Morgunblaðið - 24.02.1985, Qupperneq 25
M0RGUNBLAÐIÐ> SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1985
B 25
Þórir Jónsson ávarpar gesti.
Benedikt Gröndal sendiherra af-
hendir félaginu nýjan fundarhamar
að gjöf.
Gunnar Benediktason, raeóumaður
kvöldsins.
an forystumenn félagsins og voru
ósjaldan geröar samþykktir af
pólitískum toga, sem yfirleitt
gengu í vinstri átt. Peningamál
stúdenta voru iðulega til umræðu
á bernskuárum félagsins og eru
það reyndar enn í dag. í einni
fundargerð frá 1939 má lesa að
fundurinn skori á ríkisstjórn að
gera ráðstafanir til að bæta ís-
lenskum námsmönnum erlendis
upp þá erfiðleika, sem lækkun
krónunnar óhjákvæmilega hljóti
að baka þeim o.s.frv. Snemma fóru
því gengisfellingar fslensku krón-
unnar að leika ísl. stúdenta grátt.
í apríl 1945 beitti lslendingafé-
lagið sér fvrir matar- og fatasend-
ingum til Islendinga í Noregi, sem
þá voru farnir að líða skort vegna
stríðsins. Varð að ráði að íslend-
ingar í Stokkhólmi skutu saman
skömmtunarmiðum sínum til
vörukaupa.
Ekki fór félagið varhluta af um-
ræðunni um herstöðvamál og urðu
um það heitar umræður og deilur
innan félagsins er ollu úrsögn
flestra stjórnarmanna úr félaginu
þann 9. des. 1945.
Fyrstu árin voru flestar sam-
komur félagsins með formlegu
málfundarsniði en það breyttist
með árunum og tók á sig frjáls-
legri blæ. Formfesta var þó nokk-
ur á skemmtunum, þar sem ræður
voru ætíð haldnar undir borðum
og iðulega krafist samkvæmis-
klæðnaðar.
Eins og gengur með allt félags-
starf hefur starfsemin í kringum
þetta félag verið mismunandi
kraftmikil í gegnum árin. Fundar-
gerðir hafa seinni árin oft verið í
opinskáum stíl.
Eitt deilumál varð lífseigara en
öll önnur, en það var deilan um
heiti félagsins, sem stóð í 27 ár.
Félagið hét upphaflega Félag ís-
lenskra stúdenta í Stokkhólmi.
Tillaga um breytingu á því var
borin upp 1942 en var ekki sam-
þykkt í núverandi mynd fyrr en
1969. Margir heiðursfélagar hafa
verið kjörnir og að öðrum heið-
ursfélögum ólöstuðum ber nafn
dr. Sigurðar Þrarinssonar hæst.
Að sögn Jóns Daníelssonar hefði
verið hægt að skrifa heila bók um
störf Sigurðar í þágu félagsins.
Hér hefur aðeins verið stiklað á
stóru og mörgu sleppt sem e.t.v.
hefði átt heima í þessu stutta
söguágripi íslendingafélagsins.
Þeim sem áhuga hafa á að verða
sér út um þetta merka afmælisrit
félagsins, vil ég benda á að snúa
sér til Þóris Jónssonar, Rynke-
bysvángen 65/401, S-Stockholm.
Afmælishóf íslend-
ingafélagsins
Afmælishóf Islendingafélagsins
f Stokkhólmi var haldið á veit-
ingastaðnum Admiralen á Djur-
gárden (Stokkhólmi). Hóf þetta
var sérlega vel heppnað og þeim
sem að stóðu og gestum til hins
mesta sóma. Þar var saman kom-
inn samstilltur hópur íslendinga,
um 150 manns, sem var ákveðinn
að minnast þessara timamóta á
skemmtilegan og eftirminnilegan
hátt. Undirbúningur skemmtiat-
riða hefur greinilega verið gífur-
lega mikill og margar fúsar hend-
ur lagt þar hönd á plóginn.
Hófið hófst með ræðu formanns
íslendingafélagsins, Þóris Jóns-
sonar, en síðan tók veislustjóri
kvöldsins, Birgir Jakobsson, við og
stjórnaði borðhaldi og kynningu
skemmtiatriða. Var það samdóma
álit manna að Birgir hafi leyst
þetta vandasama verk skörulega
og vel af hendi.
Benedikt Gröndal, sendiherra,
hélt svo stutt og gamansamt
ávarp. Síðan söng Berglind
Bjarnadóttir, söngkona, nokkur
lög við frábærar undirtektir gesta.
Aðalræðu kvöldsins flutti Gunnar
Benediktsson og var góður rómur
gerður að ræðu hans. Haukur
Þorsteinsson, formaður Lands-
sambands íslendingafélaganna í
Svíþjóð, flutti stutt ávarp og
óskaði „afmælisbarninu" heilla.
Þá fluttu þeir Jakob S. Jónsson,
vísnasöngvari, og Jón Rafnsson,
bassaleikari, gamanvfsur, og var
þeim ákaft fagnað. Kórkvintett ís-
lendingafélagsins söng við góðar
undirtektir nokkur vel valin lög
undir stjórn Berglindar Bjarna-
dóttur. Hápunktur kvöldsins var
útnefning heiðursfélaga. Formað-
urinn, Þórir Jónsson, heiðraði þrjá
félaga, þau Áslaugu Skúladóttur
starfsmann f sendiráðinu, Hinrik
Guðmundsson, trésmið, og Hall-
dóru Briem, sem ekki gat verið
viðstödd.
Að lokum skemmtu ómar Ragn-
arsson og Haukur Heiðar af sinni
alkunnu snilld. Tókst Ómari svo
vel upp að haft var á orði að menn
mættu þakka fyrir að fara ekki úr
kjálkalið. Eitt er vfst að daginn
eftir voru margir með harðsperrur
i andlitsvöðvum enda samdóma
álit að ómar hafi farið á kostum
og tekist sérstaklega vel upp þetta
kvöld. Því næst var stiginn dans
fram eftir nóttu.
Framtak af þessu tagi er mjög
lofsvert og er mér kunnugt um að
allir veislugestir kunna stjórn ís-
lendingafélagsins undir forystu
Þóris Jónssonar hinar bestu þakk-
ir fyrir góða skemmtun.
Toto lítur
ekki um öxl
Hljóm-
plotur
Siguröur Sverrisson
Toto
Isolation
CBS/Steinar
Almennt voru menn þeirrar
skoðunar að félögunum í Toto
kæmi til með að reynast erfitt að
bæta um betur eftir að plata
þeirra, IV, kom út 1982. Eftir
rúmlega tveggja ára bið hafa þeir
sexmenningar sent frá sér nýja
plötu, sem ber nafnið Isolation.
Þótt það kunni að hljóma ótrúlega
er ég hreint ekki frá því að hún
standi IV enn framar.
Sú breyting hefur orðið á liðs-
skipan Toto frá því IV kom út, að
söngvarinn Bobby Kimball (hann
var „böstaður" fyrir að vera með
kókaín í fórum sínum) er ekki
lengur með og í hans stað kemur
Fergie Frederiksen. Sá hefur mjög
svipaða rödd og Kimball og verður
því ekki til þess að breyta Toto-
mynstrinu neitt. Þá hefur David
Hungate, bassaleikari, helst úr
lestinni og sæti hans tók þriðji
Porcaro-bróðirinn, Mike.
Þótt yfirbragð tónlistarinnar
hjá Toto sé um flest svipað því sem
var þá, eru lögin beittari, sem m.a.
stafar af kröftugri trommum og
meira áberandi gítarleik. „Sándið“
hefur líka verið hreinsað upp og er
ekki eins slípað og áður. Lögin eru
sem fyrr mjög sterk mörg hver,
sum hreinustu perlur, og eru þeim
eiginleikum gædd að hlusta þarf á
þau nokkrum sinnum til þess að
þau síist inn.
Fyrir vikið vinnur Isolation á við
hverja hlustun og eftir þá sjöttu
(þegar þessi dómur er skrifaður)
stendur hún í 4 stjörnum af 5
stjörnu-skali væri notaður. Hefur
unnið sig upp úr 2 við fyrstu og
aðra hlustun.
Vel má vera að mörgum þyki
ekki mikið til tónlistar Toto koma.
Hún er fáguð, hljóðfæraleikurinn
afbragðs og annað eftir því. Iðnað-
arrokk er þetta kallað og er
kannski ekkert annað. En það er
leikur einn að hafa af þvi gaman.
Bestu lög; flest.
Magnús Brynjólfsson, fréttarítari
Mbl í Uppsölum, SvfþjóÖ.
á konudaginn
i-MIOMLAVINITH
VIÐ MIKLATORG Hafnarstræti 3.