Morgunblaðið - 28.02.1985, Page 1

Morgunblaðið - 28.02.1985, Page 1
72SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 49. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Pr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri: Dollarinn fallið hvað eftir annað en jafnan náð sér „ÉG HELD að það sé ekki hægt að draga miklar ilyktanir af þessu, því það hefur kumið fyrir hvað eftir annað að dollarinn hafi lækkað límabundið, en síðan náð sínum styrkleika fljótlega aftur. Enn er ekki hægt að segja að þetta sýni neina breytingu frá þeirri þróun sem verið hefur að undanfornu,“ sagði dr. Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri í samtali við Morgunblaðið, er hann var spurður hvað hann teldi mikla lækkun dollarans gagnvart vestur- þýska markinu og enska pundinu hefði í för með sér. Seðlabankar um alla Vestur- Evrópu gripu í dag til sérstakra aðgerða til að stemma stigu við síhækkandi gengi Bandaríkjadoll- ars gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Höfðu aðgerðirnar þau áhrif, að gengi dollars hrapaði talsvert og er gjaldeyrisstofnanir tokuðu var gengi dollars hið lægsta í heila viku, en dollarinn hefur sett met gagnvart öðrum gjaldmiðlum, fleiri eða færri, 16 af 18 viðskipta- dögum þessa mánaðar. Sjá nánar frétt á bls. 28. Ráðherra segir verkfalli lokið LoiidúauRi, 27. tebniu. AP. „VERKFALLINU er lokið, komið ykkur aftur til vinnu sem enn þráist við og framleiðum kol til útflutnings, því fyrr sem þessi ömurlega deila heyrir fortíðinni til, því betra," sagði Peter Walker, orkumálaráðherra Bretlands í dag, en þá tilkynnti Kola- Flugræningj- ar gáfust upp Vínarbore 27. febrúar. AP. TVEIR ungir Sýrlendingar rændu í dag farþegaþotu af Boeing 727-gerð í eigu vestur-þýska flugfélagsins Lufthansa. 43 menn voni um borð, 5 manna áhöfn og farþegar. Þotan var í áætlunarflugi frá Frankfurt til Damascus í Sýrlandi en lenti í Vínarborg í Austurríki. Seint í kvöld gáfust ræningjarnir upp, en nokkru áður höfðu þeir sleppt öllum farþegum þotunnar. Þeir höfðu beðið um hæli sem póli- tískir flóttamenn i Austurríki en vestur-þýsk yfirvöld höfðu gert þá landræka og voru þeir á leið heim, nauðugir. námufélagið, að meira en helmingur kolanámumanna væru mættir til vinnu, mesti fjöldi frá upphafi verk- fallsins. Arthur Scargill, leiðtogi kola- námumanna viðurkenndi að ein- hverjir námamenn hefðu haldið aftur til vinnu, en sagði tölur kola- námufélagsins „hreinar lygar", 80 prósent þeirra sem hófu verkfallið væru enn „tryggir". Talsmaður kolanámufélagsins sagði að 1.218 námamenn til við- bótar hefðu mætt til vinnu á morgunvakt í dag og þar með væru næstum 94.000 af 186.064 kola- námumönnum við vinnu. Alls hefðu 5.308 manns snúið aftur til vinnu á mánudag og þriðjudag. Peter Walker sagði jafnframt, að stjórnvöld litu svo á að um leið og helmingur námamanna væri far- inn að vinna á nýjan leik væri verkfallið runnið út í sandinn. Walker sagði þetta i samtali við BBC og í sama fréttatíma var við- tal við Scargill. Þar sagði hann töl- ur kolanámufélagsins „hugarburð" og að hvernig sem málinu lyktaði stæði verkfallið uppi sem „minn- isvarði um hetjulegustu og hörð- ustu baráttu fólks fyrr og síðar". AP/Símamynd Sovéskur risakafbátur í norðurhöfum Myndin er af risastórum sovéskum eldflauga-kafbáti af „Typhoon“-gerð í Barentshafi. I>etta er ný tegund kafbáta og er hún 25.000 lestir að stærð. Þetta eru stærstu kafbátar sem smíðaðir hafa verið, þrisvar sinnum stærri en hinir bresku „Polaris" og 6.000 lestum heldur en hinir bandarísku „Trident". „Typhoon“-kafbátarnir eru vopnaðir langdrægum kjarnorkueldflaugum og er talið að Sovétmenn eigi nú þegar þrjá slíka kafbáta. Allir eru þeir taldir vera í norðurhöfum, en „Typhoon“-bátarnir geta leynst í hvaða hafi sem er og samt valið hvaða skotmark sem er á jörðinni. Ame Treholt: Dregur Evensen inn í málsvörnina OhIó. 27. febrúor. Frí Klisabetu Jonasdottur, fréttaritara Mbl. ÞAÐ VAKTI mikla athygli í réttar- höldunum í dag þegar Arne Treholt skýrði frá viðbrögðum Jens Even- sens, fyrrum hafréttarráðherra, við handtöku Gunvör Galtung Haavik árið 1977. „Evensen tjáði mér, að hann liti á tímasetningu handtök- unnar sem hreina ögrun af hálfu CIA og norsku leyniþjónustunnar,“ sagði Treholt. Dómsformaður bað Treholt um Grænland: Danskur róðrarklúbbur lengi haft eins fána (■renlandi, 27. febrúnr. Frá Nils J. Bruun, fretUr. Mbl. GR/ENLENDINGAR hafa fengið sinn eiginn fána, en nú hefur komið í Ijós, að nákvæmlega eins fáni er til fyrir, ekki þjóðfáni, heldur félagsfáni róðrarfélags í Árósum í Danmörku. Róðrarfélagið hefur sent græn- lenska landsþinginu eintak af fána sínum og Jónatan Motzfeld formaður landstjórnarinnar sýndi landsþinginu fánann í dag, og staðfesti þar með að Grænland og danskur róðraklúbbur hafa nú al- veg eins fána. Þetta gaf andstæðingum rauða og hvíta fánans byr undir báða vængi, en það kemur þeim þó að engu haldi, því komið hefur í Ijós, að fáninn sem einnig kom til greina og andstæðingar rauða og hvíta fánans hafa viljað frekar, eða hvítur kross á grænum grunni, er einnig til. Slíkan fána nota byltingarsinnar í Puerto Rico. En þrátt fyrir tilvist hins rauða og hvíta fána róðrarfélagsins, samþykkti meirihluti landsþings- ins að halda tryggð við fánann, þrátt fyrir að sérfræðingar hafi kallað hann ófrumlega blöndu af japanska og pólska fánanum og með slíkum fána skeri Græn- lendingar sig frá Norðurlöndun- um sem öll hafa hvíta krossinn í fána sínum. Verdens Gnng/Simamynd ARNETREHOLT undirbýr sig fyrir málsvörnina í upphafi dags og blaðar í pappírum. að endurtaka þessa setningu og gerði hann það en bætti því svo við, að verið gæti, að hann myndi þetta ekki alveg rétt. Sagði Tre- holt, að á þessum tíma hefði mikil spenna verið í norskum innanrík- ismálum og að Evensen hefði verið óánægður með, að honum skyldi ekki nógsamlega þakkaður árang- urinn, sem náðist í samningavið- ræðunum við Sovétmenn um haf- réttarmál. Treholt sagði, að vegna þessarar óánægju Evensens og vegna af- stöðu hans til handtöku Gunvör G. Haavik, hefði hann ákveðið að segja Evensen ekki frá því, að hann hefði sjálfur verið búinn að eiga marga fundi með Gennady Titov áður en Gunvör var hand- tekin og samband hennar við Titov kom í Ijós. „Samband okkar Evensens var eins og föður og son- ar og ég vildi ekki valda honum vandræðum. Eftir á að hyggja sé ég, að það var rangt að láta hann ekki vita," sagði Treholt. Fyrr í dag sagði Treholt frá því, að Sovétmaðurinn Gennady Titov hefði beðið hann um að hafa aldrei simasamband við sig í sendiráð- inu, og einnig, að hann skrifaði það aldrei í minnisbókina þegar þær ættu fundi saman. Lars Quigstad, saksóknari, skýrði frá því I dag, að Jens Ev- ensen, sem nú er dómari við Al- þjóðadómstólinn í Haag, yrði kall- aður fyrir sem vitni síðar. Sjá nánar á bls. 29.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.