Morgunblaðið - 22.06.1985, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1985
9
Öllum sem glöddu mig á sjötugsafmæli mínu
10. júní sl. meö stórgjöfum, skeytum og hvers
konar hlýhug, sendi ég hjartansþakkir og
bestu óskir.
Ásólfur Pálsson,
Ásólfsstöðum.
Ibúð óskast til leigu
í Garðabæ
2ja—3ja herb. íbúö óskast til leigu frá ca. 1. sept.
Uppl. í síma 43715.
Við notum sumarið
engin
sumarleyfislokun
KVIKMYND
Sjónvarpsauglýsingar
S: 27213.
Verktakaþjónustan hf., sími 45986
Húseigendur og
umsjónarmenn fasteigna
Tökum aö okkur um land allt,
háþrýstiþvott, sprunguviögerö-
ir, sílanúðun til varnar alkalí-
skemmdum. Gerum viö steypt
handriöi og rennur, þéttum
meöfram gluggum og fl. Veitum
góöa þjónustu og faglega
ráögjöf.
Hallgrímur
Blaðbunöarfólk
óskast!
Úthverfi Kópavogur
Langholtsvegur 110—150 víöihvammur
Álfheimar 56—74
jsríöSr
•íSSr.SSlinMOMW*
'""Í'ÆsiOiW"®''
TasW*s<' Re^aviV.
SWslok»S'^“‘ „ ,8300 ,
SM «**#,SSTm®0 "'S
KvoMJsinTar
0863« 00*6*^
s»w****jsír
liiiww .«g,-srj!r
M «kf oq 40 * W h*19*
I u„»,'ausa«"«35kl
SamvinnuhreV^‘
ingin á ieii1
... nviuni úivarpslognn''
SamþyW
Aö lyfta vinstri hendi
„En Sambandiö á nú leik og fjölmargir
áhorfendur eru búnir aö sjá hann og bíöa
spenntir. Hann er sá aö klípa sig hressilega í
vinstri höndina og taka sér öflugt frumkvæöi í
útvarps- og sjónvarpsmálum. Andstæöingar
samvinnuhreyfingarinnar velja henni hiö vafa-
sama sæmdarheiti auöhringur...“ Þetta stóö
í ritstjórnargrein NT fyrir réttri viku, daginn
eftir aö aöalfundarmenn SÍS lyftu vinstri
hendinni og samþykktu frumkvæöi SÍS í fjöl-
miölamálum. Hiö undarlega hefur síöan gerst,
aö vinstrisinnar líta aöeins á SlS sem auö-
hring í þessu samhengi, eins og lýst er í
Staksteinum í dag.“
Arinni
kennir...
Eftir að lögin um afnám
cinkaréttar ríkisins voru
samþjkkt hafa engir skríf-
að meira um það en
vinstrísinnar, að nú verði
að nota frelsið til að koma
stjórnmálaskoðunum sfn-
um rækilega á framfæri.
Þeir sjá aðeins einn bjarg-
vætt til þess: SÍS-hringinn.
NT, málgagn SÍS og Fram-
sóknarflokksins reið á vað-
ið, eftir að SÍS hafði sam-
þykkt á aðalfundi að fela
stjórn sinni „að leita sam-
starfs við kaupfélögin,
verkalýðshreyfinguna,
samtök bænda og annarra
samtaka almennings um
stofnun alhliða fjölmiðla-
fyrirtækis." í forystugrein
NT, daginn eftir að þessi
samþykkt var gerð, sagði
meðal annars:
„Vonandi sér Samband
íslenskra samvinnufélaga
sér fært að verða sá bak-
hjarl sem öll fjölmiðlunar-
fyrirtæki þarfnast í því
liggur von hreyfingarinnar
ætli hún sér ekki að daga
uppi aðþrengd af óvilhöll-
um (svo!) viðhorfum og
pólitískum spjótalögum.
Varnarlaus í samfélagi þar
sem hægri öflin ráða ferð-
inni í Ijölmiðlun. Til sam-
vinnuhreyfingarinnar
hljóta samvinnu- og félags-
hyggjumenn því að líta
með von um frumkvæði og
kraft“
Og í ritstjórnardálki NT
þennan sama dag er höfð-
að til SÍS og framsóknar-
manna með næsta sérken-
nilegum hætti, þegar sagt
er „En nú er lag til að
hrista ærlega af sér slyðru-
orðið og hirða vopnið sem
íhaldsmenn smíðuðu til að
leggja okkur að velli, og
nýta það þannig að börn
okkar reki ekki upp skað-
ræðisöskur eða fái hlát-
urskast þegar þau heyra
minnst á samvinnustefnu
og félagshyggju. Þessi öfl
(SÍS og félagar innsk.
Staksteina) hafa allt sem
til þarf, mannskap, fjár-
magn, aðstöðu, tæki og aö
auki ofurlitla hugsjón um
samvinnu og samhjálp."
Sem sé SIS á undir högg
að sækja vegna fjandsam-
legra fjölmiðla segja NT-
menn. Skal nú bætt úr öll-
um vanda hringsins með
frumkvæði á öldum Ijós-
vakans.
Til dýrðar SÍS
Kjaminn í skrifum NT
er sem sé sá, að SÍS eigi að
vera fjárhagslegur bakhjarl
útvarps félagshyggju og
samvinnu. IJndir þetta
sjónarmið tekur Ami
Björnsson, þjóðháttafræð-
ingur, sem einnig er kynnt-
ur sem útvarpsráðsmaður
Alþýðubandalagsins, f
Þjóðviljagrein á fimmtu
daginn. Arni byggir grein
sína á þeim gamalkunnu
en haldlitlu rökum, að
vinstrisinna skorti að vísu
fé en ekki vanti þá hæfl-
leika eða gáfur. Megin-
sjónarmið hans er eins og
hjá NT, að auðhringurinn
SIS eigi að leggja til pen-
ingana, og nóg af þeim, þá
muni ekki standa á mann-
skap til að kyrja dýrðaróð-
inn. Árai segir meðal ann-
ars:
„Og það má bæta því
við, að félagshyggjuöflin
geta átt sér annan bak-
hjarl, sem ekki ber að van-
meta. Flestallir bestu lista-
menn, menntamenn og
fjölmiðlamenn landsins
eru nefnilega í hjarta sínu
á bandi félagshyggjunnar
og myndu helst vilja starfa
í þeim anda, ef þeir ættu
þess kost Það er saman,
hvort litið er til leikara eða
annarra skemmtikrafta,
tónlistarmanna, kvik-
myndagerðarmanna, rit-
höfunda, myndlistarmanna
eða visindamanna á sviði
þjóðlegra fræða og náttúra
lslands. Þetta mannval
gæti reitt fram langtum
vandaðri og skemmtilegri
dagskrá í hljóðvarpi og
sjónvarpi en veslings hægri
kauðarnir — ef það tæki
höndum saman.
En þá verður líka að
vera hægt að bjóða þessu
fólki sambærileg kjör við
það sem auðfurstar frjáls-
hyggjunnar eiga eftir að
genu“ ,
Akall Ama Björnssonar
til SÍS er skýrt og ótvírætt
Ef SÍS-hringurinn er fús til
að borga nógu hátt verð
getur hann fengið þá sem
hann vill úr hópi lista-,
mennta- og fjölmiðla-
manna. Félagshyggju- og
samvinnumenn eiga sem
sé aðeins að tileinka sér
starfshætti frjálshyggjunn-
ar — þá fá þeir allt, sem
þeir vilja.
Nýr stóri bróðir
Rætist hinir stóra
draumar NT og Árna
Björnssonar um að úr sjóð-
um SfS verði unnt að ausa
fjármunum út á öldur Ijós-
vakans í þeim tilgangi, sem
hér hefur verið lýst, blasir
við að hafin verður hörð
samkeppni um áhrif og
ítök í útvarpi og sjónvarpi.
Tilgangur félagshyggju- og
samvinnumanna á ekki að
vera sá að skýra hlutlaust
og faglega frá mönnum og
málefnum með aðstoð
hinnar nýfrjálsu tækni,
heldur vinna skoðunum
sínum fylgi og fegra ímynd
SÍS-auðhringsins. í því
skyni á að kaupa alla þá
krafta sem falir era.
Fyrr á áram töluðu
vinstrisinnar í þessum dúr
um baráttuna fyrir fram-
gangi sósíalisma og marx-
isma. Þeir voru löngum
óhræddir við að játa Sovét-
veldina ást sína, syngja því
lof og dýrð í von um hæfl-
lega umbun. Nú hafa fé-
lagshyggja og samvinna
tekið sæti hugsjónarinnar
og SfS er á stalli stóra
bróður.
Landssamband Stangveiðifélaga:
Stangveiðidagur fjölskyldunnar
LANDSSAMBAND Stangveiðifé-
laga efnir til stangveiðidags fjöl-
skyldunnar um allt land sunnu-
daginn 23. júní næstkomandi.
Sambandið hefur hvatt aðild-
arfélög sín til að fá aðstöðu við
silungsvatn eða silungsá sem næst
sínu byggðarlagi og gefa fólki kost
á að veiða þar einn dag undir leið-
sögn reyndra veiðimanna.
1 Þingvallavatni, þar sem það
liggur að landi þjóðgarðsins, verð-
ur hægt að veiða endurgjaldslaust
þennan dag í boði Landsambands-
ins og munu félagar þess leiðbeina
þeim sem óska. Gylfi Pálsson
formaður Landssambandsins mun
flytja ávarp í tilefni dagsins kl. 10
fyrir hádegi við Vatnskot.
Áskorun til borgarstjórnar
og borgarráðs Reykjavíkur
BLAÐINU hefur borist eftirfarandi
frá starfsfólki Hafnarbúða:
Við undirrituð, starfsfólk Hafn-
arbúða, höfum hvorki séð né heyrt
frambærileg rök fyrir því að
Reykjavíkurborg láti af hendi eina
af deildum Borgarspítalans, full-
búna og fullsetna bæði af sjúkl-
ingum og starfsfólki. Hafnarbúðir
eru að flestra dómi þörf og vel
rekin stofnun og nauðsyn hennar í
þágu borgarbúa þarf ekki að ræða.
Við snúum okkur því hér með til
fulltrúa í borgarráði og borgar-
stjórn og biðjum þá að afstýra því
slysi að höggvið verði stórt skarð i
þjónustu höfuðborgarinnar við
sjúka og aldraða, ella mundi sann-
ast hið fornkveðna og illræmda, að
„heggur sá er hlífa skyldi."
(Undir þetta ritar 51 starfsmað-
ur.)
"u%.
Staðarpresta-
kall laust
til umsóknar
BISKUP íslands hefur auglýst
Staöarprestakall í Súgandafiröi
laust til umsóknar og er frestur
til 5. júlí.
Tvær kirkjur eru í presta-
kallinu, að Stað og á Suður-
eyri. Prestakallið nýtur nú
þjónustu nágrannapresta.
(Fréttatilkynning.)
VEIÐIOAGUR
FJÖLSKYLDUNNAR
23. JÚNI ’85
LANDSSAMBAND STANGVEIÐIFÉLAGA