Morgunblaðið - 17.04.1985, Side 2
2
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1985
Stofnlánadeild og Veðdeild Búnaðarbankans:
7 % bænda eiga yfir þriðj-
ung heildarskuldanna
Skuldir bænda hafa hækkað að raungildi um 240%frá 1976
UM SÍÐUSTU áramót skuldaði 341 bóndi yfir eina milljón hjá Stofnlána-
deild landbúnaðarins og Veðdeild Búnaðarbanka íslands. Þessir bsndur eru
aðeins um 7% bsnda í landinu en bera um 34% heildarskulda bsnda við
þessar stofnanir. 64 bsndur skulduðu yfir 2 milljónir við Stofnlánadeild og
Veðdeild, þar af 11 yfir 3 milljónir kr.
Mál þessara skuldugu bænda og
fjárhagsstaða bænda almennt
verður eitt aðalumræðuefndi
aukafulltrúafundar Stéttarsam-
bands bænda, sem haldinn verður
í Bændahöllinni í Reykjavík í dag.
Fundurinn verður settur klukkan
9 og mun Ingi Tryggvason, for-
maður stéttarsambandsins, þá
flytja fundinum skýrslu sína og
Jón Helgason, landbúnaðarráð-
herra, ávarpa fundinn. Auk af-
komumálanna verða fyrirætlanir
stjórnvalda um breytingar á
Framleiðsluráðslögunum og lána-
málum landbúnaðarins aðalmál
fundarins.
í yfirliti sem Stofnlánadeild
landbúnaðarins hefur tekið saman
um skuldir bænda við sjóði land-
búnaðarins, og vitnað er til hér í
upphafi, kemur fram að heildar-
skuldir bænda við þessa sjóði eru
1,6 milljarður kr. og hafa þær
hækkað að raungildi um 48% á
árinu 1984 og um 240% frá árinu
1976. Að meðaltali skuldar hver
einasti bóndi í landinu því tæpar
340 þúsund krónur í þessum sjóð-
um, en skuldirnar dreifast mjög
ójafnt, eins og fram kemur hér að
ofan.
Nefnd sem landbúnaðarráð-
herra skipaði vinnur nú að athug-
un á fjárhagsvanda bænda, eink-
um þeirra sem ekki fengu úrlausn
við skuldbreytinguna á sl. ári, at-
huga búrekstur þeirra, veita þeim
ráðgjöf og gera tillögur um úrbæt-
ur eftir því sem könnunin gefur
tilefni til. Nefndin hefur haldið
þrjá fundi og heimsótt nokkra
bændur, en formaður nefndarinn-
ar, Sveinbjörn Eyjólfsson í land-
búnaðarráðuneytinu, bjóst við að
mál 10 til 20 yrðu athuguð til að
byrja með.
80 tonn af stofnútsæði
skemmdust í flutningum
SKEMMDIR af völdum frosts og
sjóbleytu urdu á sendingu af stofn-
útsæðiskartöflum sem fiuttar voru
með flóabátnum Drangi frá Eyjafirði
til Reykjavíkur í síðustu viku. í
sendingunni voru um 80 tonn af sér-
staklega ræktuðu stofnútsæði, sem
er um helmingur þess útsæðis sem
koma átti að norðan, og er verðmæti
sendingarinnar um 3 milljónir kr.
Ekki er vitað hvað tjónið er mikið en
Ijóst að þessar kartöfiur verða ekki
seldar sem útsæði.
Grænmetisverslun landbúnað-
arins gerir árlega samninga við
nokkra bændur í Eyjafirði um
ræktun stofnútsæðis. Eru gerðar
sérstakar kröfur um heilbrigði
kartaflnanna og gæði og er þetta
útsæði síðan selt til almennings og
Oliver Steinn
Jóhannesson látinn
Oliver Steinn Jóhannesson, bóka-
útgefandi, lést í Landakotsspítala
mánudaginn 15. aprfl síðastliðinn, á
65. aldursári. Oliver Steinn hafði átt
við vanheil.su að stríða um skeið.
Oliver Steinn var fæddur 23.
mai 1920 í ólafsvík. Foreldrar
hans voru hjónin Jóhannes Magn-
ússon sjómaður og Guðbjörg Oliv-
ersdóttir. Oliver lauk gagnfræða-
prófi frá Flensborgarskóla í Hafn-
arfirði árið 1936 og stundaði síðan
verslunarstörf hjá KRON í Hafn-
arfirði og Reykjavík á árunum
1936 til 1942 og hjá Bókaverslun
fsafoldarprentsmiðju í Reykjavík
frá 1942 til 1955, þar af sem versl-
unarstjóri frá 1944. Hann var
sölustjóri Sameinuðu verksmiðju-
afgreiðslunnar í Reykjavík 1956.
Oliver Steinn rak eigin bókaversl-
un í Hafnarfirði 1957 til 1978 og
jafnframt sitt eigið forlag,
Skuggsjá. Hann var framkvæmda-
stjóri Skuggsjá og Bókabúðar
Olivers Steins sf. frá 1979.
Oliver Steinn tók virkan þátt í
félagsmálum. Hann var í stjórn
Félags íslenskra bókaverslana
1953—1955. f stjórn Bóksalafélags
fslands sem nú heitir Félag is-
lenska bókaútgefenda, frá 1959 og
formaður þess 1964 til 1969 og frá
1980 til 1984. í stjórn Styrktarfé-
lags aldraðra í Hafnarfirði frá
stofnun þess 1968. í stjórn Fim-
leikafélags Hafnarfjarðar um ára-
bil. f fyrstu stjóm FRf. Oliver
Steinn var afreksmaður og met-
hafi í frjálsum íþróttum á árunum
1939 til 1947. Hann var varabæj-
arfulltrúi í Hafnarfirði 1970 til
1974 og bæjarfulltrúi þar 1974 til
1978. I fræðsluráði Hafnarfjarðar
1970 til 1978. f stjórn Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar 1978.
Oliver Steinn kvæntist eftirlif-
andi konu sinni, Sigríði Þórdísi
kartöflubænda sem endurnýja hjá
sér kartöflurnar með stofnútsæði
á ákveðnu árabili.
Sigurgeir Ólafsson, plöntu-
sjúkdómafræðingur hjá RALA,
sem hefur eftirlit með stofnút-
sæðisræktuninni sagði, að út-
breiðsla skemmdanna í sending-
unni hefði ekki verið könnuð, en
sagði að ekki væri hægt að líta
lengur á þetta sem stofnútsæði og
því töluvert tjón hefði því átt sér
stað, þar sem hærra verð er greitt
fyrir stofnútsæðið en aðrar útsæð-
iskartöflur. Hann sagði að þetta
væru ágætis kartöflur og hugsan-
legt að flokka þær upp og selja til
neyslu. Hann sagði að Grænmet-
isverslunin hefði boðið flutn-
ingana út og taldi líklegast að
flutningsaðili bæri ábyrgð á tjón-
inu. Hann sagði að ekki væri víst
að skortur yrði á útsæði í vor
vegna þessa atburðar, þar sem
stofnræktendurnir ættu meira
magn en farið hefði suður.
MorgunblaftiA/Júlfus
Borinn Jötunn við Nesjavelli, Þingvallavatn í baksýn. Á innfelldu mynd-
inni eru Ásgrímur Guðmundsson, jarðfræðingur og Dagbjartur Sigur-
steinsson, borstjóri, fyrir framan borinn.
Jötunn borar
við Nesjavelli
UM SÍÐUSTU helgi var hafist
handa við að bora eftir heitu
vatni fyrir Reykvíkinga á Nesja-
völlum í Grafningi. I gærkvöld
var búið að bora með Jötni um 80
metra niður og miðaði heldur
hægt, skv. upplýsingum bor-
manna, enda er bergið gisið efst
og hraunlögin víða kurluð. Jöt-
unn var fluttur austur fyrir
páskana og er áætlað að bora sex
holur á Nesjavöllum í sumar,
sem hver um sig gæti orðið allt
að tveggja kílómetra djúp.
Gaukur Jörundsson lagaprófessor:
Kísilnám við Mývatn háð
leyfi Náttúruverndarráðs
Oliver Steinn Jóhannesson
Bergsdóttur Jónssonar bæjarfóg-
eta í Hafnarfirði, árið 1946. Börn
þeirra eru Guðbjörg Lilja, Jó-
hannes Örn og Bergur Sigurður.
SAMKVÆMT niðurstöðu lög-
fræðilegrar greinargerðar Gauks
Jörundssonar lagaprófessors er
nám kísilgúrs úr botni Mývatns
háð leyfi Náttúruverndarráðs og
ákvæðum laga númer 36 frá 1974,
en þau taka til verndunar Mý-
vatns og Laxár í Suður-Þingeyj-
arsýslu.
Að ósk Menntamálaráðu-
neytisins, sem Náttúruverndar-
ráð heyrir undir, var Gaukur
„Þessi bifreiða-
kaleikur verði
frá okkur tekinn“
Aóalfundargestir Vinnuveitend-
asambands íslands skemmtu sér
hið besta er til orðahnippinga kom
i milli Steingríms Hermannssonar
forsætisráðherra og Sverris Her-
mannssonar iðnaðarráðherra í
panelumræðum fundarins í gær.
Tilefnið var fyrirspurn um bflafríð-
indi ýmissa ráðamanna þjóðarinn-
ar, og hvort ekki væri ástæða til
þess að nema ákvæði úr gildi er
heimiluðu slík fríöindi.
Sverrir sagði: „Ég bið og segi
að þessi bifreiðakaleikur verði
frá okkur tekinn."
Steingrímur svaraði: „Þú
keyrir nú á góðum bíl, sem ríkið
á.“
Sverrir sendi boltann til for-
sætisráðherra á nýjan leik með
orðunum: „Það hefðir þú líka átt
að gera. Þá hefðir þú ekki lent í
þessum vandræðum."
Steingrímur lét þessu ekki
ósvarað: „Það er miklu dýrara
fyrir ríkið að eiga bílinn, heldur
en að ráðherrarnir eigi bíla sína
sjálfir."
Enn svarar Sverrir: „Það
skiptir ekki nokkru máli. Það er
almenningsálitið sem dæmir í
þessu máli.“
Forsætisráðherra hafði svo
síðasta orðið í þessari uppákomu
því hann spurði: „Eigum við ekki
að láta skynsemina ráða?“
Jörundsson prófessor fenginn
til að gera úttekt og skila grein-
argerð um réttaráhrif námu-
leyfis við Mývatn, sem iðnaðar-
ráðuneytið gaf út í janúar síð-
astliðnum. Náttúruverndarráð
og iðnaðarráðherra hafa ekki
verið sammála um lagalegan
rétt ráðherra til að framlengja
starfsleyfi Kísiliðjunnar við
Mývatn um 15 ár. í áliti laga-
prófessorsins kemur m.a. fram,
að samkvæmt áðurgreindum
lögum númer 36 frá 1974 þarf
leyfi Náttúruverndarráðs til
hvers konar mannvirkjagerðar
og jarðrasks á landsvæði þvi,
sem lögin taka til. „Þar sem
einn megintilgangur umræddra
laga er verndun lífríkis Mý-
vatns, er að mínum dómi ekki
neinum vafa bundið, að nám
kísilgúrs úr botni Mývatns fell-
ur undir jarðrask í skilningi
nefnds ákvæðis 3. greinar," seg-
ir m.a. í álitinu. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er
nú unnið að gerð samkomulags
um málið.