Morgunblaðið - 17.04.1985, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1985
Tekjuskatturinn lækk-
aður um tæp 20 % í ár
— eftir Gunnar G.
Schram
Annað skrcf til afnáms hans á
næsta ári. — 35 þús. kr. hjónatekjur
þá skattfrjálsar.
Þegar ríkisstjórnin var mynduð
fyrir tæpum tveimur árum var
það eitt af helstu stefnuskrárat-
riðum hennar að fella niður tekju-
skattinn á almennum launatekj-
um. Á það hafði Sjálfstæðisflokk-
urinn lagt mikla áherslu í kosn-
ingunum og raunar einnig á það
að lækka bæri tolla á innfluttum
vörum.
Það er þess vegna tímabært að
spyrja hver staðan sé nú í þessum
málum og hvað hafi þar áunnist.
Fyrstu skrefin
til lækkunar
Skömmu eftir að rikisstjórnin
var mynduð voru gerðar víðtækar
efnahagsráðstafanir eins og
mönnum er í fersku minni. Einn
liður þeirra var m.a. lækkun á
tekjuskattinum sem framkvæmd
var að mestu með hækkun barna-
bóta og auknum persónuafslætti
árin 1983 og 1984. Samtals nam
lækkun skatta þessi tvö ár kr. 380
millj.
Tekjuskatturinn hefur á seinni
árum breyst frá þvi að vera
sanngjörn skattaleið í það að
verða ranglátur launamanna-
skattur. Hann kemur æ misjafnar
niður og hefur þvi að miklu leyti
tapað upphaflegum tilgangi sín-
um, þeim að jafna tekjur manna.
Jafnframt hefur hann skipt æ
minna máli fyrir tekjuöflun ríkis-
sjóðs. Nú koma aðeins um 8% af
tekjum rikisins frá tekjuskattin-
um. Þorri teknanna er óbeinir
skattar svo sem söluskatturinn.
En það hefur ekki breytt þeirri
staðreynd að fyrir fjölda launa-
manna er þessi skattur þung
byrði, ekki síst eftir að kaupmátt-
ur fór rýrnandi á síðustu þremur
árunum. Það er því engin tilviljun
að samtök launþega svo sem
BSRB, BHM og félög innan ASÍ
hafa hvað eftir annað undirstrik-
að nauðsyn þess að afnema þenn-
an skatt á almennum launatekj-
um. Jafnframt hefur verið bent á
það hver kjarabót myndi í slíku
verki felast — kjarabót sem engin
verðbólguáhrif hefur í för með sér.
600 millj. kr.
lækkun í ár
í september á síðasta ári lýsti
ríkisstjórnin því yfir að hún
myndi afnema tekjuskattinn á al-
mennum launatekjum í þremur
áföngum. Hraðar treysti hún sér
ekki að standa að því verki og
þótti mörgum miður.
í samræmi við það var á fjárlög-
unum í ár gert ráð fyrir lækkun
tekjuskattsins um 600 millj.
króna. Það samsvarar þriðjungs
lækkun á tekjuskattinum, miðað
við áætlaðar tekjur af honum,
þegar þessi ákvörðun var tekin.
Alls var hann áætlaður 1800 millj.
króna nettó í fjárlögum.
Þessi lækkun kemur til fram-
kvæmda við álagningu skatta á
þessu ári. Verður kr. 400 millj.
varið til þess að lækka skattinn
beint, en 200 millj. króna til þess
að lækka skatta hjá hjónum þar
sem fyrirvinnan er aðeins ein.
Reiknað hefur verið út af fjár-
málaráðuneytinu hvað þessi
skattalækkun muni þýða í fram-
kvæmd fyrir almenning í landinu.
Niðurstöðurnar eru þessar:
Meðallækkun á álögðum tekju-
skatti mun á þessu ári verða
17—18% frá því sem verið hefði að
óbreyttum skattalögum. Sumir
gjaldendur fá meiri lækkun en
þetta, aðrir nokkru minni.
í öðru lagi hefur þessi lækkun
það í för með sér að hin Svonefndu
skattfrelsismörk tekjuskattsins
hækka allverulega. Skattfrelsis-
mörk eru þau tekjumörk þar sem
viðkomandi gjaldandi, sem ein-
ungis hefur fastan frádrátt, byrj-
ar að greiða tekjuskatt við álagn-
ingu 1985. Sem dæmi um þessa
hækkun skattfrelsismarksins má
nefna að hjón, þar sem annað afl-
ar allra teknanna, byrja nú að
greiða tekjuskatt við 370 þús. kr.
tekjur, en ella hefði skattgreiðslan
hafist við tekjur að upphæð kr.
322 þúsund.
900 millj. kr. lækkun
næsta ár
Að óbreyttum lögum er gert ráð
fyrir því að tekjuskattur einstakl-
inga nemi nettó alls 1,7 millj.
króna á næsta ári miðað við verð-
lagsforsendur fjárlaga 1985. I
samræmi við afnám hans á þrem-
ur árum þarf því að lækka þessa
upphæð um 800—900 millj. króna
með lögum nú í haust. Eftir þá
breytingu munu nettó tekjur
ríkisins af þessum skatti alls hafa
lækkað um tæpa tvo þriðju hluta
frá því sem var árið 1984.
Þessi breyting mun hafa það í
för með sér, samkvæmt upplýsing-
um fjármálaráðuneytisins, að
strax í þessum áfanga munu sam-
eiginlegar tekjur hjóna 30—35
þús. kr. á mánuði verða tekju-
skattfrjálsar. Er þess vegna veru-
legum áfanga náð að því takmarki
sem upphaflega var stefnt að.
Um þessar mundir eru að hefj-
ast viðræður aðila vinnumarkað-
arins um nýja kjarasamninga. í
þeim viðræðum mun efalaust
verða lögð áhersla á það að staðið
verði við áframhaldandi lækkun á
tekjuskattinum. Engum dylst
hvaða kjarabætur eru í því fólgn-
ar fyrir launþega almennt í land-
inu. í slíkum skattalækkunum
felst bein kaupmáttaraukning. Og
það sem meira er, sú kaupmáttar-
aukning hefur ekki í för með sér
neina kollsteypu nýrrar verðbólgu
sem allt of oft hefur þurrkað út
árangur kjarasamninga. Hags-
muna þeirra tekjuiægstu, sem ekki
hafa greitt neina tekjuskatta,
verður jafnframt að gæta með
aukningu tryggingabóta, þannig
að þeir beri hér ekki skarðan hlut
frá borði:
Beinir skattar þegar
lækkaðir um 1 milljarð
Hér hefur sérstaklega verið
rætt um tekjuskattinn. En ef allt
er talið þá hafa beinir skattar alls
verið lækkaðir um 1 milljarð og 70
milljónir króna á síðustu tveimur
árum. Auk 600 millj. króna lækk-
unar tekjuskattsins hefur þegar
verið minnst á 380 millj. kr. lækk-
un persónuskatta skömmu eftir að
ríkisstjórnin tók við. Þá hafa
skattar verið felldir niður það ár
sem menn hætta störfum. Sú
lækkun nemur 30 millj. króna.
Ákveðin var lækkun á sköttum
sjómanna á þessu ári vegna lausn-
ar kjaradeilu þeirra, sem nemur
45 millj. kr. Og loks var erfðafjár-
skatturinn lækkaður um 15 millj.
króna.
Alls hafa því beinir skattar ver-
ið lækkaðir um rúman einn millj-
arð króna á síðustu tveimur árum.
500 millj. kr. lækkun
óbeinna skatta
Hér hefur verið gerð grein fyrir
því hvern árangur baráttan fyrir
lækkun tekjuskattsins hefur þegar
Gunnar G. Schram
„Tekjuskatturinn hefur
á seinni árum breyst frá
því að vera sanngjörn
skattaleið í það að verða
ranglátur launamanna-
skattur. Hann kemur æ
misjafnar niður og hef-
ur því að miklu leyti tap-
að upphaflegum tilgangi
sínum.“
borið og hver munu verða næstu
skrefin í því efni.
En það vill stundum gleymast
að óbeinir skattar hafa einnig ver-
ið lækkaðir allverulega á síðustu
tveimur árunum. Fyrir skattborg-
arana skiptir það líka máli. Sam-
tals nemur lækkun óbeinna skatta
592 millj. króna. Þar vegur þyngst
endurgreiðsla til sjávarútvegsins
á kr. 430 millj. sem var uppsafnað-
ur söluskattur. Tollar og vörugjald
af ýmsum nauðsynjavörum voru
lækkuð um 90 millj. króna og toll-
ar og vörugjald voru lækku um 104
millj. kr. af landbúnaðartækjum
og tölvubúnaði. Loks var 10% álag
á ferðamannagjaldeyri afnumið
Auglýsingar Tryggingarstofnunar um gjaldskrá læknæ
Vantar þó nokkuð á að
þær gefí fulla vitneskju
— segir Gunnar Ingi Gunnarsson formaður
samninganefndar Læknafélags íslands
I TILEFNI af auglýsingum Tryggingastofnunar ríkisins um kostnaðarþátt-
töku fólks vegna læknisþjónustu heimilislækna hafði Gunnar Ingi Gunnars-
son heimilislæknir og formaöur samninganefndar Læknafélags íslands sam-
band við Mbl. og óskaði eftir að fram kæmi, að læknar væru sammála um
það að mikilvægt væri að fólk hefði fulla vitneskju um, hvað því bæri að
greida.
Aftur á móti vantaði þó nokkuð
á að auglýsing Tryggingastofnun-
arinnar gæfi fólki fulla vitneskju
um þær greiðslur sem því bæri að
inna af hendi fyrir breytilega
þjónustu og óskaði hann því að
eftirfarandi kæmi fram. Hann tók
þó fram að hér væri engan veginn
um tæmandi upptainingu að ræða:
„Varðandi stofuviðtalsgjaldið
Álafoss lengdur
um rúma 13 metra
ÁLAFOSS, skip Eimskipafélags íslands, kom í gærmorgun til Reykjavíkur
eftir að hafa verið lengdur um 13,1 metra í Vestur-Þýskalandi. Tók ekki
nema tólf vinnudaga að lengja skipið og styrkja, bæta í það Ijósavél og skipta
um bógskrúfu, að sögn Þórðar Sverrissonar, fulltrúa framkvæmdastjóra EÍ.
þá mega heimilislæknar bæta við
það gjald fyrir einnota áhöld og
lyf sem þeir útvega sjálfir. Síma-
viðtalsgjald sjúklings hækkar um
60% á kvöldin og 100% um nætur
og helgar. Þar er þó hámarks-
greiðsla sjúklings 75 kr. Trygg-
ingastofnun greiðir lækni mis-
muninn. Fulltrúar Trygginga-
stofnunar hafa hingað til ekki
samþykkt að greiða símaviðtals-
gjöld og verður þvi að benda fólki
á þetta yfirvinnu- og næturvinnu-
álag, sem því ber að greiða sam-
kvæmt ákvörðun Tryggingastofn-
unar.
Greiðsla sjúklings vegna vitjun-
ar heimilislæknis er kr. 140.00
þegar læknirinn vitjar sjúklings
frá heilsugæslustöð eða lækna-
stofu. Komi hins vegar heimilis-
læknir í vitjun sem vakthafandi á
bæjarvakt skal sjúklingur greiða
lækninum kr. 160 fram til mið-
nættis en eftir það og um helgar
kr. 270. Sjúklingur greiðir lækni
þessar upphæðir en fær hluta end-
urgreiddan.
Nýja ljósavélin um borð í Ála-
fossi mun gera mögulegt að vera
með fleiri frystigáma um borð auk
þess sem nýju bógskrúfunni nýtist
aukið rafmagn. Flutningsgeta
skipsins eftir breytinguna er 325
gámaeiningar og 150 bilar á neðsta
dekki.
„Þessi breyting er mjög hag-
kvæm og hefur til dæmis reynst vel
á Eyrarfossi," sagði Þórður Sverr-
isson. „Skipið tapar mjög litlum
hraða á lengingunni og er jafnvel
enn betra í sjó á eftir."
Álafoss var lengdur hjá skipa-
smíðastöðinni Howaldtswerke
Deutche-Werft í Hamborg, eins og
Eyrarfoss.
Einnig má geta þess að sjúkl-
ingur getur átt von á því, þegar
hann kemur á stofu heimilislækn-
is, að þurfa að greiða, auk stofu-
viðtalsgjalds, fyrir þjónustu sem
læknirinn hefur veitt viðkkom-
andi í gegnum síma frá því sjúkl-
ingurinn kom á stofu læknisins
síðast."
Morgunblaðið/Fríftþjófur
Þráinn Bertelsson, rithöfundur og kvimyndagerðarmaður, tekur við verð-
launum úr hendi borgarstjóra fyrir bók sína, „100 ára afmælið“.
Verðlaun Fræðsluráðs:
„100 ára afmælið“ besta
frumsamda barnabókin
VERÐLAUNUM Fræðsluráðs Reykjavíkur til barnabókarhöfunda var út-
hlutað í gær. Þráinn Bertelsson hreppti verðlaunin fyrir bestu frumsömdu
bókina, „100 ára afmælið", Gunnar Stefánsson fékk verðlaun fyrir bestu
þýddu barnabókina, „Paradís", og Brian Pilkington fékk sérstaka viður-
kenningu fyrir myndskreytingu bókar Þráins.
Davíð Oddsson, borgarstjóri, af-
henti verðlaunin og sagði hann m.a.
að þau bæri að líta á sem hvatningu
til þeirra sem fengjust við að skrifa
barnabækur. „Því miður verða þeir,
sem hér eru verðlaunaðir, ekki auð-
menn í einni svipan, en vonandi líta
þeir á þetta sem viðurkenningu á
góðu starfi."
f úrskurði dómnefndar sagði m.a.
að bók Þráins, sem fjallar um
tröllabarn og mennska vini þess, sé
skemmtileg, jákvæð og listræn og
snilldarlegar myndskreytingar Bri-
ans Pilkington veiti bókinni enn
frekara gildi.
Bókin „Paradís", sem Gunnar
Stefánsson þýddi, er eftir finnska
skáldið Bo Carpelan og fjallar um
samskipti tveggja drengja, en ann-
ar þeirra er andlega vanheill. Áleit
dómnefndin bókina gædda mann-
legri hlýju, sem gerði hana að
ákjósanlegri lesningu fyrir börn.
Dómnefndina skipuðu þau Jenna
Jensdóttir, Sigríður Ragna Sigurð-
ardóttir og Bragi Jósepsson og er
þetta í 10. sinn sem barnabókarhöf-
undar eru verðlaunaðir af Fræðslu-
ráði. Á síðasta ári komu út 20 frum-
samdar bamabækur hér á landi og
jafn margar voru þýddar.