Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNl 1985
17
við það var vörin, Norðurkotsvör,
sem lengi var róið úr, allt fram á
4. tug aldarinnar. — Suðurkot stóð
fremst við sjóinn suð-vestanvert
við vinnustofu Sigurjóns og vestur
af staðnum, þar sem Laugarnes-
stofa stóð, og þar nokkrum spöl
austar var Suðurkotsvör, sem nú
er búið að fylla, en var einnig lengi
notuð. — Þegar Jarðabókin var
skrifuð, 1703, greiddust leigur eft-
ir kotið í formennsku, og hefur
bóndinn, Narfi Sveinbjarnarson,
verið formaður á skipi eiganda
Laugarness, sem gekk frá Hlíð-
arhúsum.
Barnhóll var þriðja hjáleigan,
sem stóð drjúgan spöl norðaustan
við Laugarnesbæinn, við sam-
nefndan klettahól skammt frá
húsinu Hólum og nærri hliðinu
inn á svæði Olís. — Þar sjást ekki
lengur öruggar byggingarleifar
hjáleigunnar, en bærinn hefur
sennilegast staðið sunnan undir
hólnum, þar sem síðar voru gerðir
kálgarðar.
Þótt búið sé að ganga mjög á
heimaland Laugarness með bygg-
ingum, gatnagerð og ýmsum
framkvæmdum, er þó enn eftir
partur af Laugarnestúninu. Það er
enn nytjað, enda hestabúskapur
enn í Laugarnesi, og enn er búið í
gamla Laugarneshúsinu, og hefur
því að öllum líkindum haldizt
óslitin byggð i Laugarnesi hinu
gamla frá því að Hallgerður bjó
þar á síðari hluta 10. aldar og Þór-
arinn Ragabróðir á undan henni,
þótt búskaparlag sé annað nú en
þá var.
Enn ber þetta landsvæði nokkuð
af hinu gamla og óspillta svip-
móti, og er Laugarnestáin að
verða nánast eina strandlengjan á
norðanverðu Seltjarnarnesi hinu
forna, sem enn er óspillt af fram-
kvæmdadug nútímans. Þarna má
enn sjá dæmigert gamalt tún með
beðasléttum frá um aldamót, mýr-
arsund og mólendi þótt í litlu sé,
og enn verpa farfuglar þarna í
nesinu. Þarna eru að kalla einu
hjáleigurústirnar, sem benda má á
innan bæjarlandsins nú sem kom-
ið er, og hinar einu, sem nokkur
von er til að sýna megi til fram-
búðar.
Langt mun síðan ákveðið var að
varðveita Laugarnestangann sem
útivistarsvæði, óskertan frá því
sem nú er. Er það vel, því að þarna
eru ekki einungis sögulegar og
menningarsögulegar minjar, held-
ur er hér eitt fegursta útsýni bæj-
arlandsins, þótt ekki beri hátt, þar
sem sjá má allt frá Esju og suður
undir Garðskaga, með eyjarnár
Viðey, Engey og Akurey grasi
grónar og hvanngrænar i hafflet-
inum, og engin mannaverk ber á
milli. Á fögru kvöldi um sólstöð-
urnar er vart unaðslegri blettur
hér nærhendis, og væri óskandi,
að við getum talið okkur hafa efni
á að eiga þennan blett óskertan
frá því sem nú er og að við getum
afhent hann, kannske örlítið
snyrtilegri, í hendur arftaka
okkar.
Höfundur er þjódminjavörður.
nógu er að snúast, en ég kann
starfinu vel. Ég er eigin hús-
bóndi, ræð mér sjálfur, en má
ekki veikjast — þá kemur blaðið
ekki út,“ sagði Jóhannes.
— Hvernig er að gefa út blað í
2.500 manna bæjarfélagi eins og
Húsavík?
„Hér þekkja allir alla. Það
kemur vissulega fyrir, að við
komumst í fréttir, sem ekki mega
fara í loftið. Það getur verið
óþægilegt að sitja á fréttum."
— Hver ræður þá mestu; rit-
stjórinn, útgefandinn eða fram-
kvæmdastjórinn?
„Ég held að ritstjórinn ráði
mestu — yfirleitt er það ekki svo
að hagsmunir annarra ráði ferð-
inni. Reksturinn stendur í járn-
um — útbreiðslan stendur undir
1 lk starfskrafti, eins og stundum
er sagt. Með mér í hálfu starfi er
Antonía Sveinsdóttir, sem sér
um auglýsingasöfnun og fleira.
Um 30% tekna okkar koma í
gegn um auglýsingar, áskriftir
einar standa ekki undir kostn-
aði.“
Tilboðsverð á IMordmende:
INlú getur þú eignast sjónvarp
eða myndbandstæki með
aðeins 8.000 króna
utborgun. Eftirstöðvar
greiðast á átta mánuðum
Staðgreitt kostar myndbandstækið aðeins kr. 39.980
Sjónvörpin eru til i mörgum stærðum og fást einnig á
sérlega hagstæðu staðgreiðsluverði.
Notaðu tækifærið og tryggðu þér nýtt Nordmende á
góðum kjörum.
NORDMENDE
SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800