Morgunblaðið - 22.06.1985, Side 38

Morgunblaðið - 22.06.1985, Side 38
38 MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 22. JÚNl 1986 ■iivikTl TFá-TÍ Vili-i* * •;* * tJr* /j' Diskótek Opiö í kvöld frá 10—03 Aögangseyrir 300 kr. Aldurstakmark 16 ára—21 árs S. 11559. rf\ í >i ööLnoeoLu® DAMSLEIKUR Föstudag og laugardag. Hljómsveitin RUNAR JUL. sýnir sina bestu taktaog flytur lög af nýju plötunni sinni. ^ MISSIÐ EKKI AF FYRSTA KOSSIMUM Hin frábæra Carol Nielsson kemur og syngur. Húsiö opnar kl. 22. Ása S. Stefánsdóttir Tómasarhaga — áttræð í dag, 21. júní, er stóri dagurinn, lengsti sólardagur ársins. Móðir mín, Ása S. Stefánsdóttir, er 80 ára. Hver er hún, þessi móðir mín? Ása í Tómasarhaga við Laufásveg. Þar bjó hún í 50 ár, já, hálfa öld. Og ól upp öll sín níu börn og þrjú sonarbörn. Hún hef- ur komið tólf börnum til þroska, öllum hinum mannvænlegustu. Eins og nærri má geta eru barna- börn, barnabarnabörn og tengda- börn orðin ansi mörg. öll eru þessi börn mannvænleg og vel af Guði gerð, heilbrigð og elskuleg. Og í dag fagna þau múttu, ömmu og langömmu, ásamt vinum, kunn- ingjum og venslafólki að Hjálm- holti 1 hjá Eyjólfi og Bryndísi frá kl. 16 til kl.19. Móðir mín er ein sú gáfaðasta, kátasta, besta, listrænasta og raunsæasta kona sem ég hef kynnst. Ragnhildur Helgadóttir ráð- herra sagði eitt sinn er við vorum samferða í flugvél: Það er eins og móðir þín hafi haft stúlku sem sá um hvert barn í Tómasarhaga, þið voruð alltaf svo vel klædd og hugguleg í skólanum. En raunin var sú að móðir mín saumaði allt sjálf og ekki nóg með það, hún saumaði út ef á þurfti að halda. Aldrei gleymi ég íþróttabuxum (bláar) og skyrtu (hvít) sem hún saumaði auðvitað að nóttu til og á vasanum stóð BIDDY, það var stórkostlegt. Vitanlega átti faðir minn stóran hlut í öllu sem gert var. Hann var eins og Ragnar í Smára hafði eftir vini hans, stærsti idealisti sem fsland hefur alið, og ekki ofmælt. Aðeins pabbi gat gert allt nógu vel svo mútta yrði ánægð. Eins og nærri má geta var ekki alltaf rúmur fjárhagur en við vor- um óskaplega ánægð. Ef einhver bað um aura sagði pabbi vanalega: Ása mín, heldurðu að það verði nokkur afgangur af tíkallinum? Og ef mútta sagði já, var málið leyst, nú ef ekki, þá það. Svo var mútta vön að segja ef einhvern langaði í eitthvað: Þú færð það þegar við vinnum í happ- drættinu; og það skeði yfirleitt alltaf í desember, miðinn var skrifaður á börnin í Tómasarhaga. Já, jákvæð var hún og er enn. Nú bíður hún eftir vinningi og hvað skeður þá? Sambýlið var með eindæmum gott i holtinu. öll börn nágrannanna voru vinir múttu og eru enn í dag. Eitt sinn hvarf lítil stúlka og móðir hennar spurði: Hvar varstu, Daggý mín? Ég var hjá henni Ásu, hún elskar mig svo mikið, var svarið. Svo var með fleiri. Hún hefur alltaf stungið upp í lítinn munn hver sem hann átti. Norðurármenn minnast hennar margir, hún var matráðs- kona þeirra eitt suraar. Og hjá Eimskipafélagi íslands minnast hennar allir sem þar borðuðu og dönsuðu með henni á gleðistundum. Hún er óforbetranlega góður kokkur, enda sögðu allir: Það er ekki vandalaust að gefa ykkur að borða. Ég man vel þegar við flutt- um í Sólbyrgi, en svo hét sumar- bústaður Júlíusar Björnssonar. Pabbi keypti hann og borgaði út 5000 krónur. Hann flutti að skúr sem þá varð eldhús, forstofa og útikamar. Síðar byggði hann við svefnherbergi og frusu sængurnar við vegg í mestu kuldunum, en engum varð meint af. 1940 byggði hann við þrjú svefnherbergi og vorum við systkinin níu og for- eldrar í einu herbergi og beið eng- inn skaða af, var öðru nær ákaf- lega skemmtilegt. Á aðfanga- dagsmorgun skeði undrið. Húsið tilbúið og allt í spæni; en á slaginu kl. 6 um kvöldið var sest að borð- um eins og ávallt. Þvílíkur dagur sem aldrei gleymist, móðir mín skipulagði allt og alla. Það voru ekki slegin vindhöggin á þessum bæ. Ekkert var vatnið þegar við fluttum (brunnur langt niður fyrir veg) ekkert rafmagn (kolaeldavél) engin hrærivél né ryksuga, já, hví- lík dýrð. Og alltaf fullt af gestum, allir andans menn sem kváðu, spiluðu og sungu. Þá var gaman að vera til. Það var eins og Stella vinkona mín sagði einu sinni, hún var í Ljárskógum á sumrum: Ef þetta elskulega fólk vissi hvað það gerir börnunum gott með því að safnast að hljóðfærinu á kvöldin og syngja saman, þvílíkt fræ sem þetta fólk sáir í brjóst barnanna. Svona gæti ég haldið áfram í heila bók, en læt nú staðar numið. Nú býr móðir mín í Ljósheimum 14, fyrstu hæð A. Heill þér elskulega móðir og besta vinkona mín í gegnum öll árin. Bryndís fri Tómasarhaga ÞESSI afmæliskveðja átti að birtast í blaðinu í gær, i afmæli Ásu S. Stefinsdóttur. Fyrir handvömm varð hún eftir í prentsmiðjunni. Eru hlut- aðeigendur beðnir afsökunar i þess- um mistökum. Blómlegt tónlist- arlíf á Húsavík Húsavík, 20. júnf. Tónlistarviðburðir hafa verið með meira móti i Húsavík liðið vor og síðastliðinn fimmtudag héldu hér tónleika Sólrún Bragadóttir sópran og Bergþór Pilsson bariton með undirleik Jónasar Ingimundarsonar. Söngskriin var mjög fjölbreytt svo Bingó LUkkU"" Bingó í Glæsibæ í dag kl. 13.30. Hæsti vinningur 35.000 kr. Heildarverdmæti vinninga yfir 100.000 + aukaumferð. allir fengu eitthvað við sitt hæfi sem i hlustuðu, enda var listafólkinu vel tekið og þessu unga fólki spið frama i listabrautinni. Ungur brottfluttur Húsvfking- ur, Hjörleifur Valsson, fiðluleik- ari, hélt sína fyrstu hljómleika síðastliðinn laugardag í Húsavik- urkirkju með undirleik Messíónu Marselíusdóttur. Hjörleifur þótti standa sig vel í þessari fyrstu þrekraun. Hann á framtíðina fyrir sér, er aðeins fjórtán ára gamall og hyggur á framhaldsnám. Fylgja honum góðar óskir frá hans fæðingarbyggð, Húsavík. (Fréttaritari) Sími 68-50-90 VEITINGAHÚS HÚS GÖMLU DANSANNA. Gömlu dansarnir í kvöld kl. 9—3. Hljómsveitin DREKAR ásamt hinni vinsælu söngkonu MATTÝ JÓHANNS Aðeins rúllugjald. m Austurland: Háls-, nef-, og eyrnalækn- ir á ferð Einar Sindrason háls-, nef- og eyrnalæknir ásamt öðrum sér- fræðingum Heyrnar- og talmeina- stöðvar íslands verða á ferð um Austurland dagana 29. júní til 9. júlí. Farið verður á eftirtalda staði: Egilsstaði 29. og 30. júní, Reyð- arfjörð 1. júlí, Eskifjörð 2. júlí, Neskaupstað 3. og 4. júli, Fá- skrúðsfjörð 5. júlí, Breiðdalsvík 6. júlí, Djúpavog 7. júlí, Höfn í Hornafirði 8. og 9. júlí. Tekið á móti tímapöntunum á viðkomandi heilsugæslustöð og er fólki bent á að panta tíma sem fyrst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.