Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 10
10
MOKGUNBLAÐID, POSTUDAGUR 28. J0K11985
Ólympíuleikarnir
í eðlisfræði:
Eingöngu
júgóslavnesk
tæki í verk-
lega hlutanum
Júgóslavia, I'ortoroi, 26. júní. Kré frétUritara
Morgunblaoain.s, Vioari Áuúnbisyni.
Eftir fimm klukkutíma í til-
raunastofu menntaskólans í Kobra
komu íslensku keppendurnir fjórir
hressir út aftur. „Það er miklu auo-
veldara að framkvæma tilraun og
skrifa skýrslu en sitja við prófborð-
ið. Tilraunirnar voru skemmtilegri
en heima því hér þurftum við að
framkvæma án verkseðils og feng-
um óhindrað að nota tæki. Fegn-
astir erum við þó að keppninni
skuli vera lokið."
Sumir drengirnir voru þó
óánægðir með hve íslenskir
menntaskólar kenna lítið af at-
riðaskrá ólympíuleikanna. „Við
vorum að læra í fyrsta skipti á
ævinni um hverfitaugar á þjálfun-
artímanum, sem hefði mátt vera
miklu lengri. Margir samkepp-
enda okkar hafa fengið þjálfun
fyrir ólympíuleikana mánuðum
saman og rússneska námsskráin
er beinlínis sniðin að atriðaskrá
Ólympíuleikanna."
Pator Joze, eðlisfræðingur og
kennari í rafeindatækni við há-
skólann í Ljeéljana, kynnti farar-
stjórum verkefnin tvö í verklega
hlutanum í gærkvöld. Fjallaði hið
fyrra um falda segla í svörtum
kassa, stefnur þeirra og styrk. í
hinu síðara var leitað eftir kraft-
vægi mótors, með hjálp hornhröð-
unar og hverfitregðu. Voru Júgó-
slavar stoltir af því að hafa smíð-
að öll tilraunatækin, aflgjafa,
mæla og borðtölvu í rafeindafyr-
irtækinu Iskra. Verkefnin kostuðu
hins vegar fararstjórana aðra
andvökunótt við þýðingar og vél-
ritun.
Keppendur á Ólympíuleikunum
hafa ekki undan neinu að kvarta í
aðbúnaði. Allir búa þeir á hótelum
og lifa kóngalífi í fæði. Þeir eru í
engum vandræðum með að eyða
frístundum sínum á ströndinni og
í sjónum. íslensku keppendurnir
hafa einnig lært mikið í slóvensku
af stúlkunum tveimur sem þeir
fengu sem leiðsbgumenn. Fram-
kvæmdanefnd Ólympíuleikanna í
Portoroz bauð þátttakendum til
skoðunarferðar til Postojna-hell-
ana í Slóveníu, 24 kílómetra langa
dropasteinshella og á föstudaginn
er ferðinni heitið til Lipica. Sam-
komusalur Portoroz er hinn glæsi-
legasti og í fyrrakvold hlýddu þeir
þar á einn fremsta píanóleikara
Slóveníu, Dubravka Pomcic
Sreeötnjak.
í dag munu fararstjórarnir fara
yfir lausnir keppendanna með
dómnefndinni. Fararstjórarnir
munu þá leita eftir þeim réttu at-
riðum í lausnum keppendanna
sem dómnefndinni hefur sést yfir.
Hér kemur einnig til þýðing á
texta þeirra keppenda sem skrifa
á torskildum málum eins og ís-
lensku. Allt hefur þetta áhrif á
röð keppenda við verðlaunaaf-
hendinguna á laugardag sem þeir
bíða spenntir eftir.
Utanríkisráðuneytið:
Hafréttar-
samningur
fullgildur
HINN 21. þ.m. afhenti Hörður
Helgason, fastafulltrúi íslands
hjá Sameinuðu þjóðunum, yfir-
manni samningadeildar Samein-
uðu þjóðanna fuligildingarskjal
íslands vegna hafréttarsamnings-
ins.
(FrétUtiUtjrnning)
Frá aoalfundi Arnarflugs hf. í gær. Haukur Bjórnsson stjérnarformaður Arnarflugs í ræðustólL Morgunblaðið/öi.K.M.
Aðaifundur Arnarflugs:
Eigið fé neikvætt
um tæpar 80 m.kr.
AðALFUNDUR Arnarflugs hf. var haldinn í gær á Hótel S8gu. Rúmlega 64
milljóna króna halli var á rekstri félagsins 1984 og er eigið fé um síðustu
áramót neikvætt um 79,9 milljónir króna, en hlutafé var aukið um 40
milljúnir i liðnu ari. Engar arðgreiðslur verða á pes.su ári.
Heildartekjur 1984 voru 397,9
milljónir króna og drógust saman
frá fyrra ári um 46,7 milljónir
króna. Þar munaði mestu um
leiguflug, en tekjur af því lækkuðu
um 30%. Á síðasta ári voru tekjur
af leiguflugi erlendis 42,2% af
tekjum félagsins á móti 60,8%
1983. Meðfylgjandi tafla sýnir
samanburð milli ára á hlutfalls-
skiptingu einstakra tekna- og
gjaldaliða í tekjum og gjöldum.
Arnarflug flutti 1984 í milli-
landaflugi 27.063 farþega og fjölg-
aði þeim um 23%. I leiguflugi
fyrir íslenskar ferðaskrifstofur
voru farþegar 12.694. Innanlands
ferðuðust tæplega 19 þúsund far-
þegar og var það örlítil fækkun frá
árinu 1983. Mest var aukning í
vöruflutningum félagsins milli
landa eða 100%, og á síðasta ári
Miss Universe-
keppnin:
Halla Bryndís
Jónsdóttir
í Miami
Frá Þóri 8. Grðndal, frcturiura Morgun-
blaðsins í Miami.
Áttatíu og fjórar fegurðardísir
víðs vegar að úr heiminum eni
komnar til Miami til þess að taka
þátt í Miss Universe-keppninni.
Fegurðardrottning íslands, Halla
Bryndís Jónsdóttir, sem er í her-
bergi með ungfrú Belgíu, sagði að
þær ynnu við æfingar, myndatókur,
viðtöl og annan undirbúning frá
morgni til kviilds. Hún sagoi að-
búnað allan á Hyatt-hótelinu vera
mjög góðan og að sér líkaði vel að
öllu leyti.
Á mánudagskvöldið verður
fegurðardísum Norðurlanda
leyft að eyða kvöldstund með
löndum sínum í hófi, sem haldið
verður í norska sjómannaheimil-
inu í Miami.
Halla Bryndís hefur verið val-
in ein af 20 stúlkum til að taka
þátt í tiskusýningu, sem haldin
verður í Miami 2. júli. Hún er
hress og kát og biður kærlega að
heilsa heim til Islands.
voru 568 fluttar lestir.
Að meðaltali störfuðu 105
starfsmenn hjá Arnarflugi og
voru launagreiðslur um 47,3 millj-
ónir króna.
Á aðalfundinum kom fram til-
laga frá Páli Andréssyni, er hann
sendi stjórn félagsins 21. júní sl.,
um að hætt verði öllu áætlunar-
flugi, en þess í stað einungis
stundað leiguflug. Samkvæmt lög-
um félagsins var tillagan of seint
fram komin til að bera mætti
hana undir atkvæði, en fundar-
stjóri, Magnús Óskarsson, opnaði
mælendaskrá ef fundarmenn vildu
ræða hana. Einn tók til máls og
Iagðist eindregið gegn henni. Eftir
að formaður stjórnar, Haukur
Björnsson, hafði þakkað fundar-
mönnum setuna var fundi slitið.
Samanburður milli ára:
TEKJUR: 1984 1983
Leiguflug erlendis 42,2% 60,8%
Áætlunar- og leiguflug
til og frá islandi 48,7% 32,4%
Innanlandsflug 9,1% 6,8%
Samanburður mill ára:
GJÖLD: 1984 1983
Flugrekstrargjöld:
Eldsneyti 13% 36%
Viðhald 15% 9%
Laun 8% 5%
Afgreiðslu og þjónustu-
gjöld flugvéla 11% 8%
Flugvélaleiga 18% 17%
Tryggingar 2% 1%
Afskriftir 4% 4%
Önnur rekstrargjöld:
Skrifstofu- og stjórnunar-
kostnaður 6% 3%
Markads- og auglýsinga-
kostnaður 7% 4%
Fjármagnskostnaöur 6% 3%
Farþegaþiónusta 6% 3%
Annað 4% 6%
FASTCIGnASAlA*
VITASTIG 15,
S. 06090,96065.
Hátún
Einstakl íb. 35 fm á 5. hæö í
lyftublokk. Verö 1200 þús. Laus.
Eyjabakki
3ja herb. íb. 90 fm á 1. hæð.
Sérþvottah. á hæöinni. Verð
1900-1950 þús.
Furugerði
3ja herb. íb. 75 fm á 1. hæð.
Sérgarður. Verö 2,1 millj.
Laugarnesvegur
3ja herb. íb. á 2. hæö. 90 fm.
Suöursv. Verð 1850 þús.
Rauoalækur
3ja herb. íb. ca. 100 fm. Falleg
íb. Verö 2250 þús.
Furugrund
3 ja herb. íb. á 5. hæð í lyftublokk.
Vinkilsvalir Sérþvottah. á hæð-
inni Verð 2,2 millj. Laus.
Njálsgata
3ja herb. íb. á 1. hæö 80 fm i
steinhúsi. Verð 1650 þús. Laus
Einarsnes Skerjafirði
Raöhús á tveim hæöum 160 fm
? teikn. að ca. 20 fm garöstofu
Frábært útsýni. Verö 4950 þús.
Orrahólar
Glæsileg 70 fm 2ja herb. ib. á
1. hæö. Suöursv. Verö
1650-1700 þús.
Álfaskeio Hf.
5 herb. íb. á 2. hæö 125 fm +
bílsk. Falleg íb. Verö 2,6-2,7
millj.
SuOurgata Hf.
160 fm sérhæö í tvíbýlishúsi.
Bílsk. Hornlóö. Nýbygging. Verö
4,5 millj.
Flyörugrandi
4ra-5 herb. íb. m. sérinng. 140
fm. Suöursv. Verö 3,9 millj.
Bergur Oliversson hdl.,
Gunnar Gunnarsson hs: 77410.
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
— REYNIMELUR —
.rrrrrrfl.
HH
irTlílSTTTTTTTTT^
'D
!
Dl
f03 [JQ
n
œ
b8fc.
Utlit
Efri hæo
Jarohæö
Höfum til sölu í byggingu einstakt hús sem skiptist í tvær sérhæðir + bílskúr og tvær 3ja
herb. íbúðir, allt sér.
3ja herb. íbúöirnar henta sérstaklega vel öldruöu fólki og hreyfihömluöum.
íbúöirnar afhendast tilbúnar undir tréverk og fullfrágengnar aö utan. Einstakt tækifæri
til að eignast glæsilega íbúð á besta stað í Vesturbænum.
VERÐ:
Efrihæð: 4.300 þús.
Neörihæö: 4.000 þús.
íbúöirájaröhæö: 2.150þús.
Teíkníngar og allar nánari
upplýsingar á skrifstofunni.
Arkitekt. KNÚTUR JEPPESEN.
Húsafell f
ASTEIGNASALA Langholtsvegi 115 AOalst&nn Pétursson
(Bæjarieibahusinu) sími 8 10 66 Bergur Guónason hdl
B^^^^^^B FASTEIGNASALA Langholtsvegi 115