Morgunblaðið - 24.02.1985, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1985
B 29
100 ára afmæli skóla-
halds í Þingeyrarhreppi
Þingeyri.
GESTAKOMUR gerast tíðar í
Grunnskóla Þingeyrar. Á undanfórn-
um árum hafa foreldri barna þegiö, í
auknum mæli, boö skólastjóra, Hall-
gríms Sveinssonar, um að koma í
skólann og fylgjast meö námi barn-
anna. í haust komu aö venju náms-
stjórar i íslensku og stæröfræði, þær
Anna Skarphéðinsdóttir frá Bolung-
arvík og Ragnheiöur Gunnarsdóttir
frá ísafiröi. Síðar kom fræöslustjóri
Vestfjarða, Pétur Bjarnason, ásamt
sérkennslufulltrúa, Valborgu Odds-
dóttur og sálfræðingi.
Skólastjóri og kennarar
Grunnskólans á Flateyri komu í
kynnisferð i skólann í nóvember
þeirra erinda að skoða bókasafnið
og aðbúnað allan í skólanum. Ger-
um skólann heimilislegan er
„mottó“ skólastjóra og kennara og
hefur verið á undanförnum árum.
Nú eru 4 ár síðan flutt var í við-
byggingu gamla skólans og hefur
margt breyst á ekki lengri tíma.
Hreppsnefnd Þingeyrarhrepps
sýndi stórhug er skólinn var
stækkaður, engu minni stórhug en
forverar þeirra 1908, þegar skólinn
var byggður. Miklum fjármunum
hefur verið varið til þess að gera
skólann heimilislegan. Aukið og
bætt bókasafn er brennandi
áhugamál skólastjóra og að sögn
fræðslustjóra er þetta safn eina
skólabókasafnið á Vestfjörðum er
stendur undir nafni. Er það dugn-
aði og harðfylgi Hallgríms að
þakka ásamt skilningi þeirra er
með fjármál hreppsins fara. Þótt
safnið sé enn ekki mikið að vöxtum
borið saman við söfn í skólum
Reykjavíkur, er aðbúnaður hér
með ágætum og námið þar er þeg-
ar farið að skila árangri að dómi
okkar kennara. Börn og unglingar
orðnir áræðnari í öflun heimilda,
(og) kynning barnabókahöfunda
stendur nú yfir. Mjór er mikils vís-
ir segir máltækið og sannast það
hér.
Heimsóknir þessar hafa þó ekki
truflað skólastarfið og engin frí
hafa verið gefin vegna þeirra. Séra
Gunnar Björnsson og kona hans,
Ágústa Ágústsdóttir söngkona,
heimsóttu skólann fimmtudags-
morguninn 17. janúar og lék séra
Gunnar á selló fyrir eldri bekki
skólas. Einnig fræddi hann þau um
ýmislegt, s.s. hljóðfæri sitt, gildi
tónlistar og tónlistariðkunar.
Rabbaði hann við þau um þetta
o.fl. á léttan og auðskilinn hátt og
var þetta góð og gagnleg kennslu-
stund og ánægjuauki börnum og
kennurum. Slík heimsókn er
sannkallaður hvalreki, því hér er
„skarð fyrir skildi“. Skólann prýðir
„píanó", en lærður tónmennta-
kennari er enginn á staðnum.
Tómas Jónsson, fyrrverandi skóla-
stjóri, sem gerst hefur kennari á
nýjan leik við skólann, annast þó
kennslu í flautuleik og söng í
yngstu bekkjunum svo ekki ríkir
algert svartnætti í þeim efnum. Á
þessu ári minnumst við 100 ára af-
mælis skólahalds í Þingeyrar-
hreppi, en Matthías ólafsson fyrr-
verandi alþingismaður stofnaði
skóla sinn í Haukadal 1885 en
Þingeyrarskóli hóf göngu sína
1897.
Leyfi ég mér að birta hér staf-
rétta frétt úr blaðinu ísafold mið-
vikudaginn 2. desember 1885 er
segir frá upphafi skólahalds I
Haukadal ásamt ljóði Sighvats
Grímssonar Borgfirðings:
„Barnaskóli í Haukadal í Dýra-
firði. Skrifað að vestan 6. f.m.:
Laugardaginn var, 31. okt., var
vígður barnaskóli í Haukadal,
stórt og vandað og fagurt timbur-
hús, sem 4 menn í Haukadal, bú-
lausir allir, hafa byggt af eigin
efnum og stofna skólann. Andrjes
skipstjóri Pjetursson hefir sjálfur
lagt fram allan aðalkraptinn, og á
þó ekkert barn. Hann vinnur fyrir
aðra. Þar flutti síra Kristinn Daní-
elsson ræðu og aðra skólakennar-
inn Matthías Olafsson er lært hef-
ir á Möðruvöllum; ennfremur
mennta- og fræðimaðurinn Sig-
hvatur Grímsson Borgfirðingur, er
flutti þar einnig kvæði það, er hér
fer á eptir.
Slík höfðingsverk, sem skóla-
stofnun þessi, eru þess verð, að
þeim sje haldið á lofpi. Andrjes
þessi Pjetursson hefir auk þess
gefið nýlega Sandakirkju prýðilega
ljósahjálm, er kostaði nær 100 kr.,
ofan á aðrar gjafir til kirkjunnar
áður, sem hafa numið fleiri hundr-
uð krónum. Og þó er þetta vinnu-
maður og hjú annarra. Betur að
hann ætti sjer marga líka. Hjer
var ekki verið að hrópa í þing eða
landssjóð; en þessi orð Andrjesar
dugðu: „Barnaskólinn skal upp í“.
Það var orðið viðkvæði hans. Nú er
þar fastráðinn kennari í vetur, en
börnin líklega of fá, til að fá laun
kennarans, svo eigendur skólans
mega nú borga honum þar á ofan.
Enda er hjer nú versta árferði,
sem orðið getur fyrir fólk, að koma
börnunum fyrir, alveg kornlaust
Flateyri, Þingeyri og Bíldudal, <
engin fyrirsjón, að afstýrt ver
hungursdauða( ?)“
Áminnzt kvæði við vígslu barn
skólans er svo látandi:
Leiptri slær á ljósa vesturfjöru
lýsir bjarmi Glámu skalla frá.
Hver er sá sem hyggst að varna hörðu
hrímgum ströndum Dýrafjarðar á?
Drenglynt hjarta, dýrstu hjeraðsmanna
dáðarík og auðmild styrktar hönd;
ósjerplægni sjáum vjer þar sanna,
sem að losar vanþekkingar bönd.
Ótal þarfir orrar snauðu móður
afarmargir finna glöggt og sjá;
en að þekkja’ í þrautum vin og bróður,
það er optar torveldara’ að fá.
Hjer má sjá, að sannreynt göfuglyndi,
saman hefir krapta lagt og þor.
hús er byggt og búið út í skyndi,
barnanna að greiða framaspor.
Gninnskóli Þingeyrar
Synir íslands! Sjáið nú hvað stoðar,
sannur vilji til að stunda gott;
fram að austurfjöllum bjarmi roðar,
fegurstan er sýnir drengskapsvott.
Lyptið brúnum, börn, á þessum degi,
blæju sveiflið augum sljófgum frá;
horfið áfram óförnum að vegi,
upp til þess að líta framför á.
Þakkið, börn, og þakkið bjúgt af hjarta,
þeim sem vinnur ykkar kjörum bót,
mennta sólin brosir ljúf hin bjarta,
breiðir sina geisla yður mót.
Fetið því á framabraut í skyndi,
fljótt og vel, og sýnið andans þor;
nú er bæði auðlegð vís og yndi,
ef þið greiðið fram til námsins spor.“
Nálega 100 ár skilja hér á milli
frétta af skólahaldi í hreppnum og
svo sannarlega fátt sameiginlegt,
frekar hitt. Nú er verið að vinna að
útgáfu á sögu Haukadalsskólans
og er það við hæfi að þessa merka
framtaks sé minnst á afmælisári.
Þar fóru menn sem gerðu meiri
kröfu til sjálfra sín en annarra,
enda þeirra viðkvæði: Barnaskól-
inn skal upp.
Hulda
Miðað við aðicU' tohm; sem við þekkjum,
er einíaldast að læra á og nota Maeintosh
Þannig hljóðar niðurstaða blaða-
manns Consumer Reports, virtasta
neytendablaðs Bandaríkjanna.
Þegar hlutlausir aðilar taka svo til
orða, í tímariti sem ekki má vamm
sitt vita, þá er ljóst að umfjöllunar-
efnið er óvenjulegt.
Það er Macintosh sannarlega, eins
og marka má af niðurlagi greinar-
innar: „Macintosh sannar að Apple
hefur tekist að smíða tölvu sem er
geysilega fjölhæf og sérlega einföld
í notkun.“
Við í Radíóbúðinni erum harla
ánægð með þennan dóm. En eigin-
lega förum við hjá okkur að lesa
þessa hástemmdu lýsingu. Við
skiljum þó viðbrögð blaðamannsins
manna best. Því að þeir sem setjast
fyrir framan Macintosh í fyrsta sinn
verða hugfangnir. Þú hugsar: „Þetta
er tölva sem skilur mig.“ Eftir
klukkustund ertu farinn að vinna að
raunverulegum verkefnum og að
tveimur stundum liðnum eru Macin-
tosh og þú orðnir aldavinir.
Það er ekkert skrýtið þó blaða-
maður Consumer Reports hafi reynt
að líkja Macintosh við eitthvað ann-
að en tölvu. Hann fann bara ekki
nógu góð orð.
Skipholti 19, Reykjavik, S: 29800