Morgunblaðið - 24.02.1985, Blaðsíða 18
18 B
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1985
Ég verð með kynningu á
Stendahl-snyrtivörum á
morgun, mánudag, frá
kl. 13.00—18.00.
Dana
Hafnargötu 49,
Keflavík.
Bestu kveöjur
Yolande Keizer
sérfræöingur frá
Stendahl París
Fjöltefli í MÍR
Sovéski stórmeistarinn í skák, Artúr Júsúpov, veröur gestur
MÍR og teflir fjöltefli viö allt aö 25 manns í félagsheimilinu
Vatnsstig 10 mánudaginn 25. febrúar kl. 19.30. öllum áhuga-
mönnum er heimill ókeypis aögangur. Þeir sem vilja tefla viö
skákmeistarann hafi meö sér töfl. Æskilegt er aö menn tilkynni
þátttöku sína í síma 17928 milli kl. 14 og 16 í dag eöa á
morgun, mánudag, eftir ki. 17.
MÍR.
Rauöi kross íslands
efnir til námskeiös fyrir fólk sem hefur hug á aö
taka aö sér hjálparstörf erlendis á vegum félags-
ins.
Námskeiðið veröur haldiö í Munaðarnesi dagana
8.—14. apríl nk.
Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyröi sem sett
eru af Alþjóða Rauöa krossinum og RKÍ og eru
m.a.:
1. Lágmarksaldur 25 ár.
2. Góð menntun.
3. Góö enskukunnátta.
4. Gott heilsufar.
5. Reglusemi.
6. Nauðsynlegt er aö geta fariö til starfa með
stuttum fyrirvara ef til kemur.
Leiöbeinendur á námskeiöinu veröa frá Alþjóöa-
sambandi Rauöa kross félaga, Alþjóðaráöi Rauöa
krossins og Rauöa krossi íslands. Kennsla fer
fram á ensku.
Umsóknareyöublöö fást á skrifstofu RKÍ aö Nóa-
túni 21. Þar eru einnig gefnar nánari upplýsingar,
sími 26722.
Námskeiöiö er ókeypis en fæóis- og húsnæöis-
kostnaður er kr. 3.000 sem þátttakendur greiöa
sjáffir.
Umsóknum ber að skila fyrir 8. mars nk.
Rauði kross íslands
Ragnhildur Kristbjörg
Þorvarðsdóttir áttræð
Áttræð er í dag Ragnhildur
Kristbjörg Þorvarðsdóttir, hús-
freyja að Langholtsvegi 20 í
Reykjavík. Hún er fædd hinn 24.
febrúar árið 1905 að Stað í Súg-
andafirði. Foreldrar hennar voru
Þorvarður Brynjólfsson prestur á
Stað, f. 15. maí 1863, d. 9. maí 1925,
og kona hans, Anna Stefánsdóttir,
f. 25. okt. 1874, d. 5. mars 1960.
Séra Þorvarður hafði áður þjón-
að fríkirkjusöfnuðum á Austur-
landi en fékk Stað árið 1901. Hann
var sonur Brynjólfs Oddssonar
bókbindara í Reykjavík og á ísa-
firði og Rannveigar Ólafsdóttur
frá Kalastöðum á Hvalfjarðar-
strönd. Frú Anna, kona hans, var
dóttir Stefáns Péturssonar, prests
á Desjarmýri og Hjaltastað og
Ragnhildar Bjargar Metúsalems-
dóttur frá Möðrudal. Hún lauk
námi í Kvennaskólanum á Ytriey
á Skagaströnd og tveim árum
seinna, í september 1899, giftist
hún séra Þorvarði. Honum er svo
lýst að hann væri glaðsinna og hið
mesta ljúfmenni. Tók hann, og
þau hjónin bæði, ríkan þátt í fé-
lags- og menningarlífi Súgfirðinga
og nutu mikillar virðingar. Þótti
skarð fyrir skildi er séra Þorvarð-
ur dó úr blóðeitrun árið 1925.
Frú Anna lifði mann sinn nær-
fellt 35 ár og lést á 86. aldursári.
Hún mun hafa átt þrjú ár ólifuð
þegar ég sá hana fyrst. Þá var hún
enn hvatleg í hreyfingum og bein í
baki. Anna var góð kona og sam-
valin manni sínum en auk góð-
mennskunnar einkenndi hana
röggsemi og dugnaður. Hún var
einörð vel og ákveðin í skoðunum.
Ragnhildur tengdamóðir mín
erfði marga af bestu kostum for-
eldra sinna og hefur nýtt þá ágæta
vel, eins og sést af lífi hennar og
starfi. Hún þótti glæsilegur
kvenkostur, falleg og vel gefin og
var sett til mennta. Fyrst fór hún
í Kvennaskólann á Blönduósi en
síðan í Kennaraskólann og lauk
þaðan prófi árið 1925. Kennarafer-
ill hennar varð ekki langur, aðeins
einn vetur, er hún kenndi við
Unglingaskólann að Hesti í Borg-
arfirði, sem séra Eiríkur Alberts-
son stýrði. Næsta haust, hinn 3.
október 1926, giftist hún örnólfi
Valdimarssyni, kaupmanni og út-
gerðarmanni á Suðureyri (f. 5.
janúar 1893). örnólfur var þá ekk-
JT KAUPMENN-VERSLUNARSTJÓRAR
AVEXTIR
KUHNAk
Bananar Del Monte — Appelsinur Jaffa — Appelsínur
Maroc — Appelsínur PAX — Epli rauö USA INDEPEND-
ENT — Epli rauö USA — Epli rauð ungversk — Epli gul
— Epli græn Granny Smith — Sítrónur Jaffa — Greipfruit
Kýpur — Greipfruit rautt — Melónur Brasilía — Melónur
hvítar Jamaica, Vínber græn Cape — Vínber blá Cape —
Perur ítalskar — Plómur rauöar — Plómur gular —
Avocado — Kókoshnetur — Kiwi — Ferskjur — Nektar-
ínur — Ananas.
Einnig mikið úrval grænmetis á góöu veröi.
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, sími 685300.
ill. Fyrri kona hans, Finnborg
Kristjánsdóttir, lést úr spönsku
veikinni árið 1918 frá nýfæddri
dóttur þeirra, Finnborgu.
Ekki mun ofsögum sagt, að
heimili þeirra örnólfs og Ragn-
hildar hafi verið miðpunktur
mannlífs á Suðureyri um langt
skeið. Þótt örnólfur stundaði um-
fangsmikinn atvinnurekstur hlóð-
ust á hann fjölmörg trúnaðar-
störf. Má nefna að hann var 15 ár
oddviti hreppsnefndar, sýslu-
nefndarmaður lengi, formaður
skólanefndar á Suðureyri um
fjölda ára og formaður skóla-
nefndar Núpsskóla frá stofnun
hennar 1930 til 1945 er hann flutt-
ist með fjölskyldu sinni til
Reykjavíkur. Marga þræði fleiri
hafði Örnólfur I höndunum þó að
hér verði eigi rakið.
Það gefur augaleið að starf
Ragnhildar á hinu þekkta heimili
var geysilega umfangsmikið.
Þangað sótti fjöldi gesta, æðri sem
lægri, og margir þjóðkunnir menn
urðu ævivinir Örnólfs og Ragn-
hildar frá þeim dögum. Fjölskyld-
an varð og stór. Börn þeirra voru
níu er upp komust og öll nema
yngsta dóttirin fæddust á Suður-
eyri. Þau eru: Þorvarður, Anna,
Valdimar, Ingólfur óttarr, Arn-
björg Auður, Þórunn, Margrét,
Guðrún (Jlfhildur og Sigríður
Ásta. Eina dóttur, Guðrúnu,
misstu þau þriggja ára gamla.
Síðustu æviárin var Örnólfur
oft þjáður af hjartasjúkdómi sem
hann bar með karlmennsku.
Reyndi þetta mjög á Hildi, en
bæði nutu þess að eiga sér bjarg-
fasta Guðstrú. Óhætt er að segja
að skipst hafi á skin og skúrir i lífi
Hildar, en hún hefur ætíð verið
bjartsýn og trúuð á hið góða.
Aldrei hef ég heyrt hana hallmæla
nokkrum manni og hverju góðu
málefni fylgir hún fram eins og
kraftar leyfa.
í lok þessa greinarkorns vil ég
þakka þér, Hildur mín, samfylgd-
ina á liðnum árum og óska þér alls
hins besta. Eg veit að þeir eru ótal
margir sem þannig hugsa til þín,
með virðingu og hlýjum huga, nú á
þessum tímamótum.
Ég vil geta þess að lokum að
Ragnhildur er að heiman í dag.
Kristján Jóhannsson
Unglingakvöld
hjá KFUM & K
UNGLINGAKVÖLD i vegun
KFUM & K verða haldin í húsi fé-
laganna að Lyngheiði 21, Kópavogi,
nk. mánudags- og þriðjudagskvöld
kl. 20.30.
Af dagskráratriðum má nefna:
Rokk úr Keflavík, leiki og
skemmtan, sönghópur syngur og
leikrit út frá yfirskrift ungl-
ingakvöldanna, sem er „Jesús lif-
ir“.
Guðni Gunnarsson, starfsmaður
félaganna, flytur hugleiðingu bæði
kvöldin. Eftir eiginlega dagskrá
verður boðið upp á söngstofu,
rabbkrók og myndbandssýningu.
Sætaferðir verða frá öllum fé-
lagshúsum KFUM & K í Rvk. kl.
20.00 bæði kvöldin og til baka aft-
ur að lokinni samverustund.