Morgunblaðið - 24.02.1985, Síða 34
34 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1985
Cougar
norðursins
plotur
Siguröur Sverrisson
Bryan Adams
Reckiess
AM/Steinar
Þeir hafa kallað hann John
Cougar norðursins. Þeir, sem
vitnað er til, eru Bandaríkja-
menn og norðrið er í þessu tilviki
Kanada. Bryan Adams er mað-
urinn og samlíkingin við John
Cougar er hreint ekki svo vit-
laus. Ekki aðeins hafa þeir
kumpánar á stundum nauðalika
rödd heldur eru lög þeirra af
sama meiði.
Fremur lítil deili veit ég á
Adams þessum, en veit þó að
hann hefur átt a.m.k. fjögur lög,
sem náð hafa á Top-40 í Banda-
ríkjunum. Run to You heitir nýj-
asti smellurinn hans og það var
einmitt það lag, sem kveikti
áhuga minn á þessum kanadíska
rokkara. Það lag er þrusugott og
platan sjálf er í senn feikilega
áheyrileg og sannfærandi, þó að
því gefnu að menn hafi gaman af
rokki á borð við þetta, þ.e.
bandarísku millivigtarrokki.
Á plötu sinni nýtur Adams að-
stoðar manna, sem allir vita upp
á hár hvers krafist er af þeim, og
skila verki sínu óaðfinnanlega.
Það er kannski helst, að hljóð-
færaleikurinn sé stundum einum
of agaður en annað færi vart vel
í tónlist sem þessari.
Auk góðra hljóðfæraleikara
fær Adams Tinu Turner til þess
að syngja á móti sér í laginu It’s
Only Love, sem er eitt af bestu
lögum plötunnar ásamt Run to
You, Long Gone (sem er reyndar
ansi hreint líkt Bad Company-
lögunum mörgum hverjum), og
Heaven. Þar sýnir Adams á sér
spariraddböndin og er nauðalík-
ur Dan McCafferty, söngvara
Nazareth.
Svo mikið er víst, að vilji
menn ná sér í plötu, sem hægt er
að leika frá upphafi til enda án
þess að finna dauðan punkt þá er
Reckless gripurinn. Aðdáendur
bandarísks (kanadísks i þessu
tilviki, hvað með það) rokks ættu
að íhuga kaup á þessai skífu.
Hún er auranna fyllilega virði.
KAUPMANNASAMTÖK
ISLANDS
’A VE6VM
KAUFMANNASflMTAKA
^SIANÞS OQ
VEKZWNARSKÖIA
ÍSIANDS
tiZTST riMHTUDAGINN
WTTTAKA TILKVNNI5T I
SÍ M A
687811
Tannlæknastofa
Hef opnaö tannlækningastofu aö Borgartúni 33. Viö-
talstimi 8-19 virka daga og laugardaga 10-12.
Sími 25299.
Margrét María Þórðardóttir,
tannlæknir.
DAIO
Athugiö að panta hin vinsælu og
vönduðu DATO húsgögn tímanlega fyrir
fermingarnar. Sendum bæklinga ef óskað er.
DATO húsgögnin hafa verið valin
til sýningar hjá íslenskum húsbúnaði,
Langholtsvegi 111.
TOPPHÚSGÖGN
Smíðastofa EyjólfsEðvaldssonar
Bíldshöfða 14 Reykjavík, sími 687173