Morgunblaðið - 29.05.1985, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1985
Mitterrand við sjósetningu nýs kjarnorkukafbáts:
Fyrirskipa kjarnorku-
árás ef þörf krefur
Ile Longue, Frakklandi, 28. maí. AP.
FRANCOIS Mitterrand, forseti
Frakklands, var viðstaddur, er
sjötta kjarnorkukafbáti Frakk-
lands var hleypt af stokkunum á
laugardag. Sagðist forsetinn vera
þess albúinn að fyrirskipa kjarn-
orkuárás „ef þörf krefur“.
„Það er hluti embættisskyldu
Veit ekki hvað
«
fyrir þeim vakir
— sagði andófsmaðurinn Jacek Kuron,
sem var sýknaður af opinberri ákæru
Varejá, 28. maí. AP.
JACEK KURON, menntamanninum og andófsmanninum pólska, var sleppt
úr fangelsi á sunnudag en daginn áður hafði áfrýjunardómstóll í Varsjá
sýknað hann af ákæru um að hafa ekki hlýtt lögreglunni þegar hún skipaði
honum og öðrum að hætta þátttöku í mótmælagöngu 1. maí sl.
„Vissulega kom það mér á óvart, ástæðulausa, mánaðarlanga
að ég skyldi sýknaður," sagði Kur-
on í símaviðtali, „og ég veit satt að
segja ekki hvað vakir fyrir þeim.“
Kuron sagði, að engin skýring
hefði verið gefin á því hvers vegna
hann var ekki látinn laus um leið
og hann var sýknaður og dómi
undirréttar hrundið, en hann
hljóðaði upp á þriggja mánaða
fangelsi. Sonur Kurons, Maciej,
sagði, að lögfræðingur föður síns
hygðist krefjast skaðabóta fyrir
fangavist.
Dómarinn, sem sýknaði Kuron,
sagði, að sú fullyrðing sakborn-
ingsins hefði ekki verið hrakin, að
hann hefði ekki heyrt þegar lög-
reglan skipaði göngumönnum að
hafa sig á brott. Bendi hann líka á,
að þær skipanir hefðu verið gefnar
þegar Kuron var að ræða við lög-
reglumennina um að binda enda á
gönguna.
minnar," sagði forsetinn við
fréttamenn eftir sjósetninguna.
Skipið er búið 15.000 kilótonna
kjarnahleðslu og verður tvo mán-
uði í fyrstu ferð sinni.
„Meginmarkmið fráfælingar-
stefnunnar er að slík árás sé
óhugsandi," sagði Mitterrand.
Á kafbátnum eru 16 M4-eld-
flaugar með sex kjarnaoddum
hver, og draga flaugarnar 4.500
kílómetra.
Hingað til hefur Frakkland
getað haldið þremur kjarnorku-
kafbátum úti hverju sinni, en
með hinu nýja skipi fjölgar þeim
í fjóra.
Fyrirhugað er að sjöundi
kjarnorkukafbátur Frakka verði
tekinn í notkun árið 1994.
AP/Simamynd
Öttast er aö tugþúsundir manna hafi týnt Iffi í fellibylnum í Bangladesh á
laugardaginn. Hér hughreystir ungur piltur konu á leið þeirra til hjálpar-
stöðvar á Urir Char-eyju, en bæði urðu þau heimilislaus eftir hamfarirnar.
Náttúruhamfarir í Bangladesh:
Hvirfilbylurinn sópaði
íbúum eyjanna á haf út
Gen farv iðræðurn-
ar vita gagns-
lausar til þessa
— segir Mikhail
Gorbachev
Mo»kvu, 28. maí. AP.
MIKHAIL S. Gorbachev, leiðtogi
sovézka kommúnistafiokksins
komst svo að orði í morgun í viðræð-
um við Willy Brandt, fyrrum kansl-
ara Vestur-Þýzkalands, að afvopnun-
arviðræðurnar í Genf heföu verið
„algerlega gagnslausar". Var þetta
haft eftir Egon Bahr, sem á sæti
ásamt Brandt í sendinefndinni er
ræddi við sovézka leiðtogann.
Bahr er einn helzti sérfræðingur
vestur-þýzka jafnaðarmanna-
flokksins í afvopnunarmálum.
Sagði hann eftir viðræðurnar við
Gorbachev í Kreml í morgun, að
ljóst væri af yfirlýsingum Banda-
ríkjamanna og Sovétmanna um
Genfarviðræðurnar, að fyrsta
samningalotan hefði í rauninni
engan árangur borið.
Pravda, blað sovézka kommún-
istaflokksins, fjallaði einnig um af-
vopnunarviðræðurnar og kom þar
fram gagnrýni Sovétmanna í garð
Bandaríkjamanna fyrir afstöðu
þeirra.
Er Bahr var spurður að því, hvort
rætt hefði verið um hugsanlegan
fund þeirra Gorbachevs og Reagans
Bandaríkjaforseta, svaraði Bahr, að
Gorbachev hefði gefið í skyn, að
hann væri reiðubúinn til þess að
eiga fund með Reagan og að und-
urbúningur „undir slíkan fund og
viðræður við Bandarikjamenn þar
að lútandi væru í gangi".
Angólæ
Skæruliðar segjast hafa fellt
203 hermenn stjórnarinnar
LÍHsabon, Portúgal, 28. nuu. AP.
Angólskir uppreisnarmenn sögðu í dag, að þeir hefðu fellt 203 stjórnarber-
menn og 21 Kúbumann í árásaraðgerðum, sem staðið hefðu 17. til 25. maí og
náð til sjö béraða.
I tilkynningu skæruliðahreyf-
ingarinnar UNITA, sem gefin var
út í Lissabon, sagði, aö i árásunum
hefðu uppreisnarmenn eyðilagt
járnbrautarlest, tvo bryndreka og
18 herbíla.
í tilkynningunni sagði, að 19
stjórnarhermenn hefðu verið teknir
höndum og mikið af vopnum og
skotfærum tekið herfangi. Tíu
menn féllu af liði skæruliða og 27
voru sárir.
UNITA-hreyfingin hefur barist
gegn marxistastjórninni í Angóla
allt frá því að landið hlaut sjálf-
stæði frá Portúgal árið 1975.
Dhaka, Bangladesh, 28. maí. AP.
HVIRFILBYLURINN, sem gekk yfir suðurströnd Bangladesh á laug-
ardag, hinn mesti sem þar hefur komið í fimmtán ár, kann að hafa
leitt til dauða allt að 25 þúsund manna. Yfirvöld í Dhaka, höfuðborg
landsins, segja aö um 1.300 lík hafi fundist, en starfsmenn Rauða
krossins segja, að vitað sé um 3.000 sem hafi látiö lífið.
Fellibylurinn kom frá Beng-
alflóa árdegis á laugardag og fór
meðfram suðurströnd Bangla-
desh á 160 km hraða á klukku-
stund. Hann hreif með sér flóð-
bylgju, sem náði 4,5 metra hæð,
og sópaði bókstaflega íbúum eyj-
anna við ströndina á haf út.
„Eyðileggingin á flóðasvæðun-
um er hrikalegri en orð fá lýst,“
var haft eftir Hussain Mo-
hammed Ershad, forseta Bangla-
desh, eftir að hann heimsótti
Sandwip-eyjar, sem eru fyrir
vestan hafnarborgina Chitta-
gong.
„Margar af eyjunum við strönd
Bangladesh eru í auðn eftir ham-
farirnar," segir George Reid,
talsmaður Rauða krossins. „Allir
íbúarnir, byggingar og húsdýr
hafa skolast burt í flóðbylgj-
unni.“
Hin opinbera fréttastofa Ind-
lands segir í frétt frá Dhaka í
dag, að 25 þúsund manns hafi
látið lífið í náttúruhamförunum
á laugardaginn og 30 þúsunda til
viðbótar sé saknað. Onnur ind-
versk fréttastofa kvaðst hafa
heimildir fyrir því, að 20 þúsund
hefðu látist og 40 þúsund manna
væri saknað.
í nóvember 1970 fór hvirfilbyl-
ur, sem náði 222 km hraða á
klukkustund, yfir Bangladesh og
austurhluta Indlands. Sam-
kvæmt opinberum upplýsingum
lét þá hálf milljón manna lífið,
en samkvæmt öðrum heimildum
voru fórnarlömb hamfaranna ein
milljón að tölu.
Endir bundinn á einok-
un Rainbows Warrior?
Endurskoðun í gangi á lögunum frá 1904
FIMMTÁN þingmenn á Bandaríkjaþingi rituðu snemma í apríl bréf, þar
sem þeir lýstu áhyggjum sínum yfir framkomnum ásökunum um að
utanríkis- og varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefðu látið undan
þrýstingi frá íslenzku ríkisstjórninni varðandi farmfiutninga til varnar-
stöðvarinnar í Keflavík. Þingmenn þessir tilheyra kaupskipa- og fiski-
málanefnd fulltrúadeildarinnar og var bréf þeirra stílað til utanríkis- og
varnarmálaráðuneyta Bandaríkjanna.
Þetta kemur fram í grein i
tímaritinu „Seatrade", sem út
kom núna í maí. Er greinin rituð
af Peter Goldmann í New York,
sem segir þar, að Eimskip og
Hafskip — tvö helztu íslenzku
skipafélögin í farmflutningum
til og frá Bandaríkjunum — hafi
verið orðin því vön að fá í sinn
hlut tekjurnar af flutningunum
til Keflavíkur.
Greinarhöfundur hefur það
jafnframt haft eftir heimildum
á Bandaríkjaþingi, að einhver
breyting kunni að vera nauð-
synleg á lögunum frá 1904 til
þess að draga úr spennunni, sem
komið hafi upp í tengslum við
þessa farmflutninga. Þessi 80
ára gömlu lög eru enn í gildi og
samkvæmt þeim verða allir
farmflutningar á vegum banda-
ríska varnarmálaráðuneytisins
að fara fram með bandarískum
skipum, ef þau bjóða sig fram til
slíkra flutninga.
í greininni í Seatrade er því
haldið fram, að á vegum undir-
nefndar hermálanefndar full-
trúadeildarinnar fari nú fram
endurskoðun á þessum lögum,
sem feli í sér tillögu um undan-
þágu frá þeim, ef rétt þyki með
tilliti til öryggi Bandaríkjanna.
Þá segir þar ennfremur, að slík
lagabreyting muni auðveldlega
fá stuðning bæði frá bandaríska
utanríkisráðuneytinu og frá
Hvíta húsinu.
NEYTENDUR ATHUGIÐ @
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur og Kaupmannasamtök íslands vilja minna neytendur á aö samkvæmt kjarasamningi veröa verslanir lokaðar
á laugardögum, yfir sumarmánuöina, frá 1. júní til 31. ágúst.
Á sama tíma er heimilt aö hafa verslanir opnar sem hér segir:
Mánudaga, þriöjudaga og miövikudaga til kl. 18.30.
Fimmtudaga til kl. 20.00.
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR Föstuda9a«'kl 21 00 KAUPMANNASAMTÖK ÍSLANDS