Morgunblaðið - 28.04.1985, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUB 28. APRÍL1985
47
Elísabet Magnús-
dóttir — Minning
voru aldar á venjulegu fóðri en
fengu einungis fjórðung af venju-
legum dagskammti. Eftir tveggja
vikna megrun hafi líkamsþungi
þeirra minnkað um tæp 13% sem
samsvarar því að maður sem veg-
ur um 80 kg iéttist um 10 kg. Þessi
megrun olli miklum breytingum á
efnasamsetningu i frumuhimnum
hjartans og voru breytingarnar
hinar sömu og verða við mikið
streituálag. Áhrif róttækra megr-
unarkúra á hjartað eða önnur lif-
færi hafa litið verið rannsökuð en
tilhögun þeirra gæti skipt máli
þegar um er að ræða einstaklinga
sem eru með kransæðasjúkdóma.
Tilraunir á dýrum sýna að streitu-
hormónar og verulegar breytingar
á iífsskilyrðum valda miklum
breytingum á efnasamsetningu i
hjartavöðvanum. Ætla má að
þessar breytingar geti verið mun
viðtækari en kannað hefur verið
til þessa. Enn sem komið er vitum
við lítið um eðli streitu og efna-
fræðilega þætti streituaðlögunar,
þ.e. hvernig efla megi streituað-
lögun og auka þol gegn streitu.
Hvað varðar tengsl mataræðis og
hjartasjúkdóma er enn margt
ókannað. Það er almenn skoðun að
mikil neyzla á mettaðri dýrafitu,
sem eykur kólesteról og aðra fitu í
blóði, valdi því að fita safnast
fyrir í æðum, orsaki æðakölkun og
loks kransæðaþrengsli. Áhrif mat-
aræðis á hjartavöðvann sjálfan,
efnasamsetningu og starfshætti
hafa lítið verið rannsökuð. Í þessu
sambandi er vert að gefa gaum aö
samanburðarrannsóknum
danskra vísindamanna á Dönum
og Grænlendingum, sem virðast
ónæmari en aðrir fyrir kransæða-
sjúkdómum. Niðurstöður þeirra
gáfu til kynna að neyzla á fiski og
öðru sjávarfangi geti verið mikil-
væg til að forðast hjartasjúk-
dóma. við höfum nálgast þetta
viðfangsefni á þann hátt að rann-
saka áhrif fítu í fæðu á hjarta-
vöðvann i tilraunadýrum, þ.e.
albino-rottum. Rottur eru alætur
eins og maðurinn en fá þó ekki
æðaþrengsli eða æðakölkun þótt
þær séu aldar á fitu- eða kólester-
ólríku fæði í langan tíma. Við
skiptum tilraunadýrunum i fjóra
hópa — einn fékk venjulegt fit-
usnautt fóður en hinir fengu ýmist
fóður sem blandað var með 10%
smjöri, maísoliu eða þorskalýsi. I
ljós kom að fitan hafði mikil áhrif
á efnasamsetningu í hjarta-
vöðvanum og hafði hver fituteg-
und í fæðunni sín sérstöku áhrif.
Næst var athugað hvort streitu-
þolið væri mismunandi hjá þess-
um dýrum. Þau fengu streitu-
hormón og við samanburð kom í
ljós að þau dýr sem fengu þorska-
lýsi höfðu lægsta dánartíðni, en
þau sem fengu smjör og maísolíu
höfðu þrefalt hærri dánartíðni.
Líklegt er að fjölómettaðar fitu-
sýrur í fiski og lýsi tefji myndun
æðaþrengjandi efna, stuðli að
slökun æðaveggja og dragi þannig
úr líkum á dauðsföllum af völdum
álags á hjartavöðvann. En eins og
ég sagði áðan þá gefa tilraunir á
dýrum ekki fullnægjandi niður-
stöður heldur aðeins vísbendingar
um hvar og hvernig megi teita
frekari þekkingar varðandi lik-
ama mannsins."
„Svo við víkjum að sjálfum
þér — hver er maðurinn?"
„Ég er fæddur og uppalinn á
Ákranesi, fór í Menntaskólann á
Akureyri og lauk þar stúdents-
prófi árið 1952.“
„Af hverju fórstu til Akureyr-
ar? Hefði ekki verið nærtækara
að fara frá Akranesi í Mennta-
skólann í Reykjavík?"
„Vegalengdin er styttri, en
ástæðan fyrir því að ég fór til Ak-
ureyrar var sú að á þessum árum
var mun ódýrara að fara í heima-
vistina fyrir norðan en að halda
sér uppi hér í Reykjavík því að hér
var engin heimavist."
„Var ekki fullsnemmt fyrir
fimmtán ára ungling að fara úr
foreldrahúsum?“
„Það held ég að hafi verið i lagi,
en það hefði ekki mátt vera miklu
fyrr. Ég bjó að því sjálfstæði sem
ég aflaði mér með þessum hætti
þegar ég kom til Múnchen að
loknu stúdentsprófi. Upphaflega
innritaðist ég í læknisfræði hér
heima en siðah snerist mér hugur
og ég hélt til Múnchen. Þar voru i
gildi fjöldatakmarkanir við
Tækniháskólann, og það svo um
munaði. Það var mér hins vegar
ekki ljóst fyrr en hingað kom. 600
manns sóttu um inngöngu i efna-
fræði, þar af voru valdir úr 120
sem fengu að þreyta inntökupróf
og af þeim fengu ekki nema 30
skólavist. Þetta gekk þó allt vel og
ég varð einn af þessum þrjátíu. Að
loknu doktorsprófi kom ég heim
og var yfirverkfræðingur við Sem-
entsverksmiðju rikisins í tvö ár,
en síðan lá leiðin til Bandaríkj-
anna þar sem ég var kennari á
ýmsum stigum í lífefnafræði og
læknisfræði við Wayno State Uni-
versity í Detroit en prófessor í
efnafræði við Verkfræði- og
raunvísindadeild háskólans hef ég
verið frá 1970.“
„Áttu tómstundir?“
„Já, já, ég á tómstundir, en i
minum huga er starfið ekki eitt og
tómstundagaman annað. Áhuga-
málin eru mörg, sum varða starfið
og önnur ekki.“
„Og hvernig leggst það í þig
að taka við embætti rektors Há-
skóla íslands?“
„Það leggst vel i mig. Vandi há-
skólans er í eðli sínu sá sami nú og
hann hefur verið frá upphafi, þ.e.
ófullnægjandi aðstaða til að veita
þá þjónustu sem honum er ætlað
að veita. Háskóli íslands hefur í
öllum deildum dugmikið starfslið,
lið með þekkingu og reynslu sem
virkja má enn betur. Háskólinn
þjónar allri þjóðinni og þess má
sjá glögg merki ef menn gefa því
gaum hvaða störfum kandidatar
okkar sinna. Háskólinn stefnir að
markvissari og afkastameiri rann-
sóknastarfsemi jafnhliða því að
veita ungu fólki menntun og þjálf-
un. Það eru skemmtileg og krefj-
andi verkefni sem bíða þeirra sem
eru að Ijúka háskólanámi um
þessar mundir."
Viðtal/ ÁSLAUG RAGNARS
Fsdd 8. júní 1907
Dáin 21. aprfl 1985
Amma okkar, Elísabet Magn-
úsdóttir, er látin. Hún fæddist í
Svínaskógi á Fellströnd.
Foreldrar hennar voru þau
Kristín Jónsdóttir og Magnús
Hannesson. Hún var yngst 6
systkina. Árið 1931 giftist amma
afa okkar. Ásberg Kristjánssyni
skipsstjóra, en hann lést 28. apríl
1982. Éignuöust þau fimm börn,
Elsa er þeirra elst síðan er Ása,
Otga, Kristján og Auður móðir
Endurvarp:
Ljósmynda-
sýning fram-
haldsskóla-
nema opnuð
Ljósmyndasýning framhaldsskóla-
nema ó höfuðborgarsvæðinu verður
opnuð í dag, sunnudaginn 28. aprfl,
klukkan 15.30.
Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra opnar sýn-
inguna og viðstödd opnunina
verða forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, Davíð Oddsson borg-
arstjóri, skólastjórar skólanna,
forystumenn nemendafélaganna
og fleiri gestir.
Sýningin er í Gerðubergi og eru
á henni 106 myndir, teknar af
nemendum i 7 skólum. Sýningin er
opin á venjulegum opnunartima
Gerðubergs, þ.e. mánudaga til
fimmtudaga frá kl. 16 til 22, og
laugardaga og sunnudaga frá kl.
14 til 18. Lokað er á laugardögum
og 1. maí.
Sýning sem þessi hefur aldrei
verið haldin áður, en það er von
þeirra sem að sýningunni standa,
aö hún verði árlegur viðburður og
að fleiri skólar geti verið með í
framtíðinni. (FrélUtilk;nnÍBH.)
Fundir um að-
stöðu krabba-
meinssjúklinga
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
efnir á næstunni til þriggja fræðslu-
og umræðufunda um meðferð
krabbameins og aðstoð hins opin-
bera og áhugasamtaka við krabba-
meinssjúklinga og fjölskyldur
þeirra.
Fyrsti fundurinn verður hald-
inn á morgun, mánudaginn 29.
apríl. Verður þá fjallað um með-
ferð krabbameins á sjúkrahúsum
og göngudeildum. Frummælendur
verða Guðmundur Benediktsson
og Kjartan Magnússon, sérfræð-
ingar á krabbameinslækninga-
deild Landspítalans, Kristín Soph-
usdóttir deildarstjóri á göngudeild
krabbameinslækningadeildar
Landspítalans og Guðbjörg
Pálmadóttir deildarstjóri á
göngudeild háis-, nef- og eyrna-
deildar Borgarspítalans.
Annar fundurinn verður hald-
inn mánudaginn 6. mai og mun
Úlfhildur Grímsdóttir hjúkrunar-
fræðingur ræða um aðlögun sjúkl-
ings og aðstandenda hans að
krabbameini, Björn Önundarson
tryggingayfírlæknir fjallar um
þann stuðning sem Trygginga-
stofnun ríkisins veitir og Margrét
Þorvarðardóttir aðstoðardeildar-
stjóri Heimahjúkrunar við
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
fjallar um heimahjúkrun.
Á síðasta fundinum sem hald-
inn verður mánudaginn 13. maí,
verður kynnt starfsemi Krabba-
meinsfélagsins, félagsins Nýrrar
raddar, Samhjálpar kvenna og
Stómasamtakanna.
okkar, einnig ólu þau upp dóttur-
son sinn, Ásberg.
Á kveðjustund er margs að
minnast, en minning um þá
brosmildu, gestrisnu og góðu
ömmu sem við áttum gleymist
aldrei, en huggunin hjá okkur er
sú að nú er hún komin til afa
okkar. Hún lést á heimili sínu, þar
sem hún undi sér best, þann 21.
apríl 1985 sem var afmælisdagur
afa okkar.
Elísabet var jarðsungin í gær,
laugardag, frá ísafjarðarkirkju.
Blessuð sé minning ömmu okk-
ar. Hvíli hún í friði j faðmi Guðs.
Ólafur Ásberg og Kristján
Breiðfjörð Árnasynir.
SOVÉSKIR DAGAR
MÍR 1985
Rússneskir
tónleikar
Ljúdmíla Zykina, frægasta þjoölagasöngkona Sovétríkjanna,
og þjódlagasveitin „Rossia" undlr stjórn Viktors Gridin, koma
fram á tónleikum MÍR, Menningartengsla íslands og Ráóstjórn-
arríkjanna, í næstu viku sem hér segir:
Þjóöleikhúsinu mánudaginn 29. apríl kl. 21.
þriöjudaginn 30. apríl.
mlövikudaginn 1. maí.
fimmtudaginn 2. maí.
föstudaginn 3. maí.
Missiö ekki af þessum elnstæöu tónleikum. Sala aögöngumlöa
aö tónleikunum í miöasölu leikhússins. ,
MIR.
Neskaupstaö
Egilsstööum
Akureyri (Sjallanum)
Húsavfk
Termi-tölvuborö.
Verö frá kr. 8.975,-
KRISTJÁfl
SIGGGIRSSOn HF.
LAUGAVEG113. REVKJAVIK, SÍMI 2587D