Morgunblaðið - 29.05.1985, Page 66
MORGUNBLAÐID, MIÐVTKUÐAGUR 29. MAÍ 1986
66>
Humarvertfðin á Höfn:
Tæp 36 tonn bárust á
land fyrstu tvo dagana
Hofn, HonuTirOi, 25. nuí. '—*
Humarvertíð er hafin á Horna-
firði. Á fimmtudaginn komu að
landi 14,156 tonn, eða rúm 141
tunna. Aflahæstir voru bátarnir
' "’Þinganes SF 25 með 2,480 tonn,
Freyr SF 20 2,456 tonn. Sá sem
hafði minnstan afla þennan dag
var með 1,470 tonn. Á fimmtudag-
inn bárust 2,148 tonn af fiski á
land.
Á föstudaginn landaði Æskan
SF 140 3,732 tonnum af humri og
3,621 tonnum af fiski og er Æskan
jafnan aflahæsti báturinn á hum-
arvertíð. Sigurður ólafsson SF 44
var með 3,355 tonn, Lyngey SF 61
með 3,336 tonn, Bjarni Gíslason
~^8F 90 með 3,076 tonn, Haukafell
SF 111 með 3,008 tonn. Neðsti bát-
urinn á föstudaginn kom með
2,054 tonn að landi. Samtals bár-
ust að landi 21,481 tonn af humri
þennan dag og 26,269 tonn af fiski.
Atvinnuástand hefur verið
þokkalegt á Höfn í vetur en þessa
fyrstu daga humarvertíðarinnar
hafa allir sem vettlingi geta valdið
fengið vinnu. Unnið var til kr. 10
bæði kvöldin og einnig í allan dag,
laugardag. Unnið verður á annan í
hvítasunnu svo unnt verði að ljúka
við að vinna aflann áður en bátar
koma inn til löndunar á þriðju-
daginn. Alls landa 14 bátar humri
á Höfn.
Togarinn Þórhallur Daníelsson
SF 71 landaði 1.003,198 tonnum á
netavertíð, samkvæmt aflaskýrsl-
um frá 1. janúar til 15. mai.
Skiptaverðmæti aflans eru
10.438.244 kr. Aflahæsti bátur á
netavertíðinni er Garðey SF 22
með 668,641 tonn úr 35 róðrum.
Skiptaverðmæti kr. 6.261.487.
Næstur kemur Erlingur SF 65
með 605,438 tonn úr 49 róðrum.
Erlingur hefur mesta aflaverð-
mæti eða kr. 6.587.847. Þá var Þór-
ir SF 77 með 583,526 tonn og afla-
verðmæti kr. 6.364.622, Freyr SF
20 með 579,840 tonn og aflaverð-
mæti kr. 6.165.624.
Heildarfiskaflinn á netavertíð-
inni var 8.475,862 tonn.
Haukur.
Laxastigi gerður í
Glanna í Norðurá
SUfbolti, 22. maí.
EIN AF mörgum góðum laxveiði-
ám í Borgarfirði er Norðurá sem
Stangveiðifélag Reykjavíkur hefur
haft á leigu í fjölda ára. í ánni eru
þó tveir fossar, Laxfoss og Glanni,
sem hindrað hafa göngu laxins
upp ána. Fyrir mörgum árum var
settur laxastigi í Laxfoss, sem
dugað hefur vel, en er nú orðinn
lélegur og þarfnast lagfæringar.
Glanni hefur hingað til reynst
meiri þröskuldur fyrir laxinn.
Fyrir löngu var gerð skora í hann
við suðurlandið og hún svo dýpkuð
síðar meir. Upp þessa skoru hefur
laxinn svo gengið nokkuð, einkum
þó er líða tekur á sumar, en þó
hefur það farið eftir vatnsmagni
og hitastigi vatnsins, hversu mikið
það hefur verið.
Nú í vor var svo ákveðið að hefj-
ast handa um laxastiga fram hjá
fossinum og á þeirri framkvæmd
að vera lokið fyrir laxveiðitímann,
sem hefst 1. júní. Stigi þessi er
allmikið mannvirki, liggur inni í
hrauni við norðurlandið, bak við
klett á fossbrúninni og kemur í
ána rétt fyrir ofan fossinn. Er
hann vart sýnilegur frá venju-
legum útsýnisstað við fossinn.
Mannvirki þetta verður sýnilega
nokkuð dýpra en ráð var fyrir
gert, meðal annars hefur reynst
nauðsynlegt að steypa meira
vegna þess hve bergið hefur reynst
sprungið. Þá spratt fram undan
hrauninu töluvert vatnsmagn,
sem leiða verður fram hjá stigan-
um. Stigann teiknaði Guðmundur
Gunnarsson verkfræðingur en
verkið er unnið af Loftorku sf. í
Borgarnesi, undir stjórn Gylfa
Hallgrímssonar verkstjóra. Svo er
bara að bíða og sjá hvort laxinn
vill nokkuð með þetta mannvirki
hafa ...
PréttariUri
Morgunbladid/ Þórhallur Bjarnason.
Fri framkvæmdum við gerð laxastigans í Glanna.
Þjóðleikhúsið:
Frumsýnir „Með lífið í
hikunum" á Blönduósi
ÆFINGAR hjá Þjóðleikhúsinu á
gamanleiknum „Með vífið í lúkun-
um“ eða „Run for your life“ eftir
Bretann Ray Cooney eru að hefj-
ast á ný og er fyrirhugað að frum-
sýna verkið á Blönduósi í byrjun
júlí. Upphaflega átti að sýna leik-
ritið á miðnætursýningum í Þjóð-
leikhúsinu í vetur, en þau áform
urðu að engu vegna verkfalls
opinberra starfsmanna. Verkið
verður sýnt á Norður- og Austur-
landi í júlí.
Leikarar í „Með vífið í lúkun-
um“ eru örn Árnason, Sigurður
Sigurjónsson, Pálmi Gestsson,
Anna Kristín Arngrímsdóttir,
Magnes Magnúsdóttir, Sigurður
Skúlason og Randver Þorláksson.
Verkið er um leigubílstjóra, sem
hefur gerst sekur um tvíkvæni og
tilraunir hans til að koma í veg
fyrir að upp um hann komist.
Leikstjóri er Benedikt Árnason,
Guðrún Sigríður Haraldsdóttir
gerir leikmynd og Árni Ibsen
þýddi verkið.
„Með vífið í lúkunum" verður
sýnt á miðnætursýningum í Þjóð-
leikhúsinu næsta vetur.
. Oíilt? «
Carnegie.
ÞJÁLFUN í RÆÐUMENNSKU OG
MANNLEGUM SAMSKIPTUM
Námskeiöiö stendur yfir í tvær og hálfa viku og hefst
sunnudaginn 2. júní kl. 19:30. Kennsludagar eru þriöju-
dags-, fimmtudags- og sunnudagskvöld, 8 skipti.
Þetta er kjöriö tækifæri fyrir þá sem vilja þjálfa sig á
stuttum tíma í ræöumennsku og mannlegum samskipt-
um.
Innritun og upplýsingar í síma
82411
Einkaleyli á islandi
STJÓRNUNARSKÓLINN
Konráð Adolphsson