Morgunblaðið - 21.03.1985, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.03.1985, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1985 300 ÁRA MINNING Johann Sebastian Bach Eisenach — fæðingarborg Bachs. Morgunandakt á heimili Bachs. Ljósmynd af málverki eftir Edward Rosenthal. — eftir Ingólf Guðbrandsson Einn frægasti tónlistarmaður þessarar aldar, sellóleikarinn Pablo Casals, komst svo að orði í endurminningabók sinni, Lífs- spegli: „í 80 ár hef ég alltaf byrjað daginn á sömu athöfninni. Það er ekki af vana, heldur af innri þörf. Ég sezt við píanóið og spila tvær af prelúdíum og fúgum Bachs. Það er eins og andi blessunar fylli hús- ið. Ég gæti ekki verið án þess, en þó er það ekki eini tilgangur þess- arar athafnar. Það er eins og að finna samhljóm við tilveruna, sem ég hef verið angi af gegnum langt líf. Sú tilfinning vekur mig til meðvitundar um lífsundrið sjálft og dásamlega gjöf þess — að vera maður. Þessi tónlist er mér aldrei söm frá degi til dags. Á hverjum degi lýkur hún upp nýjum víddum eins og frumkraftur lífsins sjálfs. Þannig er Bach — eins og sjálf náttúran — kraftaverk'. Margir iðkendur tónlistar, lærð- ir og leikir, gætu tekið undir þessi orð. Svo sterkur þáttur í lífi fólks verður J.S. Bach við náin kynni af tónlist hans. Þótt heimurinn sé mjög breyttur og smekkur og lífsgildi hafi söðlað um í mörgum hrunadansi, heldur tónlist hans enn velli og nýtur meiri aðdáunar og virðingar en nokkru sinni fyrr. í tilefni þess, að fimmtudaginn 21. marz nk. eru 300 ár liðin frá fæð- ingu þessa meistara og ættarlauks mestu tónlistarfjölskyldu sem um getur, er þessi stund helguð minn- ingu hans í fáum, fátæklegum orð- um. Stikla verður á stóru í æviatr- iðum snillingsins, sem samdi H- moll messuna, Mattheusarpassí- una, Jólaóratoríuna, meira en 300 kantötur, Brandenburgarkonsert- ana, 48 prelúdíur og fúgur í öllum tóntegundum fyrir píanó þess tíma, klavier, auk fjölda annarra tónsmiða fyrir einleikshljóðfæri, s.s. fiðlu, selló, flautu, óbó og sembal, svo fátt eitt sé nefnt af meira en 1.000 tónverkum, sem talið er að hann hafi samið, en allmörg þeirra eru glötuð. Hver var þessi mikilvirki meistari, sem lifði íburðarsnauðu lífi og naut takmarkaðrar athygli eða virð- ingar hjá samtíð sinni? Johann Sebastian Bach fæddist í borginni Eisenach í þeim hluta Þýzkalands, sem nefnist Þyringa- land, fimmtudaginn 21. marz árið 1685. Hann var 8. og síðasta barn foreldra sinna, Johanns Ambrosi- us Bach og Maríu Elísabetar Lámmerhirt, en 4 þeirra dóu í æsku. Húsið, sem hann fæddist í, stendur ekki lengur, en þýzka Bach-félagið kom árið 1907 upp myndarlegu Bach-safni í gömlu húsi í nágrenninu. Eisenach kem- ur einnig við sögu Marteins Lúth- ers, í Wartenburg-kastalanum leitaði hann hælis og þýddi biblí- una á þýzku. Ambrosius, faðir Bachs, var hljóðfæraleikari við hirð hertogans í Eisenach og jafn- framt „borgarspilari“, sem lék við brúðkaup og ýmis hátíðleg tæki- færi. Johann Sebastian ólst upp við tónlist frá blautu barnsbeini, sennilega hefur hann lært fiðlu- leik af föður sinum, og einn frænda hans var nafntogaður org- anisti og tónskáld í Eisenach. Lít- ið er vitað um æskuárin nema það sem ráðið verður af líkum. Bach- ættin var fjölmenn, frændrækin og samheldin. f þrjár kynslóðir blómstruðu tónlistarhæfileikar og erfðir í þessari ætt sem náðu hámarki í lífi og starfi Johanns Sebastian, en vitað er um a.m.k. 60 atvinnu- tónlistarmenn af Bach-ættinni frá lokum 16. aldar til loka 18. aldar. Engin sambærileg dæmi eru þekkt á neinu sviði lista í sögu mannk- ynsins. Þeir voru fiðlarar, organl- eikarar, hirðmúsíkantar, hljómsv- eitarstjórar, blásarar, borgarspil- arar og tónskáld. Einatt héldu þeir fjölskyldumót, þar sem tónl- ist var vegsömuð, sungin og leikin af hjartans lyst og oft samin jafn- óðum og leikin af fingrum fram. Johann Sebastian var ungur sett- ur til mennta og fór í latínuskóla borgarinnar 7 ára að aldri. Hann þótti hafa skæra söngrödd og hef- ur að líkindum sungið í kór Georgskirkjunnar, þar sem frændi hans var orgelleikari og faðir hans lék oft á hljóðfæri á undan eða eftir messugjörð. Sorgin og gleðin skiptust snemma á í lífi Sebastians. 9 ára gamall missti hann móður sína og ári síðar föður sinn. Bæði Sebasti- an og Jakob bróðir hans fóru þá í fóstur hjá elsta bróðurnum, Jo- hanni Kristófer, sem var organisti í borginni Ohrdruf. Hjá honum lærði Sebastian hljóðfæraleik og gekk í menntaskóla, þar sem hann hlaut óvenjugóða og alhliða menntun. Á þessum tíma var Þýzkaland enn flakandi í sárum eftir 30 ára stríðið og landinu skipt í ótal smáríki undir stjórn smáprinsa, hertoga og mark- greifa, sem reistu sér hallir og reyndu að berast á hver í kapp við annan í stíl sólkóngsins Lúðvíks 14. Jafnframt flæddu erlend áhrif inn í landið á öllum sviðum lista, ekki sízt í tónlist, sem var undir sterkum ítölskum áhrifum, en jafnframt frönskum, auk hinnar háþróuðu hefðar frá Norðurlönd- um. Þýzkaland var sem á kross- götum á sviði menningar, trúar- bragða og lista, og nýjar stefnur og stíll blandaðist fornri hefð. Inn í þennan heim fæðist Jo- hann Sbeastian með gáfur guð- legrar snilldar og leiðir hin ýmsu form tónlistarinnar til þeirrar fullkomnunar, sem ekki verður til- jafnað allt til þessa dags. Allt líf hans frá æsku var barátta, en ekk- ert fékk brotið niður sköpunarm- átt hans og starfsgleði. Foreldr- amissir og erfið æska hafa gert hann alvörugefinn og markað djúp spor í viðkvæma barnslund. Þar er e.t.v. að finna rætur að dýpt til- finninganna í tónlist Bachs, sem jafnan eru beygðar undir strang- an aga formsins. Þegar Johann Sebastian hafði náð 15 ára aldri hvorki bróðir hans né aðrir af ' Bach-ættinni þess umkomnir að kosta nám hans né framfæri. Það- an í frá verður hann að spila á eigin spýtur. Nám hans hafði bor- ið góðan árangur. Hann gat endurgoldið Jóhanni Kristófer fóstrið síðar, þegar hann tók tvo syni hans til náms í Leipzig. Næst lá leið hans til Lúneburg, þar sem hann fékk fría vist við skóla Mikj- alskirkjunnar vegna óvenjugóðrar raddar sinnar, sem naut sín í Metten-kórnum skamma hríð, þar til hann fór í mútur, en þá aðstoð- aði hann stjórnandann með undir- leik. Þótt dvölin í Lúneburg yrði aðeins tvö ár, hafa þau vafalítið haft djúp áhrif á Johann Sebasti- an. Þar var sterk tónlistarhefð ríkjandi á háu plani, og hinn mik- ilhæfi fyrrverandi kantor Fried- rich Emanuel Praetorius, sem dó 10 árum eftir að Johann Sebastian fæddist, hafði komið upp ágætu safni tónverka við bókasafn kirkj- unnar með meira en 1.000 tón- verkum eftir ekki færri en 175 tónskáld. í Lúneburg kynntist Jo- hann Sebastian líka tónskáldinu og organistanum Georg Böhm, sem hafði greinileg áhrif á fyrstu orgelverk Bachs. Böhm var nem- andi hins fræga Reinkens í Ham- borg, og Bach lagði land undir fót og gekk til Hamborgar til að kynnast list Reinkens, sem þá var 78 ára og enn í fullu fjöri. Hann lagði einnig leið sína til Celle, en ; þar var frönsk músík í hávegum höfð við hirð hertogans af Brunnswick. Fyrstu stöðu sína hlaut Johann Sebastian við nýju kirkjuna í Arnstadt, þar sem hann var ráð- inn organisti árin 1703—1907. Á þeim árum kynntist hann frænku sinni, Maríu Barböru, sem varð fyrri kona hans. Fyrsta hjúskap- arár sitt bjuggu þau í Múhlhaus- en, þar sem Johann Sebastian var organisti við Blasiusarkirkjuna f eitt ár, þar til þau fluttu til Weim- ar, þar sem hann varð hirðorgan- isti og tónskáld frá 1708—1717. Meðan hann starfaði í Arnstadt og Múhlhausen hafði hann þegar spreytt sig á að semja tónlist í margvíslegum formtegundum, s.s. sónötur, tokkötur, capriccio, prelúdíur og fúgur, kóralforspil og kantötur. Á þessum mótunarárum eru áhrif frá tónskáldunum Pach- el Böhm og Buxtehude greinileg. Ein af ástæðunum fyrir árekstr- um og uppsögn í Arnstadt voru langar fjarvistir Johanns Sebasti- an frá skyldum sínum, m.a. vegna heimsókna hjá Buxtehude í Lú- beck. Verður nú að fara hratt yfir mikla sögu. Wilhelm Ernst her- togi af Weimer var mikill tónlist- arunnandi. Hann veitti Johanni Sebastian virðulega stöðu, tvö- faldaði iaun nans frá því sem hann hafði áður og gaf honum miklu frjálsari hendur í tónsmíð- um. Hertoginn var strangtrúaður og aðhylltist einfaldan lífsstíl í samanburði við aðrar hátignir þess tfma. Árin 9 í Weimar voru mjög frjó. Þar náði Johann Sebastian slíku valdi á hljóðfæri sínu, orgelinu, að nafn hans varð á hvers manns vörum, og þar samdi hann beztu orgelverk sín. Árið 1714 hækkaði hertoginn hann í tign, gerði hann að kór- og hljómsveitarstjóra og fól honum að semja eina kantötu mánaðarlega. Allt lék í lyndi um skeið í Weimar, og þau Bach- hjónin eignuðust 6 börn á þeim árum, þ.ám. þá 3 syni sem síðar urðu frægir tónlistarmenn, þ.e. Wilhelm Friedman, Johann Christoph og Carl Philip Emanu- el. En skelfingin dundi yfir. Her- toginn varð öfundsjúkur vegna vináttu Johanns Sebastian og frændans Ernsts August. Bach hafði skipanir hertogans að engu, sagði upp stöðu sinni og var fyrir vikið hnepptur í fangelsi í nærri mánuð. En hann var þá þegar ráð- inn í þjónustu Leopolds prins af Anholt Cöthen og hlaut titilinn h i rðh lj ómsvei tarstj ór i. Prinsinn var sjálfur ágætur hljóðfæraleikari, og tónlistin varð þungamiðja hirðlífsins. Johann Sebastian fékk 17 manna hljóm- sveit til umráða og var í hávegum hafður við hirðina. Frá árunum í Cöthen eru t.d. Brandenburgar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.