Morgunblaðið - 04.06.1985, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNt 1985
25
ráðsins að kalla saman fulltrúa
21s ríkis í þessu skyni. Niðurstaða
þessarar ráðstefnu — „Stras-
borgar-frumkvæðið" — eykur mér
bjartsýni varðandi þetta.
Heima í Bandaríkjunum er haf-
ið mikið átak til að efla og þróa
lýðræðislegar hugsjónir og stofn-
anir í þágu þeirra. Bandaríkin
fóru í þessu efni að dæmi Sam-
bandslýðveldisins Þýzkalands og á
Bandaríkjaþingi var samþykkt
sérstök fjárveiting til að efla lýð-
ræðið. Í framhaldi af því hefur
verið komið á fót stofnunum á
vegum verkalýðsfélaga, viðskipta-
aðila og stjórnmálaflokka með það
að markmiði að skipuleggja áætl-
anir um samvinnu lýðræðisafla
um allan heim. Ég geri mér vonir
um að önnur lýðræðisríki leggi
lika sitt af mörkum og láti í té
þekkingu sína og atorku í þágu
þessa málstaðar.
Aldagamall fjársjóður
Hér í Vestur-Evrópu hafið þið
komið á fjölþjóðlegu lýðræðislegu
samfélagi þar sem eiga sér stað
óhindruð samskipti einstaklinga
og þar sem skipzt er á upplýsing-
um, vörum og menningarlegum
verðmætum. Það er von mín, von
okkar, að á 2lstu öldinni, sem
rennur upp eftir aðeins 15 ár, geti
allir Evrópubúar — allt frá
Moskvu til Lissabon — ferðast um
án vegabréfs og að þá eigi menn og
hugmyndir greiða leið, einnig um
hinn helming Evrópu. Það er ein-
læg ósk mín að á næstu öld verði
ein og frjáls Evrópa.
Ég legg ekki trúnað á orð þeirra
sem segja að þjóðir Evrópu séu
um þessar mundir lamaðar og
svartsýnar. Og við þá sem standa í
þessari trú vil ég segja þetta: Evr-
ópa, ástkæra Evrópa, þú ert meiri
og máttugri en þú veizt. Þú ert
hinn aldagamli fjársjóður vest-
rænnar hugsunar og vestrænnar
menningar; þú ert faðir vestrænna
hugsjóna og móðir vestrænnar
trúar.
Evrópa, þú hefur verið máttur
og dýrð Vesturlanda og siðgæði
þitt hefur borið árangur. I þeim
hörmungum sem komu í kjölfar
síðari heimsstyrjaldarinnar hafn-
aðir þú alræði, þú hafnaðir fals-
kenningum um nýtt ofurmenni og
„nýjan kommúnískan mann“. Þú.
sannaðir að þú varst — og ert —
sigur siðgæðisins.
Þið Vesturlandabúar eruð Evr-
ópa án blekkingar, Evrópa sem
stendur föstum fótum á þeim hug-
sjónum og hefð sem gerðu hana
máttuga, Evrópa sem er óháð og
án fjötra hugmyndafræði sem er
komin í þrot. Þið eruð ný Evrópa
sem er að hefja nýja öld — lýð-
ræðisfélag sem getur verið stolt
yfir miklu.
Okkar bíða mikil verkefni. Þeim
má líka við byggingu mikillar
dómkirkju. Verkið gengur hægt.
Það er flókið og erfitt viðfangs.
Með stolti er því haldið áfram,
kynslóð fram af kynslóð. Þetta er
ekki aðeins verk leiðtoga heldur
einnig hins almenna manns.
Dómkirkjan mótast og hún hefst
eftir því sem verkinu miðar og í
samræmi við það sem hver kyn-
slóð leggur af mörkum. En hin
upphaflega hugsjón er hin sama
og einnig trúin sem gerir hana að
veruleika. Árangurinn lætur ef til
vill á sér standa en börn okkar og
börn þeirra munu sjá boga hennar
og turna taka á sig mynd og eiga
þá trú, hollustu og kærleika sem
þeir hófust af. Vinir mínir, Evrópa
er dómkirkjan og enn er hún upp-
ljómuð.
Og ef þið efist um viljastyrk
ykkar, andagift og kraft til að
fylgja einhverju eftir, minnist þá
þess fólks fyrir fjörutíu árum sem
grét í rústunum, sem hló á stræt-
um úti, fylkti sér um gjörvalla
Evrópu, fagnaði Churchill af ástúð
og hollustu og söng „Marseillaise“
á breiðgötunum. Slík andagift
hverfur ekki. Hún verður ekki að
engu; hún yfirgefur okkur ekki. í
henni búa enn söngvar sem á eftir
að syngja.
MorgunhlaiHd hirtir hér semni
hJuu ræóo RonaMt; Reagnn, Band
aríkjaíorseta, é Evropuþinginu i
' Stranbourf; St mai sidastiiómn.
Jazzballettskóli Báru
Líkamsrækt
SUÐURVERI
18. júní—4. júlí
3ja vikna 4x í viku eöa tvisvar. Líkamsrækt
og megrun fyrir konur á öllum aldri. Morg-
un-, dag- og kvöldtímar. Allir finna flokk
viö sitt hæfi í Suöurveri. Innritun í síma
83730.
8. júlt—18. júlL
2ja vikna 4x í viku.
Stutt, fjörugt og skemmtilegt fyrir byrjend-
ur og framhald. Innritun í síma 83730.
Akranes
10. júní—20. júní.
2ja vikna 3x í viku. Líkamsrækt og
megrun fyrir konur á öllum aldri.
Jazzballett fyrir ungt fólk. Innritun í
Rein á kennslutíma. Sími 1630. Kennari
Bára Magnúsdóttir.
22. júlt—1. ágúst.
2ja vikna 4x í viku. Innritun í síma 83730.
10. júní—20. júní. 2ja vikna 3x í viku.
Líkamsrækt og megrun fyrir konur á
öllum aldri.
Jazzballett fyrir ungt fólk. Innritun í
Heilsuhorninu, sími 1267. Kennari Anna
Norðdahl.
Sæluvika 28. júní—4. júlí!
Innritun í síma 36645.
8. júlí—25. júlí. 3ja vikna 3x í viku. Inn-
ritun í síma 36645.
Jazz hjá Sigrúnu, 2 vikur 3x í
viku, 10. júni—20. júní.
6.30 byrjendur
7.30 lengra komnir
8.30 lengst komnir
Mánudaga — miðvikudaga
— fimmtudaga
Innritun i síma 83730.
Gjald 900 kr.
Sigrún
Soul jazz og jazz hjá Agnesi
24. júní—4. júlí.
Innritun í síma 83730.
Jazz hjá Sigriöi.
8. júlí—18. julí.
Innritun i síma 83730.
Modern jazz og jazz hjá Irmu
22. júlí—1. agust.
Innritun í síma 83730.
mUlee Allir kennararnir
nýkomnir af namskeiði i London með
það nýjasta frá Pineapple.