Morgunblaðið - 28.02.1985, Side 31

Morgunblaðið - 28.02.1985, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985 31 ■■ #*. William Schroeder sést hér bita i sneið af pizzu í rúmi sínu á sjúkrahús- inu í Louisville í Bandaríkjunum. f gær voru liðnir 92 dagar síðan gervihjarta af gerðinni Jarvik-7 var sett í hann. Ákærður fyrir að hafa stolið spólu með óút- gefnum lögum Bítlanna Bora Katon, Flórída, 27. febrúar. AP. í GÆR LAGÐI alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, fram kæru á hendur þrítugum manni fyrir að hafa stolið frumeintaki af segulbandi, sem hafði að geyma viðræður og óútgefin lög Bítlanna. Var maðurinn, sem heitir Michael Keith Reibel og er fyrrum starfsmaður hljóðritunarfyrir- tækis í New Jersey, handtekinn í Boca Raton i Flórída og hald lagt á segulbandið, sagði Michael McDonnell, talsmaður FBI í New- ark í New Jersey. Reibel hefur verið ákærður fyrir að hafa þýfi í fórum sínum, sagði talsmaðurinn. Eigandi segulbandsins hafði sent spóluna til hljóðritunarstof- unnar, sem Reibel vann hjá, til frekari vinnslu og útgáfu. Verði Reibel sekur fundinn, á hann yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsisdóm og 10.000 dollara sekt. Reibel var gert að sæta gæslu- varðhaldi, þangað til yfirheyrslur fara fram, en þær hefjast á morg- un, fimmtudag. Bretland: Kennarar í skipulögð- um skæruverkföllum London, 26. febrúar. AP. BRESKIR skólakennarar hófu í dag skipulögð skæruverkföll til að leggja áherslu á launakröfur sínar, sem eru u.þ.b. þrisvar sinnum hærri en boðið hefur verið. Tugir þúsunda nemcnda þeirra fóru því beina leið heim aftur í morgun. Landssamband kennara fór fram á það við 4.000 af 232.000 félagsmönnum sínum í 216 skólum í Englandi, að þeir héldu sig frá vinnu. Skólastjórafélagið og sam- band kennslukvenna lögðu niður vinnu um land allt hálfan daginn. Kennarar, sem hafa hótað að herða verkfallsaðgerðirnar, fara fram á 12,4% kauphækkun, en kennaralaun eru að meðaltali um 9.600 pund á ári (um 420.000 ísl. kr.). Vinnuveitendur hafa boðið þeim 4% hækkun. Meðal þeirra sem fóru í verkfall í London var Glenys Kinnock, eig- inkona Neil Kinnocks, leiðtoga Verkamannaflokksins. Glenys Kinnock hefur kennt í 20 ár og sagði þetta í fyrsta sinn sem hún hefði farið í verkfall. „Við höfum verið neydd út í þessar að- gerðir vegna þvergirðingsháttar viðsemjenda okkar og íhalds- flokksins," sagði hún. „Kennarar eru orðnir dauðþreyttir á að láta móðga sig, dauðþreyttir á að látið sé eins og menntun þeirra sé lítil- sigld og þeir séu ekki starfi sínu vaxnir.“ Rússar halda áfram að endurbæta flotann Wa.shington, 27. febrúmr. AP. RÚSSAR hleyptu ekki eins mörgum nýjum skipum af stokkunum 1984 og árið áður, en þeim miðar enn mikið áfram í því að breyta flota sínum í nútímahorf og þeir geta með réttu haldið því fram að „fáni sovézka sjóhers- ins blakti á öllum heimshöfunum", að því er John L Butts flotaforingi sagði í dag í vitnaleiðslum í einni updirnefnd öldungadeildarinnar. Butts, sem er yfirmaður leyni- þjónustu bandaríska sjóhersins, sagði að Rússar hefðu einnig mjókkað tæknibil það sem hefur frá gamalli tíð tryggt Bandaríkja- mönnum yfirburði á hafinu. Hann sagði að sovézki flotinn héldi áfram að senda eldflauga- kafbáta upp að strönd Bandaríkj- anna til þess að vega upp á móti uppsetningu Pershing- og stýri- eldflauga í Evrópu. Enn fremur sagði hann að Rússar hefðu lokið því verki að breyta Cam Ranh- flóa-herstöðinni í Víetnam í „fyrstu raunverulegu sovézku flot- astöðina í annarri heimsálfu". Bandaríska landvarnaráðuneyt- ið telur líka að Rússar hafi aukið rannsóknir á tækni, sem gerir það að verkum að flugvélar og eld- flaugar sjást ekki í ratsjám, þ.e. felu-flugvélum og -eldflaugum. Butts sagði að sovézki flotinn ætti að geta teflt fram nokkrum flug- vélum og stýriflugvélum, sem mun erfiðara yrði að sjá í ratsjám en nú, á þessum áratug. Butts sagði að Rússar hefðu hleypt 48 herskipum af stokkun- um 1984 miðað við 60 1983, auk ótiltekins fjölda kafbáta. Meðal nýrra skipa, sem bættust við 1984, voru: nýtt, stórt Kirov- beitiskip, beitiskip af Slava-gerð, sjötti tundurspillirinn af Sovre- mennyy-gerð, stórt skip, sem nota á í sambandi við geimferðir, og fyrsta freigátan af gerðinni Kri- vak III, sem KGB fékk til að halda uppi eftirliti við strendur Sovét- ríkjanna. Auk þess er haldið áfram smíði fyrsta kjarnorkuknúna flugvéla- móðurskipsins og verið getur að það fari í reynsluferðir 1988. Butts sagði að Rússar legðu áherzlu á stór, sjálfstæð skip, sem geti athafnað sig fjarri Sovétríkj- unum. Þetta á jafnvel enn frekar við um kafbáta og Rússar leggja nú áherzlu á að taka í notkun kjarn- orkuknúna kafbáta. Þeir eiga nú 79 kafbáta búna skotflaugum. Rúmur helmingurinn er af gerð- unum Typhoon og Delta. Þeir bát- ar geta ráðizt á Bandaríkin frá sovézkum hafsvæðum. Þessa kafbáta er nú verið að búa nýjum, margodda SS-NW-23- eldflaugum, sem eru taldar ná- kvæmari en fyrri kafbátaflaugar Rússa að sögn Butts. Einstakt tflbod! iW W* \ Otrúlegt en satt Af sérstökum ástæöum getum viö boöiö takmarkaöan fjölda af mjög lítið útlitsgölluöum reiöhjólum á hálfviröi í þessari og næstu viku í unglinga- og fulloröinsstæröum. 50% afsl. v . f.. 4 600 Verð tra kr. “• V/V/ • • • • Spítalastíg8 viö Oóinstorg simar 14661,26888 Opið laugardag til kl. 4 ^__________—_______________________ G('xkin daginn!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.