí, parket og steinflísar.
CC-Floor Polish 2000 gefur
endingargóða gljáhúð.
Notkun: Þvoið gólfið.
Berið CC-Floor Polish 2000
óþynnt á gólfið með svampi
eða rakri tusku.
Notið efnið sparlega en jafnt.
Látið þorna í 30 mín.
Á illa farið gólf þarf að bera
2—3svar á gólfið.
Til að viðhalda gljáanum er
nóg að setja í tappafylli af
CC-Floor Polish 2000 í venju-
lega vatnsfötu af volgu vatni.
Til að fjarlægja gljáann er
best að nota R-1000 þvotta-
efni frá sama framleiðanda.
Notið aldrei salmíak eða önn-
ur sterk sápuefni á Koik-o-
Plast.
Einkaumboó á ísland:
Þ. Þorgrímsson & Co„
Ármúla 16, Reykjavík, s. 38640.
í Kaupmannahöfn
F/EST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!