Morgunblaðið - 14.05.1985, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985
ÚTVARP / S JÓN VARP
Stefnumót við
áhorfendur
Það tekur því vart þá ðrskots-
stund er líf vort spannar frá fæð-
ingu til grafar, að grufla stöðugt
í flísinni er ku standa úr auga
bróðurins. Að ekki sé talað um
bjálkann sem við burðumst víst
flest með um táradalinn. Því
bregð ég nú á það ráð hér í dálki
að hæla því dagskrárefni, sem
öðru fremur hefir losað um gallið
í penna mínum. Hér á ég við
blessaðar íþróttirnar sem að
sumra mati ríða vart við ein-
teyming á skjánum, rétt eins og
fsland sé bara byggt íþrótta-
áhugamönnum og engilsöxum.
En nú á laugardaginn bregður
svo við að íþróttaþátturinn fékk
á sig þjóðlegt og afar skemmti-
legt yfirbragð. Ég á hér við
prýðilegt spjall Bjarna Felix-
sonar við fyrrum fótboltakappa,
þá Jóhannes Eðvaldsson, Mar-
tein Geirsson og Inga Björn Al-
bertsson. Lét Bjarni ekki duga að
spjalla við þá félaga, heldur brá
hann og upp svipmyndum frá
ferli þeirra. Bar þar fyrir sjón-
varpsglápara ýmiss gullin
augnablik knattspyrnusögunnar,
eins og þá Jóhannes skoraði hið
glæsilega „sigurmark" í leiknum
gegn A-Þjóðverjum um árið.
Tíminn skiptir máli:
Um leið og ég þakka Bjarna
Felixsyni fyrir þennan ágæta
viðtalsþátt, vil ég minna á þá
staðreynd, að það skiptir máski
ekki höfuðmáli fyrir íþrótta-
áhugamenn að lopinn sé teygður
von úr viti. Slíkt slævir ekki að-
eins áhuga íþróttaunnenda held-
ur ergir og hina er hafa ekkert
fyrir snúð sinn á laugardagseft-
irmiðdögum. Það er miklu nær
að vanda til þeirra íþróttafrétta
er fylgja í kjölfar hinnar klass-
ísku ensku knattspyrnu. En þær
fréttir teygja sig nú yfir 100 mín-
útur í laugardagsdagskránni eða
nánar tiltekið frá klukkan 17.45
til klukkan 19.25, er barnatíminn
hefst. Væri ekki nær að deila
þessari síðdegisstund réttlátar
milli sjónvarpsáhorfenda, þannig
að í stað langloku fengju íþrótta-
unnendur vandaða dagskrá, slíka
er ég gat um fyrr í pistli, en síðan
yrði svo sem 50 mínútum varið í
þágu ýmiss tómstundagamans,
af öðrum toga.
Til móts við fjöldann:
Ég hef raunar engar sérstakar
hugmyndir varðandi þessar
fimmtíu mínútur er hæglega má
skera af íþróttaþætti laugar-
dagsins, en þó dettur mér í hug,
hvort ekki mætti hér koma til
móts við alla þá er nú hyggja að
görðum sínum. Ég heyri ekki bet-
ur en að hlustendur láti mjög vel
af garðyrkjuþætti Hafsteins
Hafliðasonar í morgunútvarpinu.
Og hvað um þá sjónvarpsglápara
er hafa áhuga til dæmis á frí-
merkjasöfnun eða bridge? Nú, og
svo er fólk að byggja út um borg
og bi. Hefir blessaður húsbyggj-
andinn gleymst í þessu öllu sam-
an? Ég hefði nú talið það íþrótt
að byggja hús eða reisa við aldna
byggingu. Og hvað um þá íslend-
inga er hafa áhuga á þjóðlegum
fræðum og bókmenntaarfinum?
Það skyldi þó aldrei vera að
áhugamenn um slíka hluti slagi
upp í fjölda þeirra er horfa að
staðaldri á ensku knattspyrnuna.
Eða hvað segja menn um þá
staðreynd að 18% íslensku þjóð-
arinnar horfa að meðaltali £
ensku knattspyrnuna á sama
tíma og vel yfir 20% hlýða á
Stefnumót við Sturlunga?
Ólafur M.
Jóhannessson
„Mörk láös og lagar“
— þáttur um náttúruvernd þar sem
fjallað er um manninn og vatnið
Páll Líndal
■■ Þátturinn um
30 náttúruvernd,
„Mörk láðs og
lagar“ er á dagskrá út-
varpsins, rásar 1, klukkan
20.30. í kvöld. í þættinum
talar Páll Líndal, lögmað-
ur, um manninn og vatn-
ið.
Páll sagði í samtali við
Mbl. að hann legði út af
því sem hinn gríski Pind-
aros hefði hugsað um þeg-
ar hann orti fyrsta ólymp-
íska óðinn sem hófst á
orðunum: „Vatnið er
best."
„Meiningin er að fara
nokkrum orðum um
hvernig vatnsöfluninni
hafi verið hagað á Islandi
á fyrri tíð og um þann
undrakraft, sem talið er
að hafi fylgt vatnsvígslum
Guðmundar góða. Rætt
verður um framræslu á
mýrum, um veiðirétt og
fiskeldi, sem hófst reynd-
ar vestur í Þorskafirði
fyrir 1100 árum. Einnig
fjalla ég nokkuð um raf-
orkuframleiðsluna. Sam-
anburður verður á kvæð-
um skáldanna Steins
Steinars annars vegar og
Steingríms Thorsteins-
sonar hins vegar, og talað
verður um tónskáld.
verður til umfjöllunar.
Margir mun þekkja Eyr-
byggjasögu þar sem segir
frá þegar berserkirnir á
Snæfellsnesi voru kæfðir í
eins konar baðhúsi á
Hrauni í Helgafellssveit.
Svo er það gamla baðstof-
an, sem í raun var upp-
runalega baðstofa en ekki
vistarvera. Svo eru það
laugarnar í Reykjavík.
Notkun vatns í stór-
borgum getur verið með
ýmsu móti. T.d. í New
York var gerður foss í
þeim tilgangi einum að
fossniðurinn yfirgnæfi
umferðarhávaðann, og í
Freiburg í Þýskalandi
hefur verið gerð tilraun
með að hafa rennur f göt-
um þar sem er stöðugt
vatnsrennsli til að niður-
inn frá því dragi verulega
úr umferðarhávaðanum.
„Hættum að reykja“
— sjónvarpsnámskeið til leiðbeiningar og uppörvunar
þeim sem vilja hætta reykingum
■■^H Þáttaröð um
OA 40 reykingar og
skaðsemi reyk-
inga hóf göngu sína i sjón-
varpinu í gærkvöldi og
verður annar þátturinn á
dagskrá sjónvarpsins í
kvöld. Þættirnir verða
einnig eftir fréttir á mið-
vikudag og föstudag. Þeir
bera nafnið „Hættum að
reykja“.
Sjónvarpið efnir nú til
námskeiðs í samráði við
tóbaksvarnarnefnd til
leiðbeiningar og uppörv-
unar þeim sem vilja hætta
reykingum. Umsjónar-
maður er Sigrún Stef-
ánsdóttir, fréttamaður.
Hún sagði í samtali við
Mbl. að þættirnir væru í
svipuðu formi og þættir
hennar um þetta efni árið
1977. „Sex manns koma í
sjónvarpssal og ætla að
hætta reykingum, og
drápu þau í síðustu sígar-
ettunum í gærkvöldi og
fylgjumst við með þeim
áleiðis í þeirra baráttu.
Við fáum ýmsa sérfræð-
inga í heimsókn f sjón-
varpssal, sem ætla að gefa
fólki, sem vill hætta, góð
ráð í sambandi við auka-
kílóin, sem oft vilja hlað-
ast upp er fólk hættir
reykingum; einnig ráð
varðandi heilsufar og
annað.
Meiningin er sfðan að
hittast aftur í sjónvarps-
sal eftir tvær vikur og síð-
an eftir fjórar vikur til að
fylgja þessu eftir. Þætt-
irnir nú f vikunni verða
allir f beinni útsendingu
og er hver þeirra 10 til 15
mínútur. Við vonumst
auðvitað til að sem flestir
reykingamenn taki sig nú
á og hætti reykingum, en
það er aðaltilgangurinn
með þáttunum,“ sagði
Sigrún.
Eins og alþjóð veit ef-
laust tóku gildi ný lög um
áramótin sfðustu sem eiga
að hamla gegn reyking-
um. Áhorfendum gefst nú
kostur á að læra af
reynslu þátttakenda f
sjónvarpssal, jafnframt
því sem þeir sem heima
sitja geta hagnýtt sér
leiðbeiningar sérfróðra
gesta i þáttunum.
Sl. föstudagskvöld
fengu sjónvarpsáhorfend-
ur eiginlega forsmekkinn
af þáttum Sigrúnar, en þá
var sýnd mynd í sjónvarp-
inu sem bar nafni „Ekki
ég“ en hana lét tóbaks-
varnarnefnd gera um
skaðsemi tóbaksreykinga.
Sigrún Stefánsdóttir,
stjórnar nú í annað sinn
þætti fyrir þá sem vilja
hætta reykingum.
ÚTVARP
v
ÞRIÐJUDAGUR
14. maí
74)0 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.20
Leikfimi. Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Valdimars Gunnars-
sonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð: — Afni Einars-
son talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Bláa barniö" eftir Bente
Lohne. Sigrún Björnsdóttir
les pýðingu slna (7).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr).
10.45 .Man ég pað sem löngu
leið."
Ragnheiður Viggósdóttir sér
um þáttinn.
11.15 Við Pollinn.
Umsjón: Ingimar Eydal. (R0-
VAK.)
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
1520 Barnagaman.
Umsjón: Sigrún Jóna Krist-
jánsdóttir.
1320 Lög eftir John Lennon og
Paul McCartney. Peter
Framton, David Bowie, Cleo
Laine o.fl.
14.00 .Sælir eru syndugir"
eftir W.D. Valgardson. Guð-
rún Jörundsdóttir les þýð-
ingu slna (8).
1420 Miðdegistónleikar.
a. .Adagio" fyrir strengja-
sveit eftir Samuel Barber og
b. Forleikur að .Candide"
eftir Leonard Bernstein. Fll-
harmónlusveitin I Los Angel-
es leikur; Leonard Bernstein
stjórnar.
14.45 Upptaktur.
— Guömundur Benedikts-
son.
1520 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
1620 Slðdegistónleikar.
a. Sinfónia nr. 1 eftir Kurt
Weill. Gewandhaus-hljóm-
sveitin I Leipzig leikur. Edo
de Waart stjórnar.
b. Passacaglia op. 1 fyrir
hljómsveit eftir Anton Web-
ern. Sinfónluhljómsveit út-
varpsins I Kðln leikur. Hiroshi
ÞRIÐJUDAGUR
14. ma(
1925 Vinna og verðmæti —
hagfræði fyrir byrjendur
Þriöji þáttur
Breskur fræðslumyndaflokk-
ur I fimm þáttum sem kynnir
ýmis atriöi hagfræöi á Ijósan
og lifandi hátt, m.a. meö
teiknimyndum og dæmum úr
daglegu llfi. Guðni Kol-
beinsson þýðir og les ásamt
Lilju Bergsteinsdóttur.
Wakasugi stjórnar.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Slödegisútvarp. Tilkynn-
ingar
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.59 Daglegt mál.
Sigurður G. Tómasson flytur
þáttinn.
20.00 A framandi slóðum.
Oddný Thorsteinsson segir
frá Japan og leikur þarlenda
tónlist. Seinni hluti. (Aður út-
varpað 1981.)
20.30 Mörk láðs og lagar —
Þáttur um náttúruvernd. Páll
Lfndal lögmaður talar um
manninn og vatniö.
20.50 .Vorið góða grænt og
hlýtt".
Höskuldur Skagfjörö les
vorkævöi.
1920 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
2020 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Hættum að reykja
Annar þáttur
Námskeiö til uppörvunar og
leiðbeiningar þeim sem vilja
hætta að reykja. Umsjónar-
maður Sigrún Stefánsdóttir.
20.55 Heilsað upp á fólk
14. Guöni (Skaröi
Ingvi Hrafn Jónsson heilsar
upp á Guðna Kristinsson,
stórbónda og hreppstjóra I
21.00 Islensk tónlist.
a. Forleikur og fúga um
nafniö BACH fyrir einleiks-
fiðlu eftir Þórarin Jónsson.
Björn Ólafsson leikur.
b. Sónata op. 23 fyrir tromp-
et og pianó eftir Karl O. Run-
ólfsson. Björn Guðjónsson
og Glsli Magnússon leika.
2120 Otvarpssagan:
.Langferö Jónatans" eftir
Martin A. Hansen. Birgir Sig-
urösson rithöfundur les þýö-
ingu slna (7).
22.00 Tónleikar.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins.
w 3<s Frá tónleikum Islensku
hljómsveitarinnar I Bústaöa-
kirkju 8. þ.m. Stjórnandi:
Thomas Baldner. Einleikari:
Joseph Ka Cheung Fung.
Kynnir: Asgeir Sigurgests-
son.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Skaröi I Landsveit.
2125 Verðir laganna — Rofin
heit
Bandarlskur framhalds-
myndaflokkur um lögreglu-
störf I stórborg.
Aöalhlutverk: Daniel J. Trav-
anti, Veronica Hamel og
Michael Conrad. Þýðandi
Bogi Arnar Finnbogason.
2225 Þingsjá
Umsjónarmaður Páll Magn-
ússon.
23.05 Fréttir I dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
14. mal
1020—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
144)0—15.00 Vagg og velta
Stjórnandi: Gisli Sveinn
Loftsson.
154)0—16.00 Með sinu lagi
Lög leikin af Islenskum
hljómplötum.
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Þjóðlagaþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
174)0—184» Frlstund
Unglingaþáttur.
i Stjórnandi: Eövarð Ingólfs-
son.
Þriggja mlnútna fréttir klukk-
an: 11:00, 15:00, 16:00 og
17:00.
20.00—22.00 Flautað til leiks.
Stakur þáttur er geröur var I
tilefni af upphafi knatt-
spyrnuvertlöarinnar. Bein
lýsing verður frá fyrstu leikj-
um fyrstu deildarinnar |
knattspyrnu, en I kvöld verö-
ur keppt á Laugardalsvelli,
Akureyrarvelli og I Garöin-
um. Umsjónarmenn þáttar-
ins eru Ingólfur Hannesson
og Samúel Örn Erlingsson
nýráðnir Iþróttafréttamenn
hjá útvarpinu.
SJÓNVARP