Morgunblaðið - 28.02.1985, Page 60

Morgunblaðið - 28.02.1985, Page 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985 Sigurður Sveinsson í hópi markahæstu leikmanna deildarinnar Átta unglingar keppa á NM í Færeyjum SIGURÐUR Sveinsson leikmaður með Lemgo í V-Þýskalandi er þriðji markahnsti leikmaöurinn í 1. deildinni. Siguröur hefur staöið sig vel í vetur þrátt fyrir aö liði hana hafi ekki gengiö sem best. Siguröur hefur skoraö 99 mörk í deildinni, þar af 52 úr vítaköstum. Markahæstí leikmaöurinn hefur skoraö 101 mark. Siguröur hefur náö aö skora allt aö 12 mörk í leik í vetur en oftast Handknattlelkur v______________________ nær hefur hann veriö meö þetta frá fimm og uppí átta mörk í leik. Jafnvel þó svo aö hann hafi veriö tekinn úr umferö eins og oft hefur komiö fyrir. Markahæstu leikmenn 1. deildarinnar í handknattleik eru þessir leikmenn. Rudiger Weitzel, Gummersbach 101/34 Harald Ohly, Húttenberg 99/46 Siguröur Sveinsson, Lemgo 99/52 Arno Ehret, Hofweier 99/52 Martin Schwalb, Grosswallstadt 98/20 Uwe Schwenker, Kiel 96/39 Jochen Fraatz, Essen 96/29 Milomir Mijatovic, Dankersen 95/44 • Siguröur Sveinsson hefur skoraö 99 mörk það sem af er vetrinum í 1. deildarkeppninni í V-Þýskalandi. NORÐURLANDAMÓT unglinga í badminton 1985 fer fram í Þórs- höfn í Færeyjum dagana 1.—3. mars nk. Þau, sem valin hafa veriö í ís- lenska unglingalandsliöiö aö þessu sinni, eru: Guörún Júliusdóttir TBR Ása Pálsdóttir ÍA Helga Þórisdóttir TBR Guörún S. Gísladóttir ÍA Árni Þór Árnason TBR Snorri Ingvarsson TBR Haraldur Hinriksson ÍA Haukur P. Finnsson TBR Unglingalandsliösþjálfari er Jó- hann Kjartansson, fararstjóri verð- ur Sigfús /Egir Árnason. Föstudaginn 1. mars hefst mótiö meö liöakeppni, sem nú er meö ööru sniöi en áöur, þegar allir spil- uðu viö allar. Nú er þátttökuþjóö- unum skipt í tvo riöla eftir styrk- leika: A-riöill: Danmörk, Svíþjóö, Noreg- ur. B-riöill: Finnland, island, Færeyjar. i riölinum spila allir viö alla. Siö- an spila þær þjóöir sem veröa nr. 3 í A-riöli og 1 í B-riöli um sæti í A-riðli á næsta Noröurlandamóti unglinga. Einnig veröur keppt í einstakl- ingskeppni í einliöaleik, tvíliöaleik og tvenndarleik. • Unglingalandslið íalands ( badminton aom tekur þáti í Norö- urlandamótinu um næstu holgi. Efri röö frá vinatri: Sigfús Ægir Árnason fararstjóri, Haukur P. Finnsson, Haraldur Hinriksson, Árni Þór Árnason, Snorri Ingv- arsson og Jóhann Kjartansson þjálfari. Neðri röö frá vinstri: Guö- rún Gisladóttir, Ása Pálsdóttir, Helga Þórisdóttir og Guörún Júlí- usdóttir. Flóahlaupi frestað FLÓAHLAUP Samhygöar hefur af óviöráðanlegum ástæðum verið flutt til sunnudags, en fyrirhugaö var aö hlaupiö færi fram nk. laug- ardag. Vegalengd veröur eftir sem áöur hin sama og hlaupiö verður háö kl. 14 á sunnudag. Hefst hlaupíö við Vorsabæ og hlaupinn veröur 10 km hringur ( Flóanum og endað á sama staö og lagt var upp. Nánari upplýs- ingar gefur Markús bóndi ívars- son á Vorsabæjarhóli. Unglinga- meistaramót Unglingameistaramót íslands í badminton 1985 fer fram í Laug- ardalshöllinni dagana 16. og 17. mars nk. Keppt verður í eftirtöldum flokkum, öllum greinum, ef næg þátttaka fæst: Hnokkar/tátur, f. 73 og síðar. Sveinar/meyjar f. 71—72 Drengir/telpur f. ’69—70 Piltar/stúlkur f. ’67—’68 Þátttökutilkynningar skulu ber- ast til BSÍ fyrir 9. mars nk. (Fréttatilkynning) Snjókappreiðar hjá Fáki íþróttadeild Fáks hélt snjó- kappreiðar á Víöivöllum í Reykja- vík, laugardaginn 23. febrúar sl. kl. 14.30. Veður var mjög gott, sólskin og logn. Allmargir áhorfendur fylgd- ust með keppninni úr áhorfenda- brekkunni. Úrslit uröu þessi: Snjótölt: Unglingar, 13 þátttakendur: 1. Óskar Þór Ingvarsson á Svani, 6 vetra, brúnskjóttur. 2. Helgi Eiríksson á Sörla, 7 vetra, rauöblesóttur. 3. Kristinn V. Wíum á Þyti, 7 vetra, rauóur. Konur, 9 þátttakendur: 1. 2. Kristbjörg Eyvindsdóttir á Sóma, 6 vetra, rauöur. María Dóra Þórarinsdóttir á Fána, 7 vetra, rauöur. Sólveig Ásgeirsdóttir á Gogga, 7 vetra, rauöur. Karlar, 15 þátttakendur: 1. Orri Snorrason á Kóral, 8 vetra, bleikstjörnóttur. 2. Hinrik Bragason á Erli, 11 vetra, brúnn. 3. Sigurbjörn Báröarson á Spegli, 6 vetra, rauöur. 150 metra skeiö: 7 vetra og yngri, 12 vekringar: sek. 1. Brandur, 6 vetra, rauöur 18,2 Knapi Eiríkur Guðmundsson 2. Hlynur, 6 vetra, rauöur 18,3 Knapi Siguröur Marínusson. 3. Frosti, 6 vetra, grár 18,4 Knapi Sigvaldi Ægisson. 8 vetra og eldri, 8 vekringar: sek. 1. Börkur, 10 vetra, brúnn 14,8 Knapi Tómas Ragnarsson. 2. Siggi svarti, 9 vetra, brúnn 16,7 Knapi Orri Snorrason. 3. Júpíter, 8 vetra, grár 17,3 Knapi Sigurbjörn Báröarson. Enskir landsliðsmenn munu kenna við knattspyrnuskóla KR SL. SUMAR var starfræktur knattspyrnuskóli á grasvöllum KR þar sem þekktir leikmenn úr ensku knattspyrnunni miðluöu af reynslu sinni og kunnáttu. Þar fóru fremstír Brian Talbot hjá Arsenal og Phii Thompson hjá Liverpool. 70 piltar og ein stúlka sóttu skólann. Þjálfararn- ir völdu efnilegasta leikmann- inn, sem hlaut að launum ferö á knattspyrnuskóla PGL í Ips- wich. Þar bætti vinningshafinn enn viö, þegar hann varö stiga- hæstur í keppni í ýmsum knatt- þrautum. Fyrir afrekiö var hon- um boðiö með úrvalsliöi PGL til Los Angeles í desember sem leiö. Þátttakendur voru ánægöir meö skólann og vegna fjölda áskorana hefur veriö ákveóiö aó starfrækja skóla meö svipuöu sniöi næsta sumar. Svona fyrir- tæki er dýrt, en vegna góðrar samvinnu Flugleiöa, Morgun- blaösins, KR og PGL er mögu- legt aö fá hingaö fræga leikmenn og reynda þjálfara, aö gefa ung- um knattspyrnuiökendum kost á aö kynnast stjörnunum og vera meö þeim í viku fyrir lágmarks- gjald. , Skólinn hefst mánudaginn 1. júlí og lýkur laugardaginn 6. júlí. Tveir þekktir iandsliösmenn, sem leika í ensku knattspyrnunni, munu kenna viö skólann og auk þess þrir enskir þjálfarar, þ. á m. Mick Lambert, sem lék meö Ipswich Town frá 1968—1980. Tveir íslenskir þjálfarar veröa þeim til aöstoöar. Þjálfararnir munu velja tvo efnilegustu knattspyrnumennina. Annan úr hópi þátttakenda 13 ára og yngri og hinn úr hópi þeirra sem eldri eru. Verður þeim boðið á knattspyrnuskóla PGL í Rick- mansworth rétt noröan viö Lond- on. Ferðaskrifstofan Útsýn hefur skipulagt feröir þangaó í ágúst í samvinnu viö PGL. Fyrri feröin veröur 10.—17. ágúst fyrir 10—13 ára knattspyrnumenn og sú seinni 17.—25. ágúst fyrir 13—16 ára. Verö í dag fyrir 12 ára og eldri er kr. 19.800 en fyrir yngri en 12 ára kr. 14.600. Fjöldi þátttakenda viö skólann í Reykjavík takmarkast viö 100 pilta og stúlkur. Gjaldiö veröur kr. 2.500 (miöaö viö gengi 11.2. ’85). Þegar er byrjað aö skrá þátttakendur, en staöfesta þarf umsóknina meö greiöslu gjalds- ins fyrir 1. júni nk. Allar nánari upplýsingar um skólann veitir knattspyrnudeild KR. (Fréttatilkynning) ' • Frá knattspyrnuskóla KR-inga í fyrraaumar. Þaö er Phil Thompson fyrrum fyrirliöi Liverpool sem er lengst til hægri á myndinni. En hann var einn af kennurunum viö skólann í fyrrasumar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.