Morgunblaðið - 24.02.1985, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1985
B t 41»
í 1 ^
VELVAKANDI
SVARAR f SfMA
10100 KL 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Hífrmáá
L) If
Hvers vegna lengri flugbraut?
Bréfritara finnst það furðulegt að lengja eigi fhigbrautina á Reykjavíkur-
flugvelli á sama tíma og flugvélaverksmiðjur eru að keppast við að smíða
flugvélar sem þarfnast stuttra flugbrauta.
Nýlega hefur flugmálastjóri
komið með þá tillögu að lengja
austur-vestur-flugbraut Reykja-
víkurflugvallar út í sjóinn í
Skerjafirði fram undan Ægisíðu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem
áþekk tillaga kemur fram, því að
fyrrverandi flugmálastjóri gekk
með þá hugmynd að færa flug-
brautina til, þannig að hún stefndi
ekki á suðurrætur Öskjuhlíðar,
heldur stefndi niður undir fjöru
Öskjuhlíðarmegin og upp á
Lynghaga að vestanverðu. Þá var
engin byggð á sunnanverðum
Högunum, og hefði aldrei orðið, ef
tillaga þessi hef-i náð fram að
ganga. Þá byggi borgarstjórinn
okkar ekki á Lynghaganum.
í þeirri umræðu, sem fram hef-
ur farið, hef ég ekki séð minnst á
aðalatriði málsins: hvers vegna
lengri flugbraut? Nú er vitað, að
austur-vestur-flugbrautin er
nægilega löng fyrir flugvélar þær,
sem notaðar eru í innanlandsflugi,
enda nota þær hana daglega, og
lenda og hefja sig til flugs á mun
styttri flugbrautum úti á landi. Og
þær flugvélartegundir sem Flug-
leiðamenn hafa rætt um að kaupa
til endurnýjunar á Fokker-vélun-
um, geta notaö miklu styttri
flugbrautir, enda er það einn aðal-
kostur þeirra. Ein þessara fram-
tíðarflugvéla hefur undanfarið
verið hér á landi við tilraunir, og
er hún fjögurra hreyfla miðlungs-
stór þota, sem fór létt með að nota
flugbrautina á Egilsstöðum, og
lenti hér á Reykjavíkurflugvelli á
austur-vestur-flugbrautinni hinn
10. þ.m. Hún virtist ekki þurfa
nema um helming þeirrar braut-
arlengdar, sem Fokker-flugvél-
arnar nota. Þessi vél er ensk, en
Kanadamenn hafa líka komið
hingað og sýnt Flugleiðamönnum
flugvél, sem til greina kemur fyrir
innanlandsflugið, og hefur þessi
vél einnig hlotið athygli fyrir það,
hve stuttar flugbrautir hún þarf.
Með tilliti til þessa, er tillaga
flugmálastjóra út í hött, nema
eitthvað annað búi að baki. Það
skyldi þó ekki vera, að hann hugs-
aði sér Reykjavíkurflugvöll sem
varaflugvöll fyrir þotur? Hvað
skyldi nú þetta ævintýri eiga að
kosta? Skyldi þetta verða arðbær
fjárfesting? Ætli landsmenn hafi
ekki nóg með að borga Saltverk-
smiðjuna og Kröflu?
Annað vandamál, sem mjög
tengist flugvellinum, er hávaðinn,
sem margir borgarbúar verða
stöðugt að þola. í Morgunblaðinu
frá 6. ágúst 1980 er frétt sem heit-
ir „Næturflug takmarkað um
Reykjavíkurflugvöir. Þar er haft
eftir Birgi ísleifi Gunnarssyni að
takmarkanir næturflugs séu „til-
komnar vegna endurtekinna
kvartana borgaryfirvalda við flug-
málayfirvöld yfir óþarfa hávaða
við völlinn á nóttum". Sagt er í
fréttinni, að Flugráð hafi ákveðið,
að flugtak sé ekki leyft að nætur-
lagi (nema fyrir sjúkra- og neyð-
arflug) og að lendingar þota og
fjögurra hreyfla véla séu heldur
ekki leyfðar (nema Keflavíkur-
flugvöllur sé iokaður eða um neyð
sé að ræða). Afrit af bréfi Flugr-
áðs til Samgönguráðuneytisins um
þetta efni var lagt fyrir borgarráð
5. ágúst 1980. Nú vill svo til, að
það er hægt að sjá, hvernig yfir-
völd á Reykjavíkurflugvelli brugð-
ust við, einmitt í ágústmánuði
1980, er blekið á bréfi Flugráðs
Af bjórnum
Ingþór Sigurbjörnsson skrifar:
Er ekki lífsframtíð unglinganna
meira virði en peningar augna-
bliksins?
Reynast tökin ráðherranna
í reyndinni ekki nokkuð stór,
ef þeir gengi unglinganna
ætla að selja fyrir bjór.
var rétt þornað. Dagana 21.—29.
ágúst 1980 mældi Heilbrigðiseft-
irlit ríkisins hávaða frá Reykja-
víkurflugvelli dag og nótt (sjá „Rit
Heilbrigðiseftirlits ríkisins" nr.
1/1981). í ljós kom, að næturhá-
vaðinn var á bilinu 44—60 desibel,
en viðmiðunarmörk í öðrum lönd-
um eru víða 40—45 desibel. Skyldi
þessi mikli næturhávaði hafa all-
ur verið vegna sjúkra- eða neyðar-
flugs, eða skyldi Keflavíkurvöllur
hafa verið lokaður á þessum tíma?
Yfir daginn mældist hávaðinn
63—69 desibel, en viðmiðunar-
mörk í öðrum löndum eru víðast
hvar talin 45—55 desibel. Þessar
mælingar benda ekki til, að yfir-
völd á Reykjavíkurflugvelli hafi
farið mikið eftir fyrirmælum
Flugráðs, a.m.k. ekki hvað varðar
næturflugið.
í fyrrgreindri skýrslu er þess
sérstaklega getið, að „kvartanir
íbúa beindust m.a. að stöðugu yf-
irsveimi æfinga- og kennsluflug-
véla, sérstaklega um helgar og
utan vinnutíma fólks". Er alveg
furðulegt, að yfirvöld á Reykjavík-
ursvæðinu skuli láta þetta mikla
hringsól smávéla afskiptalaust yf-
ir höfðinu á meirihluta lands-
manna. Slíkt myndi hvergi annars
staðar vera liðið. Hver ber ábyrgð,
ef ein þessara smárellna fellur
niður yfir bæinn og veldur eigna-
og líftjóni? Geta þessir menn ekki
hringsólað yfir Faxaflóa, þá valda
þeir ekki tjóni nema á sjálfum sér,
ef illa tekst til? Það er tími kom-
inn til, að borgarráð semji reglur
um flugumferð yfir borgarland-
inu. Það gera yfirvöld víða annars
staðar, og er þess skemmst að
minnast, er borgaryfirvöld í New
York gáfu Flugleiðum undanþágu
til lendinga þar, til skamms tíma
þó.
Þótt Reykjavíkurflugvöllur
verði sjálfsagt ekki lagður niður í
náinni framtíð, verður að huga að
ýmsu og minnka hávaðann. Alveg
er stórfurðulegt, ef nú á aða fara
að lengja flugbraut á sama tíma
og flugvélaverksmiðjur eru að
keppast við að smíða flugvélar,
sem þarfnast stuttra flugbrauta.
Kunnugur
Vfsa vikunnar
Ég hef aðdáun á honum Jóni,
hann er einskonar Stjórnmála-Skjóni
sem er lagður á brokk
og þarf að bera sinn flokk
og mér finnst ekki furða að hann
prjóni.
Hákur
I EmhgUI frmmlotgiMlMCjóra hg« m«t
Persónuleg aðför
flokksformanns
— segir mju í bókun framkvæmdastjór-
ans, sem gekk af skrifstofu sinni daginn
eftir ákvörðun framkvæmdastjórnar
FR£M
TÖLVUSKÓLI
TÖLVUNÁMSKEIÐ
Einkatölvur og
stýrikerfiö MS-DOS
Markmiö námskeiösins er aö veita þátttakendum
þekkingu á uppbyggingu og möguleikum einkatölva
og stýrikerfisins MS-DOS. Fariö er m.a. í eftirfarandi
atriöi:
* Uppbygging og sérstaöa einkatölva.
* Notkunarmöguleikar einkatölva.
* Notendahugbúnaöur fyrir einkatölvur.
* Skipulagning og uppsetning geymslumiöla.
* Helstu skipanir og mögulegar aögeröir í MS-DOS.
* Uppbygging og möguleikar skipanaskráa.
* Útprentun og meöhöndlun ólíkra prentara.
* Afritataka og meöhöndlun afrita.
* Æskileg umgengni og meöferö tölvubúnaöar.
Innritun og nánari upplýsingar fást í síma 39566, frá
kl. 10:00 til 18:00.
Hinir fjölmörgu nemendur okkar eru okkar bestu
meömælendur.
TÖLVUNÁM ER FJÁRFESTING í FRAMTÍÐ ÞINNI.
TÖLVUSKÓLINN FRAMSÝN, SÍÐUMÚLA 27, 108
REYKJAVÍK. S: 39566.
Brúðarskór
og fermingarskór
Örlítið brot af úrvalinu í hvítum
skóm. Yfir tug tegunda. Ef myndin
er ófuilnægjandi, viljum við benda á
að sjón er sögu ríkari.
Allir úr ekta skinni, margar hæla-
hæðir og leðursólar.
Verð frá 1.395.- — 3.380.-
Domus Medica.
S. 18519.