Morgunblaðið - 29.05.1985, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1985
5
Veður fer hlýnandi og
flestir vegir færir
HVÖSS norðaustanátt var enn nt af Vestfjörðum um miðjan dag í gær en
ágætis veður víðast hvar á landinu. Næsta sólarhringinn er gert ráð fyrir
norðan- eða vestanátL Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar er búist við
aðgerðalitlu og hlýnandi veðri á fimmtudag.
Um hvítasunnuhelgina tepptust
heiðar á Vestfjörðum og þurfti t.d.
að moka Steingrímsfjarðar- og
Breiðadalsheiði samkvæmt upp-
lýsingum Vegagerðarinnar. Þá var
þungfært í Kerlingarskarði og á
Fróðárheiði á Snæfellsnesi. Fyrir
norðan lokaðist Lágheiðin, vegirn-
ir um Möðrudalsöræfi og um
Hólssand voru þungfærir. Snjóföl
var á heiðum á Austurlandi og
mikil hálka. Allir þessir vegir eru
nú færir, nema e.t.v. Lágheiðin.
Nú eru þungatakmarkanir óðum
að falla úr gildi. Vegir um hálend-
ið eru þó alveg lokaðir enn og fer
það eftir tíðarfari næstu vikurnar
hvenær þeir verða opnaðir fyrir
umferð.
'ijfc' ''' '
*. ./- *^v.v ■\A’. -
Y
.v'i ;:4.V-
Eldur í skógarkjarri við Sogsbrú
Morgunblaðiö/ RAX
Á Fjarðarheiði sl. fostudag var snjór yfír öllu og mikil hálka myndaðist
Seirossi, 26. m*í.
SLÖKKVILIÐIÐ á Selfossi var í
dag kvatt að Sogsbrú þar sem eld-
ur var í skógarkjarri í landi Al-
viðru, austan árinnar. Eldurinn
kviknaði út frá gastæki og breidd-
ist ört út undan strekkingsvindi.
Miklar annir voru hjá slökkvilið-
Ólafur Guðmundsson
á Hvanneyri látinn
JÓN ÓLAFUR Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Bútæknideildar Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins á
Hvanneyri, lést að morgni hvíta-
sunnudags, 57 ára að aldri. Hann
var búsettur á Báreksstöðum í Anda-
kflshreppi.
Ólafur fæddist 10. nóvember
1927 í Reykjavík, sonur Guðmund-
ar Jónssonar skólastjóra á Hvann-
eyri og Ragnhildar Ólafsdóttur,
konu hans. Hann varð búfræðing-
ur frá Hvanneyri 1946, stúdent frá
MR 1949, búfræðikandídat frá
Hvanneyri 1951 og stundaði síðan
sérnám í búvélafræði við búnað-
arháskólann í Ultuna í Svíþjóð
1951-53.
Ólafur var framkvæmdastjóri
Verkfæranefndar ríkisins
1954—66 og frá árinu 1966
framkvæmdastjóri Bútæknideild-
ar Rannsóknastofnunar landbún-
aðarins á Hvanneyri. Hann var
stundakennari í búvélafræði við
Bændaskólann á Hvanneyri frá
árinu 1956. Hann var söngkennari
og kirkjuorganisti á Hvanneyri
frá 1956 og virkjur þátttakandi í
söngmálastarfi og tónlistarlífi í
Borgarfirði. Hann var skólastjóri
Tónlistarskóla Borgarfjarðar
1978-83.
Eftirlifandi eiginkona Ólafs er
Sigurborg Ágústa Jónsdóttir frá
Gestsstöðum í Kirkjubólshreppi.
Þau eignuðust 5 börn sem öll eru
uppkomin.
Ólafur Guðmundsson
inu vegna sinu- og kjarrelda í
Grímsnesi.
Það var um hádegisbilið sem
lögreglumenn í eftirlitsferð und-
ir Ingólfsfjalli létu vita að eldur
væri laus í skógarkjarri í landi
Alviðru, austan Sogsins. Landið
var mjög þurrt og eldurinn
breiddist ört út og um tíma log-
aði glatt í kjarrinu. Það tók
slökkviliðið á Selfossi rúman
klukkutíma að ráða niðurlögum
eldsins.
Engin mannvirki voru í hættu
en akbraut sem liggur um landið
hindraði útbreiðslu eldsins sem
annars hefði átt greiða leið niður
að Sogi þar sem sumarbústaðir
eru.
Að sögn lögreglunnar kviknaði
eldurinn út frá gastæki tveggja
barna sem tjaldað höfðu í kjarr-
inu.
Þegar slökkviliðsmenn höfðu
ráðið niðurlögum eldsins gaus
upp eldur í sinu og kjarri neðan
við skálann í Þrastarlundi.
Nokkru síðar kviknaði eldur
við Álftavatn og síðasta útkallið
þennan dag var vegna sinu og
kjarrelda í landi Miðfells.
í gær, laugardaginn 25. maí,
var slökkviliðið kvatt út vegna
elds í Vaðneslandi í Grímsnesi
þar sem tveir sumarbústaðir
voru í stórhættu og litlu munaði
með bíla sem þar voru en vindátt
snerist og eldurinn leitaði í aðra
átt. Þar höfðu sumarbústaðaeig-
endur leyft unglingum að tjalda
og óvarleg meðferð gastækja í
þurru landinu orsakaði brunann.
Sig. Jóns
Fyrirlestur um
efni úr sögu
læknisfræði
FYRIRLESTUR verður fluttur í
Odda, hugvísindahúsi HÍ, stofu
101 föstudaginn 31. maí 1985 og
hefst kl. 17.30. Fyrirlesari er pró-
fessor Öivind Larsen, Osló, og
nefnist erindi hans: „De skjulte
linjer í medicinens historie".
Ollum er heimill aðgangur.
Sumarföt á öll börn! I®
Vörymarkafinrinn bf.
Armula 1a — simi 686113
KENWOOD
TRAUST MERRI MEÐ ÁRATUGA REYNSLU Á ÍSLANDI
Fullkomin varahluta- og viðgerdaþjónusta
BESTA
ELDHÚSHJÁLFm
THORN
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
VISA