Morgunblaðið - 28.02.1985, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985
23
Þráður orðsins
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Rimma
Texti og teikningar:
Bjarni Bernhardur Bjarnason.
ÍJtgáfa höfundar 1984.
í Rimmu kennir margra grasa.
í ekki stærra kveri eru sögur,
ljóð, hugleiðingar, ritgerðir.
Bjarni Bernharður Bjarnason
hefur hingað til sent frá sér ljóð,
en nú er hin ljóðræna tjáning
honum ekki nægjanleg.
Eftir Rimmu að dæma telst
ljóðagerðin enn sterkasta hlið
Bjarna Bernharðs, en samt hefur
hún aldrei verið veigaminni en í
þessari bók. Bjarni Bernharður
gerist nú spámannlegur, boðar
endalok heimsins og þar með fall
mannsins. Eitt skásta sýnishorn-
ið er Reiði guðs:
Guð almáttugur í reiði sinni
— vegna þess að líf jarðarinnar
er barmafullt af hatri, öfund og grimmd
mun hann senda hersveitir himnanna
til að granda öllum þjóðum heims
— brenna akra og skóga
þurrka upp vötnin og uppnema allan sjó.
Deyða líf hvar sem það finnst
— rífa hjartað úr sérhverjum manni
því það er hjarta haturs, öfundar og
grimmdar
og kasta því út í ystu myrkur.
Ekki getur þetta kallast frum-
legt. En þegar Bjarni Bernharð-
ur nálgast að vera frumlegur
verður myndmálið of ruglings-
legt. Á þessu bar nokkuð í bók
sem Bjarni Bernharður gaf líka
út í fyrra, en nú er þetta einkenni
til meiri skaða.
í ljóði eins og Inn i sal dauðans
þar sem ort er um fingralangt
sólskin eru til dæmis góðir part-
ar, en ljóðið er ofhlaðið og verður
þess vegna áhrifaminna en það
hefði getað orðið. Bjarna Bern-
harði lætur að þessu sinni illa að
vinna úr hugmyndum sínum.
Þorpið er til dæmis ekki fjarri
því að vera raunsæileg smásaga
um alþekkt efni, skáld og samfé-
lag, en ekki tekst að koma boð-
Bjarni Bernharður Bjarnason
skapnum til skila á fullgildan
hátt. Höfundurinn missir þráð-
inn úr höndum sér. Nefna mætti
fleiri slík dæmi í Rimmu.
Hún nálgast það að vera gilt
ádeiluljóð um konu sem fórnar
sér fyrir þak yfir höfuðið með
prjónaskap og skúringum. En
besta dæmið um skáldskaparvið-
leitni Bjarna Bernharðs er ofur-
einfalt og heitir bara Ljóð:
I
upphafi
var Orðið
Það óf
þráð milli myrkurs
og ljóss
— í vef þann
sem kallast Lífið
Myndir Bjarna Bernharðs
minna á það sem helst háir hon-
um sem skáldi.
hogstœtt verð
Kalt boið og snittur
fyrir fermingarnar:
Bjóðum úrvals kalt borð og snittur
Úrvals matvara:
Kryddleginn lambaframpartur, úrb. . kr.kg. 253,00
Reykt folaldakjöt ........ kr.kg. 145,00
Hangiframpartur, úrbeinaður. kr.kg. 290,00
Kalt borð
fyrir manninn
Kaffisnittur
pr. stk.
4Sa-
Folaldahakk...................... kr.kg.
Perur, niðursoðnar .............. Vi ds.
Blandaðir ávextir, niðursoðnir... Vi ds.
Bulgar jarðarber................. Vi ds.
Coop tekex ...................... 200 gr.
Hrökkbrauð ..................... 125 gr.
^23• - WC pappír.................. 12 ro.
96,00
49.90
64,55
69.90
14,60
14,30
99.90
Málningartilboð:
frá Hörpu
Hvítt 4 I. dósir ... .53Í- 385.-
Ljósir litir 4 I. dósir 420.-
■■
Vðrukynning:
Sanitas hf. kynnir framleiðslu sína:
Gos - Sultur - Saft - Avaxtasafar
- Tómatsósa
JXL
/VIIKLIG4RDUR
MIKIÐ FYRIR LJTIÐ