Morgunblaðið - 04.06.1985, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ1985
45
hugljúfi, hægur og prúður í allri
framkomu, en gat þó verið fastur
fyrir ef því var að skipta. Hann
var ákaflega listrænn maður í sér
og eru til margar teikningar og
myndir eftir hann. Sérstaklega
þykja málverk hans af ýmsum
skipum, sem hann málaði mikið
af, einstaklega falleg og vel gerð.
Sigurður gekk að eiga unnustu
sína, Ingibjörgu Sveinsdóttur úr
Reykjavík, 20. október 1979. Börn
þeirra eru tvö, Sigríður Ólöf 6 ára
og Kristófer Örn á þriðja ári.
Óhætt mun að fullyrða að þau
hjón hafi verið ákaflega samhent.
Af litlum efnum, en með sam-
stilltu átaki komu þau sér upp
íbúð við Engihjalla í Kópavogi og
með stækkandi fjölskyldu keyptu
þau sér stærri íbúð sl. haust að
Borgarholtsbraut 25, einnig í
Kópavogi. Gerði Sigurður sér
miklar vonir um að geta búið sem
best að fjölskyldu sinni þar.
Þau hjón ferðuðust mikið sam-
an ásamt börnum sínum innan-
lands. Þau innréttuðu sér sendibíl
að öllu leyti sjálf og höfðu ferðast
hringinn í kringum landið og
nokkrar ferðir þvert yfir hálendið
á honum. Voru Sigurði þessar
ferðir mjög eftirminnilegar.
Þó að það sé sárt fyrir okkur
samstarfsmenn Sigurðar að sjá á
eftir góðum vinnufélaga og vini
yfir móðuna miklu, langt um aldur
fram, hlýtur harmur og sorg hans
nánustu að vera yfirþyrmandi.
Við sendum foreldrum hans,
systkinum og öðrum ættingjum
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur. Sérstakar kveðjur sendum við
þó Ingibjörgu og börnunum litlu
sem alltof stutt fengu að njóta
samvista við föður sinn. Megi góð-
ur Guð styrkja þau og leiðbeina
þeim í þessari miklu sorg þeirra.
Blessuð sé minning Sigurðar
Arnar Aðalsteinssonar.
Starfsmenn Skipaþjónustu
Reykjavíkurhafnar
annað heimili okkar; og eina nótt-
ina hafði ég fæðst uppi á lofti i
gamla bænum. Á þessum árum
var enn sveit á Kjalarnesi og lífið
þar hafði hefðbundinn blæ yfir
sér; það var ekki fyrr en síðar að
höfuðborgin fór að bera ægis-
hjálm yfir þetta byggðarlag.
Á hverju sem gekk hafði Helga
sama jafnaðargeðið. Hún var
glaðlynd, söngvin og skynjaði vel
skopið í því sem við bar. Okkur
systkinunum tók hún eins og við
værum hennar börn. Hún var ekki
umvöndunarsöm og ætlaði engum
að gera annað en það sem gott var.
Sá andi var yfir lífi hennar..
Ég trúi að tekið hafi verið á
móti henni með þeim sama anda á
nýjum slóðum. Með henni í för er
þakkarhugur okkar allra.
Jón Sigurðsson
Að leiðarlokum minnist ég
Helgu Kolbeinsdóttur með nokkr-
um orðum. Ég minnist hennar
sem einnar bezt gerðrar konu sem
leið mín hefur legið með. Ekki
felst það í umbrotasömu skemmt-
analífi, ekki heldur daglegum
tjáskiptum. Ég eignaðist hana að
vini, og það var vinátta sem aldrei
brást. Hún rofnaði ekki, því hún
sá um það. Þegar ég glimdi harð-
ast við skapadóma tilverunnar var
samband á milli okkar svo Ijúft að
vel gætu orð Matthíasar Joch-
umssonar til Hallgríms Péturs-
sonar — „að sólin skín í gegnum
dauðans göng“ — átt heima við þá
tilfinningu eina að vita að hún var
til, manneskja sem alltaf var á
sínum stað, alltaf boðin og búin að
gefa ráð og leysa þann vanda sem
í hennar valdi stóð. Hún lét aldrei
fenna í gangvegi, hvort sem þeir
voru farnir oft eða sjaldan.
Tryggð og hlýhugur er rnikill
fjársjóður. Miklu meiri en það sem
mölur og ryð fær grandað. Þó nú
ekki bætist við hann í gegnum orð
og bros Helgu Kolbeinsdóttur
minnkar hann ekki heldur. Hann
er og varir með mér. Birta og ylur
fylgir mér í mynd frá brosmildu
andliti hennar og hjartahlýju sem
var svo fölskvalaus.
Vini mínum og manni hennar,
svo og börnum þeirra og fjölskyld-
um, sendi ég samúðarkveðjur og
flyt hinni látnu virðingu og þökk.
Jónía Jónsdóttir
Kristján Sveins-
son - Kveðjuorð
Við fráfall bestu sona sinna
bregður landsmönnum öllum. Vit-
undarsvið þjóðarinnar verður um
stund sorgarblandið, litirnir dauf-
legri. Það rökkvaði í hugarheimi
íslendinga þegar fréttin barst:
Kristján Sveinsson augnlæknir er
dáinn. Læknir, augnlæknir, öðl-
ingur og þjóðsagnapersóna í meira
en hálfa öld; traustur og mótandi
liðsmaður í hinni gífurlegu sókn
íslendinga inn á lendur upplýs-
inga og kunnáttu, sem staðið hef-
ur í nokkra áratugi.
Allt þetta skeið hefur Kristján
Sveinsson átt öruggan virðingar-
sess í huga hvers manns í landi
voru, enda mun varla til það heim-
ili á íslandi að ekki hafi það notið
með einum eða öðrum hætti hæfni
hans og mannkosta. Þar er að
finna skýringuna á því að hann
átti hvern mann í landinu að vini,
að hann var hvers manns vinur og
bróðir.
Dagleg störf Kristjáns mótuð-
ust af fornum dyggðum og ein-
kenndust af mikilli og djúpri
þekkingu. Hann deildi út læknis-
dómum sínum með töfrandi lát-
leysi líkt og þegar kardínálar
kirkjunnar veita sakramenti.
Læknastéttin út af fyrir sig stend-
ur í þakkarskuld við Kristján sem
og allir unnendur og njótendur
læknavísinda. Hann var kennari
fjölmargra lækna og hjúkrunar-
kvenna í augnsjúkdómafræðum;
hann átti ásamt öðrum dugandi
læknum hlut að því að mönnum
má nú skiljast það með öðrum
þjóðum, að til er á íslandi sjálf-
stæður rannsóknarvilji og þó
nokkur klínisk læknisfræði.
Kristjáni Sveinssyni var sýndur
margskonar trúnaður og sómi af
hálfu lækna, hann var m.a. fyrsti
formaður Augnlæknafélgs íslands
og síðar fyrsti heiðursfélagi þess.
Kveðja þessi, rituð í önn dagsins
í lækningaferð á Snæfellsnesi, er
öðrum þræði kveðja frá Augn-
læknafélaginu. Hún er fátækleg
tilraun til að votta látnum kenn-
ara, samherja og leiðtoga hinstu
virðingu.
Kristján var okkur læknum hin
fegursta fyrirmynd; þessi sístarf-
andi mannvinur gekk lengst af á
vegum ofar titlum og tignar-
merkjum. Hánn sóttist ekki að séð
væri eftir glysi heimsins né veg-
tyllum en var þó leiddur til hásæt-
is. Hann er kvaddur með söknuði.
Emil Als
Fáir bílar hafa fengið eins lofsamlega
dóma og margar viðurkenningar og
MAZDA 626, meðal annars:
A Bíll ársins í V-ÞýsKalandi
w 2 ár í röð
(D Bíll ársins í Bandaríkjunum
Q Bíll ársins í Japan
$ Bíll ársins í Ástralíu
€1 Bíll ársins á hýja-5jálandi
O Bíll ársins í 5uður-AfríKu
MEST FVRIR PENINGANA
Þessi margfaldi verðlaunabíll er nú til afgreiðslu
strax á sérlega hagstæðu verði.
Tryggið ykkur því bíl strax!
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23 sími 812 99