Morgunblaðið - 29.05.1985, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 29. MAÍ 1985
Halla Bryndís Jónsdóttir, FegurAardrottning fslands 1985.
Halla Bryndís
Jónsdóttir fegurðar-
drottning íslands ’85
TVÍTIJG stvlka úr Reykjavík, Halla Bryndís Jónsdóttir, var í fyrrakvöld
kosin Fegurðardrottning Islands 1985. Helga Melsted, 17 ára Reykvíkingur,
var kosin Fegurðardrottning Reykjavíkur ’85. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust
út í veitingahúsinu Broadway á öðrum tímanum í fyrrinótt þegar úrslitum í
keppninni var lýsL í öðru ssti um titilinn Fegurðardrottning íslands var
tæpra 22 ára stúlka úr Garðabæ, Hólmfríður Karlsdóttir, þriðja varð Sif
Sigfúsdóttir, 17 ára Vestmanneyingur búsett í Garðabæ, fjórða varð Helga
Melsted og fimmta varð Halla Einarsdóttir, 16 ára'Vestmanneyingur.
Húsið var þétt setið áhorfend- að kynna Björgvin Halldórsson
um og var stúlkunum þrettán og
skemmtikröftum kvöldsins fagnað
vel og lengi. Auk Kristjáns Jó-
hannssonar óperusöngvara vöktu
mesta hrifningu söngvararnir
Björgvin Halldórsson og Rod
Stewart, sem sungu saman nokkur
lög er enska rokkstjarnan hefur
gert vinsæl um víða veröld. Hann
hafði raunar lýst því yfir áður að
hann myndi ekki syngja opinber-
lega hér á landi en þegar verið var
heyrði Stewart nafn sitt nefnt og
stökk niður á sviðið. Þegar Björg-
vin byrjaði svo að syngja með
hljómsveit Gunnars Þórðarsonar
stóðst Rod ekki mátið og tók und-
ir. Allt ætlaði þá um koll að keyra
í húsinu.
Það var Guðlaug Stella Karls-
dóttir, Fegurðardrottning Reykja-
víkur 1984, sem krýndi arftaka
sinn, Helgu Melsted, í félagi við
Davíð Oddsson borgarstjóra.
Berglind Johansen, Fegurðar-
drottning íslands í fyrra, krýndi
svo Höllu Bryndísi Jónsdóttur og
naut aðstoðar enska rokksöngvar-
ans. Hann var sérstakur gestur á
hátíðinni ásamt fylgikonu sinni,
sýningarstúlkunni Kelly Emberg,
og fleira fólki.
Skemmtiatriði voru mjög vönd-
uð; auk samsöngs þeirra Björgvins
og Stewarts söng Kristján Jó-
hannsson nokkur lög eftir Gunnar
Þórðarson og fleiri og naut aðstoð-
ar Björgvins og Þuríðar Sigurð-
ardóttur, Ástrós Gunnarsdóttir og
Cornelius Carter dönsuðu, Egill
ólafsson, Björgvin og Þuríður
sungu lög eftir Gunnar Þórðarson,
sýningarflokkur frá Dansstúdíói
Sóleyjar sýndi dans og sýnd var
sumartískan.
Með rokldð í blóðinu — Björgvin Halldórsson og Rod Stewart syngja saman ,JSweet Little Roek & Roller“.
Helga Melsted, Fegurdardrottning Reykjavíkur 1985,
ásamt móður sinni, Hrefnu Þorbjarnardóttur.
Yngsti keppandinn, Halla Einarsdóttir frá Vestmanna-
eyjum, sem varð fimmta, með Erlu Haraldsdóttur móður
sinni.
Hokkstjarnan í félagsskap þeirra Kristjáns Jóhannssonar og Davíðs Oddssonar.
Morgunbladið/ RAX
Fegurðardrottning íslands 1985, Halla Bryndís Jónsdóttir, fagnar sigri með
foreldrum sínum, Jóni Bjarnasyni og Hildi Maríu Einarsdóttur.
Hólmfríður Karlsdóttir, sem varð tfnnur í keppninni, ásamt foreldrum sínum,
Karli Guðmundssyni og Ástu Hannesdóttur.
Sif Sigfúsdóttir, sem varð þriðja, ásamt foreldrum sínum, Sigfúsi Johnsen og
Kristínu Þorsteinsdóttur.