Morgunblaðið - 24.02.1985, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1985
B 43
Fljótlega veröur myndin Hótel New Hamshire tekin til sýninga í
Regnboganum. Margir kveikja eflaust ó nafninu, því myndin ber heiti
metsölubókarinnar e. John Irwing, sem hún er gerð eftir. Var hún á
metsölubókalista The NY Times röskt hálft ár, og hefur lengi prýtt
hillur bókaverslana hér í borg.
Hótel New Hampshire segir frá
merkilegri fjölskyldu. í upphafi er
fjölskyldufaöirinn, Win Berry (Beau
Bridges), kennari viö skóia í New
Hampshire, en aösóknin dregst
saman meö hverju árinu. Þar kem-
ur aö hann ákveöur aö kaupa
skólahúsiö og breyta í hótel. Þar
meö kemur fyrsta Hótel New
Hampshire til sögunnar.
Reksturinn gengur rysjótt. Og
Þegar boð kemur frá gömlum fjöl-
skylduvin, sem rekur afdankaö
hótel í Vínarborg, ákveöur Win, í
samráöi viö fjölskylduna, aö taka
viö rekstri þess. Þá er komiö aö
Hótel New Hampshire nr. II.
Ekki komast allir heilu og höldnu
til Vinar, því móöirin og yngsta
barniö farast á leiöinni. Eftirlifandi
fjölskyldumeölimir reyna aö hressa
uppá imynd hótelsins, sem aö
mestu er byggt hórkonum og
hryöjuverkamönnum. Og „björn-
inn“ Susie (Nastassia Kinski) bæt-
ist í fjölskylduhópinn.
En þetta samkrull endar meö
heljarinnar miklum ósköpum og
aftur er haldiö til Bandaríkjanna.
Þar kaupir fjölskyldan aö lokum
gamalt og niðurnýtt lúxushótel —
þar sem Win og kona hans voru á
sokkabandsárunum — og upp rís
Hótel New Hampshire nr. III.
Sagan er sögö meö sérstöku
skopskyni. Yfirboröiö er harla
fyndiö, sögupersónurnar hinn
sundurleitasti hópur furöufugla
sem bundnir eru einlægum, sterk-
um fjölskylduböndum. En undir
niöri blundar alvaran og kald-
hæönin.
Persónurnar eru svo litríkar og
margbrotnar aö best er viö hæfi
að berja þær augum. En meö aö-
alhlutverkin fer álitlegur hópur
leikara; Jodie Foster, Beau Bridg-
es, Rob Lowe, Nastassia Kinski,
Wilford Brimley, Paui McCrane og
Jennifer Dundas.
Leikstjóri er Tony Richardson,
sem virtist vera aö ná sér á strik aö
nýju meö næstu mynd sinni á und-
an þessari, The Border.
Hótel New Hampshire, sem
frumsýnd var á fyrri hluta síöasta
árs, er sögö trú bókinni, og því
geta aðdáendur Johns Irwing átt
von á betri kvikmyndagerð en i
myndinni The World According to
Garp.
S.V.
Stórleikarinn Dustin
Hoffman í 8 hlutverkum
Lítíö hefur heyrst frá Dustin
Hoffman síðan hann lák í Tootsie
sælla minninga. Nema hvaö hann
hefur aö undanförnu leikiö Wolly
Loman í „Sölumaður deyr“ eftir
Arthur Miller á Broadway. En nú
hefur Dustin hugsaö sér til hreyf-
ings og er þegar byrjaöur aö
plana næstu myndir.
Lengi stóö til aö Dustin léki í
„The Yellow Jersey“ sem hinn
óheppni Michael Cimino ætlaöi aö
gera. Sú mynd fjallar um hjólreiöa-
keppni í Frakklandi. Cimino geröi
Hjartarbanann (The Deer Hunter)
en fjármálamenn í Hollywood eru
litiö hrifnir af Cimino eftir aö hann
geröi Heaven’s Gate áriö 1981.
Dustin Hoffman ætlar aö leika
sama leikinn og Sir Alec Guinn-
íss geröi í „Kind Hearts and Cor-
onets". Þessa sígildu mynd er
hægt aö fá hjá nokkrum mynd-
bandaleigum.
Þess í staö ætlar Dustin að leika
í mynd sem nefnist „Kind Hearts
and Coronets“, en þaö mun vera
endurgerð á þrjátíu og fimm ára
gamalli mynd meö Sir Alec Guinn-
ess.
Þaö var Robert Hamer sem
gerði þessa mynd á vegum Eal-
ing-kvikmyndaversins breska,
byggö á bók eftir Roy Horniman.
Þaö óvenjulega viö þessa mynd er
aö Guiness lék hvorki fleiri né færri
en átta hlutverk í henni, og ætlar
Dustin Hoffman sér aö leika þaö
eftir. Sjö af þessum átta hlutverk-
um eru karlhlutverk á mismunandi
aldri, frá ungum kvennabósa upp i
aldurhniginn hershöföingja; eitt
hlutverkið er öldruö kona og ætti
Dustin ekki aö veröa í vandræöum
meö þaö eftir alla æfinguna sem
hann fékk viö gerö Tootsie.
I nýju útgáfunni kemur myndin
til með aö heita „The Real Thing“
og á þaö ekkert skylt viö kókakóla
þótt Columbia fjármagni myndina.
Leikstjóri veröur Sydney Pollock,
en hann leikstýröi Dustin einnig í
Tootsie
HJÓ
Mest sóttu
kvikmyndir
frá upphafi
An
1982
1977
1983
1980
1975
1984
1981
1984
1978
1982
1973
1972
1978
1980
1965
1984
1973
1939
1977
1978
1982
1981
1981
1979
1977
1980
1975
1980
1984
1979
1976
1973
1982
1982
1978
1975
1978
1983
1970
Síðastliðinn sunnudag birtist
listi yfir 25 mest sóttu kvik-
myndir ársins 1984. Nú birtist
listi yfir nokkrar mest sóttu
myndir frá upphafi.
Millj.
Titill dalir
E.T. The Extra-Terrestrial .............. $209,9
Star Wars ................................ 193,5
Return of the Jedi ....................... 165,5
The Empire Strikes Back .................. 141,6
Jaws ..................................... 129,9
Ghostbusters ............................. 127,0
Raiders of the Lost Ark .................. 115,5
Indiana Jones and the Temple of Doom ... 109,0
Grease .................................... 96,3
Tootsie ................................... 95,1
The Exorcist ............................ 89,0
The Godfather ............................. 86,2
Superman .................................. 82,8
Close Encounters of the Third Kind ........ 82,7
The Sound of Music ...................... 79,7
Gremlins .................................. 78,5
TheSting .................................. 78,1
Gone With the Wind ........................ 76,7
Saturday Night Fever ...................... 74,1
National Lampoon’s Animal House ........... 70,7
Rocky III ................................ 65,8
Superman II ............................... 65,1
On Golden Pond ............................ 63,9
Kramer Vs. Kramer ......................... 59,9
Smokey and the Bandit ..................... 59,8
Nine to Five .............................. 59,1
One Flew Over the Cuckoo’s Nest ........... 59,2
Stir Crazy ................................ 58,3
Beverly Hills Cop ......................... 58,0
Star Trek ................................. 56,0
Rocky ..................................... 55,9
American Graffiti ......................... 55,6
An Officer and a Gentleman ................ 55,2
Porky's ................................... 54,0
Jaws II ................................... 52,4
The Towering Inferno ...................... 52,0
Every Which Way But Loose ................. 51,9
Terms of Endearment ....................... 50,2
Love Story ................................ 50,0
Vinsælasta myndin, ET eftir Spielberg. En ef upphæðirnar eru
framreiknaöar, þá reynizt „Gone With the Wind“ vera langvinsæl-
asta myndin, því seinni tíma myndir hafa veröbólguna í lið meö
sér.
Bjöminn State-O-Maine og þjálfari hans, furöufuglinn Freud, koma viö sögu myndarinnar The Hotel New
Hampshire, sem væntanleg er í Regnbogann. Hér sjást þeir leika listir sínar fyrir utan hóteliö sem síöar
veröur Hotel New Hampshire III.
Þrjú hótel nefnd
„New Hampshire“