Morgunblaðið - 17.04.1985, Page 4

Morgunblaðið - 17.04.1985, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 17. APRÍL 1985 Aðalfundur Vinnuveitendasambands (slands VSÍ ályktar um samningamál: „Sókn til bættra lífskjara“ „VINNUVEITENDASAMBANDIÐ vill vinna að nýrri leið, sittmála vinnu- markaðarins um atvinnuuppbyggingu og sókn til bættra lífskjara,“ segir m.a. í áiyktun aðalfundar Vinnuveitendasambnds íslands 1985. Þar segir jafnframt: „Slíkur markaðarins um atvinnumál og sáttmáli hlýtur að byggja á friði á væntir þess að árangur þeirra leiði vinnumarkaði og samstöðu um til aukinnar hagsældar og geti lagt langtíma markmið um uppbygg- grundvöll að gagnkvæmum skiln- ingu íslensks atvinnulífs. Aðalfund- ingi á sameiginlegum hagsmunum ur Vinnuveitendasambands Islands launþega og vinnuveitenda." fagnar því viðræðum aðila vinnu- Gunnar J. Friðriksson kjörinn formaður VSÍ Panelumræður hjá VSÍ: Nýsköpun í atvinnu- rekstri „Nýsköpun í atvinnurekstri" var yfirskrift pallborðsumræðna á að- alfundi VSÍ, þar sem tóku þátt Steingrímur Hermannsson, forsæt- isráðherra, Þorsteinn Pálsson, formaður _ Sjálfstæðisflokksins, Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, og Sverrir Her- mannsson, iðnaðarráðherra. Hörð- ur Sigurgestsson, forstjóri Eim- skips, stýrði umræðunum. Þátttakendur gerðu grein fyrir því í hverju þeir teldu að nýsköp- un atvinnulífsins ætti að vera fólgin. Voru þeir sammála um að það væri fyrst og fremst einstakl- ingurinn eða samtök einstaklinga sem ættu að vera ábyrg í nýsköp- unaruppbyggingu, og hafa frum- kvæði. Þó töldu þeir að vel kæmi til greina að ríkið greiddi götu nýrra leiða, a.m.k. til að byrja með, og legði til fjármagnskostn- að til rannsókna og þróunar. Meðal fyrirspurna, sem bárust frá fundarmönnum, var fyrir- spurn þess efnis hvort þingmenn- irnir væru tilbúnir til þess að beina því fjármagni, sem ætlað væri í Þróunarfélag íslands, til bankanna í landinu og þeir sæju síðan um að lána féð til þeirra sem vildu reyna uppbyggingu nýrra atvinnutækifæra. Halldór Ásgrímsson sagðist telja að slíkt gengi ekki, þar sem bankarnir væru ekki reiðubúnir til þess að lána áhættufé, og aðrir tóku í sama streng. króna,“ sagði Páll, „og til saman- burðar má upplýsa að tekjur af útflutningi þorskafurða voru á sama tíma 6 til 7 milljarðar, sem þýðir að um það bil tvær af hverj- um þremur krónum sem fást fyrir þann gula fara í vaxtagreiðslur og þá eru afborganir eftir.“ Undir lok ræðu sinnar sagði Páll að hann hefði nú gegnt for- mannsstarfinu hjá VSÍ um sjö ára skeið, og hann hefði tekið þá ákvörðun að gefa ekki kost á sér til endurkjörs. — vegna sjö vikna verkfalls þeirra sl. haust AÐALFUNDUR Vinnuveitendasambands íslands var haldinn að Hótel Sögu í gær að viðstöddu fjölmenni. Páll Sigurjónsson, formaður VSÍ flutti fundin- um yfirlitserindi í upphafi fundarins og þar kom fram að meðaltalskaupmátt- ur bókagerðarmanna skertist um 13 til 14%, vegna sjö vikna verkfalls þeirra sl. haust, og miðar Páll þá við tímabiliö frá upphafi verkfallsins og út samningstímann, eða til ársloka þessa árs. Sagði Páll að þessi útreikningur miðaði við að kaupmáttur bókagerðarmannanna yrði 13 til 14% lægri en orðið hefði að öllum samningum óbreyttum. Er Páll ræddi skattalækkunar- Hann sagði að ef skattalækkun- leið þá sem kom til greina á tíma- bili sl. haust sagði hann að form- legum viðræðum um þá leið hefði lokið er fjármálaráðherra gerði samning við BSRB um launa- hækkun upp á þriðja tug prósenta. arleiðin hefði verið farin, þá hefði verðbólga á þessu ári að líkindum orðið undir 10 prósentustigum. Þegar Páll ræddi fjárfestingu liðinna ára sagði hann m.a.: „Ef hver fjárfest króna í þjóðarauðn- um skilaði jafnmiklum arði nú eins og árið 1974 væri þjóðar- framleiðsla í dag 25 til 35% meiri en hún er. Þetta er visbending um hvað hefði getað orðið ef arðsemi hefði ráðið fjárfestingaákvörðun- um á liðnum 10 árum, og þá væru lífskjör þjóðarinnar jafnvel 25% betri en þau eru nú.“ í ræðu Páls kom fram að erlend- ar skuldir á mann hafa þrefaldast á undanförnum 10 árum: „Nettó- vaxtagreiðslur af lánum þjóðar- búsins voru í fyrra 3,5 milljarðar Við upphaf aðalfundar VSf i Hótel Sögu I gær. Páll Sigurjónsson, fráfarandi formaður VSÍ: Kaupmáttur bókagerðar- manna skertist 13—14 % MorgunblaðiA/Július Pill Sigurjónsson frifarandi formaður VSÍ í ræðustól i aðalfundi VSÍ í gær. Sitjandi fri vinstri eru Davíð Scheving Thorsteinsson, sem var fundarstjóri, Einar Benediktsson, sendiherra, sem flutti erindi i fundinum, Friðrik Pilsson, forstjóri, sem einnig flutti erindi, Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSÍ, og Grétar Br. Kristjánsson, sem var fundarritari. Ályktun VSÍ: Beina til samgönguráðherra að nema leigubflalög úr gildi GUNNAR J. Friðriksson var i aðai- fundi Vinnuveitendasambands ís- lands í gær kjörinn formaður VSÍ og Gunnar J. Friðriksson Ólafur B. Ölafsson, varaformaður. Pill Sigurjónsson, frifarandi for- maður gaf ekki kost á sér til endur- kjörs, né heldur Davíð Scheving Thorsteinsson frifarandi varafor- maður. Aðrir í stjórn sambandsins voru kjörnir Ágúst Hafberg, Árni Brynj- ólfsson, Gísli Ólafsson, Guðjón Tómasson, Guðlaugur Björgvins- son, Gunnar Birgisson, Gunnar Snorrason, Haraldur Sturlaugsson, Jón Páll Halldórsson, Magnús Vig- fússon, Sigurður Helgason, Víg- lundur Þorsteinsson og Þórhallur Helgason. Úr stjórn gengu auk Páls og Dav- íðs þeir Brynjólfur Bjarnason, Har- aldur Sveinsson og Jón Ingvarsson. Á fyrsta fundi nýkjörinnar fram- kvæmdastjórnar var kjörið í samn- ingaráð og það skipa: Gunnar J. Friðriksson, ólafur B. ólafsson, Hörður Sigurgestsson, Magnús Gunnarsson og Víglundur Þor- steinsson. AÐALFUNDUR Vinnuveitendasam- bands íslands beinir því til sam- gönguriðherra að hann beiti sér fyrir því að löngu úrelt lög um leigu- bifreiðir verði þegar felld úr gildi, og skorar fundurinn jafnframt i Al- þingi að fylgja eftirleiðis þeirri stefnu sem því er mörkuð 169. grein stjórnarskrir lýðvcldisins, sem mæl- ir fyrir um að atvinnufrelsi skuli ríkia i fslandi. I þessari ályktun aðalfundarins er gerð grein fyrir ástæðum þess- arar áskorunar og segir þar að til- efni hennar sé að í sakadómi Húsavíkur hafi tveir forsvars- menn eins aðildarfyrirtækis VSÍ, Skipaafgreiðslu Húsavíkur hf., verið dæmdir sekir, fyrir þá yfir- sjón eina að starfrækja skipaaf- greiðslufyrirtæki. Það hafi saka- dómur talið varða við lög frá 1970 um leigubifreiðir, með því að vöru- bifreiðir fyrirtækisins hafi verið notaðar við akstur milli skips og vörugeymslu á hafnarsvæðinu. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.