Morgunblaðið - 27.06.1985, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ1985
+
Astkær eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
MAGNÚS S. SNÆBJÖRNSSON,
Löngufit 14,
Garöabæ,
andaöist í St. Jósefsspítalanum i Hafnarfiröi þann 26. júni.
Jarðarförin auglýst síöar.
Aöalhaiöur D. Siguröardóttir
og dætur.
t
Eiginmaöur minn,
WILHELM NORDFJÖRÐ,
Víöimel 65,
Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum þann 25. júní.
Guörún S. Noröfjörö.
+
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
GUÐMUNDURJAKOBSSON
bókaútgefandi,
Reykjavíkurvegi 27, Reykjavík,
er lést 20. júní, veröur jarösettur frá Fossvogskirkju föstudaginn
28. júní kl. 13.30.
Arnar Guömundsson, Sólveig Kristjónsdóttir,
Valgeröur Bóra Guömundsdóttir, Jón Oddsson,
Theódór Jakob Guömundsson, Halldóra Guömundsdóttir,
Soffia Guömundsdóttir, Ásgeir Elíasson,
Gíslína Guómundsdóttir og barnabörn.
+
Bróöir okkar og frændi,
SIGURPÁLL STEINÞÓRSSON,
fró Vík f Héöinsfirði,
Framnesvegi 54,
Reykjavík,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 28. júní kl. 13:30.
Kristjana Steinþórsdóttir, Jónína Steinþórsdóttir,
Kristjana H. Guömundsdóttir,
Áslaug Gunnsteinsdóttir, Steinunn G. Grönvaldt,
Þorsteinn Kristjónsson, Bjargey Kristjónsdóttir.
+
Útför fööur okkar, tengdafööur og afa,
ÁGÚSTSHELGASONAR,
Þorfinnsgötu 6,
Reykjavfk,
fer fram i Bústaöakirkju laugardaginn 29. júní kl. 10.30. Jarösett
veröur frá Selfosskirkju.
Svava Ágústsdóttir, Jörgen Rasmussen,
Anna Ágústsdóttir, Valdimar Axelsson,
Ágúst Valdimarsson.
+
Jaröarför
INGVELDAR MAGNÚSDÓTTUR
fyrrum Ijósmóóur,
Vorsabæ, Skeiöum,
fer fram frá Ólafsvallakirkju laugardaginn 29. júní kl. 14.00 e.h.
Fyrir hönd vandamanna,
Helga Eiríksdóttir.
+
Útför móöur okkar,
MARGRÉTAR V. SIGURÐARDÓTTUR,
Hrafnistu,
Reykjavík,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 28. júní kl. 15.00.
Fyrir hönd systkinanna og annarra vandamanna.
Jóhann Kr. Guömundsson.
+
Jaröarför eiginkonu minnar,
SIGURLAUGAR EINARSDÓTTUR,
ölduslóð 46,
fer fram frá Hafnarfjaröarkirkju föstudaginn 28. júni kl. 15.00.
Ólafur Einarsson
og fjölskylda.
Æsa Karlsdóttir
Árdal - Minning
Fædd 22. maí 1927
Dáin 30. maí 1985
Langt frá þinni feðrafold,
fóstru þinna ljóða,
ertu nú lagöur lágt í mold,
listaskáldið góða.
Mér flaug þetta erindi um Jónas
Hallgrímsson í hug þegar Æsa,
frænka mín og fóstursystir, lést í
Stokkhólmi 30. maí og var jarðsett
þar 12. júní. Æsa var alltaf íslend-
ingur þó hún dveldi mikinn hluta
ævinnar á erlendri grund.
Æsa kom barn til foreldra
minna og varð litla systir mín,
sem ég hafði aldrei átt. Hún taldi
foreldra mín sem aðra foreldra
sína og kallaði þau mömmu og
pabba. Engin dóttir hefði getað
reynst þeim betur. Þau litu líka á
hana sem dóttur sína. Með þeim
var mjög kært. Pabbi sagði alltaf:
„Æsa mín litla Karlsdóttir." Við
Æsa og bræður mínir litum líka á
okkur sem systkini.
Lengi hefur Æsa komið í heim-
sókn til Islands á hverju ári. Aðal-
iega að vitja gamla fólksins. Á lífi
eru nú öldruð móðir hennar og
pabbi á 96. aldursári. Nokkrum
sinnum hefur hún farið heim að
Krakavöllum, æskuheimili okkar,
og þurft að ganga langa leið og
vaða Flókadalsána. Hún þráði
alltaf Krakavelli, þó að nú standi
þar ekki steinn yfir steini: „Land-
ið, fjöllin, lækirnir og áin eru þó á
sínum stað,“ sagði hún. Ég minn-
ist hve hún var glöð eftir síðustu
heimsókn þangað. Hún hafði
fundið búið sitt, þar sem hún lék
sér að hornum, leggjum og skelj-
um.
Þegar Æsa var á fjórða ári fór
hún að læra að lesa. Það gerði hún
með því að spyrja um stafi, sem
hún sá, t.d. á ýmsum umbúðum.
Áður en nokkur vissi af var hún
farin að lesa svolítið. En næsta
haust, þegar hún ætlaði að lesa,
kom lesturinn ekki strax. Henni
varð ekki um sel og sagði: „Ég get
ekki lesið.“ Það var þó aðeins í
svip. Eins var með reikning: „Hvar
á ég að setja plúsuna?" Þá var hún
líka svo ung. Pabbi var kennari og
kom bara heim um helgar að vetr-
inum. Það kom því í minn hlut að
segja krökkunum til meðan ég var
heima. Pabbi fór svo yfir lærdóm-
inn um helgar og krakkarnir fóru
í próf í skólann að vori. Æsa tók
fullnaðarpróf úr barnaskóla tæpra
12 ára með góðum einkunnum.
Æsa var einstaklega lagin í hönd-
um. Hún bjó margt til heima á
Krakavöllum í föndri og hannyrð-
um og ýmislegt af því geymdi hún
sem helga dóma alla ævi.
Nú er Æsa mín horfin úr þess-
um heimi. Ég á bágt með að sætta
mig við, að hún komi ekki til
okkar í sumar eins og venjulega.
Allt árið hlökkuðum við til komu
hennar. Það var okkar aðalhátíð.
Við höfðum alltaf bréfasamband.
Síðasta bréfið skrifaði hún mér 15.
apríl. Þegar ég sagði pabba frá láti
Æsu varð honum á orði: „Hún er
búin að afkasta miklu um dagana,
— „margoft tvítugur meira hefur
lifað, svefnugum segg, er sjötugur
hjarði". (J.H.)
Æsa hvílir ekki einmana i
óþekktri gröf eins og Jónas Hall-
grímsson. I Stokkhólmi búa börn-
in hennar, sem hún unni og lifði
fyrir, og litla sonardóttirin sem
henni þótti svo undurvænt um.
Missir þeirra og harmur er mikill.
En „minningarnar mætar, mýkja
hverja þraut“. Þannig verðum við
að hugsa og trúa því að hún lifi
áfram í afkomendum sínum.
Þökk fyrir allt.
Magna Sæmundsdóttir
Æsa lést í Stokkhólmi 30. maí
sl. Hún var fædd í Reykjavík 22.
maí 1927. Foreldrar hennar voru
hjónin Sigríður ögmundsdóttir og
Karl Dúason. Þau áttu heima á
Siglufirði — lengst af í Hvanneyr-
arhlíð.
Tæpra þriggja ára fór Æsa að
Krakavöllum í Fljótum til föð-
urbróður síns, Sæmundar Dúason-
ar, og konu hans, Guðrúnar Þor-
láksdóttur. Þar ólst hún upp til 12
ára aldurs og alla tíð leit hún á
Sæmund og Guðrúnu sem sína
aðra foreldra og börn þeirra sem
sín önnur systkini.
Æsa giftist Páli G. Árdal árið
1948 á Siglufirði og það sama
haust fluttust þau til Svíþjóðar.
Þau slitu síðar samvistir en
bjuggu bæði áfram í Svíþjóð. Þau
Páll eignuðust þrjú börn. Eldri
systkinin, Otr Karl og Hulda Dúa,
eru læknar og Æsa Guðrún er há-
skólanemi.
Æsa var alla sina ævi að læra.
Hún ræktaði hæfileika sína og
sótti sífellt fram á nýjum sviðum.
Skólanám hennar hófst á Kraka-
völlum. Þegar hún 12 ára flutti til
foreldra sinnar fór hún í Gagn-
fræðaskóla Siglufjarðar og lauk
þaðan 3ja ára námi og síðasta árið
gekkst hún jafnframt undir próf
við Iðnskóla Siglufjarðar. Hún
lauk gagnfræðaprófi á Akureyri
1945, stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1948 og síð-
an fil. kand. prófi frá Stokkhólms-
háskóla 1957 í uppeldis- og félags-
fræðum, trúarbragðasögu og trú-
arsálfræði. Árið 1961 lauk hún svo
námi í félagsráðgjöf við sama
skóla.
Auk þessa reglubundna náms
sótti hún fjölmörg lengri og
skemmri námskeið — allt frá því
hún á unglingsárum lærði þýsku í
sumarleyfi hjá Sæmundi. Þannig
aflaði hún sér til dæmis grunn- og
framhaldsmenntunar sem leið-
beinandi starfsfólks og stúdenta á
sínum starfsvettvangi, en stúdent-
um í félagsráðgjöf við Stokk-
hólmsháskóla leiðbeindi hún í
samfleytt 6 ár. Á námskeiðum jók
hún þekkingu sína á ráðgjöf við
barnageðsjúkrahús, um þjóðfélag-
ið, fjölskylduna, samlíf og sam-
talstækni, fjölskylduráðgjöf, um
meðferð og stjórnun, um fjöl-
skyldur í upplausn, um sam-
starfstækni og starfsanda á
vinnustað o.fl. o.fl. — m.a. nám-
skeið í líkamsrækt og síðan leið-
beindi hún samstarfsfólki sínu á
vinnustað í reglubundinni líkams-
þjálfun.
Samstarf við franska
félagið UAS verið
Arnarflugi farsælt
Áætlað að yfir 300 þúsund farþegar ferðist með Arnarflugi í ár
Rætt við Ágnar Friðriksson, framkvæmdastjóra Arnarflugs
Arnarflug verður í ár líklega stærsta utanaðkomandi flugfélagið í pfla-
grímafluginu. Samningar um flutninga pflagríma hafa verið undirritaðir
við Kgyptaland, Malí, Súdan, Sierra Leone, Gabon, Túnis og Saudi Arab-
íu. Og auk þess Alsír í samvinnu við Flugleiðir. Við verðum með sex eða
sjö þotur í pflagrímafluginu og þegar mest verður í ágúst og september
verður Arnarflug alls með níu til tíu þotur. Samningar um pflagrímaflugið
hljóða upp á um 250 milljónir króna. Áætlað er að flytja um 100 þúsund
farþega,** sagði Agnar Friðriksson, framkvæmdastjóri Arnarflugs, í viðtali
við Morgunblaðið, en aðalfundur félagsins verður haldinn í dag, flmmtu-
dag.
Rekstraráætlun Arnarflugs
fyrir árið 1985 hljóðar upp á 1150
milljónir króna, en heiidartekjur
félagsins á síðastliðnu ári voru
tæplega 400 milljónir króna. I ár
er áætlað að flytja liðlega 300
þúsund farþega, en á síðastliðnu
ári ferðuðust um 125 þúsund far-
þegar með vélum félagsins. Fast-
ir starfsmenn félagsins eru um
130, en auk þeirra starfa um 150
í Saudi Arabíu og er tæplega
þriðjungur þeirra íslendingar.
Um 70 manns bætast í hópinn
þegar pílagrímaflugið hefst í ág-
úst og verður starfslið Arnar-
flugs þá um 360 manns. Á sið-
astliðnu ári var verulegt tap á
rekstrinum, sem og undanfarin
ár, en mikil umskipti til hins
betra hafa orðið með nýgerðum
samningum við Saudia Airlines
og nú pílagrímaflugið. Heildar-
upphæð þessara samninga er
tæplega 700 milljónir króna.
— Éru erfiðleikaár Arnar-
flugs að baki, Agnar?
„Margt bendir til að svo sé.
Festa hefur skapast í áætlunar-
flugi Arnarflugs. Farþegum hef-
ur fjölgað verulega, sem og aukn-
ing í fragt. Á síðastliðnu ári
gerðum við kaupleigusamning á
Boeing 737 200 þotu, sem hefur
reynst hin ágætasta flugvél og
skapað stöðugleika í áætlunar-
fluginu.
Samstarf við franska félagið
United Aviation Services, UAS,
hefur verið félaginu farsælt.
Fyrsti afrakstur þessa samstarfs
voru samningar við Saudia Air-
lines að upphæð um 450 milljónir
króna. Þann 15. maí síðastliðinn
hófum við flug i Saudi Arabíu
með þremur DC 8 þotum og
fjórða vélin hefur bæst við. Auk
þess höfum við gert árssamning
við Saudia Airlines um fragtflug
með DC 8 þotu.
Við verðum með umfangsmikið
pílagrímaflug. Skýringin á þess-
um umfangsmiklu pílagríma-
samningum er einkum sú, að há-
tíð múhameðstrúarmanna færist
fram um 15 daga, hefst nú 1. ág-
úst og stendur til 20. september.
Þar með hefur pílagrímaflugið
færst yfir á helsta annatíma
stóru flugfélaganna þegar þau
hafa hvorki mannskap né vélar
til að sinna því, en auðvitað eru
flugfélög múhameðstrúarríkja
stærst í flutningi pílagríma.
Ég vil leggja áherslu á að
samningar nú eru afrakstur gíf-
urlegrar vinnu starfsfólks Arn-