Morgunblaðið - 21.03.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1985
15
Það ættu allir að drekka
og styrkja fc^þannig tennur og bein
Mjólk inniheldur margvísleg nœringar-
efni sem nýtast fólki ó öllum aldri, en
tvímœlalaust gegnir kalkið þar mikil-
vœgustu hlutverki, Líkaminn þarf mikið
af kalki ó hverjum degi til vaxtar og
viðhalds beina og tanna. Til að kalkið
í fœðunni nýtist, þarf ókveðið magn
af D vítamíni, sem einmitt er að finna
í réttum hlutföllum í mjóJkinni. Pess
vegna er mjólkin ekki aðeins kalkrík-
asta fœða sem til er, heldur einnig
auðnýtanlegri kalkuppspretta en
flestar aðrar fœðutegundir.
Afleiðingar kalkskorts
Kalkskortur veldur beinþynningu, sem
getur haft alvarlegar afleiðingar í för
með sér. Hennar verður sjaldnast vart
fyrr en miðjum aldri er nóð, en þó er
of seint að bœta úr. Beinþynningu er
hins vegar hœgt að koma í veg fyrir
með því að drekka nœga mjólk í
œsku og ó unglingsórum. Með því að
byrja að drekka mjólk reglulega ó
fullorðinsórum er einnig hœgt að
halda beinþynningu niðri. Best er þó
að drekka mjólk daglega alla œvi.
RDS
Sérfrœðingar hafa komist að raun um
hvað daglegur skammtur af kalki
mó vera stór svo hann nýtisttil vaxtar
og viðhalds beina og annarrar líkams-
starfsemi. Petta magn er nefnt róð-
lagður dagskammtur (RDS). Hér eru
gefnir upp róðlagðir dagskammtar
fyrir hina ýmsu aldurshópa til
glöggvunar fyrir lesendur.
Böm 1-10 ára
3 glös á dag
Börn þurfa á miklu kalki að
halda til að byggja upp
heilbrigð bein og tennur. Á
þessum árum er grunnur
lagður að hraustum líkama -
sé fœðið rétt, Líkaminn er í
hröðum vexti. Áföll á þorð við
skort á réttum efnum til
uppbyggingar geta haft
alvarlegar afleiðingar.
Foreldrar œttu að hafa í huga
að nœr vonlaust er að
fullnœgja kalkþörf Ifkamans
án þess að bamið neyti
nœgrar mjólkur.
Ófrískar konur
og brjóstmæður
5 glös á dag
Pað þarf meiri mjólk fyrir tvo.
Fái móðirin ekki nœgilegt kalk,
vinnur líkaminn það úr
beinum hennar til að byggja
upp fóstrið og framleiða mjólk.
Móðirin þarf því að fá mikið af
kalki, eigi hún að sleppa við
afleiðingar kalkskorts síðar á
œvinni.
Konur 60 ára og eldri
4-5 glös á dag
Kalktap kvenna er meira en
karla og er þeim því hœttara
við þeinþynningu. Ástœðurnar
eru fyrst og fremst kalkskortur
vegna meðgöngu og
brjóstagjafar. Hœgt er að
takmarka skaðann með
daglegrj neyslu mjólkur.
Unglingar 11-18 ára
4 glös á dag
Líkamsvöxturinn er mjög
hraður á þessum árum og
hver dagur dýrmœtur. Mikið
þarf af kalki og ef réttrar fœðu
er neytt er komið í veg fyrir
áföll síðar á œvinni. Kalkið
stuðlar að fullum þroska beina
og tanna og verður að vera í
nœgilegu magni í beinunum
þegar líður á unglingsárin, því
eftir tvítugt er yfirleitt of seint að
bœta upp kalkskort.
Ungt fólk og fullorðið
2-3 glös á dag
Kalkneysla kemur í veg fyrir
beinþynningu og viðheldur
styrk beina. Ef kalk er nœgilegt
í beinunum má viðhalda
fullkomnum styrk með
daglegri neyslu og einnig má
halda beinþynningu niðri ef
kalkskortur er þegar staðreynd.
Fólk á efri árum
2-4 glös á dag
Sé kalkskortur í líkamanum
kemur beinþynning yfirleitt í
Ijós eftir að miðjum aldri er
náð. Þá er hœgt að koma
í veg fyrir áframhaldandi
hrömun með kalkneyslu og
halda þannig sjúkdómnum
niðri. Séu beinin heilbrigð
tryggir mjólkurdrykkja
áframhaldandi heilbrigði.
MJÓLKURDAGSNEFND