Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
143. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fóstur-
eyðingar
leyfðar
á Spáni
Madrfd, 27.júní. AP.
SPÆNSKA þingið samþykkti í
dag öðru sinni frumvarp til
laga um að fóstureyðingar
verði leyfðar í ákveðnum til-
fellum. Lögin taka formlega
gildi í næstu viku þegar Jó-
hann Karl Spánarkonungur
staðfestir þau með undirritun
sinni.
Fóstureyðingar hafa ekki ver-
ið leyfðar á Spáni frá því á dög-
um lýðveldisins 1931—1936. Nú
eru fóstureyðingar bannaðar án
undantekninga í aðeins tveimur
Evrópulöndum: írlandi og
Belgíu.
Samkvæmt hinum nýju lögum
á Spáni verða fóstureyðingar
aðeins leyfðar í þremur hugs-
anlegum tilvikum: ef líf móður
er talið í hættu; ef vitað er um
fósturskemmdir; og ef kona
verður barnshafandi af völdum
nauðgunar eða sifjaspella.
Ýtt á Japanskeisara
í Tsukuba í Japan er nú haldin alþjóðleg vísindasýning. Hirohito
Japanskeisari hefur sýnt henni mikinn áhuga. Þegar hann skoðaöi
sýninguna í annaó sinn þótti Zhong Min i kínversku stúkunni keisarinn
ekki fara nógu nálægt sýningargripunum, og geröi sér lítið fyrir og ýtti
á hann.
Dagblaðið BUd:
Sakharov á lífi
en mikið veikur
Hambor({, 27. júuí. AP.
VESTUR-ÞÝSKA dagblaðið Bild-Zeitung kveðst hafa undir höndum tvö
myndbönd, sem staðfesti að sovéski andófsmaðurinn Andrei Sakharov sé á
lífi, en alvarlega sjúkur.
II) VII Ql'
f frétt Bild, sem talið er hafa
aflað sér nokkuð traustra heimilda
í Moskvu, segir að á myndböndun-
um sé m.a. viðtal við sovéskan
lækni, þar sem komi fram að Sakh-
arov liggi á sjúkrahúsi í Gorký og
eigi við alvarlegan hjartasjúkdóm
að stríða. Auk þess sé hann með
Parkinson-veiki á frumstigi.
Bild kveðst hafa fengið mynd-
böndin frá sovéskum aðiijum, en
tilgreindi þá ekki. Samkvæmt
fréttinni var sumt efni myndband-
anna tekið upp 14. júní sl., en einn-
ig sást Sakharov halda á dagblaði
dagsettu 3. júni.
Eftir Bild að dæma fékk Efraim
Yankelevich, tengdasonur Yelenu
Bonner, eiginkonu Sakharovs, sem
sést einnig á myndböndunum, að
sjá gögn blaðsins. Hefur Bild eftir
honum að hann sé þakklátur sov-
ésku stjórninni fyrir að hafa gefið
sér kost á að sjá tengdamóður sína
og Sakharov, sem hann hafi ekki
séð í rúmt ár.
Berri kveðst bjartsýnn
á lausn gísladeilunnar
R.in'i, 97 ii, ní
Beirút, 27. júní. AP.
BERRl, leiðtogi amal-shíta í Liban-
on, kvaðst í kvöld telja að lausn
gísladeilunnar væri í sjónmáli, en nú
hafa bandarísku gíslarnir verið á
valdi flugræningjanna í hálfan mán-
uð.
Viðræðurnar um frelsun gísl-
Noregun
Víst verða
sjómenn
sjóveikir
Óaló, 27. júní. AP.
ÞJÓÐSAGAN um aö sjómenn
verði ekki sjóveikir hefur nú end-
ánlega verið lýst dauð og ómerk
og að engu hafandi.
Við athuganir á fólki sem býr
á eynni Röst við Norður-Noreg,
kemur í ljós, að sjóveikin er
mörgum sjómanninum þung í
skauti. 70% sjómannanna sögð-
ust hafa fundið fyrir sjóveiki og
35% kváðust kvíða fyrir hverj-
um degi á sjónum, en frá Röst
eru eingöngu stundaðir dag-
róðrar. Það kom líka fram, að
konurnar eru enn verr haldnar
en karlarnir af sjóveikinni, því
að 35% húsmæðra á eyjunni
sögðust alltaf finna fyrir henni
ef þær færu í bát og hinar
oftast nær.
anna eru nú á mjög viðkvæmu
stigi. Ummæli Berris sigldu í kjöl-
far frétta um að ísraelar hygðust
ganga að skilyrðum flugræn-
ingjanna. Rætt hefur verið um að
gíslarnir dveljist í sendiráði
Svisslendinga, Frakka eða annarr-
ar vestrænnar þjóðar í Beirút
þangað til ísraelar sleppi þeim
shítum, sem verið hafa í fangelsi i
ísrael.
Vestrænir talsmenn lögðu
áherslu á að sendiráðin mundu
ekki taka við gíslunum nema
tryggt væri að um enga aðra
skuldbindingu en mannaskiptin
væri um að ræða.
Seinna hermdi ísraelska sjón-
varpið að Bandaríkjamenn og ís-
raelar hefðu orðið sammála um að
ísraelar slepptu ekki shítunum
fyrr en allir gíslarnir hefðu verið
látnir lausir.
Blaðafulltrúi Hvíta hússins,
Larry Speakes, neitaði í dag að
svara spurningum um gíslamálið.
Hins vegar krafðist George Shultz
utanríkisráðherra þess í harðorði
ræðu að gíslarnir yrðu tafarlaust
látnir lausir án nokkurrar skil-
yrða. George Bush varaforseti,
sem nú er á ferðalagi um Vestur-
Evrópu, tók í sama streng og for-
dæmdi gíslatökuna.
Berri kvaðst vera i stöðugu sam-
bandi við yfirvöld í Austurríki,
Sviss, Frakklandi og Sýrlandi í því
skyni að leysa gíslamálið sem
fyrst. Hann hefur þó ekkert slegið
af kröfum sinum um að 737 shítar
í ísrael verði látnir lausir f skipt-
Fyrsti sendiráðsritari Frakka í Beirút, Miarrel l’Augel (Lv.), ræddi í gær við
leiðtoga shíta, Nabih Berri, til að freista þess að fá bandarísku gíslana og tvo
Frakka, sem verið hafa á valdi mannræningjan, látna lausa.
um fyrir gislana.
Sendiráðsritari Frakka í Beirút,
Marcel l’Augel, skýrði frá því í
dag að Berri hefði heitið því að 15
aðrir vestrænir gislar í Líbanon
yrðu látnir lausir um leið og
bandarisku gíslarnir. Aftur á móti
kvað l’Augel fréttir þess efnis að
tveir Frakkar úr þessum hópi
væru nú i vörslu Berris vera úr
lausu lofti gripnar.
Fréttamaður bandarísku sjón-
varpsstöðvarinnar ABC fékk að
ræða við þrjá af bandarísku gísl-
unum í dag. Þar kom m.a. fram að
sumir þeirra hafa samúð með
málsstað shita.
í viðtalinu, sem sjónvarpað var
um öll Bandarikin, virtust gislarn-
ir vera nokkuð þreyttir, en að öðru
leyti við góða heilsu.
Tveimur gíslanna hefur verið
leyft að hringja í fjölskyldur sínar
i Bandaríkjunum til að láta þær
vita um líðan sína. Að sögn ætt-
ingja kváðust gíslarnir vera við
hestaheilsu.
í tilkynningu sem birtist í mál-
gagni Sýrlandsstjórnar, segir að
Sýrlendingar vilji leggja sitt af
mörkum til lausnar deilunni, en
jafnframt eru Bandaríkjamenn
varaðir við að beita hervaldi til að
frelsa gíslana.
A myndböndunum, sem alls tek-
ur 75 mínútur að sýna, sést Sakh-
arov í læknisskoðun. Samkvæmt
frásögn Bild er „augljóst" að sumt
efni myndbandanna hafi verið tek-
ið með falinni kvikmyndatökuvél.
Að sögn Bild segir sovéski lækn-
irinn í viðtalinu að hann hafi
stundað Sakharov síðustu fjögur ár
og sé líðan hans eftir atvikum góð.
Loks segir Bild að hjartalæknar
séu ávallt til taks ef svo skyldi fara
að heilsu hans hraki enn.
Hljóðmerkí
frá svarta
kassanum?
Cork, frlaodi, 27. júnf. AP.
TALSMAÐUR breska sjóhers-
ins skýrði frá því í dag að
ógreinileg hljóðmerki hefðu
heyrst nálægt þeim stað sem
indverska farþegaþotan fórst
undan strönd Irlands.
Hins vegar er ekki enn ljóst
hvort hljóðmerkin bárust frá
hljóðrita flugvélarinnar, hin-
um svokallaða „svarta kassa“.
Talsmaðurinn sagði að
hljóðmerkin hefðu heyrst
með löngum hléum og verið
svo ógreinileg að sérfræð-
ingar sjóhersins hefði enn
ekki komist að niðurstöðu um
hver skýringin væri.
Starfsmaður flugmálaráðu-
neytis Indlands staðfesti
þetta og taldi að þetta væru
líklega hljóðmerki frá „svarta
kassanum”.
í dag leitaði breskur kjarn-
orkukafbátur að hljóðritan-
um án árangurs. Ef hljóðrit-
inn finnst má búast við því að
nota þurfi fullkomna og
ómannaða kafbáta frá Banda-
ríkjunum til að ná honum
upp, en talið er að hann sé á
1.600 metra dýpi.
Talsmaður indverska flug-
félagsins sagði að á morgun
yrði flogið með ættingja
þeirra sem fórust í flugslys-
inu til Cork á írlandi með við-
komu í London til að láta þá
bera kennsl á líkin.
Sprengjuhótun
Shannon, frlnndi, 27. júnf. AP.
FARÞEGAÞOTU á vegum banda-
ríska fiugfélagsins Pan American
þurfti að lenda í kvöld í Shannon á
Irlandi vegna sprengjubótunar. Vél-
in sem var á leið frá Lundúnum til
New York var með 326 farþega inn-
anborðs. Engin sprengja hafði fund-
ist er síðast fréttist.