Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNl 1985 Akstur á þjóðvegum Akstur á þjóðvegum á að vera til hvíldar, ánægju og af- þreyingar. Hann krefst að- gæslu og góðrar samvinnu við aðra vegfarendur. Við framúrakstur geta minnstu mistök og rangt mat á aðstæðum haft hörmulegustu afleiðingar. Steinkast frá hjólum bifreið- anna valda oft miklu tjóni. Það er algengast þegar hraði er aukinn við framúrakstur — þegar beygt er snögglega fram- an við bifreið — þegar bifreið- um er ekið að sumarlagi á grófmunstruðum hjólbörum — þegar bifreiðar mætast á of/ miklum hraða. Ræsi og þröngar brýr eru víða á þjóðvegum. Ræsin eru mjórri en vegurinn og oft illa merkt. Þá má heldur ekki gleyma lausamölinni, kröppum beygjum og blindhæðum. Góð- ur ökumaður miðar ávallt hrað- ann við aðstæðúf. í slæmu skyggni, regni, þoku og ryki á skilyrðislaust að aka með ökuljósum. Ökumaður sem mætir þér hefur< þá sólina á móti sér og veitir þér því fyrr athygli en ella.’ Spennið bílbeltin Notkun bílbelta er lögboðin og ætti engum að blandast hug- ur um gagnsemi þeirra, hvort sem ekið er í þéttbýli eða úti á vegum. Spennið beltin — en það er ekki ætíð nóg. Það er ekki síður nauðsynlegt að vita hvernig á að opna lásinn. Þess kann að gerast þörf í skyndi og við hinar verstu aðstæður. Frágangur og búnaður bílbelt- anna er ekki ávallt hinn sami. Hann getur sem best verið með allt öðrum hætti 1 öðrum bílum en þú átt að venjast í þínum bíl. Spennið beltin og kynnið ykkur ávallt hvernig lásinn virkar. Komið að slysstað Setjið upp viðvörunarmerki þegar komið er að slysstað svo aðrir sem leið eiga þar um geti séð, hvað fyrir hefur komið og að þörf sé á hjálp þeirra og að- stoð. Munið að tilkynna: Hvar slysstaðurinn er. — Hvers eðlis slysið er. — Fjölda hinna slös- uðu og hversu alvarleg meiðsli þeirra eru. Greinið frá nafni, hvar stödd og hvaðan hringt þegar tilkynnt er um slys. Skyndihjálp er hin fyrsta bráðabirgðahjálp sem veitt er á slysstað með fáum og fábrotn- um hjálpargögnum. Vel búinn sjúkrakassi er því ómissandi í ferðalagið. Hafið slíkan búnað ávallt tiltækan í bílnum og bátnum, í tjaldinu og sumarbú- staðnum. Muniö — björgunarvesti fyrir atla bátsveria. Klssöíst hlýjum fatnaöi og góöum hlíföartötum í áberandi lit. Sinniö viðhaldi á bátnum hventer sem tími gefst. Hafió um borö varaárar og rteöi, tóg, legufasri og austurtrog. Einnig Ijós, flautu og blys til merkjagjafa. Kynniö ykkur siglingareglur og all- ar staóbundnar aóstaeöur. Hvolfi bátnum, þá reyniö að komast á kjöl og vekja á ykkur athygli. ■J ..• Hafið ávallt vióurkenndan örygg- ' isbúnaö tiltækan. Sjúkratæki og slökkvitæki gagna jafnt í bflnum, válbátnum og tjaldinu. Sumarið er sá árstími sem mest er um ferðalög fólks um landið. Þessar ferðir eru flestum ánægjuauki en því miður verða of oft alvarleg slys og dauðsfoll. Nú þegar hefur hörmulegt slys orðið á Þing- vallavatni og annað í Botnsdal í Hvalfirði. A sl. sumri urðu einnig alvarleg slys i óbyggðum svo sem menn muna. Morgunblaðið birtir í dag leiðbein- ingar frá Slysavarnafélagi íslands fyrir ferðafólk og aðvaranir vegna ferðalaga hérlendis. Morgunblaðið hvetur fólk til þess að kynna sér þessar leiðbeiningar og fylgja þeim í hvívetna. Alþjóðaár æskunnar Á alþjóðaári æskunnar minnir SVFI á að börnin í umferðinni eru börnin okkar. Þar sem þau eru á eða við akbrautir er nauð- synlegt að sýna sérstaka aðgát. Verndið börnin fyrir hættum í umferðinni. Ungir ökumenn. Gleymið aldrei ábyrgð ykkar í umferðinni. Akstur bifreiða krefst ávallt aðgæslu og góðs samstarfs við aðra vegfarendur. Hver sá sem ekur hraðar en hæfni hans og ástand vegar leyfir er vísvit- andi að stofna sjálfum sér og öðrum í hættu. Hjólreiða- og bifhjólamenn. Klæðist ávallt yfirhöfnum í skærum lit og notið höfuð- hjálma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.