Morgunblaðið - 28.04.1985, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUgjg. APR1U1986
«1
Vahir með fjölskyldu sinni og eiganda gistihússins TÍð Bláa lónið, Þórði Stefánssyni. Við klið Þórðar er
kona Vals, Birna Sigurðardóttir, en milli Vals og Birnu eru börn þeirra, Asta Halifríður og Jón Margeir.
húðarsýkingu og sjúklinga sem
þjást vegna beina- og liðameiðsla.
Þannig mineralvatn er til víða um
heim og heyrir vatnið í Dauða haf-
inu til dæmis undir þennan flokk."
Sigurður taldi þó líklegt að
fleiri efni tæmu við sögu, og
nefndi í því sambandi ýmis snefil-
efni, fjölliðaðan og ófjölliðaðan
kísil, en kísillinn er eitt af aðal-
einkennum vatnsins i Bláa lóninu.
JARÐVARMl OG FERÐA-
MANNAIÐNAÐUR
Lækningarmáttur Bláa lónsins
vekur upp þá spurningu hvort ís-
lendingar séu á réttri leið í nýt-
ingu jarðvarmans. Væri hægt að
nýta heita vatnið í stórum stíl í
heilsubótarskyni og gera að undir-
stöðu í ferðamannaþjónustu? Sig-
urður Rúnar er ekki í neinum vafa
um það:
„Eg tel miklar líkur á því að
tslendingar geti laðað til landsins
nýja tegund ferðafólks með þvi að
bjóða upp á fullkomna aðstöðu til
hvíldar og heilsubótar. Þetta er
möguleiki sem við höfum ekki
fært okkur i nyt enn sem komið er.
Fram til þessa hefur nýting jarð-
hita hérlendis snúist mest um
upphitun húsa og ylrækt, enda
liggur það kannski beinast við
vegna veðurfarsins. En ef við lít-
um til annarra þjóða sem nýta
jarðhita sjáum við allt aðrar
áherslur. Bæði Japanir og Ung-
verjar gera til dæmis mikið af því
að byggja upp heilsuhæli og
heilsuræktarstöðvar við heitar
lindir, og þá ekki síst með móttöku
erlendra gesta í huga. Tæplega
30% af nýtingu jarðvarma í heim-
inum fer til þessara hluta, það er
að segja til heilsuræktar og ferða-
mála. Og verömætasköpunin á
þessu sviði er langmest, eða rúm-
lega 50% af heildarverðmæta-
sköpun alls jarövarmaiðnaðar í
heiminum. Til samanburðar má
nefna að rúmlega 33% þess jarð-
varma sem nýttur er fer til
raforkuframleiðslu, en sú fram-
ieiösla gefur aðeins af sér rúmlega
27% heildarverðmæta í þessum
iðnaði. Tölurnar tala sínu máli.
En ég er ekki bara að hugsa um
útlendingana. Við íslendingar höf-
um líka þörf fyrir góðar heilsu-
ræktarstöðvar, eins og við sjáum
best af mikilli ásókn í dvöl á
heilsuhæli Náttúrulækningarfé-
lagsins í Hveragerði. Þar er ávallt
langur biðlisti og komast færri að
en vilja.“
- GPA
Að lokinni hálfs mánaðar böðun {Bláa lóninu. Eins
og sjá má er hrúður hvergi sjáanlegt á líkama Vals.
Valur hafði stundað Bláa lónið í tæpa viku þegar Ólafur K. Magnússon, Ijósmyndari Morgunblaðsins, kom á vettvang og tók af
honum myndir. „Strax á þessum fyrstu dögum fór mesta hrúðrið af bakinu og bringunni, en ég var enn slæmur í fótleggjum og
lærum," sagði Valur.