Morgunblaðið - 24.02.1985, Qupperneq 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1985
Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar á Broadway.
Fyrst kemur
vers,
svo kemur
viðlag
„Rúnar var bassaleikaralegastur af
vinunum."
á skemmtunum Ríó-tríósins, sem
notið hefur mikilla vinsælda á
Broadway að undanförnu. Sam-
starf þeirra Gunnars og Ríó-fé-
laga á sér þó lengri sögu:
„Samstarfið hófst með því að
þeir báðu mig að aðstoða sig við
plötugerð. Fyrst var það plata sem
tekin var upp á hljómleikum í Há-
skólabíói og síðan önnur sem tekin
var upp á lagernum í Fálkanum.
Við fórum svo saman í nokkurra
mánaða reisu um Bandaríkin, sem
var afskaplega góður tími og
skemmtilegur. Það er alltaf gam-
an að vinna með Ríó. Þeir eru allt-
af léttir og engin vandamál. Þetta
er allt tekið á bjartsýninni og það
skín í gegn, að þeir hafa svo inni-
lega gaman af því sem þeir eru að
gera að það smitar út frá sér. Þeir
hafa þá hæfileika, sem ekki allir
skemmtikraftar hafa, að vera
skemmtilegir og ná upp stemmn-
ingu, og það er skýringin á vel-
gengni þeirra.
Eitt það skemmtilegasta við
vinnuna í Broadway er að setja
upp svona stórsýningar og við
leggjum metnað okkar í að gera
þetta eins vel og mögulegt er. Það
er dýrt að setja upp svona sýn-
ingar en ég er viss um að þetta
skilar sér. Við viljum með þessu
skapa ákveðna hefð í íslensku
skemmtanalífi þar sem fyrst og
fremst er hugsað um gæðin. Það
hefur verið alltof mikið um það í
skemmtanabransanum hér, að
menn eru eingöngu að hugsa um
að græða sem mest með því að
leggja sem minnst í það sem þeir
eru að gera. Það hefur líka vantað
einhverja miðstöð hér, sem skipu-
leggur starf skemmtikrafta. Menn
koma úr hinum og þessum skúma-
skotum með þá einu hugsun að
reyna að græða." Gunnar verður
hugsi um stund en bætir síðan
glottandi við: „Það var mátulegt á
Alþýðuflokkinn að fá Áma.“
Eigum við nokkuð að tala um
„Lónlí Blú Bojs?
„Því ekki það. Ég skammast mín
ekkert fyrir „Lónlí Blú“. Þetta var
svona útvíkkuð mynd af Hljómum,
nema að í „Lónlí Blú Bojs“ gerðum
við okkur grein fyrir að við vorum
að gera skemmtimúsík. Eins var
það með „Lummurnar". Mér
finnst að slíkt eigi alveg eins rétt
á sér og hvað annað. Að gera
skemmtimúsík er ekkert til að
skammast sín fyrir, ef menn
leggja sig fram um að gera það
eins vel og þeir geta.“
ALLT ER
FERTUGUM FÆRT
Frá skemmtimúsíkinni vindum
við okkur snarlega yfir í lista-
mannalaunin, en Gunnar varð
þess heiðurs aðnjótandi árið 1975.
Ég spyr hvernig honum hafi orðið
við:
„Ég átti náttúrulega alls ekki
von á þessu, mér datt það hrein-
lega ekki í hug. En þetta var
ákveðin viðurkenning fyrir þenn-
an bransa sem ég var í, svona eins
konar yfirlýsing um að þetta væri
ekki allt saman tómt rusl. Hins
vegar læðist að manni sá grunur,
að þetta hafi verið til málamynda.
Það hefur að minnsta kosti lítið
verið gert af hálfu hins opinbera
til að styrkja þessa starfsemi, eins
og til dæmis plötugerð. Það er
alltaf verið að tala um að styrkja
íslenska kvikmyndagerð og að hún
geti orðið gjaldeyrisskapandi. Ég
er alveg viss um að útflutningur á
íslenskri tónlist gæti orðið það
líka ef rétt er á málum haldið.
Þessu hefur bara ekkert verið
sinnt.“
VIÐ BJOÐUM í SUMAR BEINT FLUG TIL
TVEGGJA FEGURSTU STAÐA ÍTALÍU.
ÍTALSKA RIVIERAN Á
Verð frá kr. 20.400.-
3 vikur A
ÍTALSKA RIVIERAN:
Vinsælasti ferðamannastaður Ítalíu. Mjög góð aðstaða til þess að
iðka sund, brettasiglingar, tennis, bocce og fleiri iþróttir. Fjöldi góðra
veitinga- og skemmtistaða, diskótek o.m.m.fl.
Fjölbreyttar skoðunarferðir, t.d. FLÓRENS, PÍSA, NICE, CANNES,
PORTOFINO, MONACO, MONTE CARLO, KORSÍKA o.fl.
GISTING í FYRSTA FLOKKS
ÍBUÐUM OG HÓTELUM.
NÝIR MJÖG ÁHUGAVERÐIR
SERSTAKLEGA HAGSTÆTT VERÐ
BERIÐ SAMAN OKKAR VERÐ OG ANNARRA
Hringið og fáið nánari upplysingar í síma 2 97 40 og 62 17 40
FERÐASKRIFSTOFAN
LAUGAVEGI 28, 101 REYKJAVIK.
GARDAVATN:
Allir róma fegurð Gardavatns. Þeir sem hrifist hafa af sumarhúsum
norðar í Evrópu kunna að meta aðstöðuna við Gardavatn. Kjörinn
staður til þess að hafa börnin með.
Fjölbreyttar skoðunarferðir, t.d.: FENEYJAR, ÓPERAN í VERONA,
FLÓRENS, INNSBRUCK í AUSTURRÍKI o.fl.