Morgunblaðið - 24.02.1985, Blaðsíða 40
40 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1985
Bjór er
Bindindisfélag Menntaskólans í
Reykjavík skrifar:
Mikið hefur að undanförnu
verið rætt og ritað um mjöð
þann er bjór er nefndur.
En nú teljum vér félagarnir í
Bindindisfélagi MR að tími sé til
kominn að taka af skarið og út-
kljá þetta langa og hatramma
þrætumál í eitt skipti fyrir öll.
Vér vitum jú öll há sem lág, um
þau ógrynni af heimabruggi sem
á boðstólum eru og hver hefur
ekki einhvern tímann stolist inn
á eitt af öldurhúsum þeim sem
rísa um borg og bí, örar en auga
allt sem þarf
fær á fest. Þar er boðið upp á
bjórlíki er líkist álíka mikið al-
vöru bjór og vatn líkist kóki.
Vér félagarnir gerum það að
tillögu vorri að hið snarasta
verði tekið fyrir ósómann og inn-
flutningur leyfður svo vér náum
að þroskast líkt og aðrar þjóðir
hafa gert frá örófi alda. Látum
allt kerlingavæl sem vind um
eyru þjóta, látum bjórinn renna
í ómældu magni. Víst er að það
mun gleðja margt dapurt hjart-
að. Vér félagarnir erum hluti af
þeim stóra hópi í þjóðfélagi voru
er á um sárt að binda þar eð vér
erum fátækir námsmenn og eig-
um því ekki kost á utanlands-
ferðum nema einu sinni til tvisv-
ar á ári. Ef innflutningur á um-
ræddum miði yrði leyfður liði
oss mun betur og sálarheill vorri
væri borgið um ókomna tíð.
Því skorum vér á þá menn er
nú eru í forsvari fyrir þjóð vora
að leyfa bjórinn og bjarga þann-
ig um leið fjölda ungmenna frá
því volæði og þeirri vosbúð er
bjórleysinu fylgir. Eitt sinn var
sagt: „Viljí er allt sem þarf“, nú
segjum vér:„Bjór er allt sem
þarf.“
j,V\b lokum cftir ■Fimm míníitur..
Ég óka 1 lána. þcr tcppi."
ást er ...
... ad gefa henni gjöf
án tilefnis
Með
morgunkaffinu
Það er ekki seinna vænna ad hann Ég er hrædd um aó rafhlaðan sé
fari að heiman, orðinn hálftíma tóm!
gamall!
HÖGNI HREKKVÍSI
1983
McNaught Synd.. Inc
VÉG SENDI HANN yFIR MEP f>AU SKILABOE).
HVOR.T H£GT V£Rl AE> MltOHKA HAVAÐANW "
Kór Langholtskirkju ásamt stjórnanda, Jóni Stefánssyni.
Hátíðarblær yfir söngnum
Kona úr Laugarneshverfinu skrif-
ar:
Ég vil þakka Jóni Stefánssyni
og kór Langholtskirkju fyrir frá-
bæra skemmtun í sjónvarpi. Ég
veit að ég tala fyrir munn ákaf-
lega margra og mér fannst ég setj-
ast með hátíðarblæ fyrir framan
sjónvarpið til að syngja með kórn-
um.
Mér finnst allof lítið um það að
fólk hafi hrósað þáttunum því ég
veit að svo margir eru ánægðir
með þá.
Þessir hringdu . . .
Top of The
Pops
í sjónvarpið
W'ham.'-aðdáandi hringdi:
Fram kom í dagblöðunum um
daginn að sjónvarpið hyggist
taka til sýningar þættina Top of
the Pops. Mæli ég með því að svo
verði gert, þættir þessir eru
mjög skemmtilegir og það eru
ábyggilega fleiri sem vildu sjá
þennan þátt. En það er eitt sem
ég vildi benda sjónvarpinu á að
nú er kominn tími til að sýndir
verði tónleikar með Wham! Það
er búið að sýna tvo með Duran
Duran og nú er komið að Wham!
Svo vil ég biðja Morgunblaðið að
birta mynd af Wham! og strákn-
um sem leikur aðalhlutverkið í
myndinni The Karate Kid.
Að lokum beini ég þeim til-
mælum til Skonrokks-umsjón-
armanna að þeir sýni gamla
Skonrokksþætti á hálfsmánað-
arfresti þegar þá skortir efni.
Ungmennin bráö-
vantar hjálp
Guðrún Jóhannsdóttir, Skipa-
sundi 82, hringdi:
Mig langar að koma hér að at-
hugasemd varðandi grein Krist-
ínar Jóhannsdóttur sem birtist í
Velvakanda laugardaginn 16.
febrúar undir fyrirsögninni
Margt óþarfara en kirkjuorgel.
Það athvarf fyrir unga fíkni-
efnaneytendur sem um er rætt
er hugsað sem bráðaaðhlynning
fyrir börn og unglinga sem í
óvitaskap sínum hafa ánetjast
eða eru að ánetiast fíkniefnum
og liggja frekar úti en að fara
heim til sín. Ástæður fyrir því
að þau þora eða vilja ekki fara
heim í svona ástandi geta verið
margar og misjafnar. Nokkur
börn og unglingar munu vera á
slikum vergangi hér í borg, sögð
gjarna hírast uppi í Öskjuhlíð að
næturlagi.
Ég mótmæli því algerlega að
þessi ungmenni séu kölluð vesal-
ingar sem bara vanti viljann til
að hjálpa sér. Þau bráðvantar
hjálp og það áður en fíkniefnin
eni búin að eyðileggja þau fyrir
lífstíð. Þau hafa ekki vit á því
hvað þau eru að ana út í og
okkur ber skylda til að gera
eitthvað í málinu á meðan enn er
unnt að hjálpa. Orgelsnill-
ingarnir hennar Kristínar geta
hjálpað sér sjálfir, þar þarf ekk-
ert nema viljann. Þó að þeir
gætu vafalaust spilað hjart-
næma tónlist við jarðarfarir
þessara ógæfusömu unglinga
þegar fíkniefnin hafa lagt þau að
velli ellegar þau orðið úti vegna
skorts á athvarfi fyrir þau.
Því segi ég: Stofnum athvarf
fyrir unga fíkniefnaneytendur
ekki seinna en strax. Það finnst
mér mun háleitara markmið og
kristilegri hugsunarháttur en að
byggja rándýrar kirkjur með til-
heyrandi rándýrum orgelum.
Það er meira en nóg af kirkjum í
Reykjavík.
Að ná úr ryöblettum
Kona utan af landi hringdi.
Mig langar svo mikið til að
fræðast um það hvernig hægt er
að ná ryðblettum úr fötum, sér-
staklega eftir smellur, rennilása
o.fl. Vonandi getur einhver gefið
mér gott ráð í þeim efnum.
Getur sjónvarpið svo ekki sýnt
gömlu framhaldsmyndirnar
fyrir krakka s.s. Emil í Katt-
holti, Línu langsokk o.fl.?
Mér fær Wham!-aódáandi birta mynd af strákunum í Wham! en
myndina af karate-stráknum áttum við hins vegar ekki.