Morgunblaðið - 28.02.1985, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985
37
Sauma- og prjónastofur:
Samkeppnishæfni
þarf að styrkja
— sagði iðnaðarráðherra
Prjónastofur vóru reknar með 2,9% halla og saumastofur með 1,1 % halla á
sl. ári en fyrirtæki, sem flytja út þessa vöru, með 9,6%hagnaði á sl. ári. Þetta
kom fram í fyrirspyrn hórðar Skúlasonar (Abl.), sem Ragnar Arnalds mælti
fyrir í Sameinuðu þingi í gær, og svari Sverris Hermannssonar, iðnaöarráð-
herra.
RAGNAR ARNALDS (Abl.)
kvað ullariðnað hafa mikla þýð-
ingu á mörgum strjálbýlissvæð-
um. Það myndi ýta undir byggða-
röskun ef þessi starfsemi legðist
af. Stærsti útflytjandi í þessari
framleiðslu væri Álafoss, sem rík-
ið ætti (eign Framkvæmdasjóðs).
Stjórnvöld hefðu því sitt að segja í
framvindu máia.
SVERRIR HERMANNSSON,
iðnaðarráðherra, kvaðst hafa látið
taka saman skýrslu um þróun ull-
ariðnaðar í landinu 1970—1984.
Heildarútflutningur ullarvöru
hafi aukizt um 288% á þessu ára-
bili. Rétt væri að nefnd fram-
leiðslufyrirtæki hafi verið rekin
með halla á sl. ári. Þar kæmu bæði
til verðlagsbreytingar, misvægi í
þróun gengis og innlends kostnað-
ar, vandamál í framleiðslunni
sjálfri og fjármagnskostnaður, en
lán væru að stórum hluta í SDR.
Framleiðni í vefjariðnaði hafi
aukizt um 40% á umræddum tíma
en minnkað hjá saumastofum um
2%.
Ráðherrann kvaðst hafa skipað
sérstaka nefnd til að fjalla um
samkeppnishæfni þessarar starf-
semi á mörkuðum heima og
heiman og fyrirhugað væri að
styrkja framleiðsluúttekt sem
væri við það miðuð að auka sam-
keppnishæfni fyrirtækja sem þess
óskuðu.
Fiskútflutningur í gámum:
16.000 tonn í fyrra
ALLS vóru rúmlega 16 þúsund tonn
fersks fisks flutt út í gámum á sl.
ári. Mest var flutt frá Reykjavík,
Þorlákshöfn, Neskaupstað og Garöi.
Matthías A. Mathiesen, viðskipta-
ráðherra, svaraði nýlega fyrirspurn
frá Geir Gunnarssyni (Abl.) um
þetta efni. Svar hans fer hér á eftir:
„Samkvæmt upplýsingum Fiski-
félags íslands liggja eftirfarandi
bráðabirgðatölur fyrir um út-
flutning á ferskum fiski í gámum
árið 1984. Tölur miðast við
óslægðan fisk, ekki reyndist unnt
að tilgreina magn einstakra fisk-
tegunda.
tonn
Vestmannaeyjar 1077
Eyrarbakki 88
Þorlákshöfn 2169
Grindavík 981
Sandgerði 550
Garður 1808
Keflavík 784
Vogar 254
Hafnarfjörður 717
Kópavogur 466
Reykjavík 2849
Akranes 342
Hellissandur 23
Ólafsvík 91
Patreksfjörður 21
Tálknafjörður 405
Þingeyri 25
Flateyri 235
Bolungarvík 118
tsafjörður 640
Súðavík 119
Siglufjörður 7
Bakkafjörður 9
Seyðisfjörður 208
Neskaupstaður 2133
Eskifjörður 9
Samtals: 16128
Fimm daga gjaldeyrissala:
1313 milljónir króna
— 31 % af mánaðarsölu
Gjaldeyrisútstreymið úr viðskiptabönkum landsins fimm daga fyrir síðustu
gengisfellingu var samtals 1.203,8 m.kr., samkvæmt skriflegu svari Matthí-
asar Á. Mathiesen viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Ragnari Arnalds
(Abl.).
Ragnar Arnalds (Abl.) spurði
viðskiptaráðherra: „Hvert var
gjaldeyrisútstreymið úr viðskipta-
bönkunum seinustu fimm daga
fyrir gengisfellinguna síðustu“?
Svar ráðherrans fer hér á eftir:
„Gjaldeyrissala viðskiptabank-
anna í vikunni fyrir gengisbreyt-
inguna, þ.e, 12. til 16. nóvember sl.,
var samtals 1.203,8 m.kr. Eftir
dögum skiptist gjaldeyrissalan
sem hér segir:
• 12. nóvember 183,9 m.kr.
• 13. nóvember 175,8 m.kr.
• 14. nóvember 258,0 m.kr.
• 15. nóvember 314,7 m.kr.
• 16. nóvember 271,4 m.kr.
Gjaldeyrissala Seðlabankans
þessa daga var 109,8 m.kr. Sam-
tals gjaldeyrissalan því 1.313,6
m.kr., þar af vegna greiðslu af-
borgana og vaxta 368,7 m.kr. Var
gjaldeyrissalan þessa daga 31,1%
af gjaldeyrissölu nóvembermán-
aðar.“
Hádegis-
verðar-
fundur
Efni: „Áhættufjármögnun og nýjungar á fjár-
magnsmarkaöi.“
Fyrirlesari: Gunnar Helgi Hálfdánarson fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingarfélags islands.
Fundarstaður: Þingholt, Hótel Holti, fimmtu-
daginn 28. febrúar kl. 12.15—13.45. Þátttaka
tilkynnist í síma 25544.
Félag viöskiptafræöinga
og hagfræöinga.
Fóðurkantur yfir rist.
Mjúkur stoppaöur
kantur yfir rist.
! i beygjaniega tréskó er
eingöngu notað 1. flokks
leður.
Innri tákappi
vemdar lögun
yfirleðursins.
Sérstök lögun sem tryggir
gott pláss fyrir tærnar.
BYLTING Í
HREINGERNINGUM
MEÐ HÁÞRÝSTI-
HREINSITÆKJUM
Staðbundið hreinsikerfi sem gefur
meiri möguleika en nokkru sinni fyrr.
Myndin sýnir kerfi með 6 dælum
og lagnir. Ýmsir fylgihlutir, t.d.
froðuspúlar, gólfskrúbbar,
veggburstar og margt fleira.
Leitið nónari upplýsinga.
Hentugt kerfi fyrir matvælaiðnaðinn.
Vinnu BAR prfdala Vatnsnetli. 1 Imim. Straaa- notk. KW Fjéldi notunda
SingUfW* «oíijo t
MultifUx mjm émlum «0/130 * » 'Ii» 10 m
Multiflcx m/j dalum «0/130
Multiflcx m/• émlum «0/130 **'W >0
Multiflcx m/j daulum «0/130
Multiflcx m/0 daalum «0/130 • »I.I JO •
Skeifan 3h - Sími 82670