Morgunblaðið - 27.06.1985, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐUD, FIMMTUDAGUR 27. JUNI 1985
ÚTVARP / S JÓN VARP
gegn
stétt
Er engin barnamynd ... er
kannski fimmtudagur?"
Þessum spurningum varð ónefnd-
ur faðir hér í bæ að svara þá
ástralsk-svissneski myndaflokk-
urinn: Guðir og hetjur í fornum
sögum stóð sem hæst nú á þriðju-
daginn. Vissulega var þáttur þessi
næsta fróðlegur en því miður er
framsetning efnisins með þeim
hætti að hlýtur að fæla frá blessuð
bornin, þannig er við og við skotið
inn teiknimyndum, er skýra efni
hinna grísku og rómversku goð-
sagna er þátturinn snýst um, en
þess á milli dvelur myndavélin við
fornar rústir og sögustaði.
Gæti ég hins vegar best trúað að
þessi myndaflokkur hentaði prýði-
lega við kennslu i efstu bekkjum
runnskólans og í framhaldsskóla.
þessu sambandi dettur mérd hug
hvort ekki væri upplagt að smíða
létta og skemmtilega fram-
haldsmyndaþætti, byggða á okkar
eigin goðafræði. Slíka þætti mætti
vafalaust selja til sjónvarpsstöðva
og kennslumiðstöðva víða um
heim, og kynna þannig land vort
fyrir ferðamönnum framtíðarinn-
ar. Bind ég miklar vonir í þessu efni
við hinar nýju sjónvarpsstöðvar.
Stétt með stétt
Úr því við erum nú einu sinni
farin að spjalla um kennslumálin
þá er ekki úr vegi að minnast á
umræðuþátt á ári æskunnar, sem
var á dagskrá sjónvarps síðast á
þriðjudagskveld. Ungur maður,
Kristján Þórður Hrafnsson, stýrði
umræðum skörulega og spjallaði
við fjögur ungmenni um heima og
geima. Að sjálfsögðu bar skóla-
málin á dagskrá og virtust mér
krakkarnir einhuga sammála um
að allir ættu að sitja við sama
borð hvað varðar aðgang að
grunnskóla, en einn strákurinn
taldi að einkaskólar ættu nokkurn
rétt á sér á framhaldsskólastigi.
Þessir krakkar bera þess sann-
arlega merki að hafa setið í skóla
er mismunar ekki nemendum á
grundvelli efnahags- eða þjóðfé-
lagsstöðu foreldra, en vissulega
hefir hinn jafni réttur til grunn-
náms orðið öðru fremur til að draga
úr stéttamun hér á landi. I þessu
sambandi minnast margir vafa-
laust afmælishátíðar Laugarnes-
skólans er haldin var á dögunum.
Það sem einkenndi þessa hátíð var
að þar deildu ljúfum minningum
menn úr öllum stéttum og skipti
engu máli hvort menn voru orðnir
bankastjórar, bílstjórar, ráðherr-
ar, ritstjórar, bændur eða verka-
menn, þeir höfðu jú setið saman í
skóla jafnréttháir.
Stétt gegn stétt
Þannig hafa börn lands vors
hingað til hópast saman í skóla úr
allskonar umhverfi, setið þar við
sama borð og getað síðar á ævinni
deilt svipuðum bernskuminning-
um. En nú hefir sú frétt borist á
öldum ljósvakans að stofnaður
hafi verið hér einkaskóli á grunn-
skólastigi. Var markmiðum þessa
skóla fagurlega lýst, enda hefir
hann úr ríkulegra fjármagni og
spila en aðrir grunnskólar, heldur
framlagi úr hinum sameiginlega
sjóði og krefur nemendur að auki
um ríflega 3.000 kr. á mánuði fyrst
í stað. Persónulega hef ég ekki
efni á að senda börn mín í þennan
skóla, né þeir kunningjar mínir úr
launþegastétt er ég ræddi við í til-
efni af þessari tímamótafrétt. Nei,
góðir hálsar, ef heldur fram sem
horfir verða ekki framar haldnar
„Laugarneshátíðir" þar sem
verkamaðurinn situr jafngildur
við hlið bankastjórans.
Ólafur M.
Jóhannesson.
„Fimmtudagsumræðan“
— breytingar í utanríkisþjónustunni
■■■■ Fimmtudags-
00 35 umræðan verð-
— ur á dagskrá
rásar 1 í kvöld klukkan
22.35 í umsjá frétta-
mannsins Gissurs Péturs-
sonar. Fjallað verður um
breytingar í utanríkis-
þjónustunni.
Gissur sagði i samtali
við Mbl. að umræðan
snerist aðallega um tengsl
utanríkisþjónustunnar
við atvinnulífið og breyt-
ingar í þeim efnum.
„Nefndir hafa verið starf-
andi í vetur um stofnun
útflutningsráðs. Næsta ár
verður svokallað útflutn-
ingsár og verið er að tala
um að koma upp við-
skiptafulltrúum í fleiri
sendiráðum íslands er-
lendis. Starfandi eru nú
Gissur Pétursson
þegar tveir viðskiptafull-
trúar í tveim sendiráðum,
í Lundúnum og í New
York, af ellefu talsins.
í þættinum verð ég með
viðtöl við Geir Haligríms-
son, utanríkisráðherra og
Matthías Mathiesen við-
skiptaráðherra. Síðan
taka þátt í umræðum þau
Sigríður Snævarr, deild-
arstjóri menningardeildar
utanríkisráðuneytisins,
Sveinn Björnsson skrif-
stofustjóri í viðskipta-
ráðuneytinu, en hann var
fyrsti maðurinn sem sett-
ur var viðskiptafulltrúi á
vegum viðskipta- og utan-
ríkisráðuneytanna með
aðsetur í París. Síðan
verður Einar Benedikts-
son sendiherra í Lundún-
um á beinni línu þaðan.
Einnig tekur Steinar Berg
Björnsson þátt í umræð-
unum, en hann er formað-
ur stjórnar Útflutnings-
miðstöðvar iðnaðarins."
Tónlistarkrossgátan
■■■■ Tónlistarkross-
1 ff 00 gáta númer 30
A O *“ er á dagskrá
rásar 2 í dag klukkan
15.00 og er hún að vanda í
umsjá Jóns Gröndal.
Hlustendum er gefinn
kostur á að svara einföld-
um spurningum um tón-
list og tónlistarmenn og
ráða krossgátu um leið.
Lausnir sendist til Rík-
isútvarpsins, rásar 2,
Efstaleiti 1, 108 Reykja-
vík, merkt Tónlistarkross-
gátan.
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir
Barnaútvarpiö
■■■■ Barnaútvarpið
1 705 er á dagskrá
1 * — rásar 1 að
vanda klukkan 17.05 í dg.
Barnaútvarpið er í beinni
útsendingu og kennir þar
margra grasa. Áfram
heldur hin magnaða
spennusaga Barnaút-
varpsins og fyrirspurnum
hlustenda verður svarað
eftir því sem tími vinnst
til.
Stjórnandi Barnaút-
varpsins er Ragnheiður
Gyða Jónsdóttir.
„Bylgjur"
á rás 2
■■■■ Þátturinn
1Í?00 „Bylgjur" er á
ÍO” dagskrá rásar 2
í dag klukkan 16.00. Þátt-
ur þessi er vikulegur og
innihald hans er fram-
sækin rokktónlist. Um-
sjónarmenn eru Ásmund-
ur Jónsson og Árni Daníel
Júlíusson.
í dag verður fjallað um
tónlist frá tímabilinu 1978
til 1985 í Japan, þó aðal-
lega hljómgerla-
hljómsveitir. Spiluð verð-
ur tónlist með Yellow
Magic Orchestra, Logic
System, Bill Nelson og
fleirum.
Gestur þáttarins verður
Ásgeir R. Bragason
hljómlistarmaður.
UTVARP
FIMMTUDAGUR
27. júni
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Morgunútvarp. 7.20 Leik-
fimi. 7.55 Málræktarþáttur.
Endurt. þáttur Einars B.
Pálssonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorð: — Emil Hjart-
arson, Flateyri, talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Litli bróðir og Kalli á þak-
inu“ eftir Astrid Lindgren.
Sigurður Benedikt Bjðrnsson
les þýðingu Sigurðar Gunn-
arssonar (8).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
10.45 Málefni aldraðra. Þáttur I
umsjá Þóris S. Guðbergs-
sonar.
11.00 „Ég man þá tið". Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Her-
mann Ftagnar Stefánsson.
11J0 Út um hitt.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 „Hákarlarnir" eftir Jens
Björneboe. Dagný Krist-
jánsdóttir þýddi. Kristján
Jónsson les (17).
14.30 Miödegistónleikar. a.
„Choses vues á droite et á
gauche" eftir Eric Satíe. Gi-
don og Elene Kremer leika á
fiðlu og plartó. b. Fiðlusón-
ata eftir Maurice Ravel. lon
Voicou og Victoria Stefan-
escu leika. c. Fiölusónata nr.
1 og 2 eftir George Antheil.
Vera Beths og Reinbert de
Leeuw leika. d. „Fantasie
Impromptu" eftir André Joli-
vet. Pekka Savijoki og Jussi
Siirala leika á saxafón og pl-
anó.
15.15 Tföindi af Suðurlandi.
Umsjón: Þorlákur Helgason.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
1620 A frlvaktinni. Þóra Mar-
teinsdóttir kynnir óskalög
sjómanna.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 BarnaUtvarpið. Stjórn-
andi: Ragnheiður Gyöa
Jónsdóttir.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.45. Til-
kynningar.
Daglegt mál. Siguröur G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Blásarakvintett Reykja-
vikur leikur I útvarpssal. a.
„Sautján tilbrigði" op. 22
eftir Jean-Michel Damase. b.
„Quintette en forme de
choros" eftir Heitor Villa-
Lobos. c. „Comedy for five
winds" eftir Paul Patterson.
20.40 Erlend Ijóö frá liönum
tlmum. Kristján Arnason
kynnir Ijóðaþýðingar Helga
Hálfdanarsonar. Fyrsti þátt-
ur: Sonnettur aö sunnan.
Lesari Erlingur Glslason.
21.10 Frá hjartanu. Umsjón:
Kristján R. Kristjánsson. RU-
VAK.
21.40 Einleikur I Utvarpssal. Er-
ik JUIIus Mogensen leikur á
gltar. a. Prelúdla I D-dúr eftir
Johann Sebastian Bach. b.
Etýða nr. 1 og Choros nr. 1
eftir Heitor Villa-Lobos. c. El-
ogio de la danza eftir Leo
Brouwer.
22.00 Bókaspjall. Aslaug Ragn-
ars sér um þáttinn.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
w « Fimmtudagsumræöan.
Breytingar I utanrlkisþjónust-
unni. Umsjón: Gissur Pét-
ursson.
23.35 Trló I E-dúr eftir E.T.A.
Hoffmann, Martine Joste,
Gerard Jarry og Serge Collot
leika á planó, fiölu og selló.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
SJÓNVARP
19.15 A döfinni
Umsjónarmaöur Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir
19.25 Krakkarnir l hverfinu
Kanadlskur myndaflokkur
um hversdagsleg atvik I Iffi
nokkurra borgarbarna. Þýö-
andi: Kristrún Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Gypsy á þjóðhátlð
Frá 17. júnl tónleikum I Höll-
inni á vegum Æskulýðsráös
Reykjavlkur. Hljómsveitin
Gypsy leikur þungarokk.
Hana skipa: Jón Ari Ingólfs-
FÖSTUDAGUR
28. júnl
son og Ingólfur Ragnarsson,
gltarleikarar, Hallur Ingólfs-
son, trommuleikari, Heimir
Sverrisson, bassaleikari, og
Jóhannes Eiösson, söngvari.
Upptðku stjórnaöi RUnar
Gunnarsson.
21.15 Ur öskunni I eldinn
Bresk-bandarlsk heimildar-
mynd. I myndinni er rætt við
fjóra bandarlska fanga, sem
böröust I Vletnamstrlöinu, og
fjallað um áhrif strlösins á
fyrrverandi hermenn en
margir þeirra blða aldrei
reynslu sinnar bætur. Þýð-
andi: Bogi Arnar Finnboga-
son.
22.05 Meö Ijósa lokka
(Big Blonde) Bandarlsk sjón-
varpsmynd, gerð eftir kunnri
smásögu eftir Dorothy Park-
er. Leikstjóri Kirk Browling.
Aöalhlutverk: Sally Keller-
man, John Lithgow, George
Coe og Peg Murray. Sögu-
hetjan er Ijóshærð fyrirsæta,
Imynd þeirra kvenna sem
eiga allt sitt undir þvf aö falla
karlmönnum I geö. A þaö
reynist þó valt að treysta
þegar á móti blæs.
Þýðandi Kristrún Þóröar-
dóttir.
2325 Fréttir I dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Kristján Sigur
jónsson og Asgeir Tómas-
son.
14.00-—15.00 Dægurflugur
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Leópold Sveins-
son.
15.00—16.00 i gegnum tlöina
Stjórnandi: Þorgeir Ast-
valdsson.
16.00—17.00 Bylgjur
Framsækin rokktónlist.
Stjórnendur: Asmundur
Jónsson og Arni Danlel Júll-
usson.
17.00—18.00 Einu sinni áöur
var
Vinsæl lög frá 1955 til 1962
— Rokktlmabiliö.
Stjórnandi: Betram Möller.
Þriggja mlnútna fréttir sagö-
ar klukkan 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
Hlé.
20.00—21.00 Vinsældalisti
hlustenda rásar 2
10 vinsælustu lögin leikin.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
21.00—22.00 Gestagangur
Gestir koma l stúdló og velja
lög ásamt léttu spjalli.
Stjórnandi: Ragnheiöur Dav
lösdóttir.
22.00—23.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00—24.00 Oröaleikur
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.