Morgunblaðið - 29.05.1985, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1985
Heiðarskóli í Borgar-
firði 20 ára
Akranesi, 20. maí.
HEIÐARSKÓLI í BorgarHrði hélt
hátíðlegt 20 ára afmæli sitt dagana
25.-27. apríl sl.
Fyrsta daginn komu í heimsókn
um 100 nemendur úr svokölluðum
samstarfsskólum en það eru sam-
tök skólanna á Kleppjárnsreykj-
um, Varmalandi og Laugagerð-
isskóla ásamt Heiðarskóla.
Dvöldu börnin daglangt við leiki
og störf.
Skólanefnd Heiðarskóla hafði
boð inni fyrir hreppsnefndir
þeirra hreppa sem standa að skól-
anum og ýmsa aðra sem tengjast
byggingu og starfi hans. Var þar
samankomið um 80 manns. Þar
voru margar ræður haldnar og
skólanum færðar gjafir. M.a.
færðu Skilmannahreppur og ís-
lenska járnblendifélagið skólanum
að gjöf sjö tölvur. Hreppsnefndir
Innri-Akraneshrepps, Hvalfjarð-
arstrandarhrepps og Leirár- og
Melasveitar gáfu peningaupphæð
kr. 100.000 í minningarsjóð Hall-
fríðar Helgadóttur frá Leirá, einn-
ig færðu synir Hallfríðar og Júlí-
usar Bjarnasonar á Leirá, þeir
Bjarni, Kristinn, Helgi og Þórður,
minningarsjóðnum kr. 25.000 en
hlutverk sjóðsins er að efla hljóð-
færa- og tækjaeign skólans. Auk
þess bárust skólanum fleiri gjafir
og góðar óskir. Sama dag var opið
hús fyrir almenning og fjöl-
menntu þá íbúar hreppanna til
skólans til að skoða hann og sýn-
ingar sem tengdar voru afmælis-
Sigurður Guðmundsson skólastjóri
Heiðarskóla hefur verió skólastjórí
hans frá upphafi.
haldinu, jafnframt var á dagskrá
skemmtun nemenda og árshátíð
sem sameinaðar voru þessum há-
tíðarhöldum.
Síðasta dag hátíðarhaldanna
hélt Tónlistarskóli Borgarfjarðar
tónleika og voru þeir vel sóttir.
Síðdegis streymdu gamlir nem-
endur að skólanum, skoðuðu hann
og rifjuðu upp gamlar minningar
og vakti sérstaka athygli þeirra
myndasýnir frá þeirra dögum í
skólanum. Um kvöldið var borð-
hald og skemmtidagskrá þessara
gömlu nemenda svo og starfs-
manna skólans fyrr og nú. Þar
voru mættir um 160 manns. Ræð-
ur voru fluttar svo og skemmti-
þættir og lagið tekið hressilega.
Sigurður Sigurðsson fyrrum
nemandi skólans afhenti skólan-
um að gjöf upptökutæki fyrir
myndbönd frá gömlum nemend-
um. Þá færði hann skólastjóra-
hjónunum Sigurði Guðmundssyni
og Katrínu Árnadóttur málverk
að gjöf, mynd af Heiðarskóla sem
þakklætisvott. Að lokum var stig-
inn dans fram eftir nóttu. Að lok-
um má geta þess varðandi afmæl-
isgjafir að núverandi nemendur
gáfu skólanum mjög athyglisverða
gjöf en það er fullkominn leikvöll-
ur utan skólans sem þau hafa unn-
ið að gerð hans undanfarnar vik-
ur. Sérstaka athygli vekur þar
stökkbretti sem líklega á sér ekki
hliðstæðu á barnaleikvöllum á Is-
landi.
Að sögn Sigurðar Guðmunds-
sonar skólastjóra er nemenda-
fjöldinn nú rösklega 100 börn og
fastráðnir kennarar átta talsins.
Ginnig starfa við skólann þrír
stundakennarar, þrjár stúlkur í
eldhúsi og ein við ræstingarstörf,
þrír bílstjórar sjá um keyrslu
skólabarna. Ginn fastráðinna
kennara hefur húsvörslu skólans
með höndum.
Áhersla hefur verið lögð á gott
samstarf við foreldra og hefur
skólinn jafnan verið opinn fyrir
foreldra sem koma í heimsókn og
líta í kennslustundir. Haldnir eru
foreldrafundir í hverjum aldurs-
flokki þar sem foreldrarnir ræða
nám barna sinna, skoða bækur
viðkomandi námi þeirra og fá svör
við fyrirspurnum. Auk þess eru
foreldrar boðaðir til funda eða þá
Spegfcgf hafá vértÁtf fra oírófi alda i margs-
konar mynd og alltaf þótt ómissandi, enda
notkun okkar á þeim venð margbreytíleg.
Erfitt er aö gera sér i hugarlund hvernig
heimurinn liti út ef ekki væru til speglar
Nú hefur ISPAN aukið þjónustu sína-vlð
landsmenn og komið upp fullkominni að-
Stöðu til speglagerðar og glersplípunnar.
ISPAN þýður fjölbreytt úrval af speglum i
ýmsum litum 3ja, 4ja og 6mm og hvort sem
þú þarft smá spegilbrot eöa heilan speglasal
er þjónustan jafn góð.
Víð slípum lika allar tegundir af gleri frá 2 mm
uppi 15 mm og í hvaða formi sem er.
kringtótt, sporöskjulagað, ferkantað eða eftir
þínum teikningum.
Spáðu í okkar spegla!
Spegill, spegill,
herm þú mér...
-einföldöruge liming
ISPAN HF.
ElhANGRUb /- RGLEP
GLERSUfW SPEGLAGERD - SPEGLASAu.
Smiójuvegi7 200Kópavogi Sími 43100
Horgunblaðið/Jón Uunnlaugsaon
Yngstu nemendurnir æfðu leikrit sem fhitt var á skemmtidagskránni í tilefni
afmælisins.
kennarar heimsækja þá þegar
ástæða þykir til.
Alla tíð hefur verið lögð mikil
áhersla á gott félagslíf og íþrótta-
starf í skólanum. Meðan heima-
vist var við skólann störfuðu fjöl-
margir klúbbar af krafti. Strax i
upphafi komst sú regla á að hafa
skemmtisamkomur á fimmtudög-
um en hin síðari ár hefur verið
lögð áhersla á ýmiss konar til-
breytingu í félagsmálatímum.
íþróttastarfsemi komst á verulegt
skrið þegar skólinn eignaðist að-
stöðu í félagsheimilinu Heiðar-
borg og hefur oft náðst mjög góð-
ur árangur í keppni við aðra skóla.
Tvær samkomur setja sérstakan
svip á skólastarfið og félagslíf
nemenda en það eru 1. des.-hátíð
og árshátíð skólans. Hafa þær
skemmtanir verið fjölsóttar af
foreldrum, gömlum nemendum og
öðrum sem áhuga hafa haft.
Ferðalög eru ríkur þáttur í
starfi skólans og má nefna að ár-
lega er farin leikhúsferð sem allir
eiga kost á að fara í ásamt yngri
systkinum sínum og foreldrum.
7.-9. bekkur fara í skólaferð
hvert vor og á veturna er farin
skíðaferð sem venjulega stendur í
3 daga og er ætluð elstu nemend-
unum.
Gins og áður segir á Heiðarskóli
samstarfsskóla sem leitt hefur af
sér fjölþætt samstarf og sam-
skipti milli þessara skóla. í upp-
hafi voru það Laugagerðisskóli,
Varmalandsskóli og Kleppjárns-
reykjaskóli sem stóðu að þessu
samstarfi auk Heiðarskóla en nú
hafa bæst við Laugaskóli, Lýsu-
hólsskóli, Andakílsskóli og Búð-
ardalsskóli. Fyrst í stað var mest
um bekkjarheimsóknir að ræða en
hin síðari ár hefur sérstaklega
verið hist á íþróttakeppni og eins
er haldin samkoma, svokallaður
„Litli dagur“. Ginnig hefur Heið-
arskóli ágæt samskipti við Víði-
staðaskóla í Hafnarfirði þar sem
skipst er á heimsóknum. Frá upp-
hafi hefur skólinn verið mjög
opinn fyrir hverskonar fræðslu,
íþrótta- og félagsstarfi. Hafa því
margir aðilar fengið aðstöðu til
skóla- eða námskeiðahalds um
lengri eða skemmri tíma. Þannig
hefur Tónlistarskóli Borgarfjarð-
ar haft deild við skólann allt frá
1966. íþróttaskóli Sigurðar Guð-
mundssonar starfaði á sumrin
fram til 1981. Kennarasamband
Vesturlands hefur oft haft fundi,
ráðstefnur og námskeið og mörg
fleiri samtök sömuleiðis.
Aðspurður um frekari fram-
kvæmdir og uppbyggingu skólans,
sagði Sigurður að mikil áhersla
væri nú lögð á viðhald skóla-
mannvirkjanna. Sett hefur verið
nýtt þak á skólabygginguna og i
sumar verður skólinn klæddur að
utan, haldið verður áfram með
breytingar á heimavist skólans en
hana er smám saman verið að
taka undir venjulegt kennslurými.
Varðandi frekari uppbyggingu
sagði Sigurður að á teikniborðinu
væru nú búningsklefar fyrir
sundlaug sem jafnframt yrðu not-
aðir fyrir íþróttasal. Gins er mikill
áhugi fyrir frágangi lóðar og gerð
iþróttavallar. Hreppsnefndir og
SKÓianefnd eru mjög jákvæðar
fyrir því að hlúa vel að þessari
menntastofnun.
í greinargerð um starf skólans í
20 ár og send hefur verið fjölmiðl-
um segir skólastjórinn Sigurður
Guðmundsson að aðalatriðið sé að
skólinn fylgist vei með nýjungum
til að geta boðið börnum sínum
upp á góða aðstöðu, fullkomna
tækni og góða handleiösiu um
ókomin ár. Það er afmælisósk
skóiastjórans til skólans sins.
Heiðarskóli fékk tölvur mð gjöf frá tslenska járnbiendifélaginu og Skil-
mannahrcppi. Hér sjist Guðlaugur Hjörleifsson verkfræðingur hjá járn-
blendifélaginu og frú ásamt einum kennara skólans.
MorjjunbiaAiö 'Jón Gunniaugasoi
Unnið að gerð leikvallar en nuverand nemenrtui gáfu skólanum hann í
tilefní afmælisins