Morgunblaðið - 24.02.1985, Page 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1985
...... »■' fr..; .......(iM '*■ 1 ■1 *'í1
tí> fi;S
/7 <Áff
IRAUNIR RIKA FOLKSINS
Haugar af gulli og erf-
ingjarnir hundóánægðir
Fyfir 25 árum sendi Paul heit-
inn Getty, einn af æðstu að-
stoðarmonnum sínum til Miðaust-
urlanda, til einskismannslands á
mörkum Saudi Arabíu og og Kuw-
aits, og var erindið að innheimta
skuld hjá olíuauðugum fursta.
Aðstoðarmaðurinn sem var
raunar Gordon, yngsti sonur auð-
jöfursins, hafði hins vegar ekki er-
indi sem erfiði. Ökumaður hans,
sem var Arabi, klessti bílinn utani
olíuleiðslu og forðaði sér síðan á
burt en Gordon, sem þá var 24 ára,
féll í hendur manna furstans og var
settur í fangelsi. Getty gamli var
ekkert hrifinn af frammistöðu son-
ar síns en keypti hann þó lausan.
„Pabba fannst þetta mesti aum-
ingjaskapur," segir Gordon nú. „Þú
klúðraðir öllu, held ég það hafi
heitið hjá honum."
Getty treysti ekki syni sínum
fyrir öðru ábyrgðarstarfi og við
samstarfsmenn sína sagði hann, að
Gordon, sem hafði meiri áhuga á
óperusöng en olíu, væri „allt of
mikill draumóramaður".
Hvað sem þessu líður hafa örlög-
in hagað því svo skemmtilega, að
Gordon Peter Getty, sem er rétt
rúmlega fimmtugur, er nú eini um-
sjónarmaður Getty-eignanna,
sjóðs, sem hefur yfir að ráða fjór-
um milljörðum dollara, og hefur
tekið við af pabba sínum sem rík-
asti maður í Ameríku.
„Það var nú ekki alveg það, sem
vakti fyrir Getty gamla," segir
dómari nokkur í Los Angeles og
gamall vinur fjölskyldunnar. „Ég
er viss um, að hann hringsnýst í
gröfinni."
Hinir 19 erfingjar þess gamla
eru alveg á sama máli. Tveir bræð-
ur Gordons, þrjár frænkur og einn
frændi hafa höfðað mál á hendur
honum og vilja bola honum burt til
að tryggja sjálfum sér stærri sneið
af kökunni.
Gordon sjálfur, sem allur styrr-
inn stendur um, er hávaxinn maður
og hvers manns hugljúfi, dundar
sér við tónsmíðar og er mikill list-
vinur. Hann hefur litla reynslu af
viðskiptalífinu og játar það bros-
andi, að hann hafi meira gaman af
tónlistinni en að ráðskast með
mestu auðæfi í heimi. Tónlistar-
ástríða hans byrjaði þegar móðir
hans, Ann, sem skildi við Getty ár-
ið 1935 eftir tæplega þriggja ára
hjónaband, leigði sér hús í San
Francisco en meðal innanstokks-
munanna var gamalt Bluthner-
píanó. Gordon var ekki neitt
plagaður af samvistunum við for-
eldra sína. Hann sá föður sinn að
jafnaði þrisvar á ári, og móður
sína, sem bætti við öðrum þremur
eiginmönnum, litlu oftar. Hann
hafði því nógan tíma til að æfa sig.
Eftir Arabíuævintýrið settist hann
í tónlistarháskólann í San Franc-
isco og þar hitti hann konuefni sitt,
Ann Gilbert, fallega, rauðhærða
stúlku frá litlum fjallabæ í Kali-
forníu.
Líf þessara ríkustu hjóna í heimi
er skringileg blanda af óhófi og
auðmýkt. Frá húsinu þeirra uppi á
hæðinni, sem er í viktoríönskum
stíl, er stórkostlegt útsýni yfir
borgina en það er enginn bílskúr
við það. Jeppinn hans Gordons og
Porsche-bifreiðin hennar Ann eru
bara á götinni fyrir framan.
Þegar Gordon varð fimmtugur í
fyrra leigði Ann hluta af Metropol-
itan-safninu undir afmælisveisluna
og bauð 200 gestum. Uppihald og
ferðir voru greiddar fyrir þá, sem
áttu um langan veg að sækja, t.d.
þá, sem komu með Concorde frá
Evrópu, og sígaunahljómsveit var
sótt til Vínar. Isaac Stern lék á
fiðlu og Pavarotti var fenginn til að
syngja „Hann á afmæli í dag ..."
Ef einhverjum er um að kenna
ófriðurinn í Getty-fjölskyldunni þá
er það Getty sáluga sjálfum, sem
átti fimm syni með fimm konum á
fimmtán árum. Einn þeirra lést
barn að aldri en hinir hafa eldað
grátt silfur, dyggilega hvattir af
mæðrum sínum.
Þrjár sonardætur Gettys, Anne,
Clarie og Caroline, „Georgetturn-
ar“ eins og þær eru stundum kall-
aðar, ganga harðast fram í mála-
rekstrinum gegn „Gordon frænda"
en Eugene Paul, 52 ára gamall
bróðir Gordons, sem býr í London,
er miklu hófsamari og vill að annar
verði skipaður fjárhaldsmaður með
Gordon, krefst hann þess í nafni
sonarsonar síns, sem er fæddur ár-
ið 1968 og var skírður því ömúrlega
nafni Tara Gabriel Galaxy Gramo-
phone Getty.
Móðir Tara, smástirni að nafni
Talitha, lést af of stórum heróín-
skammti árið 1972. Ári síðar féll
elsti sonur Eugene Pauls frá fyrra
hjónabandi í hendur mannræn-
ingja og var annað eyrað skorið af
honum áður en fjölskyldan féllst á
að greiða lausnargjald. Seinna
sneri drengurinn, J. Paul Getty III,
sér að sterkum eiturlyfjum og fékk
heilablóðfall aðeins 28 ára gamall.
Hann er nú blindur og lamaður.
- WILLIAM SCOBIE.
BYSSUVALDIÐ: Hér hafa stjórnarhermenn stöðvað langferðabíl í leit
sinni að skæruliðum.
Daglegt líf í
Guatemala i
IGuatemala eru fréttir af ofbeld-
isverkum nánast daglegt brauð
og teljast fyrir vikið svo hvunn-
dagslegar að taki því naumast að
segja frá þeim. í lok janúar gat ti
dæmis að líta eftirfarandi smáfyr-
irsagnir í dagblöðum: „Kennari
finnst kyrktur" og „Þrír menn háls-
höggnir“. En ekki liggja pólitískar
ástæður að baki öllum morðum og
mannshvörfum. Sendifulltrúi frá
vestrænu ríki komst að raun um
það fyrir skömmu, að menn sem
verið hafa í lögreglunni og hafa enn
lögregluskilríki og rétt til að bera
skotvopn gerast á stundum leigu-
morðingjar. Téður sendifulltrúi átti
í einhverjum útistöðum við eigin-
konu sína. Honum brá heldur en
ekki í brún er bílstjóri hans, sem
var fyrrverandi lögregluforingi,
bauðst til að drepa hana fyrir þrjú
þúsund krónur. „Verðið á morðum
virðist ekki hafa hækkað þrátt fyrir
alla verðbólguna," voru viðbrögð
kunningja hans, bandarísks kaup-
sýslumanns, sem dvalizt hefur í
Guatemala árum saman.
En þrátt fyrir þetta á þorri
ofbeldisverka enn sem fyrr rætur
að rekja til stjórnmálaástandsins í
landinu. Herforingjastjórn fer nú
með völd, en hefur heitið því að
borgaralegri stjórn verði komið á
að nýju. Menn velta því nú fyrir sér,
hvort sú breyting muni lægja ófrið-
aröldurnar og binda endi á ofbeldis-
verkin.
Bandaríska sendiráðið í Guate-
mala hefur komizt að þeirri niður-
stöðu að 993 og þar af 565 óbreyttir
borgarar hafi látið lífið vegna póli-
tískra ofbeldisverka á síðastliðnu
ári. Þessar niðurstöður eru byggðar
á upplýsingum skæruliðahópa,
dagblaðafréttum og skýrslum frá
hernum. Þá hafa 425 manns horfið
sporlaust.
Aðrir vefengja þó þessar tölur.
Heimildarmenn í rómversk-kaþ-
ólsku kirkjunni fullyrða til dæmis
að a.m.k. fimm þúsund manns hafi
verið myrtir á síðasta ári.
Ekki er tilkynnt um öll þau morð
sem framin eru vegna þess að fólk
þorir ekki að snúa sér til yfirvalda,
enda telur það þau í mörgum tilvik-
um ábyrg fyrir verknaðinum.
Til dæmis þar um má nefna íbúa
bæjar nokkurs í Chimaltenango-
héraði skammt vestur af Guate-
mala-borg. Þar bjuggu um þrjú
þúsund manns en 10% þeirra hurfu
eða voru drepnir í kjölfar hrotta
fenginna aðgerða hersins til a
knésetja skæruliða á síðari helm
ingi ársins 1982. Síðan liðu tvö ár
friði og spekt, en síðastliðið haus
birtust sérþjálfaðar baráttusveiti
gegn skæruliðum.
„Þeir komu til að kanna ástand
ið,“ segir einn íbúanna. Skömmi
síðar fóru þorpsbúar hinsvegar a<
hverfa á nýjan leik. Þeir höfði
greinilega verið dregnir í dilka a
njósnasveitum leyniþjónustunnar.
Þeir sem eftir lifðu báðu þes
lengstra orða að ekki yrði gert upp
skátt um nöfn þeirra né þorpsins a
ótta við að þeir yrðu látnir sæt;
hefndaraðgerðum. Baráttumeni
mannréttindasamtaka upplýsa Uk;
að atvik af þessu tagi eigi sér of
stað í fjallahéruðum Guatemala ái
þess að það fréttist. Þetta eru af
skekkt héruð og landið erfitt yfir
ferðar og indíánarnir sem þarn:
búa hafa lært að bera harm sinn
hljóði.
Æðsti maður herforingjastjórn
arinnar, sem komst til valda I her
foringjabyltingu í ágúst 1983, heitii
Oscar Humberto Mejia Victores
Hann kennir glæpamönnum o(
skæruliðum um ofbeldisverkin sen
framin eru. Það mun rétt vera, ai
herinn er ekki ábyrgur fyrir fjölda
morðum í jafnmiklum mæli og fyrii
þremur árum. Sendiherra vestræm
ríkis í Guatemala sagði fyrii
skömmu, að herinn sýndist vera bú
inn að breyta um baráttuaðferð. Ni
væru fórnardýrin valin úr af meir
kostgæfni og vinnubrögðin „snyrti
legri“ en áður.
Ein afleiöing ofbeldisverkanna ei
sú að götur höfuðborgarinnar eri
nánast mannlausar eftir að skyggj:
tekur. Eins og sagt er á þessurr
stöðum: „Ef þú talar of hátt á veit-
ingastað, áttu á hættu að verð:
drepinn. En ef þú talar of lágt
verðurðu örugglega drepinn."
- PAUL ELLMAN
■VILLIMENNSKA
Arabísk prinsessa sem
húðstrýkti vinnukonur
sínar tvær með rafmagns-
snúrum og svipu, var fyrir
skemmstu dæmd í sex mánaða
skilorðsbundið fangelsi af
dómstóli í London og að auki
gert að greiða sem svarar um
23 þúsund krónum í sekt og 55
þúsund krónum í skaðabætur
til fórnarlamba sinna.
Prinsessan, sem er 31 árs, er
búsett í Kuwait, en dvelst ann-
að slagið í húseign sinni í
London. Vinnukonurnar sem
hún misþyrmdi eru á hinn
bóginn frá Sri Lanka og Ind-
landi, sú fyrrnefnda 26 ára og
starfssystir hennar fertug.
Dómarinn tjáði húsmóður
þeirra þegar hún hafði játað
verknaðinn að framkoma
hennar hefði verið „forkast-
anleg og jaðrað við villi-
mennsku".
Vinnukonurnar báru að
barsmíðarnar hefðu verið tíð-
ar og tilefnið einatt harla lítið.
Þannig gátu þær átt von á
hirtingu ef þeim varð það á að
Flagð bakvið
fínan titil
horfa út um gluggann eða
þóttu fara sér of hægt með
sópinn.
Saksóknarinn í málinu upp-
lýsti að tveir kaupmenn í
hverfinu hefðu komist að því
hvernig konurnar voru með-
höndlaðar. Þeir ákvaðu að
gera lögreglunni viðvart þegar
þeir sáu að sú yngri var með
brunasár á hendinni. Hún
sagði að prinsessan hefði
haldið hendi hennar yfir glóð-
heitri rafmagnshellu. Dómar-
anum var sýnd mynd af sárinu
sem og fleiri sem sýndu að
stúlkan hafði verið strýkt til
blóðs og ljósmynd af hinni
konunni sýndi hana með glóð-
arauga.
Þegar lögreglan leitaði í
húsi ákærðu fann hún mis-
langar rafmagnssnúrur, sen
notaðar höfðu verið við hýð
ingarnar, svipu og blóði stork
inn kjól, sem önnur kvenn
anna átti.
Við dómsuppkvaðningi
tjáði dómarinn prinsessunni„
Hér í landi erum við hætt ai
hafa vinnukonur, að ég ní
ekki tali um að misþyrm:
þeim. Þú mátt prísa þig sæla
Það munaði ekki nema hárs
breidd að þú hefðir unnið ti
tukthúsvistar."
— PAUL KEEL