Morgunblaðið - 29.05.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1986
7
„Eins trúlegt að ég
verði tvö hundruð ára“
— spjallað við Herdísi Jónsdóttur
Sitt hundraðasta afmæli á Herdís Jónsdóttir, frá bænum
Gottorp í Vestur-Húnavatnssýslu, á annan hvítasunnudag.
Blm. Mbl. heimsótti hana á Hrafnistu þar sem hún hefur
dvalist undanfarin 12 ár og átti við hana stutt spjall skömmu
fyrir afmælið.
„Ég er fædd 27. maí 1885 í Þver-
árhreppi í Vestur-Húnavatns-
sýslu. Ég er Húnvetningur í húð
og hár og verð alltaf — nú og svo
Hafnfirðingur því þangað fluttist
ég 10. október 1910 og bjó ég þar í
63 ár.
Við fórum til Hafnarfjarðar til
að þefa eftir vinnu handa köllun-
um, en ég sjálf hafði nóg að gera
við fatasaum. Ég var í kvenna-
skólanum á Blönduósi í þrjú ár og
lærði þar fatasaum og í Hafnar-
firði hafði ég nóg að gera og var
með fimm stúlkur í læri frá átta á
morgnana til 5 á daginn.
Mér hefur alltaf líkað vel í
Hafnarfirði. Við vorum fyrst í
leiguhúsnæði og fluttum nokkrum
sinnum. Allir húseigendurnir frá
þeim tíma eru vinir mínir og eru
hver öðrum indælli og betri, karl-
arnir alveg eins og konurnar. Svo
komum við upp húsi við Öldugötu
ellefu. Maður minn var Guðmund-
ur Jónsson frá Súluvöllum á
Vatnsnesi, hann var ekki heilsu-
hraustur uppfrá þrjátíu og fimm
ára aldri og dó 1940. Við áttum
einn son, Emil, og dóttur, Ölmu.
Þegar sonur minn gifti sig gerði
hann sér íbúð á efri hæðinni í hús-
inu á Öldugötunni og bjó þar alla
tíð, en það er enginn friður með
neitt og einn daginn var hann
bráðkvaddur þar heima. Þá datt
ég nú niður og var lengi á spítal-
anum í Hafnarfirði og hef ekki
verið með heilli há síðan eins og
sagt er, ég var nú ekki sterkari en
það. Sonur minn var mér mikils
virði en dóttir mín og sonarsonur
koma nú í hans stað.“
— Ég hef heyrt að þú hafir
haldið fallegan garð við húsið í
Öldugötu.
„Já, ég get sýnt þér myndir af
garðinum, mér voru eitt sinn veitt
verðlaun fyrir hann. Ég verð að
segja að ég var alltaf mikið fyrir
blóm — síðan ég man eftir mér
var ég að reyna að kom baldurs-
brám í rækt heima.“
— Varstu nokkurn tíma í póli-
tík?
„Nei, ég blandaði mér aldrei í
neina pólitík, hafði hana bara
Herdís Jónsdóttir
fyrir mig. Bæði hafði ég engan
smekk fyrir að rífast og svo hafði
ég líka annað að gera.“
— Hvernig líkar þér á Hrafn-
istu?
„Ég hef verið hér í tólf ár og
fann bara ekkert til þess meðan ég
var á róli og gat farið þetta fram
að borðinu og svona."
Herdís vill nú fara að hvíla sig
svo blm. sýnir á sér fararsnið.
„Þetta er nú meira sýslið, þessi
blaðamennska," segir hún. „Ein-
tómt þras ... og útvarpið, það er
ekki hægt að hlusta á það lengur,
það er svo leiðinlegt. Áður var iðu-
lega söngur og ljóðalestur en nú
hlusta ég í mesta lagi á tilkynn-
ingarnar og veðrið og svo er ein-
staka góður þáttur þar sem lesin
eru ljóð en maður getur oft ekki
haldið út að bíða eftir þeim fram
yfir þessar fréttir. Þetta eru ein-
tómar upptalningar á bankarán-
um, víxlafalsi, manndrápum og
stríði og er öllu lýst í smáatriðum,
eldur settur i hús og síðan er það
sprengt í loft upp þegar fólkið
reynir að forða sér undan eldinum
upp á þak. Svona er þetta allt. Ég
hlusta á fréttayfirlitið og finnst
það alveg nóg. Það á bara að segja
í stuttu máli hvað gerst hefur án
þess að lýsa öllu í smáatriðum.
Okkur kemur þetta bara ekkért
við og getum heldur engu breytt“
(löng þögn).
Hvað heldurðu að þú verðir
gömul Herdís?
Hún hlær og segir: „Ætli ég
verði ekki 200 ára, mér finnst það
eins trúlegt eins og ég sé orðin 100
ára.“
Sigurlaug Helgadóttir
Sigurlaug
Helgadótt-
ir 100 ára
100 ára varð á hvítasunnu-
dag Sigurlaug Helgadóttir
frá Borgarfírði eystra. Hún
er fædd í Njarðvflt við Borg-
arfjörð 26. maí 1885, en bjó
lengstan hluta ævinnar í
Bakkagerðisþorpi.
Foreldrar hennar voru hjónin í
Njarðvík, Sesselja Sigurðardóttir
og Helgi Jónsson, og er hún elst
sex systkina sem komust til full-
orðinsára. Af þeim lifa nú tvær
systur, afmælisbarnið og yngsta
systirin 86 ára.
Mann sinn, Jón Jóhannesson bú-
fræðing og kennara, missti Sigur-
laug árið 1958. Þau eignuðust tvo
syni og ólu auk þess upp einn fóst-
urson.
Fyrir allmörgum árum fluttist
Sigurlaug til Reykjavíkur með
syni sínum og tengdadóttur og
dvelur nú að Hátúni 10 b, lang-
legudeild, blind og farin að kröft-
um, enda aldrei hlíft sér á langri
ævi.
Sigurlaug Helgadóttir er mikill
höfðingi í sjón og raun og vel gerð
til sálar og líkama. í fjöldamörg
ár nutu Borgfirðingar hinnar
frábæru gestrisni hennar og góð-
vildar og minnast þess nú jafn-
framt með þakklæti hve skjót hún
var ávallt til hjálpar og aðstoðar,
hvenær og hvar sem þess gerðist
þörf.
Enginn átti fleiri spor í kirkj-
una okkar en hún og nú senda
gömlu sveitungarnir henni hlýjar
heillaóskir, þakka liðnu árin og
biðja henni Guðs blessunar.
Sverrir.
GAP
BILASIMINN
VEITAÍ
SAMEININGU
FRÁBÆRA MÓNUSTU
Allir þeir sem notað hafa bílasíma á undan-
förnum árum hafa kynnst hinni frábæru
þjónustu sem veitt er á afgreiðslunni hjá 002.
Stúlkumar þar taka starfið alvarlega,
— þeirra hlutverk er umfram allt
að koma á sambandi milli akandi símnotenda
og annarra næstum hvar
sem er á landinu
— og það gera þær svo sannarlega.
Þær koma skilaboðum, sjá um
að reyna aftur þegar viðkomandi bíll eða númer
svara ekki og eru að auki ein allsherjar
símaskrá fyrir bílasímanotendur.
AP bílasíminn kostar aðeins
56.900,- krónur.
ÞAÐ FÆST ALDREI AFTUR BÍLASÍMI Á ÞESSU VERÐI!
Við erum sveigjanlegir í samningum.
Heimilistæki hf
Tæknideild — Sætúni 8. Simi 27500.