Morgunblaðið - 04.06.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 4. JÚNl 1985
55
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
'u ir
Falleg dyggð að minn-
ast framliðins vinar
Helgi Vigfússon skrifar:
Ósk Morgunblaðsins um birt-
ingu afmælisgreina hlýtur að
verða tekið með skilningi allra. En
það eru minningargreinarnar sem
ég vil fara um nokkrum orðum, þó
ég hafi áður minnst á það hér í
blaðinu. Það er falleg dyggð að
minnast framliðins vinar við
brottför úr jarðneskum líkama.
En veiztu, lesandi góður, hvað þú
gerir vininum mikið gott? Það
gerbreytir skoðun hans á umskipt-
unum, og við getum snúið sorg
hans í gleðibros. Að minnast vinar
eða kunningja á útfarardegi hefur
dregið úr sorgarsári lífs og lið-
inna.
Hugsunin og minningin er
ósýnileg orka er hjálpar hvað
mest á útfarardeginum, er lesend-
ur í tugatali lesa nafn hins fram-
liðna. Því miður er ekki hægt að
gefa fólki augu sjáanda, en áhrif
þessa máttar eru stórkostleg. Við
brottför af þessu jarðneska sviði,
eru atriði sem ég vildi minna þig,
lesandi góður, á að gott og nauð-
synlegt er að hafa hugföst.
Sá sem látinn er mun ekki síður
en vinur hans, sem enn dvelur hér,
reyna að viðhalda minningunni
um jarðvistina. Fjarlægðu föt hins
framliðna svo sem skó eða flíkur.
Þetta er mikilvægt atriði. Þessir
jarðnesku hlutir binda orku hins
framliðna til þroska, meira en allt
annað.
Fáðu prestinn eða einlægan vin
til þess að flytja bæn á heimilinu
áður en útförin fer fram að við-
stöddum hinum nánustu. Við vit-
um hvert hugarfar hann eða hún
bar til heimilisins, og aldrei förum
við svo af heimilinu í mismunandi
erindum, að ekki sé heimilið kvatt.
Er nokkur ástæða til að ætla að
það sé breytt, þegar hinn fram-
liðni yfirgefur það eftir jarðvist-
arárin. Það veitir honum eða
henni mikla blessun að vinir og
hinir nánustu komi saman á heim-
ilinu áður en jarðneskar leifar eru
bornar til greftrunar.
Á hátíðis- og tyllidögum að
minnsta kosti skaltu leggja á mat-
ar- eða kaffiborðið þitt aukadisk,
það er nefnilega óslökkvandi þrá
framiiOiiina að vitja sinna og um-
gangast, en þessi athöfn gleður
„gestina" að handan og þeir finna
í þessari athöfn ljós og yl streyma
til sín.
Reykelsi er eitt bezta ráðið aí
nota til þess að opna sambandif
milli heimanna, ég bendi á sér-
staklega góða tegund reykelsis i
þessu sambandi, Auroshikha frá
Indlandi. Tendraðu reykelsið vii
Ijósmyndina af hinum framliðna
og kveiktu á kertaljósi. Á þennan
hátt sem hér er lýst samstillast
hugir okkar við þá framliðnu, sem
þrá sem vatn er þyrstum, að sýna
okkur elsku sína og veita okkur
hjálp. Við skulum skapa það um-
hverfi og þau skilyrði, sem gera
ósýnilegum andlegum verum úr
æðra heimi sem bezt mögulegt að
dvelja með okkur og deila gleði
sinni og allri tilfinning með okkur.
Sterkast er sambandið á milli
heimanna á okkar jarðneska tíma
fyrst á morgnana um það leyti er
við vöknum og um eftirmiðdaginn
og á kvöldin kl. 20—22, fyrstu vik-
urnar og mánuðina eftir viðskiln-
aðinn.
Má ekki laga Bankastræti 0?
Ein sem oft kemur í „Núllið"
skrifar:
Kæri Velvakandi! Mig langar til
að biðja þig að koma á framfæri
fyrir mig eftirfarandi línum. Er
ekki orðið tímabært að huga að
endurbótum á Bankastræti 0 þar
sem almenningsklósett miðbæjar-
ins eru.
Bankastræti 0 er orðið 55 ára
gamalt og lítið sem ekkert hefur
verið fyrir staðinn gert — ekki
málað, ekkert breytt og ekkert
bætt. Það eru einlæg tilmæli til
þeirra sem hafa með þennan stað
að gera að bregðast fljótt og vel
við. Það sem gera þarf er að fjar-
lægja tröppur, búa til herbergi
fyrir starfskonur þar sem tröpp-
urnar voru og útgang þar sem
konurnar hafa nú aðsetur.
Ég heiti á forráðamenn borgar-
innar að ganga fljótt til verks við
breytingar á þessum stað, sem er í
hjarta borgarinnar og er okkur
öllum nú til mikillar skammar.
Það er langt síðan þessi staður
varð borginni til skammar.
Mikið má gera ef vilji og fram-
tak er með í verki. Einnig vil ég
segja að þær konur sem þarna
starfa við gæslu, eru algjörlega
óvarðar fyrir allskonar lýð eftir að
skyggja tekur á kvöldin. Það eitt
út af fyrir sig er alls ekki forsvar-
anlegt. Eruð þið ráðamenn að bíða
eftir að slys verði þarna eða ein-
hver óhæfuverk verði þarna unn-
in? Það eru fleiri hundruð konur
sem koma í Bankastræti 0 og vilja
ólmar fá staðnum breytt til hins
betra. Ég skora á ykkur, ráða-
menn, að gera eitthvað í málinu.
Diskettur - Tölvusegulbönd
Mikilvægt
byggðasafn
Helgi Vigfússon skrifar:
Er fram líða stundir, mun það
all-mikilsvert þykja einka byggða-
safnið í Götu í Hrunamanna-
hreppi, Ámessýslu. Hefur þú, les-
andi góður, heimsótt þann snyrti-
lega stað? Ef svo er ekki, þá ætt-
irðu að staldra þar við næst, og
njóta fágaðrar lýsingar Emils
Ásgeirssonar. Ég óska honum til
hamingju með safnið, sem er afar
snyrtilegt þó húsakostur sé þröng-
ur. Þetta er merkilegt framtak og
sýnir stórhug eigandans.
Þeir sem gera kröfur um hámarksöryggi gagna nota
einungis MEMOREX.
Fyrirliggjandi fyrir flestar gerðir tölva.
Allar MEMOREX diskettur og tölvusegulbönd eru gæðaprófuð
frá verksmiðju.
Biðjið um MEMOREX á næsta smásölustað.
MEMOREX er hágæða vara á góðu verði.
Heildsala, smásala
Umboðsmenn óskast víða um land.
Hafið samband við sölumenn í síma 27333.
acohf Laugavegi 168, S 27333.
r
Eldtraustir
tölvugagnaskápar
@ Rosengrens
Tölvugagnaskápar eru sérstaklega framleiddir til að vemda allar
gerðir tölvugagna, svo sem diskettur, segulbönd og seguldiska.
Geymið viðkvæmustu og verðmætustu upplýsingar fyrirtækisins
í öruggum skáp.
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRDI — SIMI 51888
Nú í sumar munu þjónustu- og sölufulltrúar Bíla-
borgar h/f gera víðreist um landsbyggðina til
skrafs og ráðagerða við MAZDA eigendur og
þjónustuaðila.
3. júní verða þeir á Blönduósi hjá
Bílaþjónustunni og á Sauðárkróki hjá
Bifreiðaverkstæði Kauþfélags Skagfirðinga.
4. júní verða þeir á Siglufirði hjá
Bifreiðaverkstæði Ragnars Guðmundssonar og
á Dalvík hjá Bílaverkstæði Dalvíkur.
5. júní verða þeir á Akureyri hjá Bílasölunni h/f
og á Húsavík hjá Bifreiðaverkstæðinu Fossi h/f.
6. júní verða þeir á Egilsstöðum hjá
Bifreiðaþjónustu Borgþórs Gunnarssonar, á
Neskaupstað hjá Síldarvinnslunni h/f og á
Eskifirði hjá Benna og Svenna h/f.
7. júní verða þeir á Hornafirði hjá Bifreiðadeild
Vélsmiðju Hornafjarðar.
MAZDA eigendum og þeim sem eru í bílakaups-
hugleiðingum er bent á að hafa samband við
ofangreinda aðila varðandi nánari timasetningar.
BÍLABORG HF
Smiöshöfða 23. sími 81299