Morgunblaðið - 21.03.1985, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 21.03.1985, Blaðsíða 41
41 yrkisefni. — Yrkisefni? — Jú, jú. Stundum fór allur tíminn í að hnoða saman löngum brögum um skólasystkin og kennara, allt og ekkert. Við ortum á reiknivélar- rúllu og vorum komnar upp í 7 metra fyrir stúdentspróf! Allt lét Hildi jafnvel að gera. Fyrripartar, seinnipartar runnu fram fyrir- hafnarlaust en aftur á móti áttu stuðlar og höfuðstaðir til að rugla mig algerlega í ríminu. Og músíkin. — Þarna kynntist ég fyrst klassískri músík. Knútur og Ingibjörg höfðu komið sér upp góðu plötusafni, sem við spiluðum óspart og ekki síður plöturnar á léttari nótunum. ólíkt gekk okkur betur að nema þýska tungu af Komedian Harmonwts en þurru málfræðistaglinu og l’Arrabiata. ... „Ein bischen Leichtsinn ..." Textana skrifuðum við upp eftir plötunum og svo kom Ingibjörg heim úr vinnunni með Evrópu- menninguna í fasi og málróm a la Dietrich og leiðrétti og þýddi manuskriptið! Við vorum líka svolítið svag fyrir sígöjnasöngvum og alls kyns dægurlögum þeirra MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1985 tíma — Andrew Sisters, Mills Brothers, Ink Spots að ógleymdum „Fjárlögunum" og öðru þjóðlegu, sem Hildur spilaði á píanóið og ég gutlaði undir á gítarinn Gvend. Hildur uppálagði mér að syngja aðalröddina, mér, sem spring bæði upp úr og nið’rúr. En hún lét það ekkert á sig fá og útsetti og radd- færði millirödd og bassa eins og þeir einir geta, sem hafa músikina í blóðinu. Og við lentum í ævin- týri! Vorum báðar í Menntaskóla- leikritum þessa vetur. Þvílíkir dýrðardagar. Æfingar og undan- þágur — leikhúsheimurinn ofur- lítið að opnast — spennan, glitrið og Potémkintjöldin — nýr heimur, töfrar. Já við vorum heillaðar — íbyggnar og leyndardómsfullar — á þessum árum og stundum svolít- ið syfjaðar eftir skóladag, en þá lögðum við okkur bara, önnur á dívaninn en hin í gamla, fallega ruggustólinn, einn, tvo tíma. Og nú skyldi einhver halda að við bara kolféllum í skólanum. Nei, nei. Einhvers staðar blundaði samviskusemin, uppeldið og aginn, öllu var hespað af í forbi- farten. 6 vikna upplestrarfrí fyrir stúdentspróf var skipulagt upp á mínútu svo tölvur mættu vera stoltar af! Og farið eftir því. Þessi heimagangsár mín á Rán- argötu 9 eru perlur í mínum minn- ingasjóði. Það slettist aldrei upp á vinskapinn. Hildur átti svo marga músíkstrengi í sálinni líka. Aldrei var ýjað einu orði að því að þessi aðskotastelpa væri fyrir eða til óþæginda — alltaf hlýja viðmótið hennar Ingibjargar, umhyggjan og umfram allt skilningurinn á lífi þessarar yngri kynslóðar — sem reyndar brúaði þetta fræga bil — aldrei umvöndun eða hneykslan. Hún gladdist með okkur glöðum, skildi kvíða okkar kvíðinna og var lífsakkeri með reynslu án bitur- leika. Og miðpunkturinn, Hildur sjálf, talenteruð, glæsileg, vinföst, sá nú í lok þessara ára teikn á lofti um framtíðina. Lífsförunauturinn tryggi var að birtast á skjánum. Nú er hún horfin okkur. — Mig setur hljóða — ég minnist, sakna og þakka liðin ár. Anna S. Gunnarsdóttir Bladburöarfólk óskast! Austurbær: Sóleyjargata Jlltfgiitililftfrtfe Höfum opnaö nýja skóverslun 15% afsláttur af öllum skóm í 3 daga. AUSTURSTRÆTIÍO SIMI 27211
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.