Morgunblaðið - 28.02.1985, Side 30

Morgunblaðið - 28.02.1985, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985 Iwo Jima l^ess var nýlega minnzt að 40 ár eru sídan orrustan á Iwo Jima á Kyrrahafi var háð. Nokkur hundruð gamlir bandarískir og japanskir hermenn og ættingjar komu þá saman á eynni. Afhjúpað var minnismerki um orrustuna, einhverja þá blóðugustu sem háð var á Kyrrahafsvígstöðvunum í síðari heimsstyrjöldinni. Á mynd- inni sjást Edward J. Moraniec frá Connecticut með lítinn bandariskan fána og Isao Oshima frá Japan með fána japanska sjóhersins. HöfuÖpaurar Mafíunnar í greipum réttvísinnar WaHhington, 27. febrúar. Al\ FIMM menn, sem taldir eru vera höfuöpaurarnir í bandarísku Mafíunni, hafa verið handteknir og ákærðir fyrir að hafa skipulagt morð, fjárkúgun og fjársvik. „Stjórnendur áhrifamestu glæpasamtaka Bandaríkjanna hafa verið færðir í hendur réttvísinnar," sagði William Webster, yfirmaður alríkislög- reglunnar, FBI, þegar frá þessum tíðindum haföi verið greint í morgun. Flugvirkjar hjá Pan Am hóta að gera verkfall New York, 27. febrúar. AP. FLUGVIKKJAR hjá Pan American- flugfélaginu hafa hótað að fara í verkfall í þessari viku. Sagði John Kerrigan, leiðtogi flugdeildar TWU, Sambands flutningaverkamanna, í gær, þriðjudag, að verkfallið mundi lama starfsemi félagsins, þar eð af- lýsa þyrfti 400 ferðum dag hvern. TWU hefur átt í linnulausum viðræðum við Pan Am í gær og dag í því skyni að semja fyrir hönd 5.800 flugvirkja, afgreiðslu- manna, burðarmanna og fram- reiðslufólks, áður en verkfallið skellur á. Flugvirkjarnir hafa hót- að að leggja niður vinnu kl. 12.01 á hádegi (5.01 að ísl. tíma) á morg- un, fimmtudag. Talsmenn Pan Am vildu ekkert láta hafa eftir sér um málið í gær, en félagið á í viðræðum við fimm stéttarfélög um kjör samtals um 19.000 starfsmanna. Aðeins TWU hefur boðað verkfall. Bandaríkin: „Þetta er slæmur dagur, senni- lega hinn versti sem nokkru sinni hefur runnið upp í sögu Mafíunn- ar,“ sagði Rudolph Giuliani sak- sóknari. „Aldrei fyrr hafa jafn margir höfuðpaurar samtakanna verið ákærðir samtímis." Auk fimmmenninganna eru fjórir aðr- ir menn, sem taldir eru tilheyra Mafíunni, ákærðir. Fimmmenningar, sem sagðir eru leiðtogar fjögurra „Mafíu- fjölskyldna", en svo nefnast glæpahóparnir, heita Anthony Salerno, Paul Castellano, Anthony Corallo, Gennaro Langella og Phillip Rastelli. Því er spáð að í kjölfar handtak- anna komi til mikillar valdabar- áttu innan „Mafíufjölskyldn- anna“. Bandarísk yfirvöld hafa látið í ljós von um að fréttirnar af hand- töku höfuðpauranna muni hvetja fjölda manns, sem orðið hefur fyrir barðinu á giæpaverkum Mafíunnar, til að aðstoða lögregl- una. „Nú er stundin runnin upp, sem þetta fólk hefur beðið eftir," sagði Steven Trott, aðstoðar- dómsmálaráðherra Bandaríkj- anna, í dag og hvatti fórnarlömb Mafíunnar til að hjálpa lögregl- unni við að uppræta samtökin. Skæruliðar Polisario: Skutu niður vestur-þýska flutningavél Algeirsborg, 27. febrúar. AP. SKÆRULIÐAK Polisario-fylkingar- innar segjast hafa skotið niður vestur-þýska flutningavél í Dakhla- héraði í vesturhluta Sahara á sunnu- daginn. Flugmálayfirvöld í Lanzarote á Kanaríeyjum greindu frá því 24. febrúar sl., að þau hefðu misst samband við vestur-þýska tví- þekju af gerðinni Dornier D228, sem var á leið til Lanzarote eftir vísindaleiðangur til Suðurskauts- landsins, er hún var á flugi yfir vesturhluta Sahara. Þriggja daga leit að vélinni hefur engan árang- ur borið. í yfirlýsingu Polisario segir, að allir um borð í vélinni hafi látið lífið, en ekki er upplýst hverjir það voru eða hve margir. Enn fremur segir, að vestur-þýska vél- in hafi verið óþekkjanleg frá eftir- litsvélum, sem herir Marokkó- stjórnar noti. Er allri ábyrgð á at- vikinu lýst á hendur stjórnarinn- ar. Skæruliðar Polisario hafa í ára- tug barist fyrir sjálfstæði Dakhla, sem Marokkóstjórn innlimaði 1975. Þeir hafa sett á stofn Arab- íska alþýðulýðveldið í Sahara, sem 61 ríki hefur viðurkennt. 108 víet- namskir hermenn flýja Hangkok, 27. febrúar. AP. RÚMLEGA eitt hundrað víet- namskir hermenn hafa hlaupist undan merkjum og beðið um hæli í Thailandi að undanfornu. Hafa víetnömsku hermenn- irnir tekið þátt í bardögum við kambódíska skæruliða í vest- urhluta Kambódíu frá því þurrkatíðin hófst í nóvember sl. Fregnir þessar eru hafðar eftir Chettha Thanajaro, sem er háttsettur ofursti í Thai- landsher, og yfirmaður herafl- ands við austurlandamæri Thailands. „Það bætast nýir flóttamenn við daglega," sagði hann. Eru þeir flestir frá suð- urhluta Víetnam. Chettha sagði að 108 víet- namskir hermenn hefðu flúið af vígvellinum í þessari þurrkatíð og hafa flóttamenn- irnir aldrei verið fleiri í einni þurrkatíð frá því Víetnamar réðust inn í Kambódíu 1978. Hafa víetnömsku hersveitirnar staðið í útistöðum við kambód- íska skæruliða við thailensku landamærin og kann nálægðin við landamærin að skýra mik- inn flótta Víetnamanna að ein- hverju leyti. Ferð geimferj- unnar frestað Kanaveralhöfóa, Plórída, 27. febrúar. í GÆR sagði embættismaöur banda- rísku Geimvísindastofnunarinnar, NASA, að smávægilegar bilanír kynnu að tefja fyrirhugað skot geimferjunnar ('hallenger á mánu- dag. í áhöfn hennar eru m.a. banda- rískur öldungadeildarþingmaður og franskur geimfari. Vatnsefnisleki fannst fyrir nokkrum dögum við loka í elds- neytisgeymi. Þá reyndist vera galli í hleðslurafhlöðu ferjunnar. Talið er að viðgerð geti tekið allt að viku. Theodorakis gagnrýnir stjórn jafnaðarmanna Grikkland að verða að „menningareyðimörk“ Aþenu, 26. febrúar. AP. GRÍSKA tónskáldið Mikis Theo- dorakis hefur ásakaö ríkisstjórn jafnaðarmanna í Grikklandi um að setja hömlur á tónlist hans með „sama hætti og herforingjastjórnin gerði“. Ástæðan er sú, að hætt var við fyrirhugaða sjónvarpsútsend- ingu á tónleikum hans á mánu- dagskvöld. „Hömlur eru lagðar á mig á ný. Fyrst var það herforingja- stjórnin. Nú er það PASOK (gríski jafnaðarmannaflokkur- inn). En það hefur mjög óþægi- legar afleiðingar í för með sér fyrir hverja ríkisstjórn að banna tónlist mína,“ var haft eftir Theodorakis í dag. Sjálfur á hann sæti á gríska þjóðþinginu fyrir kommúnistaflokkinn. Á mánudagskvöld sýndi rás 2 í gríska sjónvarpinu, sem er ríkis- rekið, gríska kvikmynd í stað tónleika Theodorakis, sem teknir höfðu verið upp í sjónvarpssal. George Tsougipoulos, stjórnandi rásar 2, gaf þá skýringu á, að tónleikarnir yrðu sýndir við ann- að tækifæri. „Það var ekki um það að ræða, að verið væri að hætta við útsendingu á tónleik- unum, heldur var það fljótfærni af dagskrárdeild okkar að ákveða útsendingu á tónleikun- um á mánudagskvöld," sagði Tsougipoulos. Á það hefur þó verið bent, að í sjónvarpsdagskrá þeirri, sem blöð og tímarit í Grikklandi birtu í síðustu viku fyrir þessa viku, var þegar gert ráð fyrir tónleikum Theodorakis á mánu- dagskvöld, svo að vart getur hafa verið um fljótfærnis- ákvörðun að ræða hjá dag- skrárdeild sjónvarpsins. „Ef þessar hömlur eiga rót sína að rekja til þess stjórn- málaboðskapar, sem fram kemur í tónlist minni, þá er alvarleg deila í uppsiglingu," sagði Theo- dorakis í dag. „Allt frá því að PASOK kom til valda hefur tón- list mín verið limlest í útvarpi og sjónvarpi í svo miklum mæli, að ég hef farið fram á það, að söng- lög mín yrðu alls ekki leikin þar,“ sagði Theodorakis enn- fremur. Grískir tónlistargagnrýnend- ur hafa haldið því fram, að sum af ljóðunum við sönglög Theo- dorakis hefðu að geyma óbeina gagnrýni á stefnu grísku stjórn- arinnar og á einstaka menn, sem sæti ættu í henni. I viðtali við Lundúnablaðið Times, sem birtist í síðustu viku, sagði Theodorakis, að Grikkland væri á góðri leið með að verða að „menningareyðimörk" undir stjórn jafnaðarmanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.