Morgunblaðið - 29.05.1985, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAl 1985
63
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
, TIL FÖSTUDAGS
Orka og
fiskur
Pálmi Stefánsson skrifar:
Kaeri Velvakandi.
í matvælaframleiðslunni er
orkuþátturinn stundum afgerandi
um afkomuna. Sé litið á fisk sem
orkugjafa, má auðveldlega sjá, hve
þáttur orkunnar getur verið mis-
munandi stór. í rauninni erum við
bara að eyða einni tegund orku til
að framleiða eða afla annarrar.
Orkan er í ýmsu formi, þar á
meðal efnabundin í kolum, olíu
eða mat (fiski).
Orkumagn er mælt eftir þeim
hita, sem leysist úr læðingi við
bruna eða sameiningu orkugjaf-
ans við súrefni andrúmsloftsins,
þ.e. í svokölluðum hitaeiningum.
Er við borðum fisk, brennur
hluti hans með súrefni frá öndun-
inni líkt og olían í vélum fiskiskip-
anna.
Það er því auðvelt að bera sam-
an orkunotkun við að framleiða
eða afla fiskmetis. T.d. notar
skuttogari 10—15 sinnum meiri
orku en er í fiskinum, sem hann
aflar.
Við handfæraveiðar notast á
hinn bóginn minna af orku en skil-
að er að landi af orku í úrvals
matfiski.
Fiskeldi í sjó notar 3—4 sinnum
meiri orku, þ.e. fóðrið, en fram-
leitt er af matarorku, svo sem laxi.
Fiskeldi á landi notar meiri
orku en sjóeldið, þar sem hitun
eldisvatnsins bætist við.
En það er fleira talið góðgæti en
lax og er í því sambandi skeljaeldi
mjög áhugavert, því að þá fæst 10
sinnum meiri orka í skelfiski en
notuð er. Skelfiskurinn sér nefni-
lega um fæðuöflun sína sjálfur. f
þessu sambandi væri ræktun
kræklings kjörið tækifæri, enda er
hann hið mesta lostæti.
Seljum börnum ekki tóbak
Að marggefnu tilefni vill Tób-
aksvarnanefnd vekja athygli
foreldra og annarra vanda-
manna barna á því að bann tób-
aksvarnarlaga við því að selja
börnum tóbak er án undantekn-
inga. Þannig er óheimilt að selja
börnum 15 ára og yngri tóbak þó
að afgreiðslumaður þykist þess
fullviss að þau séu ekki að kaupa
fyrir sjálf sig heldur einhverja
fullorðna. Vottorð frá foreldrum
eða öðrum fullorðnum breyta
engu um þetta.
Áríðandi er að allir sem eiga
hlut að máli virði þetta laga-
ákvæði og framfylgi því eftir
megni. Það styðst við veigamikil
rök og er í samræmi við álits-
gerð sem sérfræðingar Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar
hafa samið og stofnunin sent að-
ildarríkjunum til leiðbeiningar
um mikilvægustu lagaúrræði til
að draga úr reykingum. Það er
þegar komin reynsla á samskon-
ar ákvæði í nokkrum löndum.
Þykir það hafa stuðlað að
minnkandi reykingum ungs
fólks.
Gleymum því ekki heldur að
mörgum börnum er þvert um geð
að kaupa tóbak, sérstaklega
fyrir foreldrana, vegna þess að
þau vita að tóbaksneysla er
hættuleg. Bann við að selja
börnum tóbak léttir af þeim
leiðri kvöð.
TÓBAK
MAEKKISEIIA
KIMSEMERU
YNGRIEN
16ÁRA
Límmiði sem ætlað er að vekja athygli á banni við sölu tóbaks til barna.
Námsferð kennara
til Danmerkur
Norræna félagiö í Danmörku býöur 20 íslenskum kenn-
urum til námsdvalar í Danmörku dagana 19. ágúst til 1.
september í haust. Frá 19. ágúst til 25. ágúst veröur
námskeið í Stauninggárden í Helsingor en þann 26.
ágúst er farið í heimsókn til félagsdeilda Norræna fé-
lagsins á Vestur-Sjálandi. Gist veröur á einkaheimilum,
skólar heimsóttir svo og söfn og uppeldismiðstöðvar.
Heimsókninni lýkur meö dvöl í Kaupmannahöfn frá 30.
ágúst til 1. september.
Þátttakendur þurfa aö greiöa far sitt fram og til baka til
Kaupmannahafnar en allan annan kostnaö greiða gest-
gjafar. Norræna félagiö á íslandi mun aöstoöa viö far-
gjaldamálin.
Umsóknir sendist til skrifstofu Norræna félagsins, Nor-
ræna húsinu, 101 Reykjavík fyrir 15. júní nk. en þar
liggur einnig frammi dagskrá heimsóknarinnar.
Norræna félagiö.
Þýzkir
prentara-
hljóödeyfar
Vandaöir
Ódýrir
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIROI — SIMI 51888
Nú í sumar munu þjónustu- og sölufulltrúar Bíla-
borgar h/f gera víðreist um landsbyggðina til
skrafs og ráðagerða við MAZDA eigendur og
þjónustuaðila.
30. maí fyrir hádegi verða þeir hjá
Bifreiðaverkstæði KÁ á Selfossi.
30. maí eftir hádegi í Keflavík hjá Bílaverkstæði
Kristófers Þorgrímssonar.
MAZDA eigendum og þeim sem eru í bílakaups-
hugleiðingum er bent á að hafa samband við
ofangreinda aðila varðandi nánari tímasetningar.
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 812 99