Morgunblaðið - 04.06.1985, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1985
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Sudufíttín«
Stálgæði: St. 35 - DIN 50049 - 2.2 - DIN 2615
J~L
C233ZZZZZXZZzJ
Té
Stærðir: 1” - 10”
Beygjur
SINDRA
STALHF
Borgartuni 31 sími 27222
~ *
Stálgrmdur þar sem mikils styrks og oryggis er óskoð.
Vandaóur og viðhaldslitill frágangur
Allir fylgihlutir frá Adronit
flytjum inn frá Adronit Werk, Þýskalandi,
vandað girðingaefni og hlið og allt sem til þarf. Adronit kerfið er mjög
umfangsmikið og vekja þrjú atriði mesta athygli: Fjöldi valmöguleíka,
auðveld uppsetning og mikil endíng — bæði hvað varðar hnjask og tæringu.
Og útlitið er vissulega við hæfi vel rekins fyrirtaekis eða stofnunar.
Utlit lóðar ber vitni um starfsemina innan dyra.
SINDRA
STALHF
VELGIRT
Öflug hlið fyrir alla umferð Einnig rafknúm
Hátt net ásamt V-laga öryggisbúnaði.
Grmdverk úr áli eða stáli Skiþulagnmg og stjórnun
umferðar
Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavlk, slmi: 27222
flttrpmMafoilr
Askriftarsíminn er 83033
Guðmunda Guðmunds-
dóttir - Minning
Fædd 17. maí 1897
Dáin 24. maí 1985
Það þykja sjálfsagt ekki mikil
tiðindi í hinum stóra heimi þótt
öldruð kona ljúki tilveru sinni hér,
en samt er það þó svo, að ónota-
lega bregður manni við, þegar
slíkt á sér stað, eða svo fór fyrir
mér, þegar mér var tilkynnt and-
lát móðursystur minnar að kveldi
hins 24. þ.m.
Munda hafði verið sjúklingur á
Landakotsspítala við hrakandi
heilsu síðastliðin 4 ár, fyrst þol-
anlega sjálfbjarga, en síðustu árin
alveg rúmliggjandi.
Guðmunda, eins og hún hét
fullu nafni, var fædd 17. maí 1897
í gömlu baðstofunni í Efsta-
Hvammi í Dýrafirði. Foreldrar
hennar voru Þorvaldína Rósa Ein-
arsdóttir í Efsta-Hvammi og Guð-
mundur Hjaltason, sem um þetta
leyti var búsettur í Tönnsberg í
Noregi, en ættaður frá Nauteyri
við ísafjarðardjúp.
Þorvaldína hafði áður eignast
dóttur með Guðmundi og hafði
hún verið tekin í fóstur í Efsta-
Hvammi. Þar sem ólíklegt þótti,
að Guðmundur kæmi fljótlega til
baka, var ekki um annan kost að
ræða fyrir Þorvaldínu, en freista
þess að vinna fyrir sér ein og
óstudd með Mundu með sér, eins
og það hefur nú verið fýsilegur
kostur í þá daga.
Voru þær á ýmsum bæjum í
Þingeyrarhreppi næstu árin,
lengst þó á Húsatúni í Haukadal,
en árið 1909 festi Þorvaldína kaup
á skúr, sem síðan var við hana
kenndur, en hann stóð við fakt-
orsgirðinguna bak við hús Sigur-
jóns Péturssonar á Þingeyri.
Munda gekk i barnaskólann á
Þingeyri og fermdist í fyrsta
fermingarhópnum í nýju kirkj-
unni á Þingeyri 1911, og nú kveður
hún síðust þeirra.
í þá daga þótti það sjálfsagður
hlutur, að hver sá sem kominn var
í kristinna manna tölu, sæi fyrir
sér, en væri ekki ómagi á sínum
nánustu. Vinnu var að vísu ekki
alls staðar gott að fá, en á stöðum
eins og Þingeyri var fiskvinna
nokkuð árviss hlutur fyrir flesta
þá sem treystu sér til slíkra
starfa. Það varð því hlutskipti
Mundu um sinn að ganga á reitina
á Þingeyrarodda og breiða fisk til
þerris. Hvort sem það hefur nú
verið af minnkandi vinnu eða
ævintýraþrá þá tóku þær Munda
og móðir mín upp á því árið 1913
að fara suður í Viðey til þess að
starfa þar í fiski hjá hinu svokall-
aða Milljónafélagi. Þetta gerðu
þær næstu tvö árin en söðluðu svo
um og fóru í síldarsöltun norður á
Siglufjörð næstu sumur, en alltaf
var komið heim og dvalið heima
yfir veturinn.
Það mun hafa verið 1916 að
Munda flutti að fullu til Reykja-
víkur og til Dýrafjarðar kom hún
aðeins einu sinni eftir það, en það
var árið 1932 að hún og Guðrún
Lilja, dóttir hennar, dvöldu um
tíma í Efsta-Hvammi sér til
hressingar.
Munda giftist 3. nóvember 1917
Halldóri Jónssyni frá Kalastaða-
TOLEDO
BRETTAV0GIN
l*lasl.os lil’
©82655
koti á Hvalfjarðarströnd, en hann
var jafnan kenndur við verslunina
Vögg, sem hann átti og rak í mörg
ár. Þau bjuggu fyrst á ýmsum
stöðum í Reykjavík, en lengi á
Barónsstíg 25, en síðast og lengst
á Njálsgötu 96. Halldór andaðist
langt um aldur fram, 20. október
1945, og síðan hefur Munda búið
ein á Njálsgötunni uns hún fór á
Landakotsspítalann. Lengst af
ævinnar var Munda heilsuhraust
og hélt sér afar vel framundir það
síðasta. Hún var afbragðs hús-
móðir, þrifin í besta lagi og mikil
hannyrðakona.
Á efri árum fór hún margar
ferðir til New York til þess að
heimsækja Önnu dóttur sína, sem
þar bjó. í einni slíkri ferð hitti
hún föður sinn, sem þá bjó háaldr-
aður í Bridge Port, Connecticut, en
hann hafði flutt frá Noregi 1906
til Bandaríkjanna. Hann kom að
vísu í heimsókn til Islands 1931, en
ekki mun Munda hafa séð hann í
þeirri ferð.
Þau Munda og Halldór eignuð-
ust 4 börn, 3 dætur og einn son.
Þau eru Klara, sem andaðist 1972,
hún var gift Ingólfi Sveinssyni og
áttu þau 3 börn; Jón loftskeyta-
maður, kona hans er Guðný
Bjarnadóttir frá Reykjum og eiga
þau eina dóttur; Anna, hún giftist
bandarískum manni, Morley Zobl-
er, og fluttist með honum til New
York. Hann er nú látinn. Þau
eignuðust 3 syni. Seinni maður
Önnu er Arthur Ferris. Guðrún
Lilja er yngst, maður hennar er
Sigurður Armann Magnússon,
stórkaupmaður í Reykjavík, þau
eiga 3 syni og eina dóttur.
Nú þegar leiðir skilja um sinn,
vil ég þakka Mundu fyrir allt sem
hún hefur verið mér og móður
minni gegnum árin. Megi sá sem
öllu ræður halda verndarhendi yf-
ir öllum hennar afkomendum og
vinum.
Gunnar Hvammdal
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, aö
afmæli.s- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á mínningar
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurla að vera véirituð og
með góðu línubili.