Morgunblaðið - 04.06.1985, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JUNI 1985
„MCLgnús, hann fékk hana. mc& sér
hcim, en hún ncyndi6t öf þröng y fir
axUrnar."
ást er ...
hana.
TM Reg. U.S. Pat. Oft — all rights reserved
«1985 Los Angeles Times Syndicate
Hvað heita dómararnir í mál-
inu þínu? Mamma ætlar að senda
þeim þakkarbréf.
Það var betra í gamla daga
þegar fólk gerði ekki strangar
kröfur um nýmjólkina.
HÖGNI HREKKVISI
6KU-APU KK/EKUN6UNUM, AUKKI MU5<"
Útvarpið er áróðurs-
tæki vinstri manna
Þorleifur Kr. Guðlaugsson, Lang-
holtsvegi 122, Rvík skrifar:
(Jtvarpið er fljótt að bregðast
við áróðri stjórnarandstöðunnar
með því að koma áróðri sínum á
framfæri og þannig hefur það ver-
ið síðan Vinnuveitendasambandið
kunngerði tilboð sitt um samn-
ingagerð á næstunni.
Nú er reynt að tortryggja at-
vinnurekendur og er útvarpið
fljótt að koma því á framfæri við
almenning. Ekki er af því skafið
að það er áróðurstæki vinstri
manna, enda óhætt að segja að
nýja útvarpslagafrumvarpið er
sniðið þannig að t.d. sjálfstæðis-
menn komi takmarkað fram sín-
um sjónarmiðum gegnum útvarp
og sjónvarp svo að þeir komi ekki
upp sínum eigin stöðvum án eftir-
lits og takmarkana. Þetta á, sem
sagt, að vera einokun áfram í fullu
gildi.
Þröstur ólafsson og Karl Stein-
ar eru farnir að viðurkenna að það
sé fámennur hópur innan verka-
lýðsfélaganna sem ræður fyrir
fjöldann og undir niðri er tónninn
að knýja fram miklar kauphækk-
anir með valdi verkalýðsins.
Þetta virkar til áframhaldandi
hringverkunar kaupgjalds og
verðlags. Það á að hafa sama hátt-
inn á og blása upp verðþenslu og
gengisfellingar, sem alltaf virka
sem kjaraskerðing. Þetta er því
mesta afturhaldsstefna innan
stéttarfélaganna og til þess fallin
að lama allar framfarir í landinu.
Þetta kalla ég pólitískar aðgerðir
en ekki eðlilega kjarabaráttu og
veldur aðeins þjóðinni í heild
skaða.
Viðhafðar eru hatursfullar að-
gerðir gegn atvinnurekendum en
ekki eðlileg og réttlát kjaramála-
stefna og því miður eru tiltölulega
fáir ofstækisfullir menn, sem
koma sér fyrir í fremstu röðum
vinnustéttanna og vinna þannig
skemmdarverkin og halda uppi ill-
kvittnum áróðri. Með því er ætl-
unin í öllu falli að snúa sökinni
upp á atvinnurekendur og stjórn
landsins af því þeir eru hræddir
við fylgistap við hugmyndir sínar
um öfluga félagsþjónustu sem
byggist á margföldun skatta sem
aftur virka á atvinnulífið sem
svefntöflur og með þessu er fram-
kvæmdavilji allur svæfður.
Að þessu loknu verður ríkis-
valdið að hafa frumkvæði að öllu.
Þetta er það sem Alþýðuflokkur-
inn og Alþýðubandalagið stefna
að ásamt Kvennalista og Banda-
lagi jafnaðarmanna þrátt fyrir
mikinn áróður fyrir því að ríkis-
valdið eigi ekki að vera með putt-
ana í aðgerðum verkalýðsfélaga og
annarra. Þarna eru þeir að reyna
að fela sína raunverulegu stefnu,
sem er einokun ríkisvaldsins á
sem flestum sviðum.
Andstæðurnar hjá þessum
mönnum eru með ólíkindum á orð-
um og athöfnum. Einnig er það
með ólíkindum hvernig fólk lætur
blekkjast og hafa sig í aðgerðir,
sem stangast á við hagsmuni þess
þegar á allt er litið af sanngirni.
Vitna ég því til þess, sem Ás-
mundur Stefánsson sagði í Borg-
arnesi í vetur: „Það er mikilvægt
að sanngirni og gagnkvæmt traust
og skilningur ríki milli launastétt-
anna og atvinnurekenda." Mér
hefur þó sýnst og heyrst að skiln-
ingurinn eigi eingöngu að koma
frá vinnuveitendum því verka-
lýðsfélögin beita stöðugt valdi til
að fá sínu framgengt. Því er
ábyrgðin öll hjá þeim í núverandi
ástandi. Orðagjálfri vinstri
manna eru engin takmörk sett.
Duran Duran
á Listahátíð
Duran Duran-aódáandi skrifar:
„Ég vil taka undir það sem svo
margir Duran Duran-aðdáendur
hafa sagt. Hvernig væri nú að fá
einu sinni almennilega hljómsveit
á Listahátíðina?
Duran Duran væri kjörin í það.
Einnig væri skynsamlegt af sjón-
varpinu að sýna gömul lög með
þeim. Svo vil ég spyrja aðstand-
endur rásar 2 hvað þeir hafi eig-
inlega á móti Duran Duran. Þeir
segja að Duran Duran sé bara
smábarnahljómsveit. Það er sko
vitleysa.
Ég veit um margt fólk sem
hlustar á hana og ekki eru það
smákrakkar. Og þið megið alveg
spila fleiri lög með þessari frá-
bæru hljómsveit frekar en þessum
sígaulandi hljómsveitum eins og
Wham!, U2 og Fankie goes to
Hollywood. Það hlustar enginn á
það gaul nema þá einhverjir sem
hafa ekkert vit á tónlist. Ég veit
að margir eru sammála mér um
þetta. Svo vil ég að lokum enn
ítreka það við forráðamenn Lista-
hátíöar að bugsa nú einu sinni um
að fá góða hljómsveit til landsins,
t.d. Duran DurarJ1
Þessir hringdu . . .
Duran Duran-
aðdáendur sárir
Áki hringdi:
Að undanförnu hafa Duran
Duran-aðdáendur haft samband
við Velvakanda og látið skoðanir
sínar í ljós í sambandi við vin-
sældalista rásar 2.
Þeir tala um skrýtinn vin-
sældalista og er ég nú farinn að
halda að Duran Duran-aðdáend-
ur séu orðnir meiriháttar
skrýtnir sjálfir.
S.R. og G.T. kvarta undan því
að „Some Like It Hot“ og „Save a
Prayer" hafi ekkert komist
áfram á vinsældarlista rásar 2.
Vilduð þið láta lögin fara hærra
en í toppsætið?
Ég hef nú alltaf haldið að Dur-
an Duran-aðdáendur væru dálít-
ið ruglaðir en aldrei datt mér í
hug að þeir væru svona snar-
ruglaðir. Þið vitið það kannski
ekki að það hringja 1500 til 2000
manns á hverjum fimmtudegi í
vinsældarlista rásar 2 og varla
þekkið þið allan þennan fjölda
fólks.
Ástæðan fyrir því að lögin
ykkar komast ekki áfram eins og
þið vilduð að þau kæmust er sú
að miklu fleira fólk hefur hringt
og beðið um einhver önnur lög.