Morgunblaðið - 22.06.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚNl 1985
15
Athyglisverð nýbreytni:
Væn Þingvallableikja eins og hún gerist best Ef til vill verða einhverjir
heppnir og veiða slíka fiska á morgun.
þetta hafði verið ansi hæfilegt áð-
ur en liðsaukinn kom. Þeir færðu
sig því innar á tanganum, í átt að
litla ósnum sem tengdi lónið og
aðalvatnið. Þegar annar mann-
anna var næstum kominn að
ósnum, tók fluguna hjá honum
rokvæn bieikja, 3 punda fiskur.
Hann þreytti hana svo sem
minnst bar á, hafði ekki áhuga á
því að allur skarinn færi að standa
yfir sér og jafnvel kasta um allt í
kring um sig meðan hann glímdi
við fiskinn. Hélt veiðimaður
stönginn niður við vatnsborð og
tók varlega á fiskinum til þess að
hann stykki síður eða buslaði í
vatnsskorpunni. Félagi hans var
kominn að, en er bleikjan var tek-
in að spekjast, sáu þeir skammt
frá sér, að flotholt lá upp í fjöru-
steinum, í lóninu við ósinn. Þeir
brostu hvor til annars, félaginn
sótti flotholtið og öngulinn svo lít-
ið bar á og veiðimaðurinn laumaði
háfnum um bleikjuna, losaði hana
varlega af flugunni og festi hana á
öngulinn sem fylgdi flotholtinu og
sleppti síðan öllu saman út á lónið.
Síðan létu þeir sem ekkert væri,
héldu upp í bíl sinn, fengu sér
kaffisopa og fylgdust vel með öllu
sem fram fór á vatnsbakkanum.
Sexmenningarnir veiddu ekkert,
en skyndilega hljóðaði barnið há-
stöfum, „hann er á, hann er á,“ og
varð þá heldur betur uppi fótur og
fit, allir sex hlupu í takt að hlið
hans, og einn sem trúlega var fað-
ir hans þreif af honum stöngina og
vöðlaði fiskinum upp í fjöru. Rosa-
vænn fiskur, bleikja 3 pund og
drengurinn alsæll. 5 mínútum síð-
ar voru sex flotholtskúlur með
jafn mörgum möðkum komin út i
lónið og sexmenningarnir stóðu
þar sem drengurinn hafði verið og
rýndu áhugasamir út á vatnsflöt-
inn og biðu þess að stórbleikjan
gleypti beitur þeirra ...
Veiðidagur fjölskyldunn-
ar víða um land á morgun
— Endurgjaldslaus veiði í Elliðavatni, Þingvallavatni og víðar
VEIÐIDAGUR fjölskyldunnar verð-
ur á morgun, sunnudaginn 23. júní,
og er það Landssamband Stang-
veiðifélaga sem gengst fyrir þeirri
nýbreytni. Stangveiðifélög um land
allt hafa verið að undirbúa daginn
síðustu vikurnar og viða verður boð-
ið upp á ókeypis veiði fyrir fjölskyld-
ur undir leiðsögn reyndra stang-
veiðimanna. Búast má við mikilli
þátttöku á veiðidegi fjölskyldunnar
og eigi fráleitt að ýmsir verði til þess
að læra réttu handtökin og gangi þar
með í sívaxandi raðir stangveiði-
manna, enda er leikurinn til þess
gerður að leiða menn inn í undra-
lendur stangveiðinnar, því þar er
margslungið og seiðandi sport á
ferðinni.
Landssamband Stangarveiðifé-
laga hvatti öll aðildarfélög sin til
þess að útvega aðstöðu til veiða
endurgjaldslaust og hefur orðið
vel ágengt í nokkrum tilvikum
a.m.k. Stangaveiðifélag Reykja-
víkur verður með aðstöðu í Elliða-
vatni, Ármenn við Vífilsstaða-
vatn, Stangaveiðifélag Borgarness
við Langavatn á Mýrum, Flúðir á
Húsavík við Kringluvatnið hans
Þórðar Péturssonar, Stangaveiði-
félag Sauðárkróks við ölvesvatn,
Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar
við Leifarvatn og Stangveiðifélag
Keflavíkur við Seltjörn. Auk þessa
Hafnfirðingar bjóða upp á Kleifarvatn.
verður leyft að veiða endurgjalds-
laust í Þingvallavatni fyrir landi
Þjóðgarðsins. Ýmislegt verður
þarna gert til þess að laða fólk að,
þannig flytur Gylfi Pálsson for-
maður Landssambands Stang-
veiðifélaga ávarp í Vatnskoti á
Þingvöllum klukkan 10.00 og fjall-
ar þar um tilgang dagsins og
veiðiskap almennt. Þá má geta
þess, að Þórður Pétursson á Húsa-
vík mun hafa i hyggju að leggja
net í Kringluvatnið, efna siðan til
mikillar grillveislu, þannig geti
allir fengið grillaðan silung hvort
sem þeir eru heppnir við veiðarnar
eða ekki.
Sem fyrr segir verða víðast
leiðbeinendur við veiðivötnin og
kenna þeir óvönum það sem til
fellur, að setja saman, kasta,
beita, þreyta og fleira og fleira.
Þorsteinn Gautí Sigurðsson, píanó-
leikari.
Norræna húsið:
Þorsteinn Gauti
Sigurdsson
leikur á píanó
ÞORSTTEINN Gauti Sigurðsson, pí-
anóleikari, leikur í Norræna húsinu
mánudaginn 24. júní og eru það síð-
ustu tónleikarnir í tónleikaröð Nor-
ræna hússins, „Ungir norrænir ein-
leikarar". Á þessum tónleikum hef-
ur fólki gefist kostur á að hlusta á
nokkra þá ungu tónlistarmenn, sem
komust í úrslit í tónlistarkeppni tón-
listarháskóla á Norðurlöndum, sem
haldin var í Osló árið 1984.
Þorstein Gauta þarf vart að
kynna. Hann hefur haldið fjölda
tónleika hér á landi og einnig
komið fram í Svíþjóð, Finnlandi
og Bandaríkjunum þar sem hann
er búsettur nú. Á tónleikunum á
mánudag mun Þorsteinn Gauti
leika sónötur eftir J. Haydn, L.v.
Beethoven og Sergei Prokofiev
auk verka eftir Samuel Barber og
Franz Liszt.
Tónleikarnir á mánudaginn
hefjast kl. 20.30 og verða miðar
seldir við innganginn.
(Úr frf'ttatilLvnningu)
FRICO geislaofninn er tilvalinn vermir á svalir, útverustaöi og garöhús
þegar svalt er í veðri á góðviðrisdögum á íslandi.
JM' RÖNNING Sund?b?a
simi 84000
Endurseljendur:
Ratvörur - Laugarnesvegi 52 - Reykjavík
Glóey - Ármúla 28 - Reykjavík
Skúli Þórsson - Álfaskeiöi 31 - Hafnarflrðl
Rafborg - Grindavik
Árvlrklnn - Selfossi
Kaupfélag V-Skaftfelllnga - Vfk I Mýrdal
Verslunin Kjarni - Vestmannaeyjum
Blfrelða- og trésmiðja Borgarness
Sigurdór Jóhannsson raftækjavinnustofa - Akranesi
Leifur Haraldsson - Seyðisfirði
Rafvirkinn - Eskifirði
Kristall - Höfn/Hornafirði
Rafborg - Patreksfirði
Ljósvakinn - Bolungarvík
Raftækni - Akureyri
Árni og Bjarni - Reyðarfirði