Morgunblaðið - 28.02.1985, Side 64

Morgunblaðið - 28.02.1985, Side 64
OfUÍ 1Q.00-C0.30 TIL DAGUEGRA NOTA FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985 VERÐ I LAUSASOLU 25 KR. Sótt um 78,4 % hækkun ábyrgðar- trygginga bifreiða Tryggingafélögin fara fram i 78,4% hækkun iögjalda ibyrgðar- trygginga bifreiða fyrir komandi tryggingatímabil. (íjalddagi iðgjald- anna er i morgun, 1. mars. Trygg- ingaeftirlitið leggur mat i beiðni fé- Bjami Herjólfsson: Landsbanki ár og UA semja BANKASTJÓRN Landsbanka ís- lands hefur ikveðið að ganga til samninga vk) Útgerðarfélag Akur- eyringa hf. um sölu i togaranum Bjarna Herjólfssyni. í skipið birust itta tilboð. Aft því er segir í fréttatilkynn- ingu frá Landsbanka íslands byKRÍst ákvörðun bankastjórnar- innar annars vegar á hagstæðu tilboði Útgerðarfélagsins en hins vegar á því mati hennar, að fjár- hagur og rekstur félagsins sé með þeim hætti, að því sé kleift að taka á sig þær skuldbindingar, sem kaupin hafa í för með sér. Gísli Konráðsson, annar af tveimur framkvæmdastjórum Út- gerðarfélags Akureyringa, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að næsta skref yrði að ræða við bankastjórnina á grundvelli til- boðsins, en hann kvaðst á þessu stigi ekki vilja greina nánar frá kaupverði eða skilmálum tilboðs- ins. Landsbanki íslands keypti togarann Bjarna Herjólfsson AR 200 á nauðungaruppboði síðastlið- ið haust, en fyrri eigandi skipsins var Árborg hf. á Stokkseyri. laganna og ákveður hvort við henni verður orðið. Algengt iðgjald einka- bifreiðar, sem í fyrra gæti hafa verið 5.000 kr., hækkar um tæpar 4.000 krónur, í tæpar 9.000 kr., verði hækkunarbeiðni tryggingafélaganna samþykkt. Samstarfsnefnd bifreiðatrygg- ingafélaganna hefur að undan- förnu unnið að útreikningi ið- gjaidanna. Bruno Hjaltested, for- maður nefndarinnar, sagði í sam- tali við Mbl. í gærkvöldi að for- sendur þessarar hækkunarbeiðni væri annarsvegar slæm útkoma trygginganna á síðasta ári og spá fyrir yfirstandandi ár. Á si. ári hefði aðeins verið heimiluð 10% hækkun iðgjaldanna sem reynst hefði óraunhæft. Fjöldi almennra tjóna hefði verið svipaður og árið á undan en slysatjónum hefði fjölgað mikið og mörg þeirra væru stór. MorgunbUAiA/Sig. Sjgmundsaon Bifreið gjöreyðilagðist í eldi FÓLKSBIFREIÐ af gerðinni Austin Allegro gjöreyðilagðist er eldur kom upp í henni eftir árekstur á Kringlu- mýrarbraut í gærkvöldi. Ung stúlka, sem var ein í bílnum. slapp út í tæka tíð, en bfllinn varö alelda á svip- stundu. Þrír bflar lentu í árekstri þessum og var tvennt flutt á slysa- deild, en meiðsli munu ekki hafa verið alvarleg. Áreksturinn varð laust fyrir klukkan 21.00 í gærkvöldi og vildi þannig til að Austin-bifreiðinni var ekið norður Kringlumýrar- braut er hún rakst aftan á kyrr- stæða bifreið sem þar var. Bifreið af gerðinni Fiesta 1100, sem kom á eftir, lenti við það aftan á Austin-bílnum, sem klesstist milli hinna tveggja. Er talið líklegt að gat hafi komið á bensíntankinn og varð bíllinn alelda á svipstundu. Ungu stúlkunni tókst þó að kom- ast út og var hún flutt á slysa- deild, ásamt annarri ungri stúlku, sem ók Fiesta-bifreiðinni. Eftir því sem Morgunblaðið fregnaði í gærkvöldi munu meiðsli þeirra hafa verið lítil og skemmdir á hinum bílunum tveimur litlar. Þingflokkur Sjálfstæðisflokks vill greiða niður kartöflur: „Ætti að tryggja samkeppn- isgrundvöll verksmiðjanna" — segir Guðmundur Þórisson, formaður Félags kartöflubænda við Eyjafjörð ÞINGFLOKKIJR Sjálfstæðisflokks- ins samþykkti á fundi sínum í gær að fela ráðherrum sínum umboð til að ganga frá samþykkt í ríkisstjórninni á þeim grundvelli að kartöflur til kartöfluverksmiðjuframieiðenda verði greiddar niður um 12 krónur kflógrammiö, og verði þær niður- greiðslur við lýði í sex mánuði, eða til I. september nk. Flutningsmaður til- lögunnar, Matthías Bjarnason, heil- brigðis-, trygginga- og samgönguráð- hcrra, sagöist telja að þetta hefði í fór með sér um 10 milljóna króna útgjöld ríkissjóðs. „Það var samþykkt að ráðherr- arnir fengju umboð til þess að Lögreglukona varð þunguð — og því lækkuð í launum Jafnréttisráð höfðar mál fyrir hennar hönd „Ánægð að fleiri eru sömu skoðunar og ég,“ segir Sigrún Ólafsdóttir, lögreglukona „ÞAÐ ER auðvitað leiðinlegt að standa í málaferlum og ég hefði heldur viljað að samkomulag næðist um leiðréttingu minna mála. En ég er ánægð að vera ekki ein um þá skoðun, að á mér hafi verið brotið," sagði Sigrún Olafsdóttir, lögreglukona, í samtali við Mbl., en meirihluti Jafn- réttisráðs samþykkti á fundi sínum í gær að fengir.ni beiðni Landssam- bands lögreglumanna, að höfða mál á hendur bæjarfógetanum í Kópa- vogi annars vegar og dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra hins vegar fyrir meint brot á jafnréttislögunum. „Samkvæmt kjarasamningum bar henni meðaltal vaktaálags og aukavinnu í barnsburðarleyfi síðustu sex mánuði fyrir orlof sitt. Þar sem Sigrún var færð til í starfi, auk þess að hafa veiks. þá reyndist meðaltal yfirvinnu mjög lágt. Mun lægra en ef hún hafði haft tðk á að vinna regiu- bundin störf allt til enda með- göngu. Sigrún ieitaði til Lands- sambandsins með leiðréttingu mála sinna og við höfum reynt að ná samkomulagi um lausn þessa máls en án árangurs. Við höfum því ákveðið að fcla jafn- Málavextir eru þeir, að Sigrún Ólafsdóttir hóf störf sem lög- reglumaður við embætti bæjar- fógetans í Kópavogi árið 1976 og síðar skipuð rannsóknarlög- reglumaður. Um vorið 1983 varð Sigrún barnshafandi og var færð til í starfi og látin starfa við sektarinnheimtu, sem einungis felur í sér dagvinnu. Við þessa breytingu minnkuðu laun henn- ar til muna, vaktaálag var tekið af henni, svo og aðrar fastar greiðslur, hún var svipt réttind- um til einkennisbúninga og færð niður um 4 launaflokka. -.JÉ Morgunblaðið/Júlíus Sigrún Ólafsdóttir ásamt dóttur sinni. réttisráði að höfða mál fyrir hönd Sigrúnar og krefjumst þess að henni verði greitt meðaltal vaktaálags og aukavinnu eins og hún hefði verið í fullu starfi sem rannsóknarlögreglumaður," sagði Ragnheiður Davíðsdóttir, sem sæti á í stjórn Landssam- bands lögreglumanna, í samtali við Mbl. „Lögreglustarfið er eina starf- ið þar sem konur þurfa að ganga úr starfi á meðgöngutímanum vegna öryggis ófæddra barna sinna. Við teljum eðlilegt að konur haldi launum sínum þann stutta tíma sem meðganga varir. í Reykjavík hafa þessi mál verið leyst á þann hátt, að barnshaf- andi konur hafa starfað á fjar- skiptamiðstöð og því getað unnið vakta og aukavinnu og því haldið launum sínum,“ sagði Ragnheið- ur. „Við erum ekki sáttir við að verði lögreglukona ófrísk, þá skuli hún lækkuð í launum. Lögreglumenn hafa haft full laun í veikindum og meðaltal yf- irvinnu og því teljum við óeðli- legt að lögreglukonur séu látnar gjalda þess að verða ófrískar," sagði Tómas Jónsson, formaður Landssambands lögreglumanna í samtali við Mbl. leysa þetta mál á þessum grund- velli,“ sagði Þorsteinn Pálsson for- maður Sjálfstæðisflokksins í sam- tali við Morgunblaðið í gær, og að- spurður um hvort eining hefði ver- ið um þessa afgreiðslu málsins, sagði Þorsteinn: „Þingflokkurinn ákvað þetta svona." Valið stóð á milli þess að fara niðurgreiðsluleiðina, eða að banna innflutning á frönskum jtartöflum og mun meirihluti þingflokksins fremur hafa kosið að velja niður- greiðsluleiðina. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins var nokkur eining um leiöina, þótt bannleiðin eigi sér talsmenn innan þingflokks- ins, en margir þingmannanna munu hinsvegar vera ósáttir við það hversu upphæðin á hvert kíló í niðurgreiðslur er há — 12 krónur. Einn þingmaðurinn orðaði það svo að frelsið væri þarna dýru verði keypt. „Þetta er alveg út í hött. Þeir eru nú þegar með 125% vernd með toll- um og vörugjaldi á innflutning- inn,“ sagði Magnús Magnússon hjá Garra hf. sem er stór innflutnings- aðili á frönskum kartöflum. Sagði hann að íslensku kartöflurnar væru einfaldlega of dýrar og ef verksmiðjurnar gætu ekki keypt þær ætti frekar að lækka hráefnis- verðið en að hlaupa alltaf til ríkis- valdsins eftir hjálp. Vísaði hann ásökunum um undirboð innflutn- ingsaðilanna á bug, sagði að alltaf væri reynt að ná betri kaupum þeg- ar samkeppnin harönaði. Guðmundur Þórisson í Hléskóg- um, formaður Félags kartöflu- bænda við Eyjafjörð, sagði að þessi niðurstaða ætti að tryggja sam- keppnisgrundvöll kartöfluverk- smiðjanna. Framleiðsla þeirra ætti nú að geta lækkað eitthvað til við- bótar við þá 20% lækkun sem orðið hefði fyrir skömmu vegna undir- boða innflutningsaðilanna í kjölfar vörugjaldsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.