Morgunblaðið - 27.02.1985, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIRUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985
35
Áttum von á vel-
vild opinberra aðila
— segir Tryggvi Magnússon markaðstjóri Slippfélagsins
Fyrirtækið fær ekki leyfi til að dreifa
bæklingi um skaðsemi sniffs í skólana
SLIPPFÉLAGIÐ í Reykjavík hefur nýlega sett á markað lím sem ekki
hefur að geyma lífræn leysiefni og er því ekki hægt að komast í vímu af
að þefa af því.
Tryggvi Magnússon markaðs-
stjóri Slippfélagsins sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að fyrir-
tækið hefði byrjað að leita fyrir
sér með framleiðslu á leysiefna-
fríu lími eftir að mikil umræða
um þessi mál hófst hér á landi
þegar ungur piltur varð fyrir
miklu andlegu og líkamlegu
tjóni af völdum sniffs.
Slippfélagið hóf síðan sam-
starf við breska fyrirtækið Uni-
Bond, sem framleiðir leysiefna-
fritt lím, og hóf framleiðslu und-
ir merki þess.
Fyrirtæki þetta gekkst fyrir
miklum áróðri gegn sniffi i
heimalandi sínu í samvinnu við
ýmsar heilbrigðisstofnanir,
skóla o.fl. Gefin voru út bækling-
ur og veggspjald með upplýsing-
um um skaðsemi sniffs og var
þessu alls staðar vel tekið.
„Okkur langaði til að gera
kynningu á sama hátt og gert
var í Bretlandi og áttum von á að
fá velvilja hlutaðeigandi opin-
berra aðila hér á landi,“ sagði
Tryggvi. „f trausti þess létum við
útbúa bækling í 35.000 eintökum
og 1.500 veggspjöld og greiddum
við allan kostnað sem þessu
fylgdi, en prentunarkostnaður-
inn var um 200.000 krónur. f
bæklingnum og á veggspjaldinu
koma fyrst og fremst fram upp-
lýsingar um hættuna samfara
sniffi, en ekki um efnið sem við
framleiðum. Á veggspjaldinu er
aðeins merkið UniBond og aftan
á bæklingnum stendur „Sniff
frítt UniBond. Framleiðandi
Slippfélagið í Reykjavík hf...
Við hófum viðræður viþ
menntamálaráðuneytið og land-
læknisembættið um samvinnu
við að dreifa þessu í skólana, en
fengum neikvæðar undirtektir.
Landlæknir treysti sér ekki til
að leggja nafn embættisins við
áróður, sem einkafyrirtæki
stæði straum af. f menntamála-
ráðuneytinu var talið að ekki
væri rétt að taka þátt í þessu,
bæði vegna þess að hér væri um
einkafyrirtæki að ræða og að
með þessum áróðri væri verið að
draga út eitt ákveðið vímuefni.
Þeir vildu að tekin yrði upp
fræðsla á skaðsemi allra vímu-
gjafa.
Við höfum aldrei óskað eftir
þvi að þessir aðilar tækju þátt í
kostnaðinum við þetta. Við ósk-
uðum eingöngu eftir stuðningi
þessara aðila við að dreifa upp-
lýsingunum til barna og ungl-
inga sem eru í þessum áhættu-
hópi.“
Tryggvi sagði að Slippfélagið
ER HÆTTULEGT
HEILSU PINNI
Forsíða beklingsins, sem Slippfélag-
ið í Reykjavík befur látið útbúa.
hefði hins vegar átt mjög gott
samstarf við Félagsmálastofnun
og Æskulýðsráð og liggja bækl-
ingar frammi á samkomustöðum
unglinga sem eru á þeirra veg-
um. Einnig hefur Slippfélagið
dreift bæklingum til þeirra sem
selja vörur fyrirtækisins.
Fjölbreytt myndlist-
arsýning á Húsavík
Háaavfk, 26. febniar.
SÉRSTÆÐUR listviðburður verður
á Húsavík um næstu helgi þegar
samsýning (sölusýning) yfir 50 lista-
manna hefst í Safnahúsinu. Sýning-
in stendur frá 1. til 4. mars.
Margir af þekktustu lista-
mönnum þjóðarinnar eiga þar
verk, sem seld verða til styrktar
sumarbúðum ÆSK við Vest-
mannsvatn. Á sýningunni verða
olíu- og akrylmálverk, vatnslita-
og pastelmyndir, grafík, högg-
myndir, ljósmyndir og fleira.
Það er Gunnar Rafn Jónsson
læknir, sem á hugmyndina að
þessari fjársöfnun og hefur haft
forgöngu um framkvæmd hennar.
Á skólaárum sínum var hann um
tíma forstöðumaður sumarbúð-
anna. Við Vestmannsvatn hafa nú
verið starfræktar sumarbúðir í 20
ár, svo eðlilegt er að þar sé þörf á
ýmsum endurbótum og viðaukum.
Allir sem hér hafa lagt hönd að
verki hafa sýnt ungu fólki virð-
ingu og stuðning á svonefndu ári
æskunnar.
— (Fréttaritari.)
Bíóhöllin sýnir „Heim-
komu njósnarans“
BÍÓHÖLLIN hefur hafið sýningar á
nýjustu mynd Terence Young, Heim-
koma njósnarans.
Efni myndarinnar er á þá leið
að Philip Kimberly (Michael
Caine) var dyggur föðurlandi sínu
og var í bresku leyniþjónustunni.
Árið 1974 flýr hann yfir til Rúss-
lands, en skilur eftir mikilvæg
gögn í Bretlandi. KGB-leyniþjón-
ustan sér leik á borði og nú er
öllum brögðum beitt til að komast
yfir hin mikilvægu skjöl.
Aðalhlutverk eru í höndum úr-
valsleikaranna Michael Caine,
Laurence Olivier, Susan George og
Robert Powell. Leikstjóri er Ter-
ence Young. (FrétUUIkjrnnÍBK)
Ingólfur Arnarson, Kóbert Guðfinns-
útgeröarfrKðing- son, útgerðartækn-
ur, framkvemda- ir, aðstoðar-
stjóri l>ormóðs framkvrmdastjóri
ramma hf. á Siglu- Þormóðs ramma
firði. hf.
Nýir
stjórnendur
Þormóðs
ramma hf.
NÝTT skipulag verður tekið upp hjá
útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækinu
Þormóði ramma hf. á Siglufirði á
fostudaginn, þ. 1. mars.
Nýr framkvæmdastjóri hefur
verið ráðinn, Ingólfur Arnarson,
sjávarútvegsfræðingur. Aðal-
verksvið Ingólfs verður á sviði
fjármála, markaðsmála auk stýr-
ingar á veiðum og vinnslu. Hann
er 29 ára og lauk prófi í sjávarút-
vegsfræðum frá háskólanum f
Tromsa í Noregi 1984.
Þá hefur Róbert Guðfinnsson,
núverandi framleiðslustjóri, verið
ráðinn aðstoðarframkvæmda-
stjóri. Hann mun hafa með hönd-
um stjórn á allri framleiðslu og
umsjón með rekstri togara fyrir-
tækisins. Jafnframt verður hann
staðgengill framkvæmdastjóra.
Róbert er 27 ára og lauk prófi frá
Stýrimannaskólanum í Vest-
mannaeyjum 1979 og síðan í út-
gerðartækni frá Tækniskóla Is-
lands 1981.
Núverandi framkvæmdastjóri
Þormóðs ramma hf., Einar
Sveinsson, mun láta af störfum i
lok mars og hefja þá störf hjá
Sjólastöðinni hf. í Hafnarfirði.
Kvennadeild Rvd.
Rauöa kross íslands
Fræöslu- og kynningarfundur
fyrir væntanlega sjúkravini veröur haldinn fimmtu-
daginn 7. marz kl. 20.00 í Múlabæ, Ármúla 34.
Þátttaka tilkynnist í sölubúðum eöa bókasöfnum
sjúkrahúsanna eöa í síma 28222 á skrifstofunni
Öldugötu 4.
Stjórnin.
Snjóbíll til sölu
Til sölu Kássbohrer-snjóbíll 1982 meö dísil-mótor. Bíll-
inn er allur vökvaknúinn. Sæti fyrir 10.
Bílasala Alla Rúts, sími 81666.
r>Dale .
Larnegie
námskeiÖið
Kynningarfundur verður haldinn í kvöld,
miðvikudaginn 27. febrúar kl. 20:30 að
Síðumúla 35, uppi.
Allir velkomnir.
Námskeiðið getur hjálpaö þér:
★ Aö öölast meiri trú á sjálfan þig og
hæfileika þína.
★ Aö byggja upp jákvæöara viöhorf
gagnvart lífinu.
★ Aö ná betri samvinnu viö starfsfélaga,
fjölskyldu og vini.
★ Aö þjálfa minniö á nöfn, andlit og staö-
reyndir.
★ Aö ná betra valdi á sjálfum þér í ræöu-
mennsku.
★ Aö eiga auöveldara meö aö hitta nýtt
fólk og mæta nýjum verkefnum.
★ Aö veröa hæfari í því aö fá örvandi
samvinnu frá öörum.
★ Aö ná meira valdi yfir áhyggjum og
kvíöa í daglegu lífi.
★ Aö meta eigin hæfileika og setja þér
ný, persónuleg markmiö.
★ Carnegie-námskeiöin eru kennd í 62
löndum og metin til háskólanáms í
Bandaríkjunum. Fjárfesting í menntun
skilar þér aröi ævilangt.
82411
Einkaleyfi á Islandi
STJÓRNUNARSKÓLINN
Konráö Adolphsson