Morgunblaðið - 21.03.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1985
31
London:
Markgreifinn
játaði innbrot
London, 20. mare. AP.
MARKGREIFINN af Blandford, sem á 40 milljón punda arf í vændum,
játaði sig í gær sekan um að hafa brotist inn í lyfjabúð í Suðvestur-London í
þeim tilgangi að komast yfir heróín.
Blandford sem er 29 ára gamall
er sonur hertogans af Marlbor-
ough og einkaerfingi að Blen-
heim-höll og 4.600 hektara landi
umhverfis kastalann. í gær viður-
kenndi hann að hafa brotist inn í
lyfjabúð í London 16. febrúar sl.
til að stela heróíni, sem hann var
tekinn með í versluninni. Var
hann eftir játninguna látinn laus
gegn tryggingu.
Rétt nafn Blandfords mark-
greifa er Charles James Spencer-
Churchill, en hann er frændi
Winstons Churchill, fyrrum for-
sætisráðherra.
Afrísk svmaveiki í Belgíu:
Skera verður niður
rúmlega 10.000 svín
Brussel, 19. maa AP.
Belgíska landbúnaðarráðuneytið ákvað að fargað skyldi a.m.k. 10 þús-
und svínum til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu afrískrar svínaveiki,
sem skotið hefur upp kollinum í Belgíu.
Sjúkdómsins, sem er mjög
smitandi, hefur orðið vart á 9
bæjum í vesturhluta landsins.
Nýlega hefur Evrópubandalagið
bannað allan útflutning á svína-
kjöti frá Belgíu um skeið.
Talið er að sjúkdómurinn hafi
borist með svínasultu til Belgíu.
Belgíumaður, sem bjó í nágrenni
svínabýlis á Spáni, sneri fyrir
skömmu heim með slurk af
svínasultu i farteskinu.
Nú þegar er ljóst að slátra
verður 10 þúsund svínum og er
óttast að þau reynist enn fleiri,
þar sem skoðun allra belgískra
svínabæja er ekki lokið. Tjónið
nemur ekki undir jafnvirði 15
milljóna Bandaríkjadollara, eða
rúmlega 600 milljóna íslenzkra
króna.
Einkenni svínaveikinnar, sem
er bráðsmitandi, eru þau að dýr-
ið fær háan hita, missir matar-
lyst, á erfitt um hreyfingar, húð-
in skiptir lit auk þess sem inn-
vortis blæðingar eru fylgikvilli
veikinnar.
Norskur tízkufatnaður í París
Sýningarstúlka í fatnaði sem norski fatahönnuðurinn Per Spook hannaði
fyrir næsta haust og vetur. Hönnuðurinn sýnir þessa dagana framleiðsiu
sína í Parísarborg, háborg fatatízkunnar. Buxurnar eru bronzlitar flauel-
isbuxur og yfirhöfnin er úr blönduðu efni, rauðu- og bronzlitu.
Bandaríkin:
Aukin korn-
kaup Rússa
Washington, 20. mare. AP.
SOVÉTMENN hafa aukið kornkaup
sín í Bandaríkjunum um 300.000
tonn og á afhendingu þess að vera
lokið fyrir 30. september nk. að sögn
bandaríska landbúnaðarráðuneytis-
ins.
Talið er að kaupverð kornsins sé
um 32 milljónir dollara en heild-
arkornkaup Sovétmanna í Banda-
ríkjunum hafa aldrei verið meiri
en nú, eða samtals 17 milljónir
tonna á tímabilinu 1984—85, 14,1
milljón tonna af maís og 2,9 millj.
af hveiti. Fyrra kornkaupametið
var á árunum 1978—79, 15,5 millj.
tonna. Samkvæmt fimm ára sam-
ningi munu Sovétmenn kaupa a m
k. níu milljónir tonna af korni í
Bandaríkjunum árlega.
Evrópuráðið:
Ráðherrafund-
ur um mann-
réttindamál
Vín, 19. mara. AP.
UTANRÍKIS- og dómsmálaráðherr-
ar frá 21 aðildarríki Evrópuráðsins
komu í dag saman til tveggja daga
fundar í Vín til að ræða um ýmis
mannréttindamál, þ.á m. siðferðileg
álitaefni er tengjast leigu á móður-
IiTi, sæðisbönkum, og líffæraflutn-
ingum.
Meðal þess, sem ráðherrarnir
hyggjast fjalla um, er það hvort
ýmsir þeir möguleikar, sem tækni-
legar framfarir í líffræði og lækn-
isfræði bjóða upp á, feli í sér aukið
frelsi einstaklinga eða ógni
grundvallarréttindum þeirra.
ASEA framleiddi fyrsta 3ja fasa rafmótorinn árið 1890. í dag er ASEA MOTORS einn af
stærstu mótorframleiðendnm í heimi.
Nýi mótorinn frá ASEA, gerð MBT, er hljóðlátur, sterkóyggður og sparneytinn á orku.
Rönning á ávallt til mótora í birgðageymslum og veitir tækniþjónustu. Endurseljendur