Morgunblaðið - 29.05.1985, Page 6
6
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUÐAGUR 29. MAÍ 1985
Á ver-
gangi
Hvítasunnan liðin og skilur eftir
fáein minningabrot í huga
fjölmiðlarýnisins. Sumar fréttir eru
betri en aðrar fréttir en svo berast
váleg tíðindi stöðugt á öldum ljós-
vakans. Ég ætla að minnast hér á
eina smáfrétt er varð mér gleðiauki
við kvöldmatarborðið eitt hátíðar-
kveldið. Þessi frétt barst frá hinu
háa Alþingi og greindi frá því að
Hjörleifur Guttormsson þingmaður
hefði iagt fram tillögu þess efnis að
99% af tekjum ríkissjóðs af sölu
áfengs öls skyldu renna til Fram-
kvæmdasjóðs aldraðra. Tillagan var
náttúrulega felld eða kannski ekki
hægt að ætlast til þess að slíkur við-
bótarskattur renni allur í einn far-
veg. Og þó, hafa menn íhugað um-
mæli þingbróður Hjörleifs, Péturs
Sigurðssonar hér í sunnudagsblað-
inu en þau eru tekin úr Dómkirkju-
prédikun hans frá uppstigningar-
degi: Við upplifum að fólk á níræðis-
og tiræðisaldri er flutt út af sjúkra-
stofnunum heim, þar sem við taka
stundum makar sem trauðla geta
hugsað um sjálfan sig, hvað þá
hjúkrun sjúklinga, jafnvel bornir á
börum og fluttir upp á 3ju hæð fjöl-
býlishúss, skildir eftir í anddyri
þjónustuíbúða og svo mætti lengi
telja, og kallar þetta á enn frekari
veikindi þeirra sem næstir þessu
fólki standa og verða að bregðast við
vandanum. Viö þekkjum dæmi þess
að gamalt fólk grætur heilu næturn-
ar vegna þess að það veit að það
verður að fara út af spítalanum og
enginn vill taka við því.
Ósjálfbjarga þjóð
Það er varla að maður trúi jafn
átakanlegri lýsingu og hér hjá Pétri
Sigurðssyni alþingismanni en þvf
miður veit ég að hún er sönn. Er
ekki allt okkar strit annars unnið
fyrir gýg meðan slík svívirða við-
gengst í landi voru? Að gamalt fólk
skuli skilið eftir ósjálfbjarga oft í
höndum farlama sjúklinga er slík
skömm, að varpar skugga á skjald-
armerki vort og þjóðfána. Á meðan
slík svívirða viðgengst á voru litla
landi höfum við ekkert til að stæra
okkur af. Hvaða gagn er í því að eiga
fremstu skáldritin og fegurstu sögu-
staðina meðan gamalt fólk er nán-
ast borid út og sett á guð og gadd-
inn? Hvílík reisn yfir elsta lög-
gjafarþingi heimsbyggðarinnar þar
sem sitja þingmenn er fella tillögu
um aðstoð til þeirra sem hafa gefið
okkur landið og búa við neyð, á
sama tíma og þeir láta óátalið að
svokölluð umboðslaun af verðandi
sölu á áfengu öli renni í vasa
ónefndra einstaklinga. Manna er
þurfa ekki nema svo sem tvisvar á
ári að skrifa nafnið sitt á löggiltan
skjalapappír ríkisins og eru þar með
á framfæri þess. Ég legg til að þeim
bónbjargarmönnum verði veittur
sérstakur lífeyrir, til dæmis ellilíf-
eyrir, svo við missum ekki af bjórn-
um, en þess í stað verði ekki bara
99% af umboðslaunum látin renna í
Framkvæmdasjóð aldraðra heldur
100%
Fátœk þjóð
Nei, sú þjóð er sannarlega fátæk
sem lætur hina öldnu og sjúku gráta
í angist. Mér dettur helsti hug til að
bjarga neyð augnabliksins að keypt
yrðu handa hinum öldruðu hús víðs
vegar um bæinn sem nú eru á bygg-
ingarstigi, en slík hús má víða fá
með góðum kjörum. Með þessu ynn-
ist tvennt, í fyrsta lagi er auðvelt að
innrétta slík hús við hæfi og þau eru
gjarnan inni í íbúðarhverfum og þar
með í tengslum við eölilegt mannlíf.
Það má ekki einangra hina öldnu
einsog holdsveikisjúklinga, þeir eiga
auðvitað heima mitt í hringiðu
mannlífsins eins og annað fólk.
ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
„ÚR ÆVI OG STARFI
ÍSLENSKRA KVENNA"
Guðrún og Ragnhildur Pétursdætur frá Engey
■H Þáttur Bjargar
15 Einarsdóttur
— „Úr ævi og
starfi íslenskra kvenna"
er á dagskrá útvarps rás-
ar 1 klukkan 11.15 í dag og
er þetta síðari þáttur
hennar og jafnframt sá
53. í röðinni.
Þessir þættir hafa verið
fastur dagskrárliður á
hverjum miðvikudegi
undanfarna tvo vetur. I
dag mun Björg fjalla um
tvær konur, sem voru
systur, fæddar og uppald-
ar í Engey á Kollafirði og
■i Fimmtándi
55 þáttur ómars
Ragnarssonar
„Heilsað upp á fólk“ er á
dagskrá sjónvarpsins
klukkan 20.55 í kvöld.
Að þessu sinni brá
Ómar sér í Sólheima í
Grímsnesi og heilsaði upp
á Reyni Pétur Ingvarsson,
vistmann þar í sveit. Sól-
heimar er vistheimili og
verndaður vinnustaður
fyrir þroskahefta. Reynir
Pétur lagði af stað i mikla
gönguferð umhverfis
landið sl. laugardag og
ræddi Ómar við hann
nokkru áður en hann lagði
af stað.
Reynir Pétur hyggst
ganga 50 km dag hvern og
ætti ferðin því að taka
hann um hálfan mánuð.
Auk þess að hafa áhuga á
gönguferðum hefur hann
mikinn áhuga á stærð-
fræði og stjörnufræði svo
oftast við þann stað
kenndar.
Guðrún Pétursdóttir
fæddist árið 1878 og lést
1963 og Ragnhildur var
fædd árið 1880 og lifði til
ársloka 1961. Guðrún var
gift Benedikt Sveinssyni,
alþingismanni og þingfor-
seta, og bjuggu þau allan
sinn búskap á Skólavörðu-
stíg 11. Eiginmaður Ragn-
hildar var Halldór Þor-
steinsson, skipstjóri, og
stóð heimili þeirra lengst
á Háteigi.
Systurnar voru báðar
Ómar Ragnarsson
eitthvað sé nefnt, en ann-
ars er ætlunin að ræða um
heima og geyma í þættin-
um.
Reynir Pétur réðst í
gönguferðina í því skyni
að afla peninga til bygg-
ingar íþróttahúss fyrir
fatlaða í Sólheimum.
Björg Einarsdóttir.
skeleggir baráttumenn
fyrir sjálfstæði íslands
fyrr á þessari öld. Þær
létu að sér kveða varðandi
menntun íslenskra
kvenna og menningu. Þær
höfðu ríka samúð með
þeim sem minna máttu
sín og einnig höfðu þær
áhuga fyrir eflingu heim-
ilisiðnaðar og húsmæðra-
fræðslu. Þær völdust til
forystu í fjölmennum
samtökum kvenna.
„í þættinum mun ég í
fyrstu segja nokkuð frá
æskuheimili þeirra í Eng-
ey, sem var annálað á
sinni tíð fyrir myndar-
skap og verkmenningu.
Að því loknu verða rakin
helstu æviatriði hvorrar
systur fyrir sig,“ sagði
Björg Einarsdóttir, um-
sjónarmaður þáttarins.
Heilsað upp á fólk“
Reynir Pétur Ingvarsson
vistmaður á Sólheimum
Sigrid Thornton í hlutverki Philadelphiu.
„Allt fram
streymir...“
— FJÓRÐI ÞÁTTUR —
■i Fjórði þáttur
35 ástralska
framhalds-
myndaflokksins „Allt
fram streymir ..." er á
dagskrá sjónvarpsins
klukkan 21.35 í kvöld. AIls
eru þættirnir átta.
í síðasta þætti gerðist
það helst að Philadelphia
lánaði fyrrum bjargvætti
sínum peninga, en eignað-
ist í staðinn hlut í fljóta-
báti hans.
Með aðalhlutverkin
fara Sigrid Thornton og
John Waters en þátturinn
er gerður eftir skáldsögu
Nancy Cato. Þýðandi er
Jóhanna Þráinsdóttir.
ÚTVARP
MIÐVIKUDAGUR
29. maí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.20 Leikfimi.
Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Sigurðar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð: — Úlfhildur
Grlmsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Börn eru besta fólk“ eftir
Stefán Jónsson. Þórunn
Hjartardóttir les (6).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr ). Tónleikar.
10j45 Islenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.15 Úr ævi og starfi Islenskra
kvenna. Umsjón: Björg Ein-
arsdóttir.
11.45 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
1220 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
1320 Barnagaman.
Umsjón: Sigrún Jóna Krist-
jánsdóttir.
13.30 Irsk alþýðulög.
Paddy Killoran, Chieftains
o.fl. syngja og leika.
14.00 „Sælir eru syndugir" eftir
W.D. Valgardson. Guörún
Jörundsdóttir les þýðingu
slna (17).
1420 Miðdegistónleikar.
a. „Tango" eftir Isaac Al-
beniz John Williams leikur á
gltar.
b. Flautusónata eftir Carl
Philipp Emanuel Bach. Jam-
es Galway leikur.
1425 Popphólfið.
Bryndis Jónsdóttir.
1520 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
1620 Islensk tónlist.
a. „Þjóðllfsþættir" eftir Jór-
unni Viðar. Laufey Sigurð-
ardóttir og höfundurinn leika
á fiðlu og planó.
b. „Haustlitir" eftir Þorkel
Sigurbjörnsson. Kammer-
18.00 Evrópukeppni meistara-
liða I knattspyrnu.
Bein útsending frá Brussel
þar sem Liverpool og Ju-
ventus leika til úrslita.
20.10 Fréttaágrip á táknmáli.
20.15 Fréttir og veöur.
2025 Auglýsingar og dagskrá.
20.55 Heilsað upp á fólk.
Fimmtándi þáttur Umsjónar-
maður ömar Ragnarsson.
2125 Allt fram streymir . . .
sveit leikur. Einsöngvari: Sig-
urveig Hjaltested. Höfundur-
inn stjórnar.
c. Islensk þjóðlög, útsett af
Hafliða Hallgrlmssyni,. sem
leikur á selló. Halldór Har-
aldsson leikur á planó.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Slödegisútvarp
Tilkynningar
1825 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Málræktarþáttur. Baldur
Jónsson formaður Islenskrar
málefndar flytur.
1920 Horft I strauminn með
Kristjáni frá Djúpalæk. (RÚ-
VAK).
20.00 Útvarpssaga barnanna:
Ragnheiður Gyöa Jónsdóttir
les arablskar sögur úr „þús-
MIÐVIKUDAGUR
29. mal
(All The Rivers Run.) Fjóröi
þáttur. Astralskur framhalds-
myndaflokkur I átta þáttum,
geröur eftir samnefndri
skáldsögu eftir Nancy Cato.
Aðalhlutverk: Sigrid Thornt-
on og John Waters. Efni slö-
asta þáttar: Philadelphia lán-
ar fyrrum bjargvætti slnum
peninga en eignast I staðinn
hlut I fljótabáti hans. Þýð-
andi Jóhanna Þráinsdóttir.
und og einni nótt“ I þýðingu
Steingrlms Thorsteinssonar.
(6).
2020 Hvað viltu verða?
Starfskynningarþáttur I um-
sjá Ernu Arnardóttur og Sig-,
rúnar Halldórsdóttur.
21.00 Kór Menntaskólans við
Hamrahllð syngur Islensk og
erlend lög. Þorgerður Ing-
óltsdóttir stjórnar.
21.00 „Italiuferö sumarið
1908“ eftir Guðmund Finn-
bogason. Finnbogi Guð-
mundsson og Pétur Péturs-
son lesa (2).
22.00 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
2235 Staldraö við á Ar-
2230 Viöskipti með notaða
blla.
Þriðji þáttur um lög og reglur
á sviði verslunar og við-
skipta. Umsjón: Baldur Guö-
laugsson hæstaréttarlög-
maður og Andri Arnason
héraðsdómslðgmaður.
Stjórn upptöku: örn Harð-
arson.
2255 Fréttir I dagskrárlok.
skógsströnd. 2. þáttur Jón-
asar Jónassonar (RÚVAK).
23.15 Nútlmatónlist.
Þorkell Sgurbjörnsson kynn-
ir.
2325 Fréttir. Dagskrárlok.
10.00—1200 Morgunþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
14.00—15.00 Eftir tvö
Stjórnandi: Jón Axel Olafs-
son.
15.00—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Voröldin
Þáttur um tómstundlr og úti-
vist.
Stjórnandi: Július Einarsson.
17.00—18.00 Ur kvennabúrinu
Hljómlist flutt og/eöa samin
af konum.
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan: 11:00, 15 00
16:00 og 17:00.
SJÓNVARP